Skessuhorn - 09.02.2022, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 202222
Ertu hjátrúafull(ur)??
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Ingibjörg Ösp Júlíusdóttir
„Nei, sný ekki við þó ég mæti
svörtum ketti, geng undir stiga
og hendi yfirhöfnum á rúm
annarra.“
Kristinn Jens Kristinsson
„Nei, alls ekki.“
Ragnar Valgeir Jónsson
„Nei, engan veginn.“
Erla Dís Sigurjónsdóttir
„Já, aðeins.“
Nanna Þóra Áskelsdóttir
„Já, en fer eftir aðstæðum.“
Hefur áhuga á öllu
sem er skemmtilegt
Íþróttamaður vikunnar
Borgnesingurinn Einar Þ. Eyjólfs
son hefur verið ráðinn fjármála og
rekstrarstjóri Ungmennafélags Ís
lands, UMFÍ, og hefur hann haf
ið störf. Einar þekkir vel til ung
mennafélagshreyfingarinnar. Hann
er íþróttakennari og viðskipta
fræðingur að mennt en undanfar
in ár hefur hann starfað sem sér
fræðingur hjá Húsnæðis og mann
virkjastofnun. Eins og Borgnesinga
er siður æfði Einar knattspyrnu en
hann hefur samhliða öðrum störf
um starfað sem knattspyrnuþjálfari
hjá hinum ýmsu félögum, m.a. hjá
heimafélaginu Skallagrími. Ein
ar er fæddur árið 1975 og er gift
ur MajBritt Briem lögmanni. Þau
eiga þrjár dætur; Herdísi Maríu,
Þóru Guðrúnu og Valý Karen sem
allar stunda knattspyrnu hjá Þrótti
R. Hans helstu áhugamál eru sam
verustundir með fjölskyldunni,
ferðalög, eldamennska og að sjálf
sögðu íþróttir.
Starf Einars felur í sér umsjón
með fjármálum og almennum
rekstri UMFÍ. Hann mun einnig
koma að ýmsum öðrum verkefnum
eins og stefnumörkun, skýrslugerð
og úrvinnslu gagna, upplýsinga
gjöf til stjórnenda auk þess að sinna
ýmsum tilfallandi verkefnum.
„Söfnun gagna og úrvinnsla
þeirra er mikilvægur liður í skil
virku starfi UMFÍ og þjónustu við
sambandsaðilana og íþróttafélög
in. Slík vinna mun hjálpa UMFÍ
til þess að vera betur í stakk búið
til þess að takast á við ný verkefni
og nýjar áskoranir í framtíðinni og
stuðla að því að félagið geti ver
ið leiðandi afl á sínu sviði í sam
félaginu. Annars sé ég fyrir mér og
bind vonir við að framundan verði
skemmtilegt og líflegt íþróttasumar
þar sem hægt verði að skipuleggja
og halda íþróttamót án nokkurra
Covidáhrifa,“ segir Einar og bætir
því við að einn af styrkleikum Ung
mennafélags Íslands og ungmenna
félagshreyfingarinnar allrar liggi
í öflugu grasrótarstarfi sem hef
ur gert það verkum að félagið hef
ur ávallt náð að aðlaga sig að þeim
breytingum sem hafa orðið í samfé
laginu hverju sinni. „En UMFÍ, líkt
og önnur félagasamtök, þarf stöð
ugt að minna á samfélagslegt hlut
verk sitt og sýna þau víðtæku og já
kvæðu áhrif sem starfsemi slíkra fé
laga hefur á samfélagið,“ segir Ein
ar að lokum.
mm
Þrátt fyrir tíðar viðvaranir vegna
veðurs í upphafi vikunnar þá var
sannkölluð rjómablíða á Hamars
velli í Borgarnesi í liðinni viku.
Síðastliðinn fimmtudag var troð
in ný gönguskíðabraut með spori
á vellinum. Þetta var að frumkvæði
Golfklúbbs Borgarness og Hótel
Hamars. Fljótt flaug fiskisagan og
tóku þó nokkrir hring á brautinni
fyrir og um helgina. Brautin er 2,5
kílómetrar að lengd og leyndi sér
ekki ánægjan hjá skíðagörpunum
með framtakið þegar blaðamann
Skessuhorns bar að garði.
glh
Íþróttamaður vikunnar er nýlegur
liður hjá Skessuhorni. Þar leggjum
við fyrir tíu spurningar til íþrótta
manna úr alls konar íþróttum á öll
um aldri á Vesturlandi. Íþróttamað
ur vikunnar að þessu sinni er glímu
konan Jóhanna Vigdís frá Búðardal.
Nafn: Jóhanna Vigdís Pálmadóttir,
en alltaf kölluð Jódí.
Fjölskylduhagir? Bý með mömmu,
pabba og tveimur yngri bræðrum.
Hver eru þín helstu áhuga-
mál? Ég hef áhuga á öllu sem er
skemmtilegt, t.d. íþróttum, björg
unarsveit, útivist og almennu fé
lagslífi.
Hvernig er venjulegur dagur hjá
þér um þessar mundir? Ég fer í
ræktina fyrir skóla, en það er mis
munandi hvort ég fari beint heim
eða beint á æfingu eftir skóla.
Hverjir eru þínir helstu kostir og
gallar? Mínir helstu kostir eru hvað
ég er jákvæð og metnaðargjörn en
minn helsti galli er alveg örugglega
hvað ég er tapsár. (Ég fæ óþægilega
oft að heyra það.)
Hversu oft æfir þú í viku? Átta
sinnum (Þrjár skipulagðar æfingar
og fimm aukaæfingar)
Hver er þín fyrirmynd í íþrótt-
um? Svana Hrönn, systir pabba.
Af hverju valdir þú glímu? Systur
pabba voru í glímu og afi að þjálfa,
ætli þetta hafi ekki verið það sem
ýtti mér út í glímuna.
Hver er fyndnastur af þeim sem
þú þekkir? Ooo, ég þekki svo mik
ið af drep fyndnu fólki en ef ég
þyrfti að velja væri það örugglega
Rúna eða Einar íþróttakennari.
Hvað er skemmtilegast og leiðin-
legast við þína íþrótt? Það sem er
skemmtilegast við glímu er klár
lega fólkið sem er að stunda hana
og þegar það gengur vel. Það sem
er leiðinlegast við hana er að tapa.
Einar ráðinn í starf fjármálastjóra UMFÍ
Einar Þ Eyjólfsson fjármálastjóri UMFÍ. Ljósm. umfí.
Gönguskíðabraut
á Hamarsvelli
Ottó Ólafsson og Linda Björk Sveinsdóttir á lokametrunum að klára hringinn á
Hamarsvelli.
Hér má sjá endann á gönguskíðabrautinni. Flestir golfarar kannast við þetta
svæði sem fyrstu braut á Hamarsvelli.
Hamarslandið
getur verið
sannkölluð
vetrarparadís á
þessum tíma árs.