Skessuhorn


Skessuhorn - 12.01.2022, Page 18

Skessuhorn - 12.01.2022, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 202218 G-vítamín dagatalið fyrir þorrann er komið í sölu hjá Geðhjálp en í því eru 30 skammtar af G-vítamíni fyrir alla. „Í dagatalinu eru lítil og einföld geðræktandi ráð sem hjálp- ar fólki að bæta geðheilsu sína. Við þurfum öll að glíma við eitt- hvað í gegnum lífið og stundum blæs hressilega á móti. En ef maður stundar reglulega geðrækt er mað- ur betur í stakk búinn til að takast á við stærri verkefni lífsins,“ útskýrir Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar í samtali við Skessu- horn. Öll vitum við að með reglu- legri líkamsrækt getum við bætt ónæmiskerfið okkar, styrkt hjart- að og líkamlega heilsu og um leið dregið úr líkum á alvarlegum sjúk- dómum. Það sama á við um geð- heilbrigði að sögn Gríms. „Við getum ekki alveg komið í veg fyr- ir geðrænar áskoranir en við getum dregið úr líkunum og komið í veg fyrir stærri vandamál með reglu- legri geðrækt.“ Geðhjálp á landsbyggðinni Íbúar á landsbyggðinni búa margir langt frá geðheilbrigðisþjónustu en að sögn Gríms eru þó nokkrir val- kostir sem fólk getur nýtt sér. Fyrst og fremst leggur hann áherslu á fyrirbyggjandi aðferðir eins og geð- rækt en fyrir þá sem þurfa meiri að- stoð er hægt að fá viðtöl í gegn- um fjarbúnað á netinu auk þess sem hægt er að leita til heilsugæsl- unnar í sínu sveitarfélagi. „Það er í dag hægt að fá sálfræðiþjónustu á netinu. Mín líðan býður til dæmis upp á fjarviðtöl. Þar fer öll þjónust- an fram á netinu. Við hjá Geðhjálp erum með sálfræðing sem býður upp á fjarviðtöl í gegnum öruggan búnað. Það er líka hægt að leita til heilsugæslunnar en í dag eru komin geðheilsuteymi í öllum landshlut- um. Lykillinn er samt alltaf geð- rækt, að sinna sér á hverjum degi og styrkja sig þannig þegar stærri verkefni lífsins berast manni,“ seg- ir Grímur. „Þunglyndi er ekki eitt- hvað sem maður rífur sig upp úr“ Heimsfaraldurinn hefur haft mik- il áhrif á geðheilsu almennings og þau sem eru komin djúpt í vanlíð- an og þurfa á aðstoð að halda strax geta leitað á bráðamóttöku geðsviðs eða til heilsugæslunnar. „Það er líka alltaf hægt að hringja til okkar og fá ráð eða fá viðtal, það getur þess vegna verið nafnlaust. Oft er bara gott að tala við einhvern og það er mikilvægt að fólk leiti sér aðstoð- ar þegar þess þarf,“ segir Grímur. „Við vissum það þegar Covid kom að veiran myndi hafa áhrif á geð- heilsu fólks. Við erum ekki vön sóttkví, einangrun og að fá ekki að hitta fólkið okkar. Það sem skiptir mestu máli er að halda rútínu eins og hægt er og vera í tjáningu við fólk. Einangrun er aldrei góð og vindur oft upp á sig, veldur kvíða og vandinn bara vex. Það er mik- ilvægt að fólk reyni að vera virkt til að koma sér út úr þessum aðstæð- um, en bara taka lítil skref í einu. Þunglyndi er hins vegar ekki eitt- hvað sem maður rífur sig upp úr,“ bætir hann við. Umræðan að breytast Aðspurður segir hann geðheilsu enn vera tabú umræðuefni en að það sé að breytast. „Það er skrýt- ið hvað við virðumst eiga erfitt með að tala um þetta. Það er t.d. vandamál hversu margir taka eig- ið líf á Íslandi og þetta er oft ungt fólk. Þetta snýst um geðheilsu og því miður hafa verið fordómar fyr- ir geðrænum vanda og fólk hefur í gegnum árin skammast sín fyrir að þurfa aðstoð. Sem betur fer er þetta að breytast og ungt fólk talar um að fara til sálfræðinga, geðlækna og annarra sem bjóða upp á við- talsmeðferðir eins og ekkert sé sjálfsagðara,“ segir Grímur „Við þurfum líka að muna að við höfum öll geðheilsu sem þarf að huga að. Geðheilsa