Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 2022 23
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Sláttuvélar
Fram- og afturvélar Rakstrarvélar
GÆÐI I STYRKUR I ENDING
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Nú hafa ef til vill margir reynt
að gera sér í hugarlund hvernig
vélmenni – ef verða mörg slík í
framtíðinni – geti mögulega létt
okkur mönnunum lífið.
Í verslanamiðstöð nokkurri,
Newport Centre Mall í New Jersey,
hafa hugvitsmenn komið fyrir
sjálfsala nokkrum sem ber nafnið
RoboBurger. Þar má fá einfaldan
hamborgara (með osti) úr
hágæða lífrænu kjöti
frá nágrannabýlum
með Angus naut
svokölluð, en þau eru
alin á lífrænu sérfæði
grasa og grænmetis.
Engin hormóna- eða
sýklalyf eru notuð
í eldinu og kjöt
nautanna því fyrsta
flokks á allan hátt.
Hamborgarabrauðin
eru á sama hátt
einstaklega vel úr
garði gerð og eru
afurð bakara frá
nærliggjandi býli.
Það áhugaverða
er þó hins vegar
hvernig hamborgarinn
er matreiddur. Í sjálfsalanum er að
finna vélmenni – eða útbúnað með
gervigreind – sem í fimm þrepum
sér um að elda hamborgara handa
hverjum og einum viðskiptavini
fyrir sig. Innan sjálfsalans er að finna
gæðagrill sem grillar hamborgana
á mettíma, enda tekur ferlið allt
6-7 mínútur. Fyrst er frosinn
hamborgari settur á grillið. Á meðan
á því stendur er hamborgarabrauðið
ristað og á það er sett tómatsósa
og sinnep. Næst er hamborgarinn
settur á, ostur þar ofan á ef vill og
borgaranum lokað. Þetta ferli er án
efa eitt hið ferskasta í bransanum, en
innan 30 sekúndna frá því að kjötið
fer af grillinu fær viðskiptavinurinn
máltíðina í hendur. Þeir sem hafa
prófað dýrðina gefa matnum góða
einkunn þó einfaldur sé og nefna
flestir hve kjötið er fullkomlega
grillað og hamborgarabrauðið
stökkt. Þá annað en þegar slíkt
hefur verið geymt undir hitalampa
í óratíð. Það er helst að fólk sé ekki
sátt við að osturinn klessist aðeins
er máltíðin kemur niður sjálfsalann.
Eftir að eldað
hefur verið fer
h r e i n s i f e r l i
af stað en
s j á l f s a l i n n
býr yfir þeim
eiginle ikum
að geta þrifið
s ig e f t i r
hvert skipti.
Aðstandendur
síðunnar www.
roboburger.
com bjóða svo
áhugasömum
hamborgara-
unnendum að
hafa samband
ef viðkomandi
telur sig vita af stað fyrir fleiri slíka
sjálfsala – en stærð einingarinnar er
ekki meiri en rétt rúmir tveir metrar
á hæð og einn og hálfur á breidd.
Rétt er að taka fram að nú
virðist, hægt og rólega, vera að
byrja blómaskeið vélmenna innan
veitingahúsakeðja, en sem dæmi
hafa White Castle, Buffalo Wild
Wings og Chipotle þegar sett upp hjá
sér vélmennaarma – ef svo má kalla
– sem sjá alfarið um djúpsteikingar.
Í kjölfar heimsfaraldursins Covid
hefur – auk manneklu – eftirspurn
eftir vélknúnum aðstoðarmönnum
aukist enn fremur og samfélög á
heimsvísu sáttara við hugmyndir
um snertilausar máltíðir. /SP
Hamborgarar í höndum vélmenna:
Róbót-borgari