Skessuhorn - 16.02.2022, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 20222
Kvenfélag stefnir
á happdrætti
BORGARFJ: Félagskonur í
Kvenfélaginu 19. júní í Borgar
firði stefna á að hefja sölu á
happdrættismiðum væntanlega
í lok næstu viku. „Það verður til
mikils að vinna og ágætlega hátt
vinningshlutfall, eða um 10%.
Þetta happdrætti er komið til
þar sem jólabingóið okkar á síð
asta ári féll niður vegna covid.
Reyndar hlaut bingóið 2020
sömu örlög. Allur ágóði að
þessu sinni mun renna til Ung
mennafélagsins Íslendings sem
stendur nú í miklum endurbót
um á laugarhúsi og umhverfi
Hreppslaugar,“ segir í tilkynn
ingu frá 19. júní. Nánar verð
ur sagt frá happdrættissölunni í
Skessuhorni í næstu viku. -mm
Sprengja á
Sólbakka
BORGARNES: Vegna fram
kvæmda á lóð Borgarverks á
Sólbakka í Borgarnesi hóf fyrir
tækið vinnu við sprengingar á
svæðinu síðastliðinn fimmtu
dag. Áætlað var að vinnan stæði
yfir næstu tvær vikur að auki.
Ekki verður sprengt á fyrir
fram ákveðnum tíma en stefnt
er að því að það verði alla
jafnan gert seinni hluta dags.
Framkvæmdaaðilar ræddu við
eigendur og starfsfólk nærliggj
andi húsa áður en vinna hófst.
Þá munu þeir gefa hljóð
merki áður en sprengt verður
hverju sinni. „Íbúar eru beðnir
velvirðingar á þeim óþægindum
sem þetta kann að valda,“ sagði
í tilkynningu Borgarbyggðar.
-vaks
Íslenskir
vínsalar sitji við
sama borð
ALÞINGI: Gildandi áfengis
löggjöf heimilar í dag að Ís
lendingar geti keypt áfengi á
netinu í gegnum erlend fyrir
tæki en tryggir ekki að Ís
lendingar geti keypt áfengi á
netinu af íslenskum fyrirtækj
um. Hildur Sverrisdóttir, þing
maður Sjálfstæðisflokksins,
hefur lagt fram frumvarp sem
heimila mun frjálsa netversl
un með áfengi á Íslandi. Frum
varpinu er ætlað að rétta þenn
an halla gagnvart íslenskum
fyrir tækjum og tryggja jafnræði
þegar kemur að sölu áfengis á
netinu. Ekki er verið að auka
framboð með þessari breytingu,
einungis er verið að heimila ís
lenskum fyrirtækjum að selja
áfengi á internetinu til jafns við
þau erlendu. -mm
Fella maígjald-
daga bíla-
trygginga niður
SJÓVÁ: Tryggingafélagið Sjó
vá hefur ákveðið að fella niður
maígjalddaga lögboðinna öku
tækjatrygginga einkabíla við
skiptavina sinna á þessu ári,
þótt tryggingarnar verði áfram
í fullu gildi. „Sjóva felldi nið
ur iðgjöld ökutækjatrygginga í
maí 2020, þegar lokanir í sam
félaginu vegna covid stóðu sem
hæst. Afkoma fyrirtækisins hef
ur verið góð og tjónaþróun hag
felld,“ segir í tilkynningu. -mm
Vetur konungur hefur minnt
á sig síðustu daga með mik-
illi snjókomu og frosti. Þá dettur
fólk oft í nöldurgírinn og kvart-
ar yfir færð, litlum snjómokstri
á götum og því tengt. Það má
ekki gleyma því að með snjón-
um kemur meiri birta sem er vel
þegin í skammdeginu og lengir
daginn fyrir okkur. Þá er upp-
lagt að draga fram snjósleðana
sem eru inn í geymslu mest allt
árið og skella sér með börnum
og/eða barnabörnum í næstu
brekku. Verum með jákvæðnina
að leiðarljósi því það getur oft
verið stutt í myrkrið.
