Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 2022 25
Við Norðurlandsveg - 560 VarmahlíðSími: 453 8888 - Opið virka daga kl. 9-17
Viðbótarfóður fyrir nautgripi,
hentar til að viðhalda góðri nyt,
heilbrigði og bæta efnainnihald.
DairyPilot
Steinefnafóður fyir nautgripi, hentar vel
sem viðbótarfæði fyrir kýr sem eru á beit og
til að gefa sem viðbótarfæði með grasi.
Somi-mg
Boðað er til aðalfundar Bandalags
íslenskra leikfélaga laugardaginn
30. apríl 2022.
Fundurinn verður haldinn á
Park Inn hótelinu, Hafnargötu 57 í
Reykjanesbæ. Á dagskrá eru
venjuleg aðalfundarstörf og
hefst fundurinn kl. 9.30.
Félög sem hyggjast
senda fulltrúa þurfa að
fylla út kjörbréfsform á
vefnum og nauðsynlegt er
að vera innskráð á aðgangi
viðkomandi leikfélags.
Linkur á kjörbréfsformið er
hér: (www.leiklist.is/kjorbref-2022/)
Þetta er fyrsti fundurinn síðan
árið 2019 sem ekki verður markaður
af samkomutakmörkunum enda
sannarlega kominn tími til að treysta
félagsböndin og stilla saman strengi
leikfélaga í landinu.
Í tilefni þess hefst þingið á
óformlegri málstofu föstudags-
kvöldið 29. apríl undir yfirskriftinni
Áhugaleiklistin eftir Covid. Rædd
verður almennt staða áhugaleiklistar,
almenn og sértæk vandamál
sem að félögunum steðja og
möguleikum og lausnum velt upp.
Sveitarstjórnarkosningar verða
haldnar 14. maí og því er nú rétti
tíminn til að ræða og ýta við
fulltrúum í sveitarstjórnum
vegna hagsmuna félaganna.
Yfirlit yfir þetta allt
saman má finna á vefsíðunni
www.leiklist.is/bod-a-
adalfund-bil-2022/
Einnig má finna þar
lög BÍL sem innihalda
meðal annars dagskrá
aðalfundar, sjá hér í meðfylgjandi
link (www.leiklist.is/wp-content/
uploads/2022/03/LogBIL2021.
pdf) og fundargerð aðalfundar
frá árinu 2021 (www.leiklist.is/
fundargerd-adalfundar-1-mai-2021-
i-reykjanesbae/).
Nýtt bókhaldskerfi sem tekið var í
notkun á síðasta ári hefur aðeins tafið
gerð ársreiknings en hann verður
sendur út um leið og hann er tilbúinn.
-af vef Bandalagsins/SP
Boð á aðalfund BÍL 2022
Ullarinnleggjendum býðst að kaupa hlutabréf Ístex hf. á genginu 8,5 í
gegnum ullarviðskipti á Bændatorgi til 15 maí.
Íslenskur textíliðnaður hf (Ístex hf) er ullarvinnslufyrirtæki í meirihlutaeigu
bænda sem vinnur að því að skapa sem mest verðmæti úr íslenskri ull.
Fyrirtækið rekur ullarþvottarstöð á Blönduósi og spuna- og
bandverksmiðju í Mosfellsbæ.
Hægt er að skrá sig í gegnum Bændatorg (bondi.is).
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á Istex.is og í síma 566 6302.
Stjórn Ístex
Ullarinnleggjendur athugið
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn á Park Inn hótelinu,
Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ, laugardaginn 30. apríl næstkomandi.