er ekki bara eitthvað sem á við um þá sem glíma við mikinn geðrænan vanda. Geðrænar áskor- anir eru allskonar,“ segir Grímur. G-vítamín dagatalið er hægt að kaupa á gvitamin.is og upplýsingar um hvert er hægt að leita og góð ráð til geðræktar má finna á heima- síðu Geðhjálpar, gedhjalp.is. arg Prjónagleðin verður haldin á Blönduósi helgina 10. - 12. júní í sumar og að venju er blásið til hönnunar- og prjónasamkeppni af því tilefni. „Að þessu sinni geng- ur samkeppnin út að að hanna og prjóna lambhúshettu á fullorðinn. Þema keppninnar er huldufólk sam- tímans og ber að hafa það í huga við hönnunina, sem á að vera hand- prjónuð úr íslenskri ull. Óskað er eftir því að sagan á bak við hugmynd og hönnun fylgi með þegar verkinu er skilað inn í keppnina,“ segir í til- kynningu. Dómnefnd velur þrjú efstu sætin og verða úrslit kynnt á Prjóna- gleðinni 2022, þar sem verðlaun verða afhent. Styrktaraðilar keppn- inar eru Ístex, Tundra, Vatns- nesYarn og Rúnalist sem gefa glæsi- leg verðlaun. Lambhúshetturnar sem taka þátt í keppninni verða til sýnis á meðan á hátíðinni stendur. Nánari upplýsingar veitir Svanhild- ur Pálsdóttir svana@textilmidstod.is og þær má einnig finna á www.text- ilmidstod.is -fréttatilkynning Miðvikudaginn 19. janúar næst- komandi verður #ruralbusiness dagurinn á samfélagsmiðl- um. Þennan dag er almenningur hvattur til að vekja athygli á því frá- bæra fólki, þjónustu og vörum fyr- irtækja á landsbyggðinni með því að segja frá sínum uppáhalds fyr- irtækjum á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #ruralbuisness eða #landsbyggda fyrirtaeki. Markmið- ið er að vekja athygli á fyrirtækjum á landsbyggðinni og styðja þannig við og byggja upp samfélög á lands- byggðinni og styrkja viðskipta- tengsl þeirra um allan heim á breið- um alþjóðlegum vettvangi. Fólk er hvatt til að nota sína samfélags- miðla: Instagram, Facebook, Twitt- er, Linkedin eða aðra miðla. arg Matvælastofnun hefur lokið rann- sókn sinni á meðferð hryssna við blóðtöku, sem fram kom í mynd- bandi sem dýraverndarsamtök- in Animal Welfare Foundation (AWF) og Tierschutzbund Zürich (TBZ) gerðu opinbert á vefmiðlin- um YouTube 22. nóvember 2021. Matvælastofnun hefur nú vísað málinu og þeim gögnum sem fyr- ir liggja til lögreglu til frekari rann- sóknar og aðgerða. „Með bréfi til ofangreindra samtaka, óskaði Matvælastofn- un eftir upplýsingum um hvar og hvenær myndböndin hafi verið tek- in upp auk þess sem óskað var eft- ir óklipptu myndefni til að nota við rannsóknina. Samtökin svör- uðu með opnu bréfi þann 1. des- ember 2021 þar sem þau höfnuðu að afhenda óklippt efni og tilgreina tökustaði en gáfu upp tökudaga myndbandsins,“ segir í tilkynningu frá MAST. „Sérfræðingar Mat- vælastofnunar hafa farið ítarlega yfir myndbandið og greint þau at- vik sem talin eru brjóta í bága við lög um velferð dýra og metið áhrif þeirra á hryssurnar. Rannsókn stofnunnarinnar leiddi enn frem- ur í ljós hvar atvikin áttu sér stað og hvaða fólk átti hlut að máli. Við rannsóknina leitaði stofnunin eft- ir skýringum og afstöðu fólksins til þess sem fram kemur í mynd- böndunum. Eins og áður seg- ir hefur stofnunin ekki aðgang að óklipptu myndefni sem takmarkar möguleika hennar á að meta alvar- leika brotanna og gerir stofnuninni því ókleift að rannsaka málið til fullnustu,“ segir í tilkynningu. mm/ Ljósm. Ísteka.is. Vísa blóðtökurann- sókn til lögreglu Vekja athygli á fyrirtækjum á landsbyggðinni Lambhúshettur þema Prjónagleðinnar 2022 G-vítamín dagatalið er komið í sölu. Geðrækt er lykillinn að góðri geðheilsu Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.