Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 2022 47 Fyrstu daga apríl mátti sjá í ýmsum bæjarfélögum vélsópa þrífa með kantsteinum, en mér fannst biðin eftir að sjá eða að heyra í vélsóp í höfuðborginni löng í samanburði við önnur bæjarfélög. Get ekki komist hjá því að nefna það að í tvo daga í röð stuttu fyrir páska þurfti ég að fara í Borgarnes vinnu minnar vegna og í báðum þessum ferðum sá ég vélsóp vera að sópa götur Borganess og lítinn vélsóp vera að sópa bílaplan, en þetta bæjarfélag var langsnyrtilegasta bæjarfélagið sem ég hafði komið í þetta vorið á þessum tíma. Sú hugsun kom upp í höfði mínu að sú borg sem fyrst væri búin að sópa allar götur og gangstéttir ætti að verðskulda umhverfisverðlaun ársins og verðlaunin væru umtöluð og vegleg, gæti það orðið til þess að þokkalegur afrakstur yrði á stóra plokkdeginum, víða mátti sjá svona síðasta sunnudag. Keppni í snyrtimennsku væri almennri og metnaðarfyllri. Einhvern veginn finnst manni stundum eins og öllum sé sama um óþrifnaðinn og draslið í vegköntunum, bæði fyrir utan veg og á vegum, en í mínum huga þetta vorið á Borgarnes vinninginn. Með ólíkindum hvað mikið rusl er í öllum vegköntum Ég fer víða vinnu minnar vegna og er duglegur að ferðast og það gleður mig alltaf að sjá fólk sem er að tína rusl í vegköntum. Í vinnunni þarf ég stundum að dæla röngu eldsneyti af bílum í vegköntum við þjóðvegi og á meðan dælan dælir er oft þetta 10- 30 mínútna bið, þá rölti ég stundum fram eða aftur fyrir bílinn og tíni rusl í vegkantinum. Það er nánast sama hvar maður stoppar, það tekur ekki nema um 10 mínútur að fylla einn hefðbundinn ruslapoka. Í byrjun apríl þurfti ég að aðstoða mann rétt norðan Hvalfjarðarganga, nánar tiltekið um 100 metra inn á veginum að Akranesi. Í nálægt 30 mínútur vorum við að vinna við bílinn og á meðan sáum við mann sem hafði lagt í vegkantinn um 100 metrum frá okkur vera að tína rusl í vegkantinum. Frá þeim stað sem hann lagði og að hringtorginu við norðurenda Hvalfjarðarganga voru um 200 metrar. Á þessari stuttu vegalengd kom hann klyfjaður með að mér sýndist þrjá fulla plastpoka, búinn að tína rusl beggja vegna við veginn á aðeins 300 metrum. Ófögur sjón stutt frá álverinu í Straumsvík Sumt fólk hagar sér skammarlega gagnvart náttúrunni, en fyrir nokkrum dögum ók ég vegslóða stutt frá álverinu í Straumsvík og allt í einu blasti við mér ófögur sjón. Heilum bílfarmi af rusli hafði verið hent í vegkantinn á vegslóðanum, hreint skelfileg framkoma við náttúruna. Miðað við magnið af ruslinu þarf ekki að skoða það lengi til að finna nafn þess sem þetta rusl á, eflaust hefur þessi hrúga verið minni þegar þetta var losað, en mávur og hrafn hafa gatað marga pokana og dreift ruslinu enn frekar. Afskaplega dapurt að sjá svona umgengni. Stóri plokkdagurinn er flott framtak Síðastliðinn sunnudag var áberandi viðburður sem nefndur er „Stóri plokkdagurinn“, sem