Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 39

Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 2022 39 Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • Frostagata 2a • 600 Akureyri • www.claas.is VERKIN TALA FR U M - w w w .fr um .is Þetta snýst allt um þig… Nýja CLAAS – ARION 400 vélin er alveg eins og þú vilt hafa hana. Hver dagur færir þér ný verkefni og það ert þú sem þarft að takast á við þau. Þegar þú kaupir dráttarvél þá þarf hún að vera alveg eins og þú vilt hafa hana. Þú vilt dráttarvél sem gerir einmitt það sem þú vilt að hún geri og að hún uppfylli allar þínar kröfur og væntingar. Hvorki meira og örugglega ekki minna. Þess vegna vilt þú ekki bara næstu dráttarvél sem er til á lager. Þú færð nýju ARION 400 dráttarvélina nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana ARION 460 / 450 / 440 / 430 / 420 / 410 66–103 kW (90–140 hö). www.arion400.claas.com Hefur þú brennandi áhuga á vélum og vilt vinna í lifandi og skemm� legu umhverfi ? Vélfang leitar að öfl ugum og ábyrgum viðgerðamanni í fullt starf á vélaverkstæðið okkar í Reykjavík. Nánari upplýsingar veita Eyjólfur 8400 820 Umsóknir sendist á eyjolfur@velfang.is Vélfang ehf. er sölu- og þjónustuaði l i á sviði v innu- og landbúnaðarvéla. Hjá Vélfangi starfar hópur fólks sem hefur það að markmiði að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu. Hæfniskröfur: • Reynsla af vélaviðgerðum er kostur. • Menntun við hæfi kostur. • Rík þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum. • Frumkvæði og sjálf tæði í vinnubrögðum. • Gott með að vinna í teymi. Viðkomandi þarf að geta hafi ð störf sem allra fyrst. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • velfang.is Óseyri 8 • 603 Akureyri • velfang@velfang.is -VERKIN TALA Viðgerðarmaður á vélaverkstæði Vélfangs í Reykjavík LAMBHELDU HLIÐGRINDURNAR KOMNAR Áfram hagstætt verð þrátt fyrir hækkanir á heimsmarkaði Lægsta verð 24.900 auk vsk ef keyptar eru fimm grindur eða fleiri Lamasett og loka aðeins kr. 3.900 settið, auk vsk. Breidd 420 cm. Hæð 110 cm. Möskvastærð 10 x 15 cm. Verðskrá hliðgrindur: 1 stk. kr. 29.900 auk vsk. 2-4 stk. kr. 27.900 auk vsk. 5 stk. eða fleiri 24.900 auk vsk. Upplýsingar og pantanir í síma 669 1336 og 899 1776. Afgreitt á Hvolsvelli og í Sundahöfn án aukakostnaðar. Sent hvert á land sem er. Meira fyrir aurinn Lambheldu hliðgrindurnar Þessar hliðgrindur hafa slegið í gegn um land allt. Lambheldar, léttar og auðveldar í uppsetningu. Breidd 4.20 m, hæð 1.10 m. Möskvastærð 10x15. Verð á grind kr. 24.90 stk. auk vsk. Ef keypt eru 2 til 4 stk., verð kr. 22.900 stk. auk vsk. Ef keyptar eru 5 eða fleiri, verð kr. 19.900 stk. auk vsk. Til afhendingar á Hvolsvelli eða í Sundahöfn án aukakostnaðar en sent hvert á land sem er. Pantanir og upplýsingar í símum 899 1776 og 669 1336. LESENDARÝNI Er veisluhöldunum að ljúka? Fyrirsagnir í heimspressunni, sem og innlendum fjölmiðlum, vísa nú í vaxandi mæli til þess að lífskjörum í heiminum er nú ógnað af verðhækkunum og á næstu mánuðum muni verðbólga leika okkur grátt. Í Viðskiptablaði Morgunblaðsins 13. apríl sl. var fyrirsögnin: Vandræðin eru kannske rétt að byrja. Vandinn sem birtist okkur er margþættur. Matvælaverð rýkur upp, verð á gasi og olíu er í sögulegum hæðum og önnur hráefni eins og málmar og timbur hafa hækkað gríðarlega og eru jafnvel illfáanleg. Norski hagfræðingurinn Christian Anton Smedshaug (Chr. Anton) fer yfir þetta í grein sinni í vefritinu www.klassekampen.no sama dag undir fyrirsögninni Festen er over. Niðurstaða þessara tveggja greininga er þó ólík, ef litið er til lokaorða þeirrar fyrrnefndu. Hvað er í gangi? Fyrrnefndur Chr. Anton leitar svara við þessari spurningu í grein sinni. Þegar hagkerfi heimsins voru kæld niður við upphaf Covid-19 faraldursins í mars 2020 komu veikleikar alþjóðavæðingar fyrst í ljós af alvöru. Heimurinn reyndist svo háður iðnaðarafurðum frá Kína að hagkerfi heimsins tóku að hökta. Annað áfallið var svo innrás Rússa í Úkraínu 24. febrúar sl. Þá birtust kristaltærar afleiðingar þess að hrávörur frá Rússlandi hurfu úr viðskiptum á Vesturlöndum. Nú orðið er erfitt að útvega iðnaðarafurðir frá Kína, bæði hvað varðar magn og afhendingartíma. Á sama tíma er sett viðskiptabann á stærsta hrávöruframleiðanda heimsins. Þessu lýsir Chr. Anton síðan þannig: „Nú eru góð ráð næstum jafn dýr