Skessuhorn - 16.02.2022, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 20224
Í sömu andrá og þetta blað rann í gegnum prentvélarnar í gærkvöldi, stóð
til að lyki einhverri hatrömmustu kosningabaráttu síðari tíma. Þar sem
barist hefur verið á banaspjótum og fólk ekki einu sinni reynt að dylja hatur
í garð eins af þremur frambjóðendum. Stór orð hafa verið látin falla í sjón
varps og útvarpsþáttum, á hinum ýmsu net og prentmiðlum, hreinlega
allsstaðar þar sem hægt er að koma skoðun sinni á framfæri. Jú, það er að
ljúka stjórnarkosningu í Eflingu, næststærsta stéttarfélags landsins.
Á friðartímum hefur kosningabarátta í verkalýðsfélagi aldrei verið jafn
umdeild og áberandi. Ástæðan er sú að fyrrverandi formaður, sem hrökkl
aðist úr formennsku á síðasta ári, gefur kost á sér að nýju í embættið. Það
gerir hún vegna þess að hún er nokkuð augljóslega baráttumanneskja og
vill bjóða fram krafta sína til að berjast fyrir bættum kjörum láglaunafólks.
Á því tímabili sem Sólveig Anna Jónsdóttir gegndi formennsku í félaginu
var vissulega ekkert „Drottins dýrðar koppalogn“ í kringum hana, svo vitn
að sé í titil leikverks eftir Jónas föðurbróður hennar. Hún sýndi að hún var
óhrædd við að feta ótroðnar slóðir til að bæta kjör fólks. En á þeirri veg
ferð mætti hún andstreymi þaðan sem síst skyldi, frá starfsfólki á skrifstof
unni, en einnig fleirum. Margir sem töldu ógn stafa af henni. Vissulega
kann það að vera að starfshættir hennar og stjórnunarstíll hafi ekki hentað
þeim sem stólana vermdu. Örugglega hafa stór orð fallið á báða bóga og
kannski grátið mikið og gníst tönnum. Mér segir hins vegar svo hugur að
við komu hennar í stjórn hafi hún ruggað bát sem kannski fulllengi hafði
verið búinn að vera í drottins dýrðar koppalogni. Í það minnsta þoldi hann
illa ágjöfina og því fór svo að lokum að formaðurinn sagði af sér og fram
kvæmdastjórinn sömuleiðis. Bátnum hvolfdi. Síðan hefur ekkert til félags
ins spurst fyrr en nú.
Það er nú gjarnan svo að þeir sem láta til sín taka, hvort sem það er á
vettvangi félagsstarfs eða stjórnmála, verða oft umdeildir. Ekki hvað síst
ef pólitískir andstæðingar sjá í viðkomandi ógn sem ruggað getur bát sem
kannski þolir ekkert meira en koppalogn. Í þessu tilfelli hljóta hins vegar
kjör og vilji félagsmanna í Eflingu að vera sá þáttur sem á endanum á að
ráða. Félagmenn hafa reynslu af því að einmitt þessi kona fór með þá í
gegnum stífa samningalotu. Þeir uppskáru meðal annars vegna þess að far
ið var að semja um krónutöluhækkun, þannig að þeir sem bágust höfðu
kjörin fengu hlutfallslega mest. Í leit sinni að jöfnuðu sáu bæði hún og aðr
ir fulltrúar í samninganefnd launafólks, svo sem Ragnar Þór og Villi Birg
is, að sanngjarnast væri að lægstu launin hækkuðu hlutfallslega meira en
laun annarra. Í mínum huga var þetta það skynsamlegasta sem á þessum
tímapunkti var hægt að gera og gjörningurinn kallaður lífskjarasamningar.
Stjórnvöld voru auk þess dregin að borðinu því hluti af réttlætingu á kjör
um þeirra lægst launuðustu fólst í skatta og vaxtabreytingum sem hvoru
tveggja var utan lögsögu atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar.
