Skessuhorn


Skessuhorn - 09.02.2022, Qupperneq 23

Skessuhorn - 09.02.2022, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2022 23 Hið unga og efnilega lið Aþenu­ ­UMFK sem leikur heimaleiki sína í 1. deild kvenna í körfuknattleik á Akranesi mætti liði Hamars/Þórs á laugardagskvöldið í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Aþena hafði unnið sína síðustu fimm leiki í deildinni og var á góðu skriði. Það má með sanni segja að fyrsti leikhluti leiks­ ins hafi orðið Aþenu að falli í þess­ um leik. Gestirnir komust í 0:7 í byrjun leiks og eftir rúmar sjö mín­ útur var staðan 7:20 Hamri/Þór í vil. Lítið gekk hjá Aþenu að minnka muninn og staðan 12:27 eftir fyrsta leikhluta. Mikið jafnræði var með liðunum í öðrum leikhluta og munurinn milli liðanna hafði því breyst lítið þegar flautað var til hálfleiks, staðan 28:42 fyrir gestina. Því miður fyrir Aþenu var þetta á svipuðum nótum í þriðja og fjórða leikhluta. Hamar/Þór hélt þeim ávallt í öruggri fjarlægð og for­ skot þeirra aldrei minna en tíu stig. Gestirnir uppskáru því sanngjarnan sigur en svekkjandi tap Aþenu stað­ reynd og þeirra fyrsta í sex leikjum í deildinni, lokastaðan 72:83. Stigahæst hjá Aþenu eins og oft áður var Violet Morrow með 36 stig og 15 fráköst, Elektra Mjöll Kubrzeniecka var með 13 stig og Tanja Ósk Brynjarsdóttir með 12 stig. Hjá Hamri/Þór var Asta­ ja Tyghter með 35 stig og 11 frá­ köst, Julia Demirer með 16 stig og 14 fráköst og Gígja Rut Gautadótt­ ir með 12 stig. Ármann er í efsta sæti deildarinn­ ar með 24 stig, ÍR í öðru sæti með 20 stig, Þór Akureyri í því þriðja og Snæfell og Aþena jöfn í fjórða og fimmta sæti með 16 stig. Neðst eru Fjölnir B og Vestri frá Ísafirði með 4 stig. Næsti leikur Aþenu er gegn ÍR laugardaginn 12. febrúar í Hell­ inum í Breiðholti og hefst klukkan 18. vaks Um síðustu helgi fór fram GK mótið í hópfimleikum og Haust­ mótið í stökkfimi í fimleikahús­ inu við Vesturgötu á Akranesi. Meistara flokkur kvenna hjá Fim­ leikafélagi Akraness náði góðum árangri á mótinu. Þær urðu í fyrsta sæti í gólfæfingum og á dýnu og lentu í öðru sæti í samanlögðum ár­ angri á eftir Gerplu úr Kópavogi. Þá lenti 2. flokkur kvenna frá ÍA í sjötta sæti af átta liðum í hópfim­ leikum en sigurvegarari þar var lið Stjörnunnar 1, Grótta var í öðru sæti og Gerpla í því þriðja. Lið ÍA í 2. flokki kvenna sigraði öll áhöld í stökkfimi og endaði í fyrsta sæti í sameiginlegum árangri. vaks ÍA lék gegn Haukum úr Hafnar­ firði í 1. deild karla á föstudaginn og fór leikurinn fram á Akranesi. Staða liðanna fyrir leik var ansi ólík, Haukar í öðru sæti deildar­ innar með 26 stig eftir 15 leiki og ÍA með tvö stig eftir 18 leiki. Það sást fljótlega munurinn á milli lið­ anna og í hvað stefndi strax í byrjun leiks því staðan eftir rúmlega fimm mínútur var 7:20 gestunum í vil og eftir fyrsta fjórðung 14:29. Í öðr­ um fjórðungi var þetta á svipuðum nótum og munurinn orðinn 20 stig þegar flautað var til hálfleiks, 36:56 fyrir gestunum. Í þeim þriðja