hófst formlega í Gufunesi þar sem umhverfisráðherra Guðlaugur Þór hóf daginn með sinni þátttöku í að plokka rusl á víðavangi. Seinni part sunnudagsins mátti sjá mjög víða í vegköntum afrakstur dagsins og fyrir mér virtist þetta vera heldur meira en á síðasta ári. Rusl er alls staðar og margir hópar og einstaklingar tína rusl reglulega og oft má sjá fólk í vissum bæjarfélögum og hverfum vera að tína rusl á sama staðnum aftur og aftur (einhvern veginn finnst mér mesta ruslið alltaf vera í nágrenni við bensínstöðvar, sjoppur og verslanir sem eru opnar allan sólarhringinn. Ég tel það ekki neina frekju í mér að biðla til stjórnenda á þessum ofangreindu stöðum að tína rusl oftar. Síðan er það spurning sem mætti huga að hvort einn stór plokk- dagur sé nægur, en við gætum haft apríl sem „Plokkmánuð“ sem tæki við af „Mottumars“. OG VINNUM ÚR ÞEIM LAUSNIR TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Bænda Smáauglýsingar 56-30-300 SJÓÐA RÖST RÓGUR DAGSETUR ÁLÍTA DREIFT STIL- HÖGUNAR K I P U L A G S SÖGU YÞYRFTI R Ð I DREN A F R Á S RGORT A U MÓÐGA VITLEYSA S T U Ð A U AÐ BAKI HÓGVÆR A F T A N VÍÐÁTTA G B BAND DRYKKUR TVEIR EINS G A M B R I HEITI ANNARS N A F N KRYDDMYRKVAST TÍ RÖÐ BRODD P A G N A STING VÍTA A L LITÞROTA R E N TÓNN RÍKI Í AFRÍKU L APÍNU- LÍTILLA L A N D S TITILL FJAÐRA J A R L GEGNSÆR MISMUNUR T Æ RJARÐAR D R DUND ÞOKKA D E D Ú MYNDABÓK ÁVÖXTUR A L B Ú M FIKTATITILL U N S UNDIROKA SIÐA K Ú G A RUNNI AMA E I N I RÞANGAÐ TIL R GARÐI JARÐEFNI J A T A GAUR VEIKI N A G L I FLÍK J S L A G A RÍKI Í AFRÍKU HVAÐ G A N A FORSÖGN UPP- HRÓPUN S P ÁSKJÖGRA B E R A SVENGJA SJÚK- DÓMUR H U N G R A RÓMVERSK TALA TVEIR EINS I LFÆÐA R Á I R M A MASAR N M S A RÓLEGUR L A A S R A HJÚPUR L H A U U L S ASTIG SKRAMBI M Y N D : G A B R IE LE K O TH E- H EI N R IC H ( CC B Y -S A 3 .0 ) H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 172 HLUT- SKIPTA PEST SKJÁTA KVÖÐ RÖLT VESÆL MÁLA- FYLGJA PUKRA KK. NAFN VIÐSKIPTI TOG HVÍLA LEYNA AUÐGA GLUMDI FUGL SNÖR SLYS PEX TVEIR EINS LAUT HRÓSS TVEIR EINS MONTAST BAKKIÞVAÐRA SKOTT TÓNLIST INNI- LEIKUR OFTAKA FUGL HLUTVERKI ÓGNA HÆRRA REGNHÉLA UPPHRÓPUN MÆLI- EININGU TITTIRSEMSÉ PLATA GLUFAN RASK RÓGUR HLJÓTA ÞEI ÓÞURFT FLEKKA SKORPA ÞAR TIL DRAUGUR STÆKKA FRESTA GRENJA ÓKYRRÐ EINHVER ORG SKRIÐA STRENGUR HUGBOÐ TVEIR EINS KLINK ÖFUG RÖÐ MIÐJA JURT MÆDDI STILLTURGNÆFA RANNSAKA H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 173 Borgarnes er snyrtilegasta bæjarfélagið þetta vorið – þar sópa menn götur og plön af mikilli samviskusemi: Fegrum umhverfið, umgengni við landið mætti vera betri Það er eitthvað mikið að hjá fólki sem hagar sér svona gagnvart náttúrunni. Þokkalegur afrakstur á stóra plokk­ deginum, víða mátti sjá svona síð­ asta sunnudag. Þetta er ekkert óalgeng sjón sem blasir við mér í vegköntum þar sem ég er að aðstoða fólk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.