Þegar þetta blað verður komið úr prentun mun niðurstaða í kosningunni
liggja fyrir. Annað hvort hefur Sólveig Anna borið sigur úr býtum, eða
ekki. Það hvort verður vinnufriður á kontórnum ef hún snýr til baka, hef
ég nákvæmlega engar áhyggjur af. Ef starfsfólkið er ekki tilbúið að starfa
undir hennar stjórn, hlýtur það að fá vinnu annarsstaðar. Kosningin snýst
nefnilega ekki um hagsmuni þess, heldur hagsmuni félagsmanna í stéttar
félaginu Eflingu.
En þessi kosning hjá einu verkalýðsfélaganna er einungis angi af miklu
stærra og flóknara máli. Innan verkalýðshreyfingarinnar í heild sinni virðist
vera að búa um sig óeining. Formaður VR gengur lengst þegar hann seg
ir að nú velti menn því fyrir sér hvort betra væri fyrir VR að félagið segði
skilið við Alþýðusamband Íslands og áherslur þess. Kannski er þetta upp
haf að endalokum Alþýðusambandsins í þeirri mynd sem við höfum þekkt
í áratugi. Tíminn mun leiða það í ljós.
Magnús Magnússon
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.877 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.348. Rafræn áskrift kostar 3.040 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.800 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Díana Ósk Heiðarsdóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Drottins dýrðar koppalogn?
Hátt í tíu þúsund manns losnuðu
á föstudagskvöldið undan reglum
um sóttkví. Á miðnætti um kvöldið
tók gildi reglugerð um samkomu
takmarkanir sem fól í sér töluverð
ar tilslakanir. Þeir sem sættu sóttkví
þurfa nú ekki að mæta í sýnatöku
til að losna. Þeim sem hafa ver
ið útsettir fyrir smiti er ekki leng
ur skylt að sæta smitgát þótt hvatt
sé til hennar og þar með féll jafn
framt brott skylda til sýnatöku í
lok smitgátar. Reglur um einangr
un eru óbreyttar. Reglur um þá
sem koma um landamæri Íslands
breytast ekki. Reglur þessar gilda
til og með 25. febrúar. Jafnframt
féll brott sérstök reglugerð um tak
mörkun á skólastarfi.
Helstu breytingar á samkomu
takmörkunum voru eftirfarandi:
Almennar fjöldatakmarkanir:
Fóru úr 50 í 200 manns innandyra.
Fjöldatakmarkanir utandyra falla
brott.
Verslanir: Fjöldatakmarkanir í versl
unum féllu brott.
Fjölmennir viðburðir: Heimilt
verður að halda 1.000 manna við
burði að því tilskildu að allir sitji
í sæti og beri grímu. Heimilt er
að halda hlé á viðburðum og selja
veitingar án takmarkana.
Grímunotkun: Aðeins verður skylt
að bera grímu ef ekki er hægt að
viðhafa eins metra reglu.
Hreyfing: Sund og líkamsræktar
stöðvum sem og skíðasvæðum er
heimilt að taka á móti gestum með
fullum afköstum.
Íþróttakeppnir og -æfingar:
Keppnir og æfingar heimilar með
200 manns í hólfi.
Skólar: Reglugerð um takmörkun á
skólastarfi fellur brott. Þar með gilda
almennar reglur um samkomutak
markanir í skólum, þó með undan
teknum til rýmkunar.
Skólaskemmtanir: Heimilt er að
halda skólaskemmtanir í grunn og
framhaldsskólum án nokkurra tak
markana.