bættu Haukar enn í og við forystuna, ÍA alltaf að elta og staðan ekki góð fyrir heimamenn. Þegar þriðja fjórðungnum lauk var forskot Hauka komið yfir 30 stig og aðeins spurning hve sigurinn yrði stór, staðan 53:84 fyrir lokafjórð­ unginn. ÍA hafði betur stigalega séð í honum og náði að minnka mun­ inn aðeins en sigur gestanna aldrei í hættu, lokastaðan 82:107 fyrir Hauka. Í liði ÍA var Lucien Christofis stigahæstur með 24 stig, Cristopher Clover með 16 stig og Aron Elvar Dagsson með 14 stig. Hjá Hauk­ um var Jeremy Smith með 29 stig, Shemar Bute með 17 stig og 15 frá­ köst og Jose Aldana með 16 stig. Næsti leikur ÍA er gegn Hruna­ mönnum föstudaginn 11. febrúar á Flúðum og hefst klukkan 19.15. vaks Álftanes og Skallagrímur mættust á fimmtudaginn í 1. deild karla í körfu­ knattleik og fór leikurinn fram í For­ setahöllinni syðra. Jafnt var á flest­ um tölum í fyrsta leikhluta, Álftanes náði þó sjö stiga forystu þegar tæpar tvær mínútur voru eftir en Skallagrímur náði að minnka mun­ inn í þrjú stig, staðan 20:17. Svip­ uð staða var þegar komið var fram í miðjan annan leikhluta, 29:29, en þá tóku heimamenn góðan sprett, skoruðu tíu stig gegn engu gest­ anna og héldu því forskoti fram að hálfleik, staðan 48:39 fyrir Álftanes. Í þriðja leikhluta gekk lítið hjá Skallagrími að saxa á forskotið, Álftanesingar bættu bara í og voru komnir með 21 stigs forystu eftir rúman fimm mínútna leik, 66:45. Skallagrímur náði síðan að koma aðeins til baka seinni hlutann og staðan fyrir fjórða leikhluta, 72:60 fyrir Álftanesi. Í fjórða leikhluta náði Skallagrímur aldrei að ógna heimamönnum að einhverju ráði. Álftanes hafði öll völd á vellinum og Skallagrímur þurfti að lokum að sætta sig við 17 stiga tap, loka­ staðan 97:80 fyrir Álftanes. Stigahæstir hjá Skallagrími í leiknum voru þeir Arnar Smári Bjarnason með 17 stig, Marinó Þór Pálmason með 16 stig og Bryan Battle með 15 stig. Hjá Álftanesi var Sinisa Bilic með 27 stig, Cedrick Bowen með 22 stig og 10 fráköst og Friðrik Anton Jónsson með 17 stig. Næsti leikur Skallagríms er gegn Fjölni föstudaginn 11. febrú­ ar í Fjósinu í Borgarnesi og hefst klukkan 19.15. vaks Víða um vestanvert landið var veðrið gott á sunnudaginn, þegar fólk hálfpartinn beið með öndina í hálsinum vegna válegrar veðurspár. Það var rólegt yfir Grundarfirðing­ um þennan dag. Veðrið var ljúft og nýttu bæjarbúar tækifærið til ýmis­ konar útiveru þar sem ekki var lík­ legt að það gæfist færi á því dagana sem fylgdu í kjölfarið. tfk Meistaraflokkur kvenna frumsýndi nýja búninga á mótinu. Ljósm. FSÍ. Fjör í fimleikum á Akranesi um helgina Skallagrímur fékk skell gegn Álftanesi Skagamenn ekki á flugi gegn Haukum Aþena tapaði eftir fimm sigurleiki í röð Sjöfn Sverrisdóttir spókaði sig um á þessum glæsilega sleða og rann léttilega eftir götum bæjarins. Fyrir storminn Mæðginin Erna Sigurðardóttir og Haukur Orri Heiðarsson nýttu góða veðrið til að skreppa í smá útreiðartúr.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.