Skessuhorn


Skessuhorn - 16.02.2022, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 16.02.2022, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 20228 Heimsóknartak- markanir á legudeild STYKKISH: Starfsfólk legu­ deildar HVE sendi tilkynningu á mánudag þess efnis að heim­ sóknir á deildina takmarkist nú við nánustu aðstandendur og sjúklingar geti aðeins tekið á móti einum gesti í einu. Áhersla er lögð á að gestir beri grímu og gæti vel að persónubundnum sóttvörnum á meðan á heim­ sókn stendur, ekki er ráðlagt að einstaklingar undir 16 ára heimsæki deildina. Þá er ítrekað að fólk komi ekki í heimsókn sé það með einkenni, í einangrun eða smitgát, nýkomið erlend­ is frá eða að bíða eftir niður­ stöðum úr sýnatöku. Þá hefur Dvalarheimilið einnig sent frá sér sambærilega yfirlýsingu þar sem kemur fram að heimilis fólk taki aðeins á móti einum gesti í einu, fari beint inn á herbergi en ekki í almannarými og 16 ára og yngri fá ekki að koma í heimsókn. -vaks Aflatölur fyrir Vesturland 5.-11. febrúar Tölur (í kílóum) frá Fiski- stofu Akranes: 2 bátar. Heildarlöndun: 234.094 kg. Mestur afli: Víkingur AK: 232.680 kg í einni löndun. Arnarstapi: Engar landanir á tímabilinu Grundarfjörður: 7 bátar. Heildarlöndun: 287.705 kg. Mestur afli: Sigurborg SH: 74.975 kg í einni löndun. Ólafsvík: 13 bátar. Heildarlöndun: 262.926 kg. Mestur afli: Egill SH: 38.206 kg í tveimur róðrum. Rif: 11 bátar. Heildarlöndun: 526.557 kg. Mestur afli: Bárður SH: 133.712 kg í sjö róðrum. Stykkishólmur: 4 bátar. Heildarlöndun: 186.769 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 169.153 kg í tveimur löndun­ um. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Víkingur AK – AKR: 232.680 kg. 5. febrúar. 2. Tjaldur SH – RIF: 108.036 kg. 6. febrúar. 3. Þórsnes SH – STY: 91.936 kg. 10. febrúar. 4. Örvar SH – RIF: 79.519 kg. 7. febrúar. 5. Þórsnes SH – STY: 77.217 kg. 8. febrúar. -arg Fjármála­ og efnahagsráðherra hef­ ur fallist á tillögu Bankasýslu ríkis­ ins um sölu frekari eignarhluta í Ís­ landsbanka. Greinargerð og fylgi­ gögn um áformin hafa verið send fjárlaganefnd og efnahags­ og við­ skiptanefnd Alþingis og þess óskað að umsagnir nefndanna liggi fyr­ ir ekki síðar en þann 2. mars nk. „Þá hefur jafnframt verið óskað eft­ ir formlegri umsögn frá Seðlabanka Íslands um jafnræði bjóðenda, lík­ leg áhrif sölu á gjaldeyrismarkað, gjaldeyrisforða og laust fé í um­ ferð,“ segir í tilkynningu frá fjár­ málaráðuneytinu. Eftir að umsagnir nefndanna og Seðlabanka Íslands liggja fyr­ ir verður tekin endanleg ákvörðun um hvort sölumeðferð eignarhlut­ arins verði hafin í samræmi við efni greinargerðarinnar. Ráðherra get­ ur í ákvörðun sinni gert breytingar á einstökum þáttum í fyrirhugaðri sölumeðferð, m.a. að teknu tilliti til athugasemda fjárlaganefndar eða efnahags­ og viðskiptanefndar Al­ þingis við greinargerðina. Væntanleg sölumeðferð hluta í bankanum er rökstudd þannig í til­ kynningu ráðuneytisins: „Áfram­ haldandi sala hluta í bankanum er í samræmi við ákvæði laga, stjórnar­ sáttmála ríkisstjórnarinnar, niður­ stöður hvítbókar um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið og eiganda­ stefnu ríkisins fyrir fjármála­ fyrirtæki. Í eigandastefnunni seg­ ir að stuðlað skuli að því að efla og styrkja samkeppni á fjármálamark­ aði og að íslensk fjármálafyrirtæki verði til framtíðar í fjölbreyttu, heilbrigðu og dreifðu eignarhaldi.“ mm Að morgni síðasta föstudags kom Bjarni Ólafsson AK til Neskaup­ staðar með fyrsta loðnufarminn sem þangað berst á vertíðinni sem veiddur er í nót. Hingað til hafa loðnuskipin veitt í flotvörpu en nú eru þau að taka grunnnætur og flotvörpuveiðunum að ljúka. Barði NK var að landa á Seyðisfirði 1.900 tonnum og er það væntanlega síð­ asti loðnufarmurinn veiddur í flot­ vörpu sem berst til Síldarvinnsl­ unnar á vertíðinni. Þetta kom fram á fésbókarsíðu Síldarvinnslunnar. Skagamaðurinn Runólfur Run­ ólfsson, skipstjóra á Bjarna Ólafs­ syni, segir að loðnan hafi veiðst upp í fjörunni við Hrollaugseyjar. „Það var einungis unnt að kasta í fáeina klukkutíma á fimmtudag því loðn­ an gekk út á hraunið fjær landi og þar er ekki unnt að kasta. Það var töluvert að sjá af loðnu og þarna var hægt að fá ágætis köst. Við fengum okkar afla í þremur köstum. Þar sem við vorum voru einir tíu bátar að veiðum og þar á meðal tveir fær­ eyskir. Loðnan sem þarna fæst er stór og falleg. Það eru 33­35 í kíló­ inu. Mér líst afar vel á framhaldið. Það verður að segjast að þetta lítur bara ágætlega út,“ sagði Runólfur. Hrognafyllingin í loðnunni var 12,4% og brátt fer að hefja frystingu fyrir Asíumarkað en þá þarf hrognafyllingin að vera 14­ 15%. Hrognavinnsla hefst hins vegar ekki fyrr en hrognafyllingin er um 25% og loðnan farin að losa hrognapokann. Loðnan er nú að ganga vest­ ur með suðurströndinni. Ekki er því langt að bíða að hrognavinnsla geti hafist á Akranesi, þegar loðnan gengur vestur fyrir land til hrygn­ ingar. vaks Leiðindaveður var í Snæfellbæ á mánudaginn og átti að bæta í vind þegar leið á daginn. Vegna veðurs var skólahaldi í Snæfellsbæ hætt um hádegisbil. Færð á vegum inn­ anbæjar í Ólafsvík var þá tekin að spillast. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar börn í GSN í Ólafsvík voru á leið úr skólanum en foreldrar biðu þeirra í bílum sínum. Mikið hefur verið að gera hjá snjómokstursmönnum síð­ ustu daga. Vigfús Þráinsson snjó­ mokstursmaður segir í samtali við Skessuhorn að hann hafi stundum verið fram á nótt að ryðja götur vegna mikillar snjókomu undanfar­ ið og er ekkert lát á. af Fyrsti loðnufarmurinn sem veiddur var í nót kom með Bjarna Ólafssyni Bjarni Ólafsson AK 70 að landa í Neskaupstað á föstudaginn. Ljósm. Smári Geirsson Skólahaldi hætt um hádegisbil Fjármálaráðherra undirbýr sölumeðferð hluta ríkissjóðs í Íslandsbanka

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.