Skessuhorn - 09.02.2022, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2022 15
Svo skemmtilega vildi til síðast
liðinn föstudag að tveir menn á
Akranesi sem bera sama nafn fengu
afhenta eins bíla á bílasölunni Bílás.
Guðmundur Valdimarsson fékk
nýjan Kia EV6 Luxury rafbíl, svart
an að lit, en nafni hans fékk hvít
an. Þótt báðir séu þeir nafnarn
ir komnir á lífeyrisaldur er ann
ar tæpum tveimur áratugum eldri.
Það fór vel á með þeim nöfnun
um þegar skrifað var undir pappíra
og gengið frá kaupunum síðdegis á
föstudaginn. Bílar af þessari tegund
eru 77 kWh og er uppgefin drægni
þeirra 506528 kílómetrar. mm
Stjórnvöld og Íslandsstofa hafa
undirritað samning um fram
hald verkefnisins „Ísland saman í
sókn“ sem er markaðsverkefni fyr
ir íslenska ferðaþjónustu. Verk
efnið er hluti af viðspyrnu stjórn
valda vegna COVID19 heimsfar
aldursins. Með samningnum eru
verkefninu tryggðar 550 milljón
ir króna í viðbótarfjármagn frá rík
inu en peningurinn verður nýttur
til að framlengja markaðsverkefnið
í ár. „Ísland saman í sókn fór vel
af stað, vakti mikla og verðskulda
athygli og skilaði góðum árangri. Í
ljósi þess að faraldurinn hefur dreg
ist töluvert á langinn er nauðsyn
legt að halda verkefninu áfram og
byggja þannig undir nauðsynlega
viðspyrnu ferðaþjónustunnar á ár
inu 2022,“ segir Lilja Dögg Al
freðsdóttir ferðamálaráðherra sem
skrifaði undir samninginn við Pétur
Þ. Óskarsson framkvæmdastjóra Ís
landsstofu.
Tilgangur verkefnisins er að
styrkja ímynd Íslands sem áfanga
staðar, auka eftirspurn og viðhalda
samkeppnisstöðu íslenskrar ferða
þjónustu og annarra útflutnings
greina. Verkefnið er unnið í sam
ræmi við framtíðarsýn og leiðar
ljós íslenskrar ferðaþjónustu til
2030 sem ber yfirskriftina „Leið
andi í sjálfbærri þróun“ og lang
tímastefnu stjórnvalda og atvinnu
lífs fyrir íslenskan útflutning.
„Í gegnum faraldurinn hefur
tekist að viðhalda miklum áhuga á
ferðalögum til Íslands með mark
vissum aðgerðum. Markaðssetning
áfangastaðar er langhlaup, og nú
þegar gera má ráð fyrir að ferða
þjónusta sé að taka við sér á ný
þurfum við að vera tilbúin til þess
að mæta þeirri miklu samkeppni
sem gera má ráð fyrir frá öðrum
áfangastöðum og breyta þessum
uppsafnaða áhuga í heimsóknir til
landsins. Við erum spennt fyrir því
verkefni sem framundan er í sam
starfi við íslenska ferðaþjónustu,“
segir Pétur Þ. Óskarsson, fram
kvæmdastjóri Íslandsstofu.
„Það er mjög mikilvægt og í
raun nauðsynlegt fyrir greinina og
áfangastaðinn Ísland að fá þennan
stuðning núna þegar allir áfanga
staðir heims fara að keppast um
að ná til sín takmörkuðum fjölda
ferðamanna. Ég vil hrósa ríkis
stjórninni fyrir að taka þetta skref
núna. Þessi fjárfesting mun skila sér
í hraðari viðspyrnu fyrir ferðaþjón
ustuna í landinu og efnahagslífið
í heild,“ segir Bjarnheiður Halls
dóttir, formaður Samtaka ferða
þjónustunnar.
mm
Nú í maí verður kosið til sveitar
stjórna á Íslandi. Það gefur tækifæri
til breytinga í bæjarstjórnum og
yfir stjórnum sveitarfélaganna.
Í Borgarbyggð hefur hvert vanda
málið á fætur öðru komið upp. Má
þar nefna skipulagsmál, skólamál,
málefni húsa í Brákarey og leigj
enda þar og þá má ekki gleyma
framkvæmdum við Grunnskólann í
Borgarnesi. Skýrsla KPMG um það
mál er ein samfelld lýsing á afleitri
stjórnun, í raun algjöru stjórnleysi
við framkvæmdina.
Það sem blasir við er að þörf er
á fólki í sveitarstjórn og yfirstjórn
Borgarbyggðar með menntun og
reynslu af stjórnun rekstrar og
framkvæmdum.
Stjórnmálaflokkar sem bjóða
fram til sveitarstjórnar í vor þurfa
að skoða sín mál vel og spyrja sig
hvort ekki sé nauðsyn á breyting
um og hvort ekki sé hægt að fá öfl
ugt fólk til framboðs, fólk sem get
ur tekið á fjölþættum vandamálum
sveitarfélagsins.
Það er gott að búa í Borgarnesi.
Bætt stjórnsýsla mundi án efa gera
Borgarbyggð eftirsóknaverðari til
uppbyggingar og búsetu.
Borgarnesi, 10. febrúar
Guðsteinn Einarsson.
Frétt í Skessuhorni 26. janúar bar
yfirskriftina: Staðfestir ákvörðun
um lokun mannvirkja í Brákar
ey. Fréttin byggir á yfirlýsingu
frá sveitarstjórn Borgarbyggðar
(byggðarráði), en þar segir: ,,Í úr
skurði samgöngu og sveitarstjórn
arráðuneytisins er staðfest að að
gerðir slökkviliðsstjóra vegna Brák
arbrautar 2527, um bæði lokun
húsnæðisins og…. hafi verið í sam
ræmi við valdheimildir slökkviliðs
stjóra og stjórnsýslureglur.“
Hér hlýtur fyrsta spurningin að
vera: Er það slökkviliðsstjóri, ekki
sveitarstjórn, sem tekur ákvörðun
ina? Dæmi: Sóttvarnalæknir sendir
heilbrigðisráðherra tillögur. Heil
brigðisráðherra gefur út reglu
gerðina. Hún þarf ekki að vera í
samræmi við tillögur sóttvarna
læknis! Fyrir nokkru birtist í sjón
varpinu viðtal við slökkviliðsstjór
ann í Reykjavík þar sem hann sagði
frá því að eldvarnareftirlit Reykja
víkur hefði þá stefnu að „...lagfæra
það sem lagfæra þyrfti í samráði við
eigendur/íbúa, enda væri það tak
markið að bæta eldvarnir!“
Í greininni í Skessuhorni kemur
einnig fram að leigjendur húsnæð
isins/íbúar hafi verið óánægðir með
aðgerðirnar, eins og rétt er. Það
kemur hins vegar ekki fram að:
1. Hluti bygginganna hafði
verið lagfærður og mátti auðveld
lega gera að sér eldvarnarhólfi.
2. Hluti bygginganna
voru ekki tengdar rafmagni.
Athugasemdir eldvarnafulltrúa
voru fyrst og fremst um eldhættu
vegna rafmagns.
Athugasemdir íbúa, leigenda,
hafa fyrst og fremst snúið að því að
aðgerðir sveitarfélagsins (eldvarna
fulltrúa) hafi verið bæði snöggar og
valdið óeðlilegri röskun á starfsemi
félagasamtaka og klúbba sem höfðu
aðstöðu í ,,Sláturhúsinu“ Brákar
braut 25. Fjárhagstjón einstaklinga,
félagasamtaka og sveitarsjóðs Borg
arbyggðar er verulegt.
Annað atriði sem gagnrýnt hef
ur verið er að sveitarstjórn hefði
átt að setja upp áætlun um úrbæt
ur á húsnæðinu, eins og eldvarnar
eftirlit Reykvíkinga virðast hafa á
sinni stefnuskrá. Fram hefur kom
ið að einstaklingar/félagasamtök
sem þarna störfuðu hefðu verið
fús til að taka þátt í að lagfæra það
sem laga þurfti. Það vilja allir hafa
eldvarnir í lagi.
Sveitarstjórn hefur valdið óþarfa
röskun á starfsemi klúbba, fé
lagasamtaka og atvinnustarfsemi
í Brákarey. Það versta er þó, að
sveitarstjórn virðist ekki hafa tek
ið ákvörðun um hvaða starfsemi
eigi eða megi vera í Brákarey! Það
veldur stöðnun og óvissu.
Sveinn Hallgrímsson
Höf. er eldri borgari.
Pennagrein
Breytinga þörf!
Pennagrein
Brákareyjar - málið
Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri
Íslandsstofu, Lilja Dögg Alfreðsdóttir,
ferðamálaráðherra og Bjarnheiður
Hallsdóttir, formaður Samtaka ferða-
þjónustunnar undirrituðu samninginn
í Grósku.
Aukið fjármagn til markaðssetningar ferðaþjónustunnar
Alexander Þórsson bílasali, Guðmundur Valdimarsson, Guðmundur Valdimarsson
og Jón Haukur Pálmason bílasali.
Alnafnar fengu afhenta
tvo nýja Kia rafbíla
Guðmundur eldri verður níræður á þessu ári. Hann var hvergi banginn að fjár-
festa í nýjum rafbíl, sagði þetta vera draumabíla.