Skessuhorn - 12.01.2022, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 20222
Þá er Þrettándanum lokið og geta
sprengjuhræddir loksins andað létt-
ar. Þó að bannað sé samkvæmt lögum
að sprengja upp flugelda eftir 6. janú-
ar þá hafa sprengjuglaðir flugeldavin-
ir stolist til þess á síðustu dögum hér
um slóðir. Flestir eru kannski ekkert að
pæla í þessu en líklegt að barnafólk
sem er að koma börnum sínum í ró á
kvöldin og þau vaknað upp með and-
fælum við læti í sprengjum og flugeld-
um hugsi þeim þegjandi þörfina. Hvað
þá heimilisdýrin sem kúra sig einhvers
staðar þar sem erfitt er að finna þau í
öllum látunum en sem betur fer fyrir
marga er þetta nú bara einu sinni á ári í
skamman tíma.
Á morgun eru líkur á að það verði suð-
vestan og vestan 13-20 m/s og él, en
yfirleitt þurrt á Austurlandi. Dregur
úr vindi og ofankomu seinnipartinn.
Hiti um eða undir frostmarki. Á föstu-
dag má búast við suðlægri eða breyti-
legri átt 5-13 og fer að snjóa, hiti breyt-
ist lítið. Rigning sunnanlands síðdeg-
is með hita 1 til 7 stig. Á laugardag
er gert ráð fyrir vestan og suðvestan
8-13 og dálitlum éljum en birtir fyr-
ir austan. Frost 0 til 7 stig. Hvessir um
kvöldið með rigningu eða snjókomu
um landið vestanvert. Á sunnudag er
útlit fyrir norðvestlæga eða breytilega
átt og él, frost 0 til 9 stig. Hlýnar sunn-
an- og vestan til seinnipartinn með dá-
lítilli rigningu.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hvernig fannst þér Ára-
mótaskaupið á RÚV?“ 32% sögðu
„Skelfilegt,“ 21% sagði „Sæmilegt,“ 20%
sögðu „Mjög gott,“ 19% sögðu „Í með-
allagi“ og 7% sagði „Frábært.“
Í næstu viku er spurt:
Hvert er uppáhalds bakkelsið þitt í
bakaríinu?
Nú er ljóst að bakarí er ekki lengur
starf rækt í Ólafsvík. Síðustu tvö ár hefur
Jón Þór Lúðvíksson starfað einn í bak-
aríinu og notið aðstoðar konu sinnar af
og til en nú hafa þau selt húsnæðið og
eiga að afhenda það nýjum eigendum
fyrir 1. febrúar. Vissulega er eftirsjá af
handverksbakstri í heilu bæjarfélagi og
er Jón Þór Vestlendingur vikunnar fyrir
að hafa staðið vaktina alla sína starfstíð.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Þjóðskrá býður nú upp á nýjung á
vefsvæði sínu. Þar getur almenn-
ingur kallað fram skýrslu um ýmis
opinber gögn í sveitarfélaginu
sem það býr í. Meðal annars er
þar að finna gögn um aldur íbúa
og aldurssamsetningu, ýmsar upp-
lýsingar um fasteignamarkað-
inn og algengustu mannanöfn í
sveitarfélaginu, svo dæmi séu tek-
in. Tölurnar eru uppfærðar reglu-
lega og taka því breytingum eft-
ir því sem fleiri gögn bætast við
gagnagrunninn. Allar nánari upp-
lýsingar má finna með að fara inn
á skra.is
Fróðlegt er að skoða þessar skýr-
slur. Í þeim er meðal annars að
finna myndrænt aldurstré íbúa.
Meðfylgandi eru myndir af tveimur
stærstu sveitarfélögunum á Vestur-
landi; Akraneskaupstað og Borgar-
byggð. Þar má sjá hvaða aldurshóp-
ar eru undir eða yfir landsmeðaltali,
eftir kyni. Aldurssamsetning íbúa
er nokkuð mismunandi í sveitarfé-
lögunum ef grannt er skoðað.
mm
Vegagerðin stefnir að því að bjóða
út seinni áfanga breikkunar Vest-
urlandsvegar á Kjalarnesi á þessu
ári en nákvæm tímasetning útboðs
liggur ekki fyrir. Verkið í heild snýst
um breikkun Vesturlandsvegar á
um níu kílómetra kafla milli Varm-
hóla í Kollafirði og gatnamóta við
Hvalfjarðarveg. Verður þetta 2 + 1
vegur en á honum verða þrjú hring-
torg; við Móa, Grundarhverfi og
Hvalfjarðarveg. Samhliða breikk-
uninni er vegtengingum fækkað og
í staðinn gerðir hliðarvegir ásamt
reiðstígum og stígum fyrir gang-
andi og hjólandi vegfarendur.
