Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 202232
LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
Sjálfbær áburðarframleiðsla – heildstæð nálgun á hringrásarhagkerfi:
Mikið af næringarefnum enn ónýtt
– Greining á magni lífrænna áburðarefna á Íslandi og tækifæri til aukinnar nýtingar
Heildarmagn þeirra næringarefna
sem er að finna í lífrænum úrgangi
sem fellur til á Íslandi er álíka
mikið og í innfluttum áburði.
Það þýðir þó ekki að öll þessi
næringarefni séu tiltæk plöntum líkt
og tilbúinn áburður en tækifæri liggja
í aukinni nýtingu á fiskeldisseyru,
sláturúrgangi og alifuglaskít.
Íslenskur landbúnaður er háður
innfluttum tilbúnum áburði og skapar
hækkandi áburðarverð mikla ógn.
Til glöggvunar hefur heildarmagn
innflutts áburðar verið að meðaltali
um 16.000 tonn á ári af hreinum
áburðarefnum á síðastliðnum áratug.
Ef hægt er að nýta betur
úrgang og hliðarafurðir til að
koma næringarefnum þeirra inn í
hringrásarkerfi er mögulegt að draga
úr innflutningi á tilbúnum áburði að
einhverju leyti.
Þessi áskorun er viðfangs
efni rannsóknar og nýsköpunar
verkefnisins Sjálfbær áburðar
framleiðsla – heildstæð nálgun á
hringrásarhagkerfi, sem unnið er með
aðkomu fjölda stofnana og fyrirtækja
á sviði landbúnaðar, líf og efnafræði,
verkfræði og matvælafræði. Ein
afurð verkefnisins er nýútgefin
skýrsla frá Matís, „Greining á magni
lífrænna áburðarefna á Íslandi og
tækifæri til aukinnar nýtingar“. Jónas
Baldursson, verkefnastjóri hjá Matís,
er aðalhöfundur hennar.
Í skýrslunni má finna samantekt
á magni þeirra lífrænu hráefna
sem fellur til hér á landi og
næringarinnihald þeirra miðað
við bestu fáanlegu upplýsingar.
Einnig er efnið sett í samhengi við
kolefnisspor.
Kúamykja vel nýtt
Mykja frá nautgripum er stærsta
uppspretta búfjáráburðar á Íslandi,
en hún gaf 48.578 tonn af þurrefni
á ári skv. skýrslunni. Á meðan
gaf sauðfé 23.068 tonn, alifuglar
9.336 tonn, svín 5.664 tonn, hross
918 tonn og minkar 429 tonn af
þurrefni á ári. Kúamykja er að öllu
leyti nýtt í dag við túnrækt. Uppruni
næringarefna hennar er þó að mestu
leyti úr innfluttum tilbúnum áburði
og innfluttu kjarnfóðri. Það sama má
segja um svín og alifugla.
Jónas telur fiskeldisseyru og
sláturúrgang spennandi áburðargjafa
með tilliti til næringarefna. Í
skýrslunni kemur fram að um 7.929
tonn af þurrefni af fiskeldisseyru
falli til á ári en aðgengi að henni sé
mjög takmarkað. Henni er í dag veitt
að miklu leyti í sjóinn þrátt fyrir að
vera nýtanleg.
„Fiskeldisseyra getur innihaldið
salt sem ekki er æskilegt í áburði
í miklu magni, sérstaklega ef
saltblönduð seyra er notuð á sama
stað ár eftir ár. Hægt er að gera
ráðstafanir eins og að skola út salti
en með slíkri meðhöndlun er fyrirséð
að einhver næringarefni tapast,“
segir Jónas. Auk þess fellur mikið
af slógi til við fiskvinnslu. Það er
nýtt ýmist brætt, fryst eða notað sem
fóður fyrir mink. Stór hluti fer einnig
í sjóinn. Útreiknað magn slógs úr
fiski var 10.674 tonn af þurrefni á
ári samkvæmt skýrslunni. Ef nýta
ætti slóg meira sem áburð þyrfti að
gera töluverðar ráðstafanir um borð
í veiðiskipum til að landa slóginu.
Enn sem komið er er meiri
ávinningur fólginn í að vinna slóg
til fóðurgerðar, en með auknum
kostnaði tilbúins áburðar gæti vinnsla
slógs til áburðar orðið hagkvæm.
Um 10 þúsund tonn af flokkuðum
matarúrgangi falla til frá eldhúsum
og verslunum og er stærstur hluti
hans jarðgerður í dag. Í skýrslunni
er gert ráð fyrir að magnið sé 65.450
tonn af þurrefni á ári.
Kjötmjöl góður áburður
„Miðað við hvað kjötmjöl er
góður áburður, þá er hálfótrúlegt
að ekki skuli vera nýtt hærra
hlutfall sláturúrgangs á landsvísu í
kjötmjölsframleiðslu,“ segir Jónas,
en útreiknað magn kjötmjöls
samkvæmt skýrslunni er 900 tonn af
þurrefni á ári. Kjötmjöl er framleitt
úr sláturúrgangi. Leyfilegt er að nýta
dýraúrgang, en með takmörkunum
vegna smithættu. Jónas segir að með
betri flokkun á sláturúrgangi sé hægt
að nýta meira magn í framleiðslu
á kjötmjöli.
