Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 2022 7 Skemmtilegar blómaskreytingar settu svip sinn á Reyki. LÍF&STARF Lesendur fengu í síðasta vísnaþætti örlitla nasasjón af vísnagerð Bjarna Stefáns Konráðssonar. Hollráð er að gera Bjarna betri skil í þessum þætti. Haukur Halldórsson frá Sveinbjarnargerði, þá formaður Stéttarsambands bænda, skrapp til Bahama ásamt konu sinni Bjarneyju. Birtist mynd af honum í dagblaði þar sem hann var umkringdur fáklæddum konum á baðströnd Bahama. Bjarni Stefán orti þá þessa limru: Á dögunum hélt til Bahama, þar heillað’ann glæsileg dama. Hún fór úr að neðan og frýsaði á meðan svo formanni stóð - ekki á sama. Eitt sinn stóð Bjarni Stefán framan við lyftu Bændahallarinnar og var þar í samræðum við mann inni í lyftunni. Þórólfur Sveinsson, varaformaður Bænda­ samtakanna, kom þar að, en í því lokaðist lyftan svo Þórólfur sá aldrei viðmælanda Bjarna Stefáns. Því spurði Þórólfur: „Ertu nú farinn að tala við lyftur, Bjarni minn?“ Bjarni Stefán orti af þessu tilefni: Bjarni er býsna vel giftur en brjóstviti mest öllu sviptur, sem hrakandi fer því fávitinn er farinn að tala við lyftur. Næstu vísu nefnir Bjarni Stefán „Mannasiðir“. Efnistök stökunnar vekja einmitt upp vangaveltur um handabandið, sem á Covid­tímum hefur nánast verið bannað: Að heilsa með handabandi er helvíti góður siður og það væri mikið miður ef myndi hann leggjast niður. Um Hrafnkel Karlsson, bónda á Hrauni í Ölfusi og stjórnarmann í Bændasamtökum Íslands, orti Bjarni Stefán: Í Ölfusinu er alltaf nóg af illum fnyk og dauni, við búandhokur baukar þó og býr á Litla-Hrauni. Gísli Rúnar Konráðsson frá Frostastöðum, bróðir Bjarna Stefáns, er auðvitað frjósamur vísnagerðarmaður líkt og margir þeirrar ættar. Ugglítið myndu margir vilja bera þetta einstaka skopskyn sem þessi vísa Gísla geymir og ort var á ættarmóti Frostastaðaættarinnar: Kynjagripi ættin hefur alið og ekki gott við þvílíku að gera. En frændur sína fær víst enginn valið þó fjarskyldari sumir mættu vera. Það sykrast til mín vísur frá Ingólfi Ómari Ármannssyni. Nú er sá hraðkvæði Skagfirðingur genginn vorinu á vit í næstu tveimur vísum: Vonir kvikna, vaknar þrá vetrarkyljur þagna. Kvaka þrestir kvistum á komu vorsins fagna. Vekur lýði vorsins tíð, verma þíðar stundir. Brumar víðir, brosir hlíð blómum skrýðast grundir. Í hús mín barst nýlega vísnakver eftir Svein Skagfjörð Pálmason. Sveinn er fæddur á Reykjavöllum í Skagafirði, og hefur ort þétting af lausavísum um dagana. Sveinn hefur verið mjög virkur í sönglífi, og margar af stökum hans tengjast kórstarfi og kórferðalögum. Á þorrablóti skagfirsku söngsveitarinnar var eitt sinn efnt til spurningakeppni. Sveinn var spurður hvort takmarka ætti barneignir: Öll þau takmörk eigi vil, sem ástarleiki þvinga. Best væri þó að búa til bara Skagfirðinga. Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com 296MÆLT AF MUNNI FRAM Vilmundur Hansen, blaðamaður Bænda- blaðsins og garðyrkjufræðingur, hlaut Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar 2022 sem afhent voru á opnu húsi Garðyrkju - skólans að Reykjum á sumardaginn fyrsta. Vilmundur, sem er fyrrum nemandi skólans, hefur m.a. haldið utan um Facebook­ síðuna vinsælu, Ræktaðu garðinn þinn, sem er vettvangur þar sem hægt er að afla sér upplýsinga um allt sem tengist ræktun. Auk þess hefur Vilmundur skrifað bækur og óteljandi greinar á þessum vettvangi um ræktun. Hann hlaut hvatningarverðlaunin fyrir ötula miðlun þekkingar og fræðslustarf. Af sama tilefni hlaut Björn Bjarndal Jónsson skógfræðingur, garðyrkjufræðingur og búfræðingur, heiðursverðlaun garðyrkjunnar. Björn hefur unnið að afurðamálum Skógræktar um langt árabil og verið í fararbroddi við að vekja athygli á mikilvægi brunavarna í skógrækt á Íslandi. Hann hefur ritað bókarkafla og fjölda greina í bækur, blöð og tímarit um skógrækt í víðum skilningi. Samhliða störfum sínum hefur hann sinnt stundakennslu við Garðyrkjuskólann á Reykjum og Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og er vinsæll kennari. Þá voru Kirkjugarðar Reykjavíkurprófasts­ dæma sæmdir titlinum Verknámsstaður garðyrkjunnar 2022. Hjá kirkjugörðunum starfa garðyrkjufræðingar allt árið en starfsemin spannar allt frá trjá­ og blómarækt til grafartöku og umhirðu um minnismerki. Kári Aðalsteinsson, garðyrkjustjóri kirkjugarðanna, tók við verðlaununum fyrir þeirra hönd. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti þeim Vilmundi, Birni og Kára verðlaunin. Ingibjörg Sigmundsdóttir, sem átti og rak Garðyrkjustöð Ingibjargar, hlaut umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar sem bæjarstjórinn, Aldís Hafsteinsdóttir, afhenti. Hefð er fyrir því að Garðyrkjuskólinn á Reykjum opni hús sín á sumardaginn fyrsta. Fjölmennt var sem endranær og gátu gestir kynnst starfsemi skólans, virt fyrir sér hina ýmsu anga ræktunar, blómaskreytinga og skrúðgarðyrkju auk þess að kaupa afurðir á markaðstorginu. /ghp Opinn dagur Garðyrkjuskólans að Reykjum á sumardaginn fyrsta: Vilmundur handhafi Hvatningar- verðlauna garðyrkjunnar 2022 Vilmundur Hansen ásamt forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, sem færði honum verðlaunin. Björn Bjarndal hefur tekið þátt í og stýrt fjölda samstarfsverkefna, bæði á innlendum, norrænum og evrópskum vettvangi. Hann hlaut heiðurs- verðlaun Landbúnaðarháskóla Íslands. Gestir gátu fræðst um býflugnarækt. Kári Aðalsteinsson, garðyrkjustjóri kirkjugarðanna, tók við verðlaunum fyrir Verknámsstað garðyrkjunnar. Börnin gátu grillað sykurpúða. Starfsfólk og nemendur skólans seldu íslenskt grænmeti á markaðstorginu. Guðríður Helgadóttir var glæsileg að vanda og setti hátíðardagskrána. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis, og Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.