Fréttablaðið - 04.05.2022, Side 30
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
1256 Alexander 4. páfi gefur út páfabréf og stofnar
Ágústínusarregluna.
1471 Orrustan við Tewkesbury er háð þar sem Lancaster-
ætt bíður ósigur fyrir York-ætt.
1803 Bjarni Bjarnason og Steinunn Sveinsdóttir frá
Sjöundá á Rauðasandi eru bæði dæmd til lífláts fyrir
að myrða maka sína árinu áður.
1880 Jón Sigurðsson forseti og Ingibjörg Einars-
dóttir kona hans eru
jarðsett í Reykja-
vík við hátíðlega
athöfn.
1948 Hvalstöðin í Hvalfirði
hefur starfsemi.
1979 Margaret Thatcher
tekur við embætti
forsætisráðherra Bret-
lands, fyrst kvenna.
1981 Hönd er grædd á
stúlku eftir vinnuslys, í
fyrsta sinn á Íslandi.
1986 Solveig Lára Guð-
mundsdóttir er fyrst
íslenskra kvenna til
að sigra í prestskosn-
ingum.
2007 Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs er
stofnuð við Keflavíkurflugvöll.
2011 Fyrstu tónleikarnir eru haldnir í Hörpu.
Merkisatburðir
Þrándur Þórarinsson opnar nýja
sýningu í safnaðarheimili Nes-
kirkju um næstu helgi þar sem
Hólavallagarður er skoðaður frá
ýmsum vinklum.
arnartomas@frettabladid.is
Hólavallagarður er viðfangsefni lista-
mannsins Þrándar Þórarinssonar sem
opnar nýja sýningu í safnaðarheimili
Neskirkju næsta sunnudag. Þar verða
til sýnis fimmtán málverk sem tengjast
kirkjugarðinum með einum eða öðrum
hætti.
„Ég bý á Ljósvallagötu og horfi yfir
kirkjugarðinn á hverjum degi,“ segir
Þrándur. „Mér fannst það ríma ágæt-
lega við kirkjuna að vera með sýningu
tengda garðinum. Ég hef mikið verið að
mála landslagsmyndir í gegnum tíðina
og datt í hug að prófa þetta.“
Hólavallagarður er að mati Þrándar
einn af fallegri stöðum borgarinnar.
„Miðað við önnur nágrannalönd þá
komumst við ekki jafnmikið í snertingu
við söguna í nærumhverfi okkar,“ segir
hann. „Það var kjörið að hafa þessa vin
í borginni sem þema, þar sem sýningin
er í safnaðarheimilinu þar sem er mikið
um erfidrykkjur og annað.“
Verkin segir Þrándur vera blanda af
skáldamyndum úr garðinum annars
vegar og hins vegar fólkinu sem hvílir þar.
„Ég kafaði í smá heimildarvinnu
fyrir sýninguna og hafði gaman af því,“
segir hann. „Það eru þarna fjórar stórar
myndir af Klukknahúsinu sem er fyrir
miðju garðsins, ein fyrir hverja árstíð,
sem mér fannst viðeigandi í samhengi
við hringrás lífsins.“
Krassandi kósíkvöld
Auk sýningarinnar hefur Þrándur einn-
ig verið önnum kafinn við að mála
nýtt verk af endurteknu yrkisefni sínu,
Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra.
„Það koma alltaf ný og ærin tilefni til
að mála af honum mynd,“ segir Þrándur
spurður hvort hann sé ekki að fara að
verða kominn með nóg af Bjarna. „Það er
ekki eins og ég sé með hann á heilanum
en þegar hann er alltaf að gera eitthvað
af sér þá verð ég að gera mér mat úr því
og það höfðu allir svo gaman af hinum
verkunum.“
Á fyrri verkum Þrándar af Bjarna mátti
annars vegar sjá fjármálaráðherrann
kyssa hringinn á Þorsteini Má Baldvins-
syni, forstjóra Samherja, og hins vegar
klæða sig í nábrók. Myndirnar vöktu
mikið umtal og sitt sýndist hverjum. En
hvað er Bjarni að gera í nýja verkinu?
„Þetta er kökuboð hjá Bjarna þar sem
hann er að skreyta köku eins og í kosn-
ingaauglýsingum fyrri daga,“ útskýrir
Þrándur. „Nú er þetta Glitnis-kaka og
það má sjá Benedikt Sveinsson, pabba
hans, að skammta sér af henni. Svo
glittir í Hjalta Sigurjón Hauksson, fjöl-
skylduvin þeirra sem Benedikt tók þátt
í að veita uppreist æru fyrir kynferðis-
brot. Þetta er bara svona kósíkvöld og
kökuboð.“
Þá er Þrándur með annað verk í bígerð
þar sem má finna formenn stjórnar-
f lokkanna í hlutverki þjófóttu bræðr-
anna Kaspers, Jespers og Jónatans sem
gerðu garðinn frægan í Kardemommu-
bænum.
„Ég næ kannski ekki að klára þá mynd
strax en hún verður tilbúin fyrir kosn-
ingarnar.“ ■
Kirkjugarður og kökuboð
Verk Þrándar vekja oftar en ekki mikið umtal og sitt sýnist hverjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Börnin og
Dauðinn.
Klukknahús í Hólavallagarði (Haust).
Guðrún Odds
tekur á móti
Þorbjörgu
Sveins.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma, systir, mágkona og frænka,
Sigrún Hallgrímsdóttir
Furugerði 1, Reykjavík,
lést á líknardeild LSH í Kópavogi
laugardaginn 23. apríl.
Útförin mun fara fram frá Digraneskirkju
fimmtudaginn 12. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Kristniboðssambandið.
Bryan Allen Smith Nelly Nguyen
Halla Marie Smith Anton Rafn Ásmundsson
Elisabeth Rökkurdís Mai og Sigrún Rós
Valgerður Hallgrímsdóttir Torfi Dan Sævarsson
Ármann Snær Torfason Agnes Björg Sigurðardóttir
Snærún Tinna Torfadóttir
Anton Smári og óskírður drengur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Jóna Árnadóttir
lést á Hjúkrunarheimilinu Grund
þann 17. apríl. Útför hennar fer fram
frá Digraneskirkju þann 10. maí kl. 13.00.
Innilegar þakkir færum við starfsfólkinu
á deild V3 á Grund fyrir góða umönnun.
Björk Níelsdóttir Sverrir Þór Sverrisson
Sigurbjörg Níelsdóttir Ólafur Helgi Jónsson
Árni Níelsson Margrét Eysteinsdóttir
Jens Níelsson Elísabet María Jónsdóttir
María Níelsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
Inga Gústavsdóttir
Víkurbraut 3,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum
á Selfossi fimmtudaginn 28. apríl.
Útför Ingu fer fram frá Víkurkirkju í Vík
í Mýrdal laugardaginn 7. maí klukkan 13.
Guðl. Gunnar Einarsson
Gústav Smári Guðmundsson Emilía Guðmundsdóttir
Gunnar Bjarki Guðlaugsson Auður Svansdóttir
og barnabörn.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 4. maí 2022 MIÐVIKUDAGUR