Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 20224
FRÉTTIR
Fagfundur sauðfjárræktarinnar
var haldinn 7. apríl á Hvanneyri.
Venju samkvæmt voru veitt
hrútaverðlaun sæðingastöðvanna,
sem telja má til þeirra æðstu í
sauðfjárræktinni. Að þessu sinni
var Amor 17-831 frá Snartarstöðum
II valinn besti lambafaðirinn
og Drangi 15-989 frá Hriflu
útnefndur besti kynbótahrúturinn.
Í fyrsta skipti var nú einnig besta
sauðfjárræktarbúið verðlaunað
og hlotnaðist Þoroddsstöðum í
Hrútafirði sá heiður.
Veglegur farandgripur var veittur
fyrir besta sauðfjárræktarbúið. Þau
verðlaun eru veitt úr minningarsjóði
Halldórs Pálssonar en sauðfjárdeild
Bændasamtaka Íslands stendur
fyrir því að þessi verðlaun eru nú
veitt. Sauðfjárræktarráðunautar
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins
(RML) sjá um val á verðlaunahöfum,
sem byggir á reglum sem samþykktar
hafa verið af fagráði sauðfjárræktar.
Þeir gera einnig grein fyrir
rökstuðningi sem hverjum grip fylgir.
Um gerð umsagna og veitingu
verðlauna sáu ráðunautarnir Eyþór
Einarsson, Árni B. Bragason og
Eyjólfur Ingvi Bjarnason.
Afkvæmin hafa holdfyllt bak
og frábær lærahold
Að sögn Eyþórs byggir val á besta
lambaföður á niðurstöðum dóma frá
haustinu 2021. „Horft er til þeirra hrúta
sem áttu yfir 100 fullstigaða syni.
Við valið er tekið tillit til flokkunar
lambanna, fallþungaeinkunnar og
kynbótamats en hrútarnir þurfa að
standast ákveðnar lágmarkskröfur.
Áhersla er lögð á góða útkomu úr
ómmælingum og stigun lambanna.
Ræktendur Amors 17-831 frá
Snartarstöðum II í Núpasveit,
þau Helgi Árnason og Sigurlína
Jóhannesdóttir, hreppa hnossið fyrir
besta lambaföðurinn. „Faðir Amors
er Börkur 13-952 frá Efri-Fitjum og
móðurfaðir hans er Korni 10-520
frá Þverá. Amor kom á sæðingastöð
haustið 2018 og fékk góða notkun tvö
fyrstu árin. Heldur dró svo úr ásókn
í hann í vetur og spilar þar örugglega
inn í að dætur Amors mættu sýna meiri
mjólkurlagni. BLUP kynbótamat
hans fyrir gerð, fitu, frjósemi og
mjólkurlagni er í sömu röð: 121 –
107- 105 – 101,“ segir Eyþór.
„Afkvæmi Amors hafa einkar
holdfyllt bak og frábær lærahold.
Öflug gerðin kemur skýrt fram í
góðri flokkun sláturlamba og fáir
stöðvahrútar skjóta honum þar ref fyrir
rass. Vænleiki lambanna er góður.
Hann getur gefið hreinhvít lömb
með prýðilega ull. Við val Amors
var horft til þess að enginn af þeim
hrútum sem til álita komu skila jafn
þykkum bakvöðva, en um 200 synir
hans mældust með 32,9 mm þykkan
vöðva sl. haust,“ segir í umsögninni
um Amor.
Dætur sem skila góðum vænleika
Að sögn Eyþórs er besti
kynbótahrúturinn valinn út frá alhliða
reynslu en sá sem er útnefndur þarf
að hafa verið öflugur bæði sem
lambafaðir og ærfaðir. „Að lágmarki
þarf að vera komin tveggja ára
reynsla á dætur hrútsins sem til eru
komnar í gegnum sæðingar. BLUP
kynbótamat hrútsins þarf að vera
að lágmarki 105 stig fyrir gerði og
mjólkurlagni dætra og 100 stig fyrir
fitumat og frjósemi.
Einnig er horft til vænleika
afkvæmanna,“ segir Eyþór.
Ræktandi Dranga 15-989 eru
Vagn Sigtryggsson sem á því
heiðurinn af besta kynbótahrútinum
ásamt Hriflubúinu í Þingeyjarsveit.