Þá falla til um 3.917 tonn af
þurrefni seyru á ári á Íslandi miðað við
forsendur sem skýrsluhöfundar gefa
sér. Einnig tiltekur skýrslan magn á
dýrahræjum, slátur og fiskúrgangi
auk leifa frá brennslu og hitasundrun
úrgangs. Hins vegar er óvissa um
hversu stór hluti þess er nýtanlegur
sökum heilbrigðissjónarmiða.
„Það er nokkuð ljóst að í úrgangi
leynast verðmæti sem vert er að nýta
þó að áskoranirnar um hvernig koma
megi honum á sem best nýtanlegt
form séu misstórar. Það er ekki eins
og það sé beinlínis hægt að taka
ferskan kúk og smyrja honum á tún
eins og nutella á skonsu, ef þú veist
hvað ég á við. Fyrir það fyrsta eru
heimtur saursins ekki á föstu formi
og þar að auki er hráefnið gjarnan
blandað öðrum efnum sem geta verið
beinlínis mengandi. Vinnsluferli og
reglugerðir eru því eðlilega afar ólík
fyrir mismunandi úrgang,“ bendir
Jónas á.
Þó einhverjar tölur séu til um
hversu mikið af magni úrgangs sé
nú þegar nýtt sé mjög erfitt að fá
nákvæmar tölur. „Búfjáráburður er
að mestum hluta nýttur en varðandi
annan úrgang er erfitt að segja. Lítið
sem ekkert af seyru er notað og
fiskeldisseyran er enn á tilraunastigi.
Einnig hefur lítið farið fyrir notkun
á moltu í jarðrækt en þó er einhver
aukning ár frá ári,“ segir Jónas.
Fosfór fæst mögulega
úr fiskeldisseyru
Auk þess að greina magn þess
lífræna úrgangs sem fellur til á
Íslandi tiltekur skýrslan magn
næringarefna frá þessum úrgangi
eftir bestu mögulegum gögnum um
slíkt. Byggja niðurstöður að nokkru
leyti á efnagreiningum en einnig á
innlendum og erlendum heimildum.
Útreikningarnir sýna að magn
niturs í þeim lífræna úrgangi sem
fellur til hér á landi er 8.411 tonn,
1.756 tonn af fosfór og 3.886 tonn
af kalí.
Magn áburðarefnanna sem féll
til hér á landi árið 2019 var því
14.053 tonn, en á sama tíma fluttum
við inn 14.480 tonn af hreinum
áburðarefnum í formi tilbúins
áburðar. Það magn skiptist niður í
10.600 tonn af nitri, 1.480 tonn af
fosfór og 2.380 tonn af kalí.
Þar sem fosfór er hverfandi auðlind
sem tekin er úr sértækum námum í
dag felst mikið kappsmál í að finna
leiðir til að veita næringarefninu
aftur inn í hringrásina. Í skýrslunni
er bent á að þar gæti fiskeldisseyran
leikið lykilhlutverk. „Með frekari
tækniþróun við söfnun fiskeldisseyru
má áætla að hægt sé að ná hærra
hlutfalli fosfórs,“ segir í skýrslunni.
Kolefnisspor og kostnaður
Útreikningar á kolefnisspori
og kostnaði við notkun mis
munandi áburðartegunda sýna
mikinn breytileika milli áburða
tegunda. Ræðst það mjög af
flutningsvegalengdum hversu
hagkvæmar þær eru í notkun.
Vatnsmikill úrgangur sem hefur
lágan styrk næringarefna er
óhagkvæmur miðað við þurrari og
næringarríkari úrgang.
Samkvæmt skýrslunni er nýting
Ein helsta hindrun þess að molta er lítið notuð í landbúnaði er flutningskostnaður.
Áburður er undirstaða allrar
akuryrkju í heiminum og
langstærstur hluti akuryrkju
er keyrður áfram með notkun
tilbúins áburðar.
Uppistaðan í tilbúnum
áburði eru nitur (N), fosfór
(P), kalí (K), kalk (Ca) og
brennisteinn (S) auk fjölmargra
snefilefna. Hlutföllum efnanna
er hagað á misjafnan hátt
þannig að þau nýtist best
þeirri ræktun sem unnið er að,
en þarfir ræktunarplantna eru
misjafnar. Áburðarfræðin í
akuryrkju gengur út á að mata
akurlendið með næringarefnum
sem síðar eru fjarlægð við
uppskeru. Hringurinn er
stuttur og endurtekur sig við
hverja uppskeru. Mikilvægt
er að „mata“ landið með réttu
næringarefnunum áður en
næsta ræktun á sér stað. Ef
þetta er ekki vandað, verður
uppskeran rýr. Í landgræðslu
horfir þetta aðeins öðruvísi við,
því við endurheimt vistkerfa
er verið að stýra og hraða
náttúrulegri framvindu með
áburðargjöf en engin uppskera
er fjarlægð. Áburðargjöf í
landgræðslu er því til lengri
tíma en í akuryrkju til styttri
tíma. Þess vegna eru kröfur til
áburðarins í landgræðslu aðrar,
s.s. að nota seinleystan áburð,
öfugt við akuryrkju.
Áburður í akuryrkju
og landgræðslu
- Tilvitnun úr skýrslunni
Jónas Baldursson, verkefnastjóri
hjá Matís.