Staðir með vínveitingaleyfi: Opn
unartími lengdur um eina klukku
stund, þ.e. heimilt að taka á móti
gestum til miðnættis en allir þurfa að
hafa yfirgefið staðinn kl. 01.00. mm
Peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands hefur ákveðið að hækka
vexti bankans um 0,75 prósentu
stig, sem nemur 37,5% hækkun í
einu stökki. Meginvextir bankans,
vextir á sjö daga bundnum innlán
um, fara því úr tveimur prósentu
stigum í 2,75%. Í tilkynningu frá
stofnuninni síðastliðinn miðviku
dag kemur fram að samkvæmt nýrri
þjóðhagsspá hafi hagvöxtur verið
um einni prósentu meiri á síðasta
ári en spáð var í nóvember eða um
4,9%. „Spáð er svipuðum hagvexti
í ár. Störfum hefur haldið áfram að
fjölga og atvinnuleysi að minnka og
er áætlað að framleiðsluslakinn sem
myndaðist í kjölfar Covid19 far
sóttarinnar sé horfinn. Óvissa er
hins vegar enn mikil.
Verðbólguhorfur hafa versnað
töluvert frá síðasta fundi nefndar
innar og mældist verðbólga 5,7%
í janúar. „Undirliggjandi verð
bólga hefur einnig aukist og er
talin vera ríflega 4%. Þá hafa verð
bólguvæntingar á suma mælikvarða
hækkað. Hækkun húsnæðisverðs
vegur þungt en aðrir innlendir
kostnaðarliðir hafa einnig hækkað.
Við bætist hækkun alþjóðlegs olíu
og hrávöruverðs. Samkvæmt spá
Seðlabankans eru horfur á að verð
bólga verði 5,8% á fyrsta fjórðungi
ársins og yfir 5% fram eftir þessu
ári. Gert er ráð fyrir að verðbólga
hjaðni þegar hægir á verðhækkun
húsnæðis og alþjóðlegar verðhækk
anir fjara út en að hún verði ekki
komin að markmiði fyrr en undir
lok spátímans,“ segir í tilkynningu
frá stofnuninni. mm
Sveitarstjórn Dalabyggðar fjallaði
um fyrirhugaða lokun útibús Arion
banka í Búðardal á fundi sínum 10.
febrúar síðastliðinn. Rifjað var upp
að forsvarsmenn bankans hafi full
yrt við síðustu breytingar á starf
semi útibúsins að ekki stæði til að
loka útibúinu í Búðardal.
Í umræðum benti Krist
ján Sturluson sveitarstjóri á að í
fundargögnum væri afrit af samn
ingi sem gerður var á sínum tíma
milli Sparisjóðs Dalasýslu og Bún
aðarbankans, árið 1965. Þar séu
ákvæði um þjónustu og skyld
ur bankans gagnvart íbúum Dala
sýslu. Ekki urðu umræður um
þennan gamla samning á fundin
um, en áhugavert er að skoða tí
undu grein þess samnings, sem
kveður á um að ef bankinn leggi
niður útibúið, skuli það samein
ast Sparisjóði Dalasýslu. Skal ósagt
látið hvort samningurinn haldi enn
gildi sínu, en forsvarsmenn Spari
sjóðsins hafa verið forsjálir á sínum
tíma. Hvatti sveitarstjóri til þess
að efni samningsins yrði skoðað í
samhengi við lokun útibúsins.
Á fundinum mátti finna reiði
meðal sveitarstjórnarmanna vegna
yfirvofandi lokunar og stór orð
féllu. Einnig komu fram hug
myndir um þveröfuga stefnu, þ.e.
að fjölga störfum bankans án stað
setningar í Búðardal, þar sem hús
næði er mun ódýrara en á höfuð
borgarsvæðinu. Niðurstaða
fundarins var að byggðarráð Dala
byggðar haldi umræðunni áfram.
bj
Reglur um sóttkví vegna
Covid-19 felldar úr gildi
Peningastefnunefnd Seðlabankans. F.v. Rannveig Sigurðardóttir, Gylfi Zoëga,
Ásgeir Jónsson, Katrín Ólafsdóttir og Gunnar Jakobsson.
Stýrivextir hækkaðir um tæp
fjörutíu prósent
Sveitarstjórn fordæmir lokun bankaútibúsins