„Faðir hans er einnig frá Hriflu en
það er Dreki 13-953. Drangi er því
þriðji hrúturinn í beinan karlegg til
að hljóta viðurkenningu sem mesti
kynbótahrúturinn en Dreki hlaut
þann heiður árið 2019 og Grábotni
06-833 árið 2013. Drangi var valinn
inn á sæðingastöð sumarið 2017 eftir
að hafa sýnt frábæran árangur sem
lambafaðir heima í Hriflu. Því miður
entist honum ekki aldur til að þjóna á
stöðvunum nema eitt ár en þann vetur
voru tæpar 700 ær sæddar við honum.
Drangi skilaði þroskamiklum
lömbum með þykkan bakvöðva
og ágæt lærahold. Þau vor fremur
fitulítil. BLUP kynbótamat hans
fyrir gerð stendur nú í 109 stigum og
fyrir fitu 113 stigum. Dætur hans hafa
verið prýðilega frjósamar og skilað
mjög góðum vænleika. Kynbótamat
hans fyrir frjósemi stendur í 103
stigum og fyrir mjólkurlangi í 112
stigum,“ segir Eyþór.
Í umsögn um Dranga segir:
„Drangi er sannarlega einn af
öflugustu alhliða kynbótahrútum
stöðvanna og er vel að því kominn að
vera útnefndur „mesti kynbótahrútur
sæðingastöðvanna árið 2021“.
Þóroddsstaðir ræktunarbú ársins
Í fyrsta sinn voru veitt verðlaun fyrir
besta sauðfjárræktarbúið á fagfundi
sauðfjárræktar. Að sögn Eyþórs var
búið valið út frá heildareinkunn
kynbótamats en aðeins koma til
greina bú sem standast ákveðin
skilyrði. „Einungis er horft til búa
með 100 eða fleiri fullorðnar ær.
Afurðir þurfa að hafa verið yfir
landsmeðaltali. Frjósemi sé yfir 1,9
lamb á hverja fullorðna á og 0,9 á
veturgamla á.
Gerð sláturlamba sé yfir 9,2 í
einkunn og fitan sé á bilinu 5,4
til 7,6. BLUP kynbótamat ánna
þarf að vera að meðaltali yfir 100
stigum fyrir gerð, fitu, frjósemi
og mjólkurlagni. Reiknuð er
heildareinkunn kynbótamats fyrir
ær fæddar á bilinu 2011 til 2020
og er búunum raðað upp eftir þeirri
einkunn. Þegar heildareinkunn er
reiknuð er sett þak á kynbótamat
fitu við 110 stig og frjósemi við 120
stig,“ segir Eyþór.
Ætíð mjög góðar afurðir
Gunnar Þórarinsson og Matthildur
Hjálmarsdóttir hafa staðið að
búrekstrinum á Þóroddsstöðum.
Í umsögn RML sem fylgir
verðlaununum segir: „Búið á
Þóroddsstöðum hefur lengi verið
mjög virkt í ræktunarstarfi sauðfjár
á Íslandi. Þar hafa nokkrum sinnum
verið haldnar afkvæmarannsóknir
úrvalshrúta í Miðfjarðarhólfi fyrir
sæðingastöðvarnar en að auki
hefur búið verið þátttakandi í
afkvæmarannsókn nánast árlega
síðan skipulegar afkvæmarannsóknir
í núverandi mynd hófust árið 1999.
Frá búinu hafa komið nokkrir
hrútar á sæðingastöð gegnum
tíðina. Þeir eru: Ljóri 95-828,
Oddur 02-942, Bósi 08-901, Gutti
13-984, Kappi 16-839 og Sammi
16-841. Einkenni á mörgum gripum
sem koma frá Þóroddsstöðum er
hversu sterkir þeir eru til kynbóta á
mæðraeiginleikum, þ.e. frjósemi og
mjólkurlagni dætra. Í dag eru helstu
ættfeður á Þóroddsstöðum byggt
á greiningu ætternisgagna búsins
þeir Sammi 16-841 og Bósi 08-901.
Þeim að baki eru eldri höfðingjar
eins og Lóði 00-871, Hörvi 92-972
og Strammi 83-833 enn mjög
áhrifamiklir ættfeður í framræktun
hjarðarinnar á Þóroddsstöðum.