Á fimmtudag eru horfur á norð-
austlægri eða breytilegri átt 3-8
m/s, skýjað og sums staðar él
norðan- og austan til. Frost 1 til
8 stig. Á föstudag má búast við
austan- og norðaustan 3-10 m/
sek, skýjað með köflum og dá-
lítil él norðaustan- og austan-
lands. Frost 1 til 10 stig, kaldast í
innsveitum. Á laugardag er gert
ráð fyrir vaxandi austanátt, 13-
18 m/s sunnan og vestanlands
síðdegis, annars hægari vind-
ur. Snjókoma af og til á sunnan-
verðu landinu og minnkandi
frost. Hægari vindur norðan til,
þurrt að kalla og frost að 10 stig-
um. Á sunnudag er útlit fyrir
norðaustanátt og él, en léttir til
suðvestanlands. Frost 0 til 8 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Hver er uppáhalds
árstíðin þín?“ 52% sögðu „Sum-
ar,“ 31% sagði „Vor,“ 12% sögðu
„Haust“ og 5% sögðu „Vetur.“
Í næstu viku er spurt:
Á hvaða áratug var besta tón-
listin að þínu mati?
Menn sem vinna við að moka
snjó á snjóruðningstækjum hafa
haft í nógu að snúast þessa síð-
ustu daga. Oftast er þetta frekar
vanþakklát vinna og því útnefn-
um við þessa menn og konur
Vestlendinga vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Björgunarmiðstöðin
í Borgarnesi fokheld
Síðastliðinn fimmtudag, þegar
blaðamaður Skessuhorns var á
ferðinni í Borgarnesi, var unnið
af kappi við frágang þakglugga
og glerjun í nýrri Björgunar
miðstöð Brákar við Fitja. Hús
ið er byggt úr yleiningum og á
límtréssperrum, er um 760 fer
metrar að stærð, og fellur vel
að landinu í slakkanum neð
an við fyrrum mjólkursamlags
hús og Steypustöðina. Í suður
enda hússins verður m.a. funda
salur, skrifstofa, búningaaðstaða
og búnaðargeymsla. Auk þess er
gert ráð fyrir að aðgerðastjórn
í stærri björgunaraðgerðum í
landshlutanum fái fasta aðstöðu
í húsinu. Í norðurenda hússins
er hærra til lofts og þar verður
tækjasalur. Að sögn Jakobs Guð
mundssonar, gjaldkera Brákar og
formanns byggingarnefndar, var
stefnt að því um síðustu helgi að
koma stóru fellihurðunum í hús
ið og er það þar með orðið fok
helt. Þá verður eftir ýmis frá
gangur, svo sem að koma fyr
ir áfellum og vinna við flotun
og flísalögn gólfa. Stefnir björg
unarsveitin nú að innflutningi í
húsið 1. apríl í vor.
Þrátt fyrir að framkvæmd
in hafi verið að fullu fjármögn
uð, með eigin fé og lánsloforði,
segir Jakob gleðilegt að geta sagt
frá því að nýverið var skrifað
undir kauptilboð um sölu á fé
lagsaðstöðu Brákar í Brákarey,
en með eðlilegum fyrirvara um
fjármögnun kaupandans. Sú sala
léttir verulega á fjárhagshliðinni
við stórframkvæmd sem þetta er.
Þá hafa fjölmargir létt undir með
björgunarsveitinni við verkefnið,
bæði í formi vinnuframlags og
peningagjafa. Jakob segir að al
menningur sé sérlega velvilj
aður sveitinni og fyrir það þakk
ar björgunarsveitarfólk af heilum
hug. „Allur þessi stuðningur er
ómetanlegur og sýnir vonandi að
við erum að gera gagn hér í sam
félaginu,“ segir Jakob. Minnt er
á söfnunarreikning Brákar fyrir
húsbygginguna. Hann er: 0326
222220, kt. 5701770369. mm
Búið er að skrifa undir kauptilboð í fasteign Brákar í eyjunni.
Verktakar frá Kára Arnórssyni ehf. unnu við glerjun á félagsaðstöðunni í húsinu. Þrjár stórar innkeyrsludyr eru í hliðinni sem snýr að gamla mjólkursamlaginu.
Þegar byggð eru hús úr yleiningum og límtréssperrum
eru þau mikið til tilbúin að innan þegar þeim hefur verið
lokað að utan. Aðallega er það slípun og flísalögn á gólfi
sem nú er eftir.
Þannig leit húsið út síðasta laugardag eftir að því hafði verið lokað. Ljósm. Jakob Guðmundsson