Skessuhorn


Skessuhorn - 16.03.2022, Qupperneq 6

Skessuhorn - 16.03.2022, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 20226 Mál kjörstjórnar fellt niður NV-KJÖRD: Lögreglustjór- inn á Vesturlandi hefur fellt niður mál Inga Tryggvason- ar, fyrrverandi formanns yfir- kjörstjórