Skessuhorn - 09.02.2022, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2022 9
hagvangur.is
Umsjónarmaður í eignaumsýslu
Hefur þú þekkingu og reynslu af umsýslu fasteigna og/eða
byggingaframkvæmda? Öflugt teymi leigufélagsins Bríetar í Borgarnesi ætlar
nú að bæta við aðila sem býr yfir útsjónarsemi og hefur ánægju af því að vera
í samskiptum við mismunandi aðila í fjölbreyttum verkefnum
í eignaumsýslu félagsins.
Starfssvið og helstu verkefni
• Umsjón með ferlum, umsýslu, útleigu og viðhaldi fasteigna Bríetar
• Umsjón með vinnslu á ástandsmati og viðhaldi, og kostnaðaráætlunum
• Eftirfylgni með framgangi og kostnaðarmati framkvæmda vegna eigna Bríetar
• Samskipti við umsjónarmenn félagsins, leigjendur og meðeigendur
• Aðkoma að húsfundum og viðhaldsverkefnum húsfélaga og árlegri vinnslu
framkvæmdaáætlana
• Dagleg umsýsla vegna umsjónar eigna Bríetar ásamt öðrum tilfallandi verkefnum
að beiðni verkefnastjóra og framkvæmdastjóra
Upplýsingar veitir Gyða Kristjánsdóttir,
gyda@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. febrúar nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is
Skannaðu kóðann
fyrir nánari
upplýsingar
Leigufélagið Bríet býður einstaklingum og fjölskyldum upp á traust og hagkvæmt eigið húsnæði
á landsbyggðinni með því að stuðla að auknu framboði í samstarfi við sveitarfélögin og aðra
hagaðila. Þannig er félagið virkur þátttakandi í að auka húsnæðisöryggi, örva atvinnulíf og styðja við
íbúaþróun. Nánari upplýsingar á briet.is.
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Dagana 24. til 28. janúar síðast
liðna safnaði Jóhanna María Sig
mundsdóttir, íbúi og verkefnastjóri
í Dalabyggð, saman upplýsingum
um fjarskiptasamband meðal íbúa
í sveitarfélaginu, þ.e. GSM og
Tetra samband og sambandsleysi í
héraðinu. Hún óskaði eftir upplýs
ingum frá íbúum í gegnum Face
book og voru margir sem sendu
henni ábendingar. Hún setti saman
meðfylgjandi mynd þar sem rauðu
punktarnir sýna þau svæði sem íbú
ar tilkynntu um að væri slitrótt eða
ekkert farsímasamband. Þá sótti
hún mælingar frá Póst og fjar
skiptastofnun á styrk merkja fyr
ir GSM, 3G og 4G sem sýna hvar
samband gæti rofnað, er lítið eða
ekkert og eru þær mælingar merkt
ar með gulu á myndinni, þess ber
þó að geta að þessar mælingar voru
gerðar á árunum 20152017. Að
lokum tók hún saman þau svæði
þar sem Tetra samband er lítið eða
ekkert og er það merkt með græn
um kössum á myndinni. Þá bend
ir hún á að ekki séu tekin inn þau
svæði sem eru utan byggðar eða
vegarkafla en eru með lélegt eða
ekkert símasamband. Þetta eru
svæði sem nýtt eru af bændum, úti
vistarfólki og ferðamönnum.
Geta ekki notað
rafræn skilríki
Í samtali við Skessuhorn segist Jó
hanna María hafa ákveðið að taka
þetta saman í ljósi þess að íbúar
hafa mikið kvartað yfir lélegu síma
sambandi víða í Dölum en ekki
fengið viðbrögð frá þeim sem geta
bætt úr ástandinu. Þá bendir hún
á að rafmagn hafi ítrekað verið að
fara af á sumum svæðum og þá hafi
símamöstur einnig verið að detta
út. Jóhanna María segir einnig að
með upplýsingunum sem hún safn
aði hafi ótal sögur fylgt af atburð
um, þar sem fólk hafi verið í hættu
vegna sambandsleysis, m.a. í bílum
í ófærð eða/og vondum veðrum.
Fólk lætur í ljós mikið öryggisleysi
og telur að stundum hafi munað
litlu að illa færi.
„Við höfum vakið athygli á þessu
og sveitarstjórn ályktað um þetta
en það er engin hreyfing og einu
viðbrögðin sem við þó fáum eru
bara að tryggja neyðarþjónustu. En
það þarf símasamband fyrir fleira
en að hringja í 112,“ segir Jóhanna
María og bendir á að til dæmis
þýði þetta að erfitt sé að ná í for
eldra barna ef eitthvað kemur fyr
ir í skóla eða leikskóla, símaviðtöl
við lækna geti verið erfið og aðr
ir hversdagslegir hlutir. „Þetta hef
ur líka meiri áhrif en bara á daglegt
líf fólks, þetta kemur líka niður á
fólki sem er að reka fyrirtæki eða
í atvinnurekstri á þessum svæðum.
Fólk fær ekki tilkynningar um bil
anir frá tækjabúnaði sem notast við
farsímasamband og svo getur fólk
ekki notast við heimabanka því það
getur ekki notað rafræn skilríki,“
segir Jóhanna María og bendir á
að samhliða þessu vandamáli sé nú
verið að loka útibúi Arion banka
í Búðardal. „Fólk sem kemst ekki
á heimabankann sinn getur ekki
einu sinni bjargað sér með að fara í
bankann,“ segir hún.
Bíðum ekki
eftir harmleik
Jóhanna María sendi samantekt
sína á alla þingmenn í Norðvestur
kjördæmi og segist hafa fengið góð
viðbrögð. Lilja Rannveig Sigur
geirsdóttir þingkona Framsóknar
flokksins tók málið fyrir í ræðu á
þingfundi síðastliðinn miðviku
dag, 2. febrúar. Þar sem hún m.a.
hvatti ráðherra fjarskiptamála, Ás
laugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, til
að beita sér fyrir því að bæta ör
yggi íbúa í dreifðari byggðum. „Ég
vona að stjórnvöld fari að gera úr
bætur í þessum málum í stað þess
að hugsa bara um að hoppa frá 3G
4G og nú 5G en um leið er lág
marks símasamband ekki tryggt
um allt land,“ segir Jóhanna María.
Þá bendir hún á að þegar koparinn
var tekinn úr jörðu hafi margir íbú
ar orðið hálfpartinn allslausir hvað
fjarskipti varðar, þó hún segi að
vissulega sé ljósleiðarinn góð við
bót. „En það dugar ekki, það þarf
að vera nothæft símasamband líka.
Maður hélt að það væri kannski
bara sjálfsagður hlutur svona árið
2022, að það væri lágmarks grunn
þjónusta til staðar fyrir alla íbúa
landsins. Á meðan stjórnvöld vilja
færa allt yfir á rafrænt form þar
sem notuð eru rafræn skilríki þá
hefði maður haldið að fyrst þyrfti
að tryggja símasamband,“ seg
ir hún. „Þau fyrirtæki sem reka
fjarsímakerfið segja kostnaðinn of
mikinn til að bæta þjónustuna fyrir
svona fáa íbúa. Er þá ekki komið að
stjórnvöldum að stíga inn í og sjá
til þess að öllum íbúum í landinu
sé tryggt viðunandi fjarskiptasam
band?“
Fleiri íbúar hafa tjáð sig í kjöl
far þessarar samantektar og fólki
er mikið niðri fyrir. Jóhanna Mar
ía segir í færslu sem hún skrifaði
um málið á íbúasíðu í Dalabyggð:
„Bíðum ekki eftir harmleik áður
en gengið er til verka!“ Hún tekur
þannig undir ákall íbúa um úrbæt
ur stjórnvalda tafarlaust; „því all
ir íbúar þessa lands eiga að skipta
máli.“ bj/arg
Íbúar í Dölum hafa fengið nóg af lélegu farsímasambandi
Rauðu punktarnir sýna þau svæði sem íbúar tilkynntu um að væri slitrótt eða ekkert farsímasamband, gulir hvar samband
gæti rofnað og grænir kassar þar sem Tetra samband er lítið eða ekkert.
Jóhanna María er verkefnastjóri atvinnu-, markaðs- og ferðamála hjá Dalabyggð.
Ljósm. úr safni.