Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 2022 47
Fyrstu daga apríl mátti sjá í
ýmsum bæjarfélögum vélsópa
þrífa með kantsteinum, en mér
fannst biðin eftir að sjá eða að
heyra í vélsóp í höfuðborginni
löng í samanburði við önnur
bæjarfélög. Get ekki komist hjá
því að nefna það að í tvo daga í
röð stuttu fyrir páska þurfti ég
að fara í Borgarnes vinnu minnar
vegna og í báðum þessum ferðum
sá ég vélsóp vera að sópa götur
Borganess og lítinn vélsóp vera að
sópa bílaplan, en þetta bæjarfélag
var langsnyrtilegasta bæjarfélagið
sem ég hafði komið í þetta vorið á
þessum tíma.
Sú hugsun kom upp í höfði mínu
að sú borg sem fyrst væri búin að
sópa allar götur og gangstéttir ætti
að verðskulda umhverfisverðlaun
ársins og verðlaunin væru umtöluð
og vegleg, gæti það orðið til þess
að þokkalegur afrakstur yrði á
stóra plokkdeginum, víða mátti sjá
svona síðasta sunnudag. Keppni í
snyrtimennsku væri almennri og
metnaðarfyllri. Einhvern veginn
finnst manni stundum eins og öllum
sé sama um óþrifnaðinn og draslið
í vegköntunum, bæði fyrir utan veg
og á vegum, en í mínum huga þetta
vorið á Borgarnes vinninginn.
Með ólíkindum hvað mikið rusl
er í öllum vegköntum
Ég fer víða vinnu minnar vegna og
er duglegur að ferðast og það gleður
mig alltaf að sjá fólk sem er að tína
rusl í vegköntum. Í vinnunni þarf ég
stundum að dæla röngu eldsneyti af
bílum í vegköntum við þjóðvegi og
á meðan dælan dælir er oft þetta 10-
30 mínútna bið, þá rölti ég stundum
fram eða aftur fyrir bílinn og tíni rusl
í vegkantinum. Það er nánast sama
hvar maður stoppar, það tekur ekki
nema um 10 mínútur að fylla einn
hefðbundinn ruslapoka.
Í byrjun apríl þurfti ég að aðstoða
mann rétt norðan Hvalfjarðarganga,
nánar tiltekið um 100 metra inn á
veginum að Akranesi. Í nálægt 30
mínútur vorum við að vinna við
bílinn og á meðan sáum við mann
sem hafði lagt í vegkantinn um 100
metrum frá okkur vera að tína rusl
í vegkantinum. Frá þeim stað sem
hann lagði og að hringtorginu við
norðurenda Hvalfjarðarganga voru
um 200 metrar. Á þessari stuttu
vegalengd kom hann klyfjaður með
að mér sýndist þrjá fulla plastpoka,
búinn að tína rusl beggja vegna við
veginn á aðeins 300 metrum.
Ófögur sjón stutt frá álverinu í
Straumsvík
Sumt fólk hagar sér skammarlega
gagnvart náttúrunni, en fyrir
nokkrum dögum ók ég vegslóða
stutt frá álverinu í Straumsvík og
allt í einu blasti við mér ófögur sjón.
Heilum bílfarmi af rusli hafði verið
hent í vegkantinn á vegslóðanum,
hreint skelfileg framkoma við
náttúruna. Miðað við magnið af
ruslinu þarf ekki að skoða það lengi
til að finna nafn þess sem þetta rusl á,
eflaust hefur þessi hrúga verið minni
þegar þetta var losað, en mávur og
hrafn hafa gatað marga pokana og
dreift ruslinu enn frekar. Afskaplega
dapurt að sjá svona umgengni.
Stóri plokkdagurinn
er flott framtak
Síðastliðinn sunnudag var
áberandi viðburður sem nefndur
er „Stóri plokkdagurinn“, sem
hófst formlega í Gufunesi þar sem
umhverfisráðherra Guðlaugur Þór
hóf daginn með sinni þátttöku í að
plokka rusl á víðavangi. Seinni part
sunnudagsins mátti sjá mjög víða í
vegköntum afrakstur dagsins og fyrir
mér virtist þetta vera heldur meira
en á síðasta ári.
Rusl er alls staðar og margir
hópar og einstaklingar tína rusl
reglulega og oft má sjá fólk í vissum
bæjarfélögum og hverfum vera að
tína rusl á sama staðnum aftur og
aftur (einhvern veginn finnst mér
mesta ruslið alltaf vera í nágrenni við
bensínstöðvar, sjoppur og verslanir
sem eru opnar allan sólarhringinn.
Ég tel það ekki neina frekju í mér
að biðla til stjórnenda á þessum
ofangreindu stöðum að tína rusl
oftar. Síðan er það spurning sem
mætti huga að hvort einn stór plokk-
dagur sé nægur, en við gætum haft
apríl sem „Plokkmánuð“ sem tæki
við af „Mottumars“.
OG VINNUM ÚR ÞEIM
LAUSNIR
TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI
VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði
Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Bænda
Smáauglýsingar 56-30-300
SJÓÐA RÖST RÓGUR DAGSETUR ÁLÍTA DREIFT
STIL-
HÖGUNAR K I P U L A G S SÖGU
YÞYRFTI R Ð I DREN A F R Á S
RGORT A U MÓÐGA
VITLEYSA S T U Ð A
U AÐ BAKI
HÓGVÆR A F T A N VÍÐÁTTA G
B BAND
DRYKKUR
TVEIR EINS G A M B R I HEITI
ANNARS N A F N
KRYDDMYRKVAST
TÍ RÖÐ
BRODD
P
A G N A STING
VÍTA A L LITÞROTA R E N
TÓNN
RÍKI Í
AFRÍKU L APÍNU-
LÍTILLA
L A N D S TITILL
FJAÐRA J A R L GEGNSÆR
MISMUNUR T Æ RJARÐAR
D R DUND
ÞOKKA D E D Ú MYNDABÓK
ÁVÖXTUR A L B Ú M FIKTATITILL
U N S UNDIROKA
SIÐA K Ú G A RUNNI
AMA E I N I RÞANGAÐ
TIL
R GARÐI
JARÐEFNI J A T A GAUR
VEIKI N A G L I FLÍK J
S L A G A
RÍKI Í
AFRÍKU
HVAÐ G A N A
FORSÖGN
UPP-
HRÓPUN S P ÁSKJÖGRA
B E R A
SVENGJA
SJÚK-
DÓMUR H U N G R A
RÓMVERSK
TALA
TVEIR EINS I LFÆÐA
R
Á
I
R
M
A
MASAR
N
M
S
A
RÓLEGUR
L
A
A
S
R
A
HJÚPUR
L
H
A
U
U
L
S
ASTIG
SKRAMBI
M
Y
N
D
:
G
A
B
R
IE
LE
K
O
TH
E-
H
EI
N
R
IC
H
(
CC
B
Y
-S
A
3
.0
)
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
172
HLUT-
SKIPTA PEST SKJÁTA KVÖÐ RÖLT VESÆL
MÁLA-
FYLGJA PUKRA
KK. NAFN
VIÐSKIPTI
TOG
HVÍLA
LEYNA
AUÐGA
GLUMDI
FUGL
SNÖR
SLYS
PEX
TVEIR EINS
LAUT
HRÓSS
TVEIR EINS
MONTAST
BAKKIÞVAÐRA
SKOTT
TÓNLIST
INNI-
LEIKUR
OFTAKA
FUGL
HLUTVERKI
ÓGNA
HÆRRA
REGNHÉLA
UPPHRÓPUN
MÆLI-
EININGU
TITTIRSEMSÉ
PLATA
GLUFAN
RASK
RÓGUR
HLJÓTA
ÞEI
ÓÞURFT
FLEKKA
SKORPA
ÞAR TIL
DRAUGUR
STÆKKA
FRESTA
GRENJA
ÓKYRRÐ
EINHVER
ORG
SKRIÐA
STRENGUR
HUGBOÐ
TVEIR EINS
KLINK
ÖFUG RÖÐ
MIÐJA
JURT
MÆDDI
STILLTURGNÆFA
RANNSAKA
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
173
Borgarnes er snyrtilegasta bæjarfélagið þetta vorið – þar sópa menn götur og plön af mikilli samviskusemi:
Fegrum umhverfið, umgengni við landið mætti vera betri
Það er eitthvað mikið að hjá fólki sem hagar sér svona gagnvart náttúrunni.
Þokkalegur afrakstur á stóra plokk
deginum, víða mátti sjá svona síð
asta sunnudag.
Þetta er ekkert óalgeng sjón sem
blasir við mér í vegköntum þar sem
ég er að aðstoða fólk.