Bændablaðið - 28.04.2022, Qupperneq 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 2022 39
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • Frostagata 2a • 600 Akureyri • www.claas.is
VERKIN TALA
FR
U
M
-
w
w
w
.fr
um
.is
Þetta snýst allt um þig…
Nýja CLAAS – ARION 400 vélin er alveg eins og
þú vilt hafa hana.
Hver dagur færir þér ný verkefni og það ert þú sem þarft að takast á við þau.
Þegar þú kaupir dráttarvél þá þarf hún að vera alveg eins og þú vilt hafa hana.
Þú vilt dráttarvél sem gerir einmitt það sem þú vilt að hún geri og að hún uppfylli allar
þínar kröfur og væntingar. Hvorki meira og örugglega ekki minna.
Þess vegna vilt þú ekki bara næstu dráttarvél sem er til á lager.
Þú færð nýju ARION 400 dráttarvélina nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana
ARION 460 / 450 / 440 / 430 / 420 / 410 66–103 kW (90–140 hö). www.arion400.claas.com
Hefur þú brennandi áhuga á vélum og vilt vinna í lifandi og
skemm� legu umhverfi ? Vélfang leitar að öfl ugum og ábyrgum
viðgerðamanni í fullt starf á vélaverkstæðið okkar í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita Eyjólfur 8400 820
Umsóknir sendist á eyjolfur@velfang.is
Vélfang ehf. er sölu- og þjónustuaði l i á sviði v innu- og landbúnaðarvéla.
Hjá Vélfangi starfar hópur fólks sem hefur það að markmiði
að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af vélaviðgerðum er kostur.
• Menntun við hæfi kostur.
• Rík þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og sjálf tæði í vinnubrögðum.
• Gott með að vinna í teymi.
Viðkomandi þarf að geta hafi ð störf sem allra fyrst.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • velfang.is
Óseyri 8 • 603 Akureyri • velfang@velfang.is
-VERKIN TALA
Viðgerðarmaður á vélaverkstæði
Vélfangs í Reykjavík
LAMBHELDU
HLIÐGRINDURNAR KOMNAR
Áfram hagstætt verð þrátt fyrir hækkanir á heimsmarkaði
Lægsta verð 24.900 auk vsk ef keyptar eru fimm grindur eða fleiri
Lamasett og loka aðeins kr. 3.900 settið, auk vsk.
Breidd 420 cm. Hæð 110 cm. Möskvastærð 10 x 15 cm.
Verðskrá hliðgrindur: 1 stk. kr. 29.900 auk vsk.
2-4 stk. kr. 27.900 auk vsk.
5 stk. eða fleiri 24.900 auk vsk.
Upplýsingar og pantanir í síma 669 1336 og 899 1776.
Afgreitt á Hvolsvelli og í Sundahöfn án aukakostnaðar. Sent hvert á land sem er.
Meira fyrir aurinn
Lambheldu hliðgrindurnar
Þessar hliðgrindur hafa slegið í gegn um land allt. Lambheldar, léttar og auðveldar
í uppsetningu.
Breidd 4.20 m, hæð 1.10 m. Möskvastærð 10x15.
Verð á grind kr. 24.90 stk. auk vsk.
Ef keypt eru 2 til 4 stk., verð kr. 22.900 stk. auk vsk.
Ef keyptar eru 5 eða fleiri, verð kr. 19.900 stk. auk vsk.
Til afhendingar á Hvolsvelli eða í Sundahöfn án aukakostnaðar
en sent hvert á land sem er.
Pantanir og upplýsingar í símum 899 1776 og 669 1336.
LESENDARÝNI
Er veisluhöldunum að ljúka?
Fyrirsagnir í heimspressunni,
sem og innlendum fjölmiðlum,
vísa nú í vaxandi mæli til þess
að lífskjörum í heiminum er nú
ógnað af verðhækkunum og á
næstu mánuðum muni verðbólga
leika okkur grátt. Í Viðskiptablaði
Morgunblaðsins 13. apríl sl.
var fyrirsögnin: Vandræðin eru
kannske rétt að byrja.
Vandinn sem birtist okkur er
margþættur. Matvælaverð rýkur upp,
verð á gasi og olíu er í sögulegum
hæðum og önnur hráefni eins og
málmar og timbur hafa hækkað
gríðarlega og eru jafnvel illfáanleg.
Norski hagfræðingurinn Christian
Anton Smedshaug (Chr. Anton) fer
yfir þetta í grein sinni í vefritinu
www.klassekampen.no sama dag
undir fyrirsögninni Festen er
over. Niðurstaða þessara tveggja
greininga er þó ólík, ef litið er til
lokaorða þeirrar fyrrnefndu.
Hvað er í gangi?
Fyrrnefndur Chr. Anton leitar
svara við þessari spurningu í grein
sinni. Þegar hagkerfi heimsins voru
kæld niður við upphaf Covid-19
faraldursins í mars 2020 komu
veikleikar alþjóðavæðingar fyrst í
ljós af alvöru. Heimurinn reyndist
svo háður iðnaðarafurðum frá
Kína að hagkerfi heimsins tóku að
hökta. Annað áfallið var svo innrás
Rússa í Úkraínu 24. febrúar sl. Þá
birtust kristaltærar afleiðingar þess
að hrávörur frá Rússlandi hurfu úr
viðskiptum á Vesturlöndum.
Nú orðið er erfitt að útvega
iðnaðarafurðir frá Kína, bæði hvað
varðar magn og afhendingartíma.
Á sama tíma er sett viðskiptabann
á stærsta hrávöruframleiðanda
heimsins. Þessu lýsir Chr. Anton
síðan þannig:
„Nú eru góð ráð næstum jafn dýr
og hækkandi verð á vörum, orku og
matvælum.”
