Fréttablaðið - 04.05.2022, Síða 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur
n Bakþankar
„Guð skapaði mömmur af því að
hann hafði ekki nógu mikinn tíma
sjálfur,“ sagði lítill drengur ein-
hvern tíma og hafði rétt fyrir sér.
Mæður eru yfirleitt mestu áhrifa-
valdar í lífi barna sinna og það er
engin tilviljun að þegar ást milli
tveggja einstaklinga sleppir eru
flest ljóð, lög og sagnir um mæður
og sambandið við börn þeirra.
Sjálf er ég eins og margur allra
heppnust með mína móður. Ástin,
stuðningurinn og hlýjan er sú
sama nú þegar ég er komin yfir
fimmtugt og hún var þegar ég
var barn, unglingur og ung kona.
Fátt hefur eins mikla aðlögunar-
hæfni og hennar skilyrðislausa
móðurást. Það er sama hvað áföll
mæta manni, mamma er fyrst á
staðinn og síðust heim. Raunar
gildir það sama um gleðiviðburði,
enginn gleðst eins hjartanlega
og mamma þegar mér, barninu
hennar – barnungu eða rígfull-
orðnu – vegnar vel. Þetta þekkja
velf lestar mæður og blessunarlega
börnin þeirra líka.
Aðstæður mæðra eru þó alla-
vega. Sumar hafa stuðning maka
sinna – en aðrar standa nánast
einar og óstuddar í þessu mikil-
væga hlutverki. Það er engin til-
viljun að það voru mæður sem
stofnuðu Mæðrastyrksnefnd til að
styðja mæður og börn sem misst
höfðu fyrirvinnu sína. Ríf lega 80
árum síðar var stofnaður Mennt-
unarsjóður Mæðrastyrksnefndar
sem styður tekjulágar mæður/
konur til náms, svo þær geti bætt
framtíðarhorfur sínar og barna
sinna. Nú hefur sjóðurinn sölu á
fallegum kertum með leyniskila-
boðum til styrktar starfseminni
sem tilvalið er að lauma til
mömmu á sjálfan mæðradaginn,
8. maí. Upplýsingar má finna á
heimasíðu Mæðrastyrksnefndar.
Mamma er best. n
Mamma
Hönnunarmars. 5.–8. maí. Laugavegur 17-19.
Opnun 5. maí 16:00-18:00.
Þrjár innsetningar
Flétta — Erm — Valdís Steinars
Valdís Steinars × 66°Norður
sinfonia.is
Hljómsveitarstjóri John Adams
Einleikari Víkingur Heiðar Ólafsson
VÍKINGUR OG
JOHN ADAMS
KL. 19:30 05 |05
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN