Skessuhorn - 16.02.2022, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2022 31
Síðastliðinn fimmtudag var dreg
ið í forkeppni Mjólkurbikars karla
og kvenna í knattspyrnu en um er
að ræða fyrstu tvær umferðirnar.
Í Mjólkurbikar kvenna mætir ÍA
liði Fjölnis og fer leikurinn fram
í Akraneshöllinni föstudaginn 29.
apríl klukkan 19. Sigurvegarinn
úr þessum leik mætir síðan annað
hvort Sindra eða KH í leik sem fer
fram sunnudaginn 15. maí klukk
an 14. 16liða úrslitin eru svo áætl
uð föstudaginn 27. maí og laugar
daginn 28. maí.
Víkingur Ólafsvík mætir Ber
serkjum/Mídas laugardaginn 9.
apríl á Víkingsvelli klukkan 14 og
Kári frá Akranesi mætir Árborg
sunnudaginn 10. apríl í Akranes
höllinni klukkan 14. Sigurvegarar
þessara leikja mætast svo laugar
daginn 23. apríl klukkan 14 og
því gæti orðið Vesturlandsslagur í
þeirri umferð.
Annar Vesturlandsslagur verður
örugglega sunnudaginn 10. apr
íl því þá mætast á Ólafsvíkurvelli
Reynir Hellissandi og Skallagrím
ur frá Borgarnesi klukkan 14. Sig
urvegarinn úr þeim leik mætir
annað hvort Þrótti Vogum eða ÍR
og fer sá leikur fram föstudaginn
22. apríl klukkan 19.15. 32liða úr
slitin hefjast svo þriðjudaginn 24.
maí og lýkur fimmtudaginn 26.
maí.
Karlalið ÍA þarf ekki að taka
þátt í forkeppninni og verður liðið
í hattinum þegar dregið verð
ur í 32liða úrslitum keppninn
ar. Víkingur Reykjavík er ríkjandi
Mjólkurbikar meistari í meistara
flokki karla og Breiðablik í meist
araflokki kvenna.vaks
Afturelding hefur fengið Skaga
manninn Guðfinn Þór Leós
son til liðs við sig fyrir komandi
tímabil en Afturelding mun leika
í 1. deild karla, Lengjudeildinni, í
knattspyrnu í sumar eins og síð
ustu þrjú tímabil. Guðfinnur Þór
er 22 ára miðjumaður, uppalinn
hjá ÍA, en kemur til Aftureldingar
frá Víkingi Ólafsvík þar sem hann
spilaði 20 leiki og skoraði eitt
mark í Lengjudeildinni síðasta
sumar.
Guðfinnur Þór lék með
Knattspyrnufélaginu Kára frá
Akranesi í 2. deild frá 2018 til
2020, lék 48 leiki og skoraði sjö
mörk en í fyrra steig hann sín
fyrstu skref í næstefstu deild með
Víkingi Ó. Guðfinnur Þór steig
sitt fyrsta skref með meistara
flokki í september 2017 þegar
hann kom inn á sem varamaður í
leik ÍA gegn KA á síðustu mínútu
leiksins.
„Mér líst hrikalega vel á liðið.
Æfingarnar eru skemmtilegar,
þetta er flottur hópur og ég er
hrikalega spenntur fyrir komandi
sumri.“ sagði Guðfinnur Þór eftir
undirskriftina. vaks
Knattspyrnumaðurinn Oliver Stef
ánsson hefur gengið til liðs við ÍA
frá IFK Norrköping. Verður hann á
lánssamningi sem gildir út keppnis
tímabilið 2022. Oliver segir á fés
bókarsíðu ÍA að það sé gott að vera
kominn aftur í ÍA og hann hlakki til
sumarsins. Þá segir Jón Þór Hauks
son, nýráðinn þjálfari Skagamanna,
að Oliver sé góður liðsstyrkur og að
þeir vænti mikils af honum.
Oliver er að jafna sig eftir að hafa
fengið blóðtappa rétt fyrir neðan
háls en það hélt honum frá keppni
stærstan hluta síðasta ári. Oliver er
sonur knattspyrnukempnanna Stef
áns Þórðarsonar og Magneu Guð
laugsdóttir sem léku á sínum ferli
með ÍA. Auk Olivers hafa Skaga
menn fengið til liðs við sig fyrir
tímabilið þá Aron Bjarka Jóseps
son, Christian Köhler og Johann
es Vall.