og hækkandi verð á vörum, orku og matvælum.” Hátt áburðarverð – hátt vöruverð Um heim allan fara áhyggjur af hækkandi vöruverði vaxandi, nánast dag frá degi. Áburðarverð hefur ekki áður verið hærra í sögunni og má vísa til áburðarverðvísitölu CRU því til stuðnings. Í ársbyrjun 2009 stóð áburðar- verðvísitala CRU í 360 stigum en er nú komin í tæp 380 stig. Köfnunarefni er unnið úr andrúmsloftinu en til þess þarf orku sem hefur hækkað gríðarlega í verði undanfarnar vikur. Fosfór og kalíum, sem bæði eru mikilvæg næringarefni í ræktun, eru hins vegar takmarkaðar auðlindir. Í Norður-Afríku er að finna 70% af fosfórbirgðum heimsins. Heimsmarkaður á kalíum er borinn uppi af útflutningi frá Kanada og síðan Rússlandi og Hvíta-Rússlandi, sem samanlagt flytja út álíka mikið magn og Kanada. Þessi næringarefni munu hins vegar á einhverjum tíma ganga til þurrðar, þ.e. þær námur sem þau koma frá í dag munu tæmast. Hvorki hinn frjálsi markaður né aðrir stórir gerendur á markaðnum (lesist ríkisstjórnir efnahagsvelda heimsins) hafa enn gripið til aðgerða til að bregðast við þessu. Hátt áburðarverð nú ógnar framleiðslu víða um heiminn. Sumir dreifingaraðilar erlendis standa frammi fyrir því að erfiðara er að fá lán til að fjármagna viðskiptin. Þá skortir bændur fjármagn til áburðarkaupa. Víðast hafa þeir heldur ekki tekjutryggingu sem þýðir að áburðarkaup eru orðin mjög áhættusöm. Í Bandaríkjunum hefur verð á áburði til að rækta beitargróður fyrir búfé fjórfaldast á einu ári, sem dæmi. Bændur bregða því ýmist á það ráð að kaupa minna (sem dregur úr framleiðslu) eða þá að kaupa ekki áburð og hætta framleiðslu alveg. Eru Vesturlönd að tapa forskoti sínu? Chr. Anton segir í grein sinni að veislan sé búin núna. Peninga- prentun undangenginna ára, sem hefur haldið skulda- og fjárhagsvanda í skefjum, gagnast ekki lengur til að takast á við framleiðslusamdrátt og hrávöruskort. Markaðshagkerfið sem varð ráðandi í heiminum eftir fall Berlínarmúrsins getur ekki leyst þau vandamál sem við nú stöndum frammi fyrir. Síðustu 30 árin höfum við aukið bæði neyslu og skuldir samtímis því að færa mengandi iðnað og framleiðslustarfsemi sem byggir á nýtingu náttúruauðlinda til landa, út fyrir Vesturlönd. Afleiðingin er langar og brothættar framleiðslukeðjur sem getur leitt til þess að forskot Vesturlanda á m.a. Kína muni nú tapast. Kína mun hins vegar sjá um sig. Þeir hafa fleiri hlekki framleiðslukeðjunnar í hendi sér og grípa óhikað til útflutningsbanns (t.d. á áburði) þegar þurfa þykir. Telja verður að það sé einungis tímaspursmál hvernig efnahagsveldin munu þurfa að bregðast við þessu og tryggja sjálfbærni efnahagskerfa sinna að þessu leyti. Afleiðingar þess sem á undan er gengið Sérfræðingar vara við að afleiðingar þessarar „kreppu“ verði miklar og langvinnar. Í Bandaríkjunum mælist nú mesta verðbólga sem sést hefur í 41 ár. Þann 20. mars sl. sagði New York Times í fyrirsögn „Ukraine war Threatens to Cause a Global Food Crisis“. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði þann 28. mars sl. að skortur á matvælum verði raunverulegur. Þannig má áfram telja fyrirsagnir úr fréttum síðustu vikna. Margir bændur standa nú (eða munu gera á næstu mánuðum) frammi fyrir ákvörðun um fram- leiðslu komandi mánaða og ára, og það á ekki aðeins við hér á Íslandi. Framleiðslukeðjur í landbúnaði eru langar og ofan á markaðsóvissu bætast áhrif veðurfars. Frjáls markaður leysir ekki vandamál af þeim toga sem hér er lýst heldur þurfa stjórnvöld að grípa inn í og draga úr óvissu gagnvart innlendum matvælaframleiðendum, með raunhæfum og markvissum aðgerðum. Erna Bjarnadóttir Erna Bjarnadóttir. Strúktúr ehf | www.struktur. is | struktur@struktur. is | Bæjaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími: 588 6640 Strúktúr ehf | www.struktur. is | struktur@struktur. is | Bæjaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími: 588 6640 Fjölbreyttar lausnir fyrir hús & nýbyggingar Strúktúr er með lausnina fyrir húsið Allt sem við hugsum, allt sem við gerum, snýst um þig okkar viðskiptavin Einingahús CLT krosslímt tré Z Strúktúrhús Gluggar & hurðir Utanhússklæðningar Límtré Stálgrindarhús Yleiningar Dúkar & þéttiborðar Við erum alltaf klár í spjallið Hafðu samband við okkur Strúktúr_ISC000762_220x305.indd 1 10-03-2022 10:58:11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.