Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 202210
Metár var í framleiðslu fiskafóðurs
hjá Laxá á Akureyri á síðasta ári.
Seld voru 12.045 tonn að verðmæti
2,6 milljarðar króna, sem er 10%
aukning á milli ára. Auk þess að
framleiða fiskafóður endurselur
Laxá yfir 600 tonn af startfóðri og
sérfóðri frá Biomar og Skretting,
það er fiskafóður sem vélbúnaður
verksmiðjunnar á Akureyri getur
ekki framleitt.
Hjá Laxá starfa í dag 9 fastráðnir
starfsmenn sem allir hafa 10 til 30
ára starfsreynslu og segir Gunnar
Örn Kristjánsson framkvæmdastjóri
það skapa mikinn stöðugleika í
framleiðslugæðum í fiskafóðri frá
fyrirtækinu.
Hvað innlenda framleiðslu á
fiskafóðri varðar framleiðir Laxá
um 85% af magninu og er með 75%
hlutdeild í fiskafóðri fyrir landeldi.
Gunnar segir að til að styrkja stöðuna
enn frekar sé nú
verið að taka í
notkun afurðasíló
sem rúmar 400
tonn af fiskafóðri.
Um er að ræða
fjárfestingu upp
á 250 milljónir
króna. Hefur hún
í för með sér að nú
er möguleiki á að
framleiða fóður
beint í afurðasíló
og þaðan er því
lestað beint í
fóðurtank sem
ekur með fiskafóður til eldisstöðva
þar sem því er dælt upp í síló.
„Það er mikið umhverfismál að
vera laus við að nota plastsekki og
trébretti til að afhenda fiskafóður
til viðskiptavina en auk þess
skapast mikið hagræði í vinnu
og öryggismálum á eldisstöðvum
með minni meðhöndlun fóðurs á
staðnum,“ segir Gunnar.
Innlend framleiðsla
tryggir lágt kolefnaspor
Hann segir að til að tryggja gæði
fiskafóðurs frá Laxá og uppfylla
kröfur viðskiptavina sé starfsemin
vottuð í bak og fyrir með Global
GAP vottun og ASC vottun. Þannig
er vottað að rekjanleiki fóðurs sé
tryggður frá eldisstöð og að uppruna
hráefna auk þess sem vottað er fyrir
ábyrgð í innkaupum, sjálfbærni
hráefna, framleiðslu afurða,
öryggismálum í verksmiðju og
umhverfismálum. Í ECO fiskafóður
frá Laxá eru eingöngu notuð
náttúruleg gæðahráefni og notkun
erfðabreyttra hráefna er ekki heimil.
Gunnar bendir á að innlend
framleiðsla á fiskafóðri tryggi lágt
kolefnafótspor með því að nota 50%
af hráefnum með uppruna hérlendis
og einnig sé í framleiðslunni notuð
hrein orka.
Gunnar segir
að hátt hlutfall
fiskimjöls og
lýsis sé í fóðrinu,
en með því er
ekki bara verið að
tryggja fiskinum
bestu fáanlegu
næringarefni því
notkun innfluttra
jurtamjölsafurða
er einnig lág
mörkuð í fram
l e i ð s l u n n i .
Notkun jurtamjöls
í fóðrinu skapa um 50% af
kolefnaspori í laxeldi sökum skógar
eyðingar fyrir ræktarland.
Flutt fram og til baka
„Það er svo ekki til að bæta stöðuna
að við flytjum inn 60 þúsund tonn
af fiskafóðri frá Noregi og Skotlandi
fyrir sjóeldi á laxi og í raun er þá
búið að flytja fiskimjöl og lýsi frá
Íslandi til þess að flytja það til
baka aftur sem hluta af hráefnum í
fiskafóðri,“ segir Gunnar og bendir
á að því sé mikilvægt að hérlendis
verði reist stór verksmiðja til að
framleiða fiskafóður sem geti annað
öllum innlenda markaðinum.
Mikill vöxtur framundan
í fiskeldi
Gunnar segir mikinn vöxt fram undan
í fiskeldi hér á landi og að líkindum
sé almenningi sú stærðargráða
ekki fyllilega ljós. Til að mynda
var útflutningur eldislax á síðasta
ári 33 þúsund tonn að verðmæti
28 milljarðar króna og eingöngu
þorskafurðir eru verðmætari tegund
í 300 milljarða króna gjaldeyri af
heildarsölu sjávarfangs. Fiskeldi
muni á næstu árum þrefaldast í
magni þegar 100 þúsund tonna
útgefin laxeldisleyfi í sjó verða
fullnýtt og með því fer verðmætið af
sölu eldislax upp fyrir 90 milljarða.