Ístak hf. í Mosfellsbæ bauð lægst
í breikkun hringvegar á Kjalarnesi,
þ.e. fyrsta áfanga frá Varmhólum að
Vallá, sem er skammt fyrir sunnan
Grundarhverfið á Kjalarnesi en til-
boðin voru opnuð hjá Vegagerðinni
í ágúst 2020. Framkvæmdir hófust í
september sama ár en fyrsti áfangi
verksins er 4,13 kílómetrar. Fjöldi
starfsmanna Ístaks hefur unnið
við verkið auk tíu undirverktaka á
vörubílum. 15 vörubílar hafa sótt
grjót í efnishauga í Hvalfirði og
verið í stöðugum ferðum. Áætlað
er að vinnu við fyrsta áfanga, frá
Kollafirði að Vallá, ljúki árið 2023
en samkvæmt samningi á verkinu
að vera lokið í júní 2023.
Við Grundarhverfi var gerð
breyting deiliskipulagsbreytingu
á árinu 2021. Samkvæmt fyrra
skipulagi átti 1+1 vegur að halda
sér framhjá hverfinu en sam-
kvæmt nýju deiliskipulagi verður
Hring vegur einnig breikkaður við
Grundarhverfi.
Þegar framkvæmdum við breikk-
un Vesturlandsvegar á Kjalarnesi
verður að fullu lokið, fyrir árið
2025 samkvæmt áætlun, verður
aðeins eftir einn einbreiður kafli
á veginum. Um er að ræða fimm
kílómetra kafla frá Varmhólum að
vegamótum Hringvegar og Þing-
vallavegar. Tvöföldun vegarins á
þessum kafla er ekki á áætlun sam-
kvæmt upplýsingum sem Skessu-
horn aflaði frá starfsmanni Vega-
gerðarinnar. Ástæðan er sú að sam-
kvæmt umferðarspám tekur fyrir-
huguð Sundabraut við meginhluta
umferðarinnar til Reykjavíkur en
brautin á að koma á brú yfir Kolla-
fjörð við Varmhóla. Sundabrautin
er hins vegar ekki komin á fram-
kvæmdastig og samkvæmt yfirlýs-
ingu samgönguráðherra og borg-
arstjóra Reykjavíkurborgar frá því
sumarið 2021 er gert ráð fyrir að
Sundabrautin eigi að verða tilbúin
2031.
vaks
Afli báta frá Snæfellsbæ var
mjög góður árið 2021, eða sam-
tals 35.539 tonn, en árið 2020 var
landaður afli 32.304 tonn. Þetta
er því 10% aukning milli ára. All-
ar þessar tölur miðast við óslægð-
an afla. Hafnir Snæfellsbæjar eru
þrjár og var landað 1.647 tonnum á
Arnarstapa árið 2021 á móti 1.784
tonnum árið 2020. Í Rifi var land-
að 21.882 tonnum árið 2021 á móti
15.581 tonni árið 2020. Í Ólafs-
vík var landað 12.008 tonnum árið
2021 á móti 15.011 tonnum árið
2020.
Rifshöfn er þriðja hæsta
löndunarhöfn landsins í þorski en
Grindavík er í efsta sætinu og svo
Siglufjörður í því þriðja. Bátar frá
Snæfellsnesi lönduðu á síðasta ári
miklu á Siglufirði og var aflinn
fluttur að stórum hluta til vinnslu í
Rifi. af
Hægt að kalla fram skýrslu um opinber
gögn sveitarfélags
Aldurstré þeirra sem nú búa í Borgarbyggð í dag. Þarna má t.d. sjá að stúlkur á
aldrinum 10-19 ára eru undir landsmeðalstali í fjölda, en ekki drengir á sama
aldri. Eldri borgarar í öllum aldurshópum eru yfir landsmeðaltali.
Aldurstré þeirra sem nú búa á Akranesi í dag. Þar má sjá að aldurshóparnir 25-34
ára og 50-59 ára eru undir landsmeðaltali, en aðrir hópar yfir, svo sem börn á
aldrinum 5-14 ára.
Svipmynd frá Rifshöfn en aflaaukning þar var 6.300 tonn milli ára.
Tíu prósenta aukning
lönduna í Snæfellsbæ
Hluti annars áfanga er nú þegar kominn til framkvæmda með fergingu vegstæðis.
Ljósm. Vegagerðin.
Seinni áfangi breikkunar Vestur-
landsvegar boðinn út á þessu ári
Ú
T
S
A
L
A
40%
afsláttur
af öllum
útsöluvörum
Opið:
mán – föst 10–18
laugardaga 10-15