Hátt áburðarverð – hátt vöruverð
Um heim allan fara áhyggjur af
hækkandi vöruverði vaxandi, nánast
dag frá degi. Áburðarverð hefur ekki
áður verið hærra í sögunni og má
vísa til áburðarverðvísitölu CRU því
til stuðnings.
Í ársbyrjun 2009 stóð áburðar-
verðvísitala CRU í 360 stigum
en er nú komin í tæp 380 stig.
Köfnunarefni er unnið úr
andrúmsloftinu en til þess þarf orku
sem hefur hækkað gríðarlega í verði
undanfarnar vikur. Fosfór og kalíum,
sem bæði eru mikilvæg næringarefni
í ræktun, eru hins vegar takmarkaðar
auðlindir. Í Norður-Afríku er að finna
70% af fosfórbirgðum heimsins.
Heimsmarkaður á kalíum er borinn
uppi af útflutningi frá Kanada og
síðan Rússlandi og Hvíta-Rússlandi,
sem samanlagt flytja út álíka mikið
magn og Kanada. Þessi næringarefni
munu hins vegar á einhverjum tíma
ganga til þurrðar, þ.e. þær námur sem
þau koma frá í dag munu tæmast.
Hvorki hinn frjálsi markaður né
aðrir stórir gerendur á markaðnum
(lesist ríkisstjórnir efnahagsvelda
heimsins) hafa enn gripið til
aðgerða til að bregðast við
þessu. Hátt áburðarverð nú ógnar
framleiðslu víða um heiminn. Sumir
dreifingaraðilar erlendis standa
frammi fyrir því að erfiðara er að
fá lán til að fjármagna viðskiptin.
Þá skortir bændur fjármagn til
áburðarkaupa. Víðast hafa þeir
heldur ekki tekjutryggingu sem
þýðir að áburðarkaup eru orðin
mjög áhættusöm. Í Bandaríkjunum
hefur verð á áburði til að rækta
beitargróður fyrir búfé fjórfaldast á
einu ári, sem dæmi. Bændur bregða
því ýmist á það ráð að kaupa minna
(sem dregur úr framleiðslu) eða
þá að kaupa ekki áburð og hætta
framleiðslu alveg.
Eru Vesturlönd að tapa
forskoti sínu?
Chr. Anton segir í grein sinni að
veislan sé búin núna. Peninga-
prentun undangenginna ára,
sem hefur haldið skulda- og
fjárhagsvanda í skefjum,
gagnast ekki lengur til að takast
á við framleiðslusamdrátt og
hrávöruskort. Markaðshagkerfið
sem varð ráðandi í heiminum eftir
fall Berlínarmúrsins getur ekki
leyst þau vandamál sem við nú
stöndum frammi fyrir.
Síðustu 30 árin höfum við
aukið bæði neyslu og skuldir
samtímis því að færa mengandi
iðnað og framleiðslustarfsemi sem
byggir á nýtingu náttúruauðlinda
til landa, út fyrir Vesturlönd.
Afleiðingin er langar og brothættar
framleiðslukeðjur sem getur leitt til
þess að forskot Vesturlanda á m.a.
Kína muni nú tapast. Kína mun
hins vegar sjá um sig. Þeir hafa
fleiri hlekki framleiðslukeðjunnar
í hendi sér og grípa óhikað til
útflutningsbanns (t.d. á áburði) þegar
þurfa þykir.
Telja verður að það sé
einungis tímaspursmál hvernig
efnahagsveldin munu þurfa að
bregðast við þessu og tryggja
sjálfbærni efnahagskerfa sinna að
þessu leyti.
Afleiðingar þess
sem á undan er gengið
Sérfræðingar vara við að afleiðingar
þessarar „kreppu“ verði miklar
og langvinnar. Í Bandaríkjunum
mælist nú mesta verðbólga sem
sést hefur í 41 ár. Þann 20. mars sl.
sagði New York Times í fyrirsögn
„Ukraine war Threatens to Cause
a Global Food Crisis“. Joe Biden,
forseti Bandaríkjanna, sagði þann
28. mars sl. að skortur á matvælum
verði raunverulegur. Þannig má
áfram telja fyrirsagnir úr fréttum
síðustu vikna.
Margir bændur standa nú (eða
munu gera á næstu mánuðum)
frammi fyrir ákvörðun um fram-
leiðslu komandi mánaða og ára, og
það á ekki aðeins við hér á Íslandi.
Framleiðslukeðjur í landbúnaði eru
langar og ofan á markaðsóvissu
bætast áhrif veðurfars. Frjáls
markaður leysir ekki vandamál af
þeim toga sem hér er lýst heldur
þurfa stjórnvöld að grípa inn í og
draga úr óvissu gagnvart innlendum
matvælaframleiðendum, með
raunhæfum og markvissum
aðgerðum.
Erna Bjarnadóttir
Erna Bjarnadóttir.
Strúktúr ehf | www.struktur. is | struktur@struktur. is | Bæjaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími: 588 6640
Strúktúr ehf | www.struktur. is | struktur@struktur. is | Bæjaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími: 588 6640
Fjölbreyttar lausnir
fyrir hús & nýbyggingar
Strúktúr er með
lausnina fyrir húsið
Allt sem við hugsum, allt sem við gerum,
snýst um þig okkar viðskiptavin
Einingahús CLT
krosslímt tré
Z Strúktúrhús
Gluggar & hurðir
Utanhússklæðningar
Límtré
Stálgrindarhús
Yleiningar
Dúkar & þéttiborðar
Við erum alltaf
klár í spjallið
Hafðu samband við okkur
Strúktúr_ISC000762_220x305.indd 1 10-03-2022 10:58:11