Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 2022 45
Opnað verður á skráningar á
kynbótasýningar nú í byrjun
maí og verður það kynnt á
næstu dögum á heimasíðu
RML. Skráning og greiðsla fer
fram í gegnum heimasíðu RML
www.rml.is en á forsíðunni er
flýtihnappur sem skráð er í
gegnum. Á forsíðu WorldFengs
er einnig hægt að skrá hross til
sýningar. Nánari leiðbeiningar
varðandi skráningar er að finna
á heimasíðu RML.
Í meðfylgjandi töflu má sjá
hvaða sýningarstaðir eru í boði og
lokaskráningardag á hverja sýningu
en skráningu þarf að vera lokið á
miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist
lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo
skráningarfrestur sé ekki útrunninn.
Eigandi/umsjónarmaður hrossins
verður þá að velja aðra sýningu.
Til að fá aðstoð er hægt að
hringja í síma 516-5000, eða senda
tölvupóst á netföngin halla@rml.is
og hross@rml.is. Við bendum á að
utan dagvinnutíma eru starfsmenn
RML ekki til staðar til að svara síma
eða tölvupósti og því hvetjum við
eigendur/umsjónarmenn hrossa til
að skrá tímanlega.
RML áskilur sér rétt til að fækka
dögum á sýningum ef skráningar
eru færri en búist er við og sameina
sýningar ef þess gerist þörf.
Sýning verður ekki haldin nema
lágmarksfjöldi skráninga náist
sem eru 30 hross. Hér að neðan
má sjá sýningaáætlun vorsins og
hvenær eru síðustu skráninga-
og greiðsludagar.
Allar upplýsingar um röðun niður
á daga munu birtast á heimasíðunni
www.rml.is, þegar þær eru tilbúnar
sem verður nokkrum dögum fyrir
sýningu.
Sýningagjöld og fleira
Verð fyrir fullnaðardóm er
31.350 kr. en fyrir sköpulagsdóm/
hæfileika dóm 24.000 kr. Ganga þarf
frá greiðslu um leið og hrossið er
skráð. Hægt er að greiða með debet-
eða kreditkortum, ekki er hægt að
greiða með millifærslu. Um leið
og hrossið hefur verið skráð birtist
það strax inn á viðkomandi sýningu.
Ef það gerist ekki er rétt að kanna
hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis
við skráninguna.
Aðeins þau hross sem hlotið hafa
fullnaðardóm á sama sýningarári er
hægt að skrá eingöngu í reiðdóm.
Endurgreiðslur á sýninga-
gjöldum koma því aðeins til greina
ef forföll eru tilkynnt með tölvupósti
fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir
upphaf sýningarviku á netfangið
hross@rml.is.
Endurgreitt er 18.000 kr. fyrir
hross sem skráð hefur verið í
fullnaðardóm og 14.000 kr. fyrir
hross sem hefur verið skráð í
sköpulags- eða hæfileikadóm.
Slasist hross eftir að sýning hefst
er sama hlutfall endurgreitt gegn
læknisvottorði.
Endurgreiðslukrafa vegna
slasaðra hrossa þarf að hafa borist
fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi
í sýningu og velji að sýna annað
hross en það sem skráð er, ber sá
hinn sami fulla ábyrgð gagnvart
þeim sem greiddi fyrir plássið.
Greiðsla fyrir það hross sem skipt
var út verður notuð til greiðslu á
hrossinu sem kom í staðinn.
Minnum á eftirfarandi:
• Ekki er hægt að skrá hryssur eða
geldinga til sýningar nema búið
sé að taka úr þeim stroksýni til
DNA-greiningar og staðfesting
á því liggi fyrir í WF.
• Allir stóðhestar verða að vera
DNA-greindir svo og foreldrar
þeirra.
• Úr öllum stóðhestum fimm
vetra og eldri þarf að liggja
fyrir í WF að búið sé að taka
blóðsýni og röntgenmynda
vegna spatts.
• Ekki er hægt að skrá hross á
kynbótasýningu nema þau séu
örmerkt
• Ef örmerki finnst ekki í hrossi
sem mætir til dóms ber að
örmerkja það á staðnum og
taka stroksýni úr nös til DNA-
greiningar á ætterni, með þeim
kostnaði sem af því hlýst fyrir
eiganda/forráðamann. Örmerki
og DNA-sýni þurfa ávallt að
fylgjast að.
Ekki er hægt að skrá hross til
sýning ar nema ofantaldar kröfur séu
uppfylltar. Hross sem koma inn á
sýningu í stað annarra skráðra hrossa
og uppfylla ekki þessi skilyrði,
verður vísað frá sýningu strax hjá
mælingamanni án undantekninga.
Sýningargjald er ekki endurgreitt í
slíkum tilfellum.
Ef þess er nokkur kostur þá er
fyrir alla aðila farsælast að skrá
rétt hross á sýningu strax í upphafi
því það einfaldar alla vinnu á
sýningarstað. Munum því eftir að
taka sýni og röntgenmyndir í tíma.
Nánari upplýsingar um
reglur og annað sem viðkemur
kynbótasýningum má finna á
heimasíðunni www.rml.is eða
hringja í síma 516-5000 hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
Einnig er hægt að senda tölvupóst
á netfangið hross@rml.is.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Skráningar á kynbótasýningar vorsins
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR
Halla Eygló Sveinsdóttir
ráðunautur, búfjárræktar-
og þjónustusvið
halla@rml.is
Sýningaáætlun vorsins
Dags. Staður Loka skráningar- og
greiðsludagur
23.5- 27.5 Gaddstaðaflatir, Hella I föstudagur 13. maí
30.5- 03.6 Sprettur, Kópavogi I föstudagur 20. maí
30.5- 03.6 Gaddstaðaflatir, Hella II föstudagur 20. maí
30.5- 03.6 Hólar, Hjaltadal I föstudagur 20. maí
07.6- 10.6 Sörlastaðir, Hafnarfirði I föstudagur 20. maí
07.6- 10.6 Gaddstaðaflatir, Hellu III föstudagur 20. maí
07.6- 10.6 Sprettur, Kópavogi II föstudagur 20. maí
07.6- 10.6 Hólar, Hjaltadal II föstudagur 20. maí
13.6- 16.6 Sörlastaðir, Hafnarfirði II föstudagur 20. maí
13.6- 16.6 Gaddstaðaflatir, Hellu IV föstudagur 20. maí
13.6- 16.6 Selfoss föstudagur 20 maí
13.6- 16.6 Hólar, Hjaltadal III föstudagur 20. maí
Af heimasíðu RML er auðvelt að skrá hross til sýningar.
Dómarar á samræmingarnámskeiði í mars 2022.
Gaddstaðaflatir við Hellu.