Skessuhorn - 09.02.2022, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 20226
Dósamóttakan
opnuð að nýju
AKRANES: Endur
vinnslumóttaka Fjöliðjunn
ar að Smiðjuvöllum 9 hef
ur verið opnuð að nýju eft
ir tímabundna lokun vegna
Covid19. Opnunartími er
alla virka daga frá klukkan 9
til 11:45 og frá klukkan 13 til
15:30. -vaks
Aðalfundur
Knattspyrnufé-
lags ÍA
AKRANES: Aðalfundur
Knattspyrnufélags ÍA verð
ur haldinn á Jaðarsbökk
um fimmtudaginn 17. febrú
ar næstkomandi klukkan 20.
Dagskrá fundarins er sam
kvæmt 8. grein laga félags
ins sem finna má á heimsíð
unni kfia.is. Tillögur um laga
breytingar skulu berast skrif
stofu félagsins eigi síðar en 10.
febrúar nk. -fréttatilk.
Sorprit
AKRANES: MTH útgáfa á
Akranesi gefur út hljóðbók
ina „Sorprit og fleiri sög
ur,“ smásögur eftir Kristján
Kristjánsson, í lestri Kristjáns
Franklín Magnúsar. Verkið
samanstendur af sögum sem
Kristján Kristjánsson samdi
á síðasta áratug síðustu aldar.
Þær eiga það flestar sameigin
legt að fjalla um einfara, suma
hverja sem standa á jaðri sam
félagsins og rata í ófyrirséð
ar aðstæður. Stórar áskoranir
jafnt sem hversdagslegustu at
vik geta vakið upp spurningar
um hvernig best sé að halda
áfram. Sorprit er aðgengilegt
á Storytel. -mm
Slasaðist á fæti
STYKKISHÓLMUR: Á
föstudagsmorguninn síðasta
varð slys á Silfurgötu þegar
farþegi í bíl var að fara út úr
bifreið og rann til í hálkunni.
Klemmdi hann fótinn á milli
gangstéttarkants og bifreiðar
innar og slasaðist á fæti. Þar
sem aðeins einn sjúkraflutn
ingsmaður var á sjúkrabíln
um þurfti lögreglan að aka
sjúkrabifreiðinni á HVE í
Stykkishólmi meðan hlúð var
að hinum slasaða. -vaks
Ók próflaus
í yfir 20 ár
HVALFJ.SVEIT: Við al
mennt umferðareftirlit Lög
reglunnar á Vesturlandi síð
asta föstudagskvöld var öku
maður bifreiðar stöðvaður
á Vesturlandsvegi við Hval
fjarðargöng. Þá kom í ljós að
hann var ekki með gild öku
réttindi og síðan kom í ljós við
nánari eftirgrennslan að öku
maðurinn hafði verið svipt
ur ökuleyfi um síðustu alda
mót en aldrei verið stöðvað
ur af lögreglu þau rúmlega 20
ár sem síðan eru liðin. Þar sem
sviptingin var fallin úr gildi
var hann ekkert að flýta sér að
endurnýja leyfið. Viðkomandi
þarf að taka ökuprófið aftur,
vilji hann aka bíl, og á von á
himinhárri sekt. -vak
Cessna flugvélin TFABB sem
saknað var á fimmtudaginn með
flugmann og þrjá farþega um
borð, fannst seint á föstudags
kvöld í Ölfus vatnsvík, syðst í Þing
vallavatni. Fjölmennasta og um
fangsmesta leitaraðgerð síðari ára
hafði þá staðið yfir að vélinni í hálf
an annan sólarhring. Meðal annarra
tók þátt í leitinni björgunarsveitar
fólk víðs vegar af landinu auk þess
sem leitað var úr lofti. Vélin fannst
á um 50 metra dýpi í vatninu og
verður viðamikið og flókið verk
efni að ná henni upp. Til þess þarf
meðal annars eins til tveggja daga
stillt veður. Vélin fannst með því að
sendur var neðansjávar smákafbát
ur til leitar í vatninu og var þannig
hægt að staðsetja flak vélarinnar.
Áður hafði olíubrák sést á vatninu
á svipuðum slóðum.
Á sunnudaginn hófst að nýju leit í
Þingvallavatni eftir að í ljós kom að
enginn var um borð í flugvélarflak
inu. Allt kapp var lagt á leit þann
dag, því veðurútlit er slæmt dag
ana á eftir. Lík mannanna fjögurra
fannst svo síðdegis á sunnudaginn.
Beðið er lags þar til veður geng
ur niður að ná þeim upp. Íslenskur
flugmaður, Haraldur Díegó, fórst
í slysinu. Farþegar með honum í
vélinni voru erlendir ferðamenn á
aldrinum 2232 ára. Þeir voru frá
Hollandi, Belgíu og Ameríku.
mm
Þessa mynd af Dóru, 107 ára, tók Áskell sonur hennar. Í bakgrunninum er skrán-
ing fæðingar og skírnar í prestsþjónustubók Grenivíkurprestakalls.
Dóra Ólafsdóttir, sem var elst allra
Íslendinga, lést á hjúkrunarheim
ilinu Skjólvangi í Reykjavík föstu
daginn 4. febrúar á 110. aldursári.
Dóra átti lögheimili á Ægissíðu í
Hvalfjarðarsveit, þar sem sonur
inn Áskell og Vilborg tengdadótt
ir hennar búa, en dvaldi á hjúkr
unarheimilinu síðustu æviárin.
Fram undir það síðasta fylgdist
Dóra vel með þjóðmálum, íþrótt
um og mannlífinu, las blöðin og
var viðræðugóð. Hún var vel ern
en aðeins var þó sjón og heyrn far
in að gefa eftir undir lokin.
Aðeins einn Íslendingur hef
ur náð hærri aldri en Dóra. Það
er Guðrún Björg Björnsdóttir
sem var á fjórða aldursári þegar
hún flutti með foreldrum sínum
frá Vopnafirði til Vesturheims og
var orðin 109 ára og 310 daga
þegar hún lést, í ágúst 1998, á
dvalarheimilinu Betel í Gimli í
Manitoba í Kanada. Dóru vant
aði því rúma þrjá mánuði til að
ná sama aldri og Guðrún Björg.
Eigin maður Dóru var Þórir Ás
kelsson sjómaður og seglasaum
ari en hann lést árið 2000. Sonur
þeirra er Áskell fyrrverandi rit
stjóri Bændablaðsins og eldri dótt
ir Dóru er Ása Drexler sem búsett
er í Bandaríkjunum.
Dóra sagði í fréttaviðtölum að
á æskuheimilinu hafi hún alltaf
fengið hollan mat og að nýmeti
hafi oft verið á borðum. Dóra taldi
að langt líf væri ekki síst að þakka
reglulegri hreyfingu en hún gekk
alltaf milli heimilis og vinnustaðar
á Akureyri og fór reglulega í sund.
Þá brúkaði hún hvorki áfengi né
tóbak. mm
And lát:
Dóra Ólafsdóttir
Fjórir létu lífið í flugslysi á Þingvallavatni