Skessuhorn - 16.02.2022, Side 5
Hefur þú ríka þjónustulund, ert góður sölumaður og
hefur gaman af mannlegum samskiptum? Þá gætum
við verið með starfið fyrir þig.
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum aðilum til
þess að bætast í hóp öflugra starfsmanna Húsasmiðjunnar
í Borgarnesi. Um er að ræða fjölbreytt framtíðarstörf
bæði í verslun og timbursölu. Leitum einnig að drífandi
sumarstarfsfólki og að aðilum sem hafa jákvætt
hugarfar og metnað fyrir því að veita framúrskarandi
þjónustu til okkar viðskiptavina.
Hvetjum alla áhugasama til þess að sækja um, óháð kyni .
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf fljótlega.
Starfssvið
• Sala, afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
• Móttaka vöru, tiltekt og afgreiðsla pantana
• Önnur tilfallandi verslunarstörf
• Umsjón með lager í timbursölu
Hæfniskröfur
• Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð, skipulög og vönduð vinnubrögð
• Stundvísi, reglusemi og snyrtimennska
• Sterk öryggisvitund
• Almenn tölvukunnátta
Nánari upplýsingar um störfin gefur
Sigríður Bjarnadóttir rekstrarstjóri
á sigridurb@husa.is.
Umsóknarfrestur er til og með
27. febrúar 2022.
Sótt er um á ráðningarvef Húsasmiðjunnar
www.husa.is/laus-storf
Gildin okkar eru:
Áreiðanleiki
Þjónustulund
Þekking
Vilt þú vera með okkur í liði?
Húsasmiðjan
í Borgarnesi
leitar að öflugum liðsmönnum
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við
leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess
að eflast og þróast í starfi. Starfsmannafélag Húsasmiðjunnar er öflugt og stendur
fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum uppákomum yfir árið.