Skagamenn léku sinn fyrsta leik
í Lengubikarnum í Akraneshöll
inni á laugardaginn og höfðu sig
ur gegn Þór frá Akureyri 31 með
mörkum frá Steinari Þorsteinssyni,
Alexander Davey og Viktori Jóns
syni en Elmar Þór Jónsson skoraði
fyrir gestina.
vaks
Snæfell lék tvo leiki í liðinni viku í
1. deild kvenna í körfuknattleik og
var sá fyrri á móti Tindastól þriðju
daginn í síðustu viku og vann Snæ
fell þar sex stiga sigur í spennandi
leik, 61:55. Snæfell tók síðan á
móti botnliði Vestra frá Ísafirði á
laugardaginn og fór leikurinn fram
í Stykkishólmi. Snæfell byrjaði bet
ur, eftir rúmlega fimm mínútna leik
var staðan 14:7 heimamönnum í vil
og við lok fyrsta leikhluta 20:13. Í
öðrum leikhluta jók Snæfell enn við
forskotið og við hálfleiksflautuna
var munurinn á liðunum orðinn 18
stig, 47:29.
Sá munur hélst nokkurn veginn
allan þriðja leikhlutann, liðin skor
uðu á víxl og staðan 71:49 þegar
liðin fengu sér vatnssopa og ræddu
málin fyrir síðasta leikhlutann. Um
hann miðjan var allt útlit fyrir ör
uggan stórsigur Snæfells því stað
an var orðin 80:58 en þá hrukku
gestirnir frá Ísafirði í gang. Á síð
ustu rúmlega fjórum mínútum
leiksins skoruðu þær 14 stig gegn
engu gestanna en því miður fyrir
þær var það of seint í rassinn grip
ið. Lokatölur leiksins voru 80:72
fyrir Snæfelli og með þessum sigri
komust þær upp í annað sætið í
deildinni. Lið Ármann er í efsta
sæti með 26 stig og lið Snæfells og
ÍR jöfn með 20 stig í öðru og þriðja
sæti deildarinnar.
Stigahæstar í liði Snæfells í leikn
um voru þær Sianni Martin með
30 stig og 10 fráköst, Rebekka Rán
Karlsdóttir með 18 stig og Minea
Takala með 10 stig. Hjá Vestra var
Danielle Shafer með 23 stig, Snæ
fríður Lillý Árnadóttir með 16 stig
og þær Heiður Hallgrímsdóttir og
Linda Marín Helgadóttir með 8
stig hvor.
Næsti leikur Snæfells er gegn
toppliði Ármanns föstudaginn 18.
febrúar í Kennaraháskólanum í
Reykjavík og hefst leikurinn klukk
an 19.15.
vaks
Skallagrímur og Fjölnir áttust við
í 1. deild karla í körfuknattleik á
föstudaginn og fór leikurinn fram
í Fjósinu í Borgarnesi. Gestirn
ir úr Grafarvogi byrjuðu betur í
fyrsta leikhluta og eftir rúmlega
fimm mínútna leik var staðan 8:14
þeim í vil. Heimamenn náðu þá að
minnka muninn í eitt stig áður en
Fjölnir bætti aftur í og var með sex
stig í forskot, 21:27, við lok fyrsta
leikhluta. Spenna var í öðrum leik
hluta framan af þar til undir lok
hans að Fjölnir gaf enn á ný í og
staðan í hálfleik, 39:50 fyrir Fjölni.
Lítið gekk í þriðja leikhluta hjá
heimamönnum að komast inn í
leikinn, Fjölnir var alltaf skrefinu á
undan og voru komnir með 18 stiga
forystu við lok þriðja leikhluta,
61:79. Leikurinn því nánast búinn
enda gerðu leikmenn Skallagríms
ekkert af viti í fjórða og síðasta leik
hluta, þeir hreinlega gáfust upp og
lögðu allar sínar árar í bát, lokatöl
ur leiksins 82:111 fyrir Fjölni.
Stigahæstir í liði Skallagríms
voru Arnar Smári Bjarnason með
24 stig, Almar Örn Björnsson
með 16 stig og 18 fráköst og Dav
íð Guðmundsson með 13 stig. Hjá
Fjölni var Mirza Sarajlija með 40
stig, Ólafur Ingi Styrmisson með
19 stig og 15 fráköst og Brynjar
Kári Gunnarsson með 15 stig.
Næsti leikur Skallagríms er
föstudaginn 18. febrúar gegn
Hamri í Hveragerði og hefst hann
klukkan 19.15. vaks
Almar Örn Björnsson var með 16 stig og 18 fráköst gegn Fjölni. Hér í leik á móti
Hamri fyrr í vetur. Ljósm. glh
Stórtap Skallagríms gegn Fjölni
Guðfinnur Þór ásamt Magnúsi Þór Einarssyni, þjálfara meistaraflokks, og Gísla
Elvari Halldórssyni, meðstjórnanda í knattspyrnudeild Aftureldingar. Ljósm. umfa
Guðfinnur Þór í Aftureldingu
Dregið í forkeppni Mjólkurbikarsins
– Stefnir í Vesturlandsslagi
Snæfell að fagna sigrinum í leikslok. Ljósm. sá
Snæfell í annað sætið
eftir sigur á Vestra
Oliver Stefánsson er kominn aftur í ÍA. Ljósm. kfia
Oliver Stefánsson
semur við Skagamenn