Auk þess að hafa verið mjög virkt
í ræktunarstarfi sauðfjár gegnum árin
hafa afurðir á Þóroddsstöðum ætíð
verið mjög góðar. Því til staðfestingar
er búið eitt fárra búa sem hefur alltaf
náð inn á lista yfir Úrvalsbú hjá RML
sem hefur verið birtur síðan 2013.
Sauðfjárbúið Þóroddsstaðir í
Hrútafirði er því vel að þessum
verðlaunum komið sem ræktunarbú
ársins 2021.“
/smh
Minningarsjóður Halldórs Pálssonar gefur
verðlaunagripinn fyrir besta ræktunarbúið
Minningarsjóður Halldórs
Pálssonar gefur verðlaunin í
minningu Halldórs Pálssonar
og heiðrar þar með hans mikla
ævistarf sem m.a. lagði grunninn að
þeim miklu framförum sem orðið
hafa í kynbótastarfi í sauðfjárrækt
síðustu áratugina.
Einn af þekktustu vísindamönnum
þjóðarinnar
Halldór var einn af þekktustu
vísindamönnum þjóðarinnar. Hann
lauk doktorsprófi frá Háskólanum
í Edinborg 1938. Doktorsverkefnið
var á sviði vaxtarlífeðlisfræði
sauðfjár og fjallaði ritgerðin um
kjötgæði og kjöteiginleika skoskra
sauðfjárkynja og samanburð við
eiginleika íslenska fjárins. Verkefni
sitt vann Halldór undir leiðsögn hins
þekkta búfjárræktarmanns dr. John
Hammonds.
Búnaðarmálastjóri
Árið 1937 hóf Halldór störf hjá
Búnaðarfélagi Íslands og starfaði
þar allt til ársins 1980. Fyrst sem
sauðfjárræktarráðunautur og síðar
sem búnaðarmálastjóri. Halldór kom
að stofnun sauðfjárræktarbúsins að
Hesti í Borgarfirði árið 1943. Halldór
skildi eftir sig mikið ævistarf, hvort
sem horft er til verkefna hans á sviði
búfjárrannsókna en ekki síður í starfi
sínu sem búnaðarmálastjóri. Það er
því vel við hæfi að heiðra minningu
og ævistarf Halldórs Pálssonar með
því að kenna þessa viðurkenningu,
Halldórsskjöldinn, við hann.
Þessi veglegi skjöldur er útskorinn
af Sigríði Jónu Kristjánsdóttur,
Siggu á Grund. Sigga er uppalin í
Villingaholti í Flóa, dóttir Ingvars
Kristjáns Jónssonar og Grétu
Svanlaugar Jónsdóttur. Sigga hefur
stundað útskurð frá því að hún var
barn og var farin að skera út eftir
pöntunum þegar hún var 12 ára.
Sigga hefur unnið bæði úr horni og
tré. Hún er í grunninn sjálfmenntuð
en stundaði nám við City and Guilds
Art School í London. Siggu var
veittur Riddarakross hinnar íslensku
fálkaorðu 1. janúar 2010. Sigga er einn
færasti útskurðarmeistari landsins og
er verk eftir hana að finna úti um allt
land. Hún hefur einstakt lag á því að
skera út sauðfé og hross og hefur oft
verið leitað til hennar til að skera út
verðlaun fyrir hin ýmsu tilefni.
Amor 17-831 frá Snartarstöðum II var
valinn besti lambafaðirinn.
Mynd / Aðsend
Drangi 15-989 frá Hriflu var útnefndur
besti kynbótahrúturinn.
Mynd / Aðsend
Verðlaunahafarnir; Sigurlína Jóhannesdóttir, Snartarstöðum II, Gunnar
Þórarinsson, Þóroddsstöðum og Vagn Sigtryggsson, Hriflu. Mynd / Unnsteinn Snorri
Fagfundur sauðfjárræktarinnar:
Amor og Drangi bestu kynbótahrútarnir
– Þóroddsstaðir útnefnt besta ræktunarbúið, en einkenni margra gripa frá búinu hversu sterkir þeir eru til kynbóta á mæðraeiginleikum
Þóroddsstaðir í Hrútafirði. Mynd / HKr.