Fiskeldi sem atvinnugrein hafi gert
mörg byggðarlög á Vestfjörðum
og Austfjörðum lífvænleg aftur
og í stað þess að þiggja styrki
frá Byggðastofnun sé þar nú til
staðar traust atvinna sem skila
gjaldeyristekjum í þjóðarbúið.
„Það er sama hvort horft er á
landnýtingu, kolefnaspor, sjálfbærni,
fóðurnýtingu eða hollustu afurða,
þá er eldislax einfaldlega besti
próteingjafinn fyrir ört fjölgandi
mannkyn,“ segir hann.
Ný atvinnugrein sem gefur
miklar gjaldeyristekjur
Samlegðaráhrif eru mikil með
vaxandi fiskeldi og hefðbundnum
sjávarútvegi að sögn Gunnars, en í
raun sé það bara fiskeldisþátturinn
sjálfur sem þurft hafi að sækja
fjármagn og þekkingu erlendis frá.
„Það er vægast sagt lágkúruleg
umræða að Norðmenn séu að
arðræna okkur með fiskeldi í
íslenskum fjörðum, því þegar
uppbygging á laxeldi í sjó hófst árið
2010 var nóg fjármagn til staðar í
bönkum og lífeyrissjóðum. Þar á bæ
þorðu menn þó ekki að taka áhættuna
og því var leitað til Norðmanna með
þolinmótt fjármagn. Þetta hefur fært
okkur nýja atvinnugrein sem gefur
miklar gjaldeyristekjur og það má
að miklu leyti þakka hugrökkum
íslenskum frumkvöðlum sem fóru
af stað í þessa vegferð, að byggja
upp fiskeldi í íslenskum fjörðum.
Við værum ekki komin á þennan stað
nú nema fyrir fjármagn og þekkingu
frá norskum fiskeldisfyrirtækjum.
Framleiðslan á Akureyri
mun tvöfaldast
Ofan á aukið laxeldi í sjó hérlendis
koma svo áætlanir um stóraukið
landeldi á laxi og að því standa
fjársterkir innlendir aðilar með
Samherja Fiskeldi í fararbroddi.
„Ef áætlanir ganga eftir þá getur
magnið orðið allt að 80 þúsund tonn
sem mun fleyta gjaldeyrisöflun af
fiskeldi upp fyrir 150 milljarða króna
sem yrði þriðjungur af heildarsölu
sjávarfangs. Þar sem Laxá getur
ekki framleitt þetta fituríka fóður
fyrir sjóeldið, þá er aukið landeldi
sá vaxtarbroddur sem við horfum á
til skamms tíma og innan þriggja ára
mun framleiðslan tvöfaldast hérna
á Akureyri. Samhliða þeim vexti
sem verður á næstu árum verður
einnig horft til lengri tíma með því
að kanna hagkvæmni og möguleika
á nýrri verksmiðju fyrir framleiðslu á
fiskeldisfóðri, með það að markmiði
að sinna öllum markaðinum sem
mun nær örugglega vaxa upp í 200
þúsund tonn af fiskeldisfóðri næsta
áratuginn. Það er því mikið um að
vera í fiskeldinu og framtíðin björt
fyrir Laxá ef rétt verður haldið á
spilunum,“ segir Gunnar. /MÞÞ
FRÉTTIR
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
KAFFIVÉLAR SEM HENTA ÞÍNUM REKSTRI
GOTT KAFFI KÆTIR
Bravilor TH
Frábær uppáhellingarvél
með vatnstanki.
Bravilor THa
Frábær uppáhellingarvél
með vatnstengi.
Bravilor Sprso
Handhæg og öflug baunavél
sem hentar smærri fyrirtækjum.
Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900
Metár í framleiðslu fiskafóðurs hjá Laxá á Akureyri:
Vöxtur fram undan í fiskeldi og líkur á að
framleiðslan tvöfaldist á næstu árum
– Skoða möguleika á að reisa nýja verksmiðju sem gæti sinnt öllum markaðinum
Gunnar Örn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Fóðurverksmiðjunnar Laxár, segir að framtíðin sé björt hjá fyrirtækinu
verði rétt haldið á spilum. Stefnt er að því að framleiða um 13 þúsund tonn af fóðri í ár og gert ráð fyrir að sú tala
tvöfaldist á næstu þremur árum í takt við aukið fiskeldi hér á landi. Myndir / Laxá
Afkastageta verksmiðju Laxár Fiskafóðurs er um 30 þúsund tonn á ári.
Fjárfest hefur verið í nýjum fóðursílóum sem taka 400 tonn af fóðri og er
hægt að framleiða fóður beint upp í afurðasíló sem lestað er í fóðurtank sem
ekið er með til eldisstöðvanna. Þetta er umhverfismál, engir plastsekkir og
trébretti lengur í notkun.