Fréttablaðið - 04.05.2022, Page 18
Grunnverð: 6.990.777 kr.
Hestöfl: 230
Tog: 350 Nm
Upptak 0-100 km: 8,3 sek.
Hámarkshraði: 193 km
CO2: 140 g/km
L/B/H: 4.515/1.865/1.650 mm
Hjólhaf: 2.680 mm
Veghæð: 172 mm
Farangursrými: 587 lítrar
Kia Sportage HEV
KOSTIR
n Mælaborð
n Aksturseiginleikar
GALLAR
n Hólf í hurðum
n Útsýni í blinda svæðið
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
njall
@frettabladid.is
Kia Sportage kom fram á
sjónarsviðið í sinni fimmtu
kynslóð í miðjum heimsfar-
aldri síðastliðið vor. Um afar
vel útfærðan bíl er að ræða
sem lítið er út á að setja.
Fimmta kynslóð Kia Sportage
var kynnt í fyrrahaust og ekki er
langt síðan hann kom á markað
á Íslandi. Bílablaðamaður Frétta-
blaðsins er orðinn svo gamall í
hettunni að hann man ennþá eftir
að hafa prófað fyrstu kynslóð jepp-
ans þegar hann kom á markað hér-
lendis við opnun Kia umboðsins
í Hafnarfirði. Síðan hefur mikið
vatn runnið til sjávar og merkið
nú það vinsælasta á Íslandi og náði
meira að segja að velta hinu þaul-
sætna Toyota-merki út toppsætinu
í fyrra. Nýr Sportage er smíðaður í
Evrópu fyrir Evrópubúa og byggir
á sama grunni og náskyldur ætt-
ingi hans, Hyundai Tucson, sem
einnig verið hefur vinsæll hér-
lendis undanfarið.
Innanrými Sportage er vel
hannað og með sömu tveimur
12,3 tommu skjáunum og eru í
EV6 í dýrari útfærslunum. Stutt
er í allar aðgerðir og f ljótlegt og
einfalt að komast í þær allar. Loks
er sérstakt snertiskjáborð fyrir
stjórnbúnað miðstöðvar sem ein-
faldar notkunina. Auðvelt er að
stilla sæti og stýri fyrir hvern sem
er og sætin eru stór og þægileg.
Nokkuð er um geymsluhólf en
lítil hliðarhólf eru í hurðum ef
maður á að vera smámunasamur.
Meðal sniðugra lausna í bílnum
er hvernig framsæti er hannað
fyrir aftursætisfarþegana. Hægt
er að koma fyrir síma eða litlum
iPad í höfuðpúðanum svo að hægt
sé að horfa án þess að vera með
hausinn ofan í bringu. Auk þess
eru USB-tengi í bakinu og krókur
fyrir minni hluti. Farangursrými
er vel hannað og rúmgott þó það
nái ekki þeim 620 lítrum sem í
boði eru í Tucson. Útsýni er ágætt
út úr Kia Sportage, sérstaklega
fram á við en stórir bitar við aftur-
hlera skyggja svolítið á útsýni
yfir á blinda svæðið í speglunum.
Sem betur fer eru hliðarspeglar af
stærri gerðinni til að bæta aðeins
fyrir það.
Kia Sportage ber nafn með rentu
en hann er með betri jepplingum
þegar kemur að aksturseigin-
leikum. Hann leggst ekki mikið í
beygjum og gripið er gott auk þess
sem að stýrið gefur góða tilfinn-
ingu fyrir akstrinum. Í tvinnút-
gáfunni er bíllinn snöggur af stað
og upptakið vel viðunandi enda
hefur hann úr 230 hestöflum að
spila sem er allgott. Með 17 tommu
álfelgunum er hann ekkert voða-
lega hastur og ræður vel við flestar
þær holur sem eru í boði veg-
haldara á vorin. Hæð undir lægsta
punkt eru 172 mm sem er nokkuð
gott miðað við aðra í f lokknum.
Bíllinn er nokkuð hljóðlátur í
akstri og hjálpar hversu mikið
hann notar rafmagnið til að koma
sér af stað. Auk þess er lítið vind-
hljóð enda hurðirnar vel þéttar,
svo þéttar að stundum þarf að
skella þeim vel á eftir sér svo þær
lokist alveg.
Sportage keppir í f lokki jepp-
linga þar sem samkeppnin er hörð
og margt í boði. Má þar nefna bíla
eins og Hyundai Tucson, Mazda
CX-5, Peugeot 3008, Skoda Karoq
og Toyota RAV4. Við prófuðum
bílinn í HEV-tvinnútgáfunni sem
kostar frá 6.990.777 kr. í Style-
útfærslunni. Til þess að fá sam-
bærilegan tvinnjeppling með fjór-
hjóladrifi er hægt að fá sér Toyota
RAV4 sem kostar í þannig útfærslu
frá 7.460.000 kr. Hinn möguleikinn
er ódýrasta tvinnútfærsla Hyundai
Tucson sem er á 6.690.000 kr. ■
Í átt að fullkomnun
Nýt útlit Kia Sportage er með bjúgverpilslaga dagljósum og tígrisnefinu svokallaða. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON
Farangursrými
er kannski ekki
það stærsta í
flokknum er
rúmar 587 lítra
og er þægilegt í
notkun.
Tveir boga-
dregnir 12,3
tommu skjáir
eru áberandi í
mælaborðinu.
Vélin er 1,6 lítra og afar þýð og skilar góðu afli í bland við rafmagnið.
Miðjustokkur
er vel útfærður
en þaðan má
stjórna aksturs-
stillingum og
hita í sæti og
stýri.
4 BÍ L A BL A ÐI Ð 4. maí 2022 MIÐVIKUDAGUR