Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 2022 31
ára afmælisriti sambandsins. Þar er
greint frá ýmsu sem hæst hefur
borið í starfsemi UMSE og
ungmennafélaganna síðustu hundrað
árin og kennir margra grasa en
starfsemin er afar fjölbreytt, íþróttir,
leiklist, skógrækt og sumarbúðir svo
dæmi séu tekin.
Rafrænt námskeið um rétta og örugga meðferð
á hífibúnaði.
Nánari upplýsingar og skráning eru á:
isfell.is/course eða skannaðu kóðann.
Þekking og þjónusta
Óseyrarbraut 28
Sími 5200 500
GRUNNNÁMSKEIÐ
í meðferð á hífibúnaði
SÉRÞEKKING Á
JEPPADEKKJUM
Hjá Arctic Trucks getur þú valið úr sérvöldum hágæða amerískum
jeppadekkjum, dekkjum sem eru sérstaklega framleidd fyrir Arctic Trucks
og vönduðum felgum með aðstoð sérfræðinga.
Njóttu aðstoðar reyndra sérfræðinga
við val á réttum dekkjum og felgum
fyrir þinn bíl.
Kletthálsi 3 – 110 Reykjavík | www.arctictrucks.is | info@arctictrucks.is | Sími 540-4900
Björgvin Björgvinsson, skíðamaður frá Dalvík, er einn af mestu afreksmönnum
UMSE frá upphafi. Hann var í tíu ár kjörinn íþróttamaður UMSE.
Mynd / Guðmundur Jakobsson
Ungmennafélagshreyfingin var langt fram eftir tuttugustu öldinni skipuð
körlum í flestum trúnaðarstöðum. UMSE var stofnað 1922 en Emilía
Baldursdóttir í Eyjafjarðarsveit, var fyrst kvenna til þess að sitja í aðalstjórn/
varastjórn UMSE. Hún var í varastjórn 1969–1970 og ritari aðalstjórnar
UMSE starfsárið 1973–1974. Hér er hún á ársþingi UMSE með Birgi
Þórðarsyni gjaldkera, Hauki Steindórssyni formanni og Vilhjálmi Björnssyni
meðstjórnanda.
Ungir knattspyrnumenn í Ungmennafélagi Svarfdæla. Aftari röð frá vinstri:
Benedikt Hilmarsson, Þórólfur Antonsson, Guðmundur Björnsson, Björn
Þór Árnason, Jón Ingi Björnsson og Kristján Þór Júlíusson. Fremri röð frá
vinstri: Gunnar Jónsson, Björn Friðþjófsson, Jón Emil Gylfason, Stefán
Ægisson og Hermann Jón Tómasson.
Fjöldi viðtala við þá
sem komu við sögu
Í ritinu er fjöldi viðtala við þá
sem komu við sögu, t.d. Björgvin
Björgvins son skíðamann, Jón Sævar
Þórðarson, frjálsíþróttaþjálfara
og fyrrum framkvæmdastjóra
UMSE, Snjólaugu Vilhelmsdóttur
frjálsíþróttakonu, Aðalstein Bern
harðs son frjálsíþróttamann, Svein
Jónsson fyrrverandi formann UMSE,
Stefán Árnason frjálsíþróttamann,
Guðmund Búason skákmann, Stefán
Svein björnsson, briddspilara á
Svalbarðsströnd, Björn Friðþjófsson,
knattspyrnu og félagsmálafrömuð
á Dalvík og marga fleiri. Helstu
málefnin sem brenna á UMSE þessa
dagana er að greina og sporna gegn
brottfalli í kjölfar Covid, breytt
heimsmynd og möguleg koma
flóttafólks inn í hreyfinguna og
almenn lýðheilsa.
Afmælisritið er öllum áhuga
sömum aðgengilegt á rafrænu formi
á heimasíðu UMSE en einnig er
hægt að fá ritið í prentuðu formi
endurgjaldslaust hjá sambandinu.
Formaður UMSE er Sigurður
Eiríksson, Eyjafjarðarsveit en
framkvæmdastjóri Þorsteinn
Marinós son. /MÞÞ