Fréttablaðið - 04.05.2022, Side 20
Að innan er helsta
breytingin í mæla-
borðinu sem er núna
komið með margmiðl-
unarskjá allt að níu
tommur að stærð.
Grunnverð: 3.090.000 kr.
Hestöfl: 71
Tog: 93 Nm
Hröðun 0-100 km: 14,9 sek.
Hámarkshraði: 160 km
CO2: 114 g/km
L/B/H: 3.700/1.740/1.525 mm
Hjólhaf: 2.430 mm
Farangursrými: 231 lítri
Eigin þyngd: 940 kg
Toyota Aygo X
KOSTIR
n Vel búinn
n Aksturseiginleikar
GALLAR
n Fótapláss aftur í
n Ekki fjórhjóladrif
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
njall
@frettabladid.is
Borgarbíllinn Toyota Aygo
er nú kominn í nýrri útgáfu
með jepplingsútliti ásamt
meiri sætishæð og mun með
tímanum leysa Aygo-smá-
bílinn af hólmi.
Síðan Toyota Aygo kom á markað
árið 2005 hefur bíllinn verið fyrsti
bíll margra. Hann var framleiddur
í samstarfi við Citroen og Peugeot
sem framleiddu sínar útgáfur en
frönsku samstarfsaðilarnir hafa nú
hætt framleiðslu og Toyota tekið
yfir verksmiðjuna í Tékklandi sem
framleiddi bílana. Framleiðsla á
þessum nýja Aygo X (borið fram
Cross) er einnig þar þó að nýi
bíllinn sé byggður á grunni Yaris.
Merkilegt nokk verður Aygo X
aðeins boðinn með bensínvél og
án neinnar rafvæðingar, en Toyota
getur leyft sér það þar sem merkið
selur svo mikið af tvinnbílum í
Evrópu.
En hvað er öðruvísi við hinn
nýja Aygo X? Jú, hann er lengri og
er nú 3.700 mm að lengd en aðal-
lega hefur hann hækkað eða um
11 mm. Einnig er byggingarlagið
þannig að sætishæð hans hækkar
um 55 mm. Bíllinn er breiðari og
hjólhafið 90 mm lengra sem aðal-
lega nýtist farþegum í framsætum.
Útlitslega er ýmislegt gert til að
hann líkist meira stærri jepp-
lingum, en tekið skal fram að Aygo
X er ekki jepplingur enda aðeins
boðinn með framdrifi. Við sjáum
stóra hjólaboga úr plasti kringum
dekkin, sem hafa stækkað upp í 18
tommur. Framendinn er líka hærri
en áður og díóðuljós gefa honum
nýtískulegan svip. Að aftan má sjá
kunnugleg einkenni eins og hliðar-
rúður sem opnast út, afturhlera úr
gleri og hástæð afturljósin.
Að innan er helsta breytingin í
mælaborðinu sem er núna komið
með margmiðlunarskjá allt að
níu tommur að stærð. Með stærri
skjánum kemur bíllinn með leið-
sögukerfi ásamt Andoid Auto og
Apple CarPlay. Sjá má eins og áður
lit bílsins í hurðum og mælaborði
en hljóðeinangrun bílsins er betri
en áður. Margt í mælaborði, eins og
stýri og miðstöðvarstjórnbúnaður,
kemur úr hinum náskylda Yaris.
Eins og áður sagði er plássið best
í framsætum og þess vegna eru
sætin stærri en áður og eru bara
nokkuð þægileg fyrir bíl í þessum
flokki. Plássið í aftursætum er
hins vegar það sama og fótaplássið
alls ekki neitt til að hrópa húrra
fyrir. Skottið er þó sæmilegt en
það rúmar 231 lítra sem er með því
betra í f lokknum.
Vélin í bílnum er að grunni til
sama þriggja strokka, eins lítra
bensínvél og áður. Hún er ekki sú
öflugasta enda skilar hún aðeins 71
hestafli og þar af leiðandi er bíllinn
næstum 15 sekúndur í hundraðið.
Hún nær þó ágætlega að halda sínu
þegar hún er komin á ferðina og er
ekki hávær, nema kannski aðeins
þegar henni er snúið nokkuð. Í
sjálfskiptu CVT-útgáfunni gerist
það vanalega í upptakinu. Bein-
skipting er eitthvað sem maður
prófar sjaldnar og sjaldnar en hún
er fáanleg í þessum bíl og búast
má við að eitthvað af sölu bílsins
verði í beinskiptum. Eins og í bíl af
þessari stærð er alvanalegt að kúp-
lingin taki frekar hátt í, en fetillinn
er léttur og skiptingar auðveldar,
sem veitir ekki af því að oft þarf
að skipta bílnum. Miðað við bíl
af þessari stærðargráðu liggur
bíllinn mjög vel í akstri og munar
þar eflaust um stærri dekk og þá
staðreynd að hjólin eru utar en
áður. Eru aksturseiginleikar líkari
því sem gerast í bílum í stærðar-
flokki eins og Hyundai Kona til
að mynda. Samt hefur hann alla
eiginleika smábíls eins og lítinn
snúningsradíus sem er aðeins 4,7
metrar.
Enginn beinn samkeppnisaðili
er við Toyota Aygo X hérlendis og
aðeins tveir aðrir bílar eru boðnir
á Íslandi í þessum stærðarflokki.
Hyundai i10 kostar frá 2.350.000
kr. en dýrasta útfærsla hans er á
2.990.000 kr. Fiat 500 er hins vegar
mun dýrari en hann kostar frá
3.990.000 kr. enda er hann aðeins
boðinn rafdrifinn hér á landi. ■
Smábíll sér á parti
Aygo X er hugsaður sem borgarbíll fyrst og fremst þótt útlitið bendi kannski til annars. MYND/TOYOTA
Farangursrými er einfalt og aðgengilegt með sama gler-
hleranum og áður en það rúmar 231 lítra.
Aðeins ein vél er í boði en það er eins lítra þriggja
strokka vél sem skilar 71 hestafli.
Mælaborðið
með níu tommu
skjánum er
alveg nýtt en í
grunninn það
sama og í Yaris.
Útlitslega er bíllinn verklegur að sjá með stórum plastbogum við hjólin og
stærri 18 tommu felgum sem eru hafðar utar en áður.
6 BÍ L A BL A ÐI Ð 4. maí 2022 MIÐVIKUDAGUR