Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 202236 Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en þá hafði poppkornsát verið að ryðja sér til rúms í nokkurn tíma. Um það bil fjórum árum síðar gaf þýska grúppan The Fantastic Pikes út plötuna The Synthesizer Sound Machine – með laginu Popcorn, en á umslaginu gefur að líta bikiníklædda konu sitjandi í poppkornshrúgu. Poppkorn var á þessum árum (og er reyndar enn) afar vinsælt fyrir skynfærin, augu, eyru og munn og man blaðamaður vel eftir þeirri gleði sem fyllti hjartað er foreldrarnir skrúfuðu tónlistina í botn og buðu upp á poppkorn í kjölfarið. Lagið var þó víst upprunalega samið af Gershon Kingsley nokkrum og kallað heimsins fyrsti singull raftónlistar. Lagið Poppkorn hefur síðan haldið velli og verið flutt af aragrúa tónlistarmanna enda afar grípandi.En poppkorn á nú reyndar lengri sögu en spannar lífstíma blaðamanns. Ævafornar minjar poppkornsáts Í náttúruminjadeild Smithsonian- safns Bandaríkjanna má finna sýni er fundust við uppgröft fornleifafræðinga í Suður-Ameríku. Um ræðir maískólfa, hýði og stilka frá því fyrir 6700–3000 árum síðan og er þetta elsta sýni er fundist hefur. Á uppgraftarsvæðum fornleifanna mátti svo finna merki þess að íbúarnir hefðu meðal annars neytt maíssins í formi poppkorns. Loftslag svæðanna, nálægt borgunum Paredones og Huaca Prieta, er afar þurrt og nánast án regns – en slíkar aðstæður gera það kleift að fornleifar geta varðveist í afar langan tíma, sem útskýrir þessar leifar útblásins maísins. Poppkorn var að auki stór hluti menningar Suður-Ameríkuþjóða, þá sérstaklega hjá indíánaþjóðflokki Asteka sem notuðu það í tilbeiðsluathöfnum auk þess að bera höfuðfat, hálsmen og skraut gerðu úr poppkorni. Til gamans má geta þess að ekki fyrir löngu fannst fjögur þúsund ára gamall maís í Nýju-Mexíkó sem hægt var að poppa! Ekki fylgdi þó sögunni hvernig bragðaðist. Aðrar sagnir herma að evrópskir landnemar er hófu búskap í Bandaríkjunum forðum daga hafi eitthvað misskilið stöðuna og fengið sér poppkorn til morgunverðar. Þá í skál, með rjóma, ávöxtum og helst sykri. Ekki er vitað hvort um íslenska landnema hafi verið að ræða. Gegn krabbameini, til skreytinga, möguleikarnir eru endalausir Poppkorn, sem er í raun trefjaríkt heilkorn maísplöntunnar, er annars afar hollt ef þess er neytt eitt og sér. Í því er afar mikið af andoxunarefninu pólýfenól sem þykir gagnast vel í baráttu við krabbamein en það má einnig finna í rauðvíni, dökku súkkulaði, ávöxtum og grænmeti svo eitthvað sé nefnt. Þess má geta að til eru um 25 tegundir af maískorni en er sá maís sem poppast eitt afbrigði þess. Hlaut hann nafn sitt vegna hljóðsins sem myndast er maísbaunin springur. Hún inniheldur um 14% vatns sem breytist smám saman í gufu eftir því sem hitinn eykst. Vegna harða hýðisins sem umlykur hana ummyndast sterkja hennar við hitun, þenst út og veldur því að hún „poppar“ með hvelli. Vinsælt þótti og þykir enn, alveg frá árunum í kringum 1800, að nýta svo poppkorn í hátíðaskreytingar, enda bæði bjart og fagurt auk þess að vera skemmtilega lagað. Poppkornsauglýsingar skutu þó ekki upp kollinum fyrr en í kringum 1840 í Bandaríkjunum, og náðu hámarki í kringum 1860 er þýskir innflytjendur fundu upp á hinum skemmtilegu sætindum er kallaðar eru Cracker Jack. Þá er poppkornið sykur- og karamelluhúðað og sett í bréfpoka ásamt jarðhnetum. Slagorð fylgdi í kjölfarið sem uppfinningamönnunum fannst tilvalið að fá einkaleyfi á en það hljóðar svo: „The more you eat, the more you want!“ Að auki þótti móðins að kalla upp yfir sig „Thats a crackerjack!“ ef mönnum fannst eitthvað af framúrskarandi gæðum. Síðar, yfir ártugina, hafa svo allar þjóðir heimsins tekið sig til og blandað ýmsu í poppkorn sitt, nú eða húðað það utan. Má þar helst nefna ostapopp, en einnig er vinsælt að blanda í pokann rúsínukúlum, karamellukúlum, strá lakkrís, chili eða hvítlauksdufti yfir, kókosflögum, truffluolíu nú eða úða það sítrónusafa svo eitthvað sé nefnt. Heitt poppkorn er hollt sælgæti! SAGA MATAR&DRYKKJA Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is Popcorn, áttunda lag plötunnar, eldist afar vel og hefur glatt mörg hjörtu. Hér má sjá maískólf þann er fannst í S-Ameríku við uppgröft fornleifafræðinga. Vinsældir poppkornsins jukust mikið þegar bíómyndirnar komu til sögunnar og kvikmyndahúsin tóku að selja popp. Mynd / Unsplash „Thats a crackerjack!“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.