Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 202230
Ungmennasamband Eyja
fjarðar, UMSE, fagnaði 100
ára afmæli sínu með hófi í
Laugarborg í Eyjafjarðarsveit
fyrr í apríl en félagið var stofnað
á Akureyri 8. apríl árið 1922.
Flutt voru ávörp, ungmenna
félagsfólk heiðrað fyrir mikilvæg
störf fyrir sambandið og ung
menna félagshreyfinguna og þá
voru sambandinu færðar gjafir.
Í tilefni af 100 ára afmælinu gaf
sambandið út afmælisrit þar sem
stiklað var á stóru í hundrað ára
sögu þess. Ritstjóri þess er Óskar
Þór Halldórsson, en ritið er tæpar
200 blaðsíður í A4 broti.
UMSE hét í fyrstu Héraðs
samband ungmennafélaga Eyja
fjarðar, skammstafað HUMFE,
en fjórum árum síðar var nafninu
breytt í Ungmennasamband
Eyjafjarðar. Tólf félög stóðu að
stofnun sambandsins en aðeins tvö
þeirra, Ungmennafélag Svarfdæla á
Dalvík og Ungmennafélagið Reynir
á Árskógsströnd, eru enn starfandi.
Auk þeirra eru aðildarfélög
UMSE; Golfkúbburinn Hamar í
Dalvíkurbyggð, Blakfélagið Rimar
í Dalvíkurbyggð, Sundfélagið Rán
í Dalvíkurbyggð, Ungmennafélagið
Þorsteinn Svörfuður í Svarfaðardal,
Hestamannafélagið Hringur í
Dalvíkurbyggð, Skíðafélag Dal
víkur, Ungmennafélagið Smárinn
í Hörgársveit, Ungmennafélagið
Samherjar í Eyjafjarðarsveit,
Miðgarður – akstursíþróttafélag
í Dalvíkurbyggð, Hesta manna
félagið Þráinn í Grýtubakka hreppi
og á Svalbarðs strönd, Ung menna
félagið Æskan á Svalbarðs strönd
og Hestamanna félagið Funi
í Eyja fjarðar sveit.
Fjöregg félagslífsins hinna
dreifðu byggða
Saga UMSE í hundrað ár er
nátengd byggðasögu Eyjafjarðar.
Ungmenna félögin voru fjöregg
í félags og menningarlífi hinna
dreifðu byggða í Eyjafirði, eins
og annars staðar á landinu. Í
kringum starfsemina er merkileg
saga kringum félagsmál og þá
hefur frumkvöðlastarfsemi alla tíð
einkennt UMSE. Sem dæmi má
nefna að Unglingalandsmót UMFÍ,
sem er af mörgum talin skautfjöðurin
í starfi UMFÍ, var stofnað og fyrst
haldið af UMSE, á Dalvík 1992,
en þar var hugsjónafólk á ferð sem
tók af skarið.
Spegilmynd af fjölbreyttri
starfsemi má glögglega sjá í 100
LÍF&STARF
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Ungmennasamband Eyjafjarðar 100 ára
– Saga ungmennafélagsins er nátengd byggðasögu Eyjafjarðar
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, var ein þeirra
ungmennafélaga sem hlaut gullmerki UMSE í afmælishófi sambandsins.
Hún hefur verið ötul í starfi íþróttafélaga á svæðinu og var framkvæmdastjóri
fyrsta Unglingalandsmóts UMFÍ, sem var haldið á Dalvík árið 1992.
Leiklist hefur í gegnum tíðina verið
öflug á sambandssvæði UMSE.
Aðildarfélög sambandsins stóðu fyrir
leikuppfærslunum en árið 1965 stóð
UMSE sjálft fyrir því að setja upp
gamanleikinn Ást og misskilning.
Böggvisstaðafeðgar skipuðu lengi sigursæla briddssveit Ungmennafélags
Svarfdæla á Dalvík. Frá vinstri: Jón Jónsson, Gunnar Jónsson, Stefán
Jónsson og Jón Jónsson.
Dalvískir skíðamenn á skíðamóti UMSE á Dalvík árið 1967. Frá vinstri: Þorsteinn
Skaftason, Heiðar Árnason, Baldur Friðleifsson og Stefán Steinsson.
Fræknir UMSE-blakarar líklega veturinn 1972–1973. F.v.: Ómar Ingason,
Jón Steingrímsson, Gunnar Jónsson, Aðalsteinn Bernharðsson, Hreiðar
Steingrímsson, Tryggvi Tryggvason, Friðrik Steingrímsson, Friðrik Snorrason
og Ragnar Daníelsson.
Hundrað ára afmælishóf UMSE var haldið í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit fyrr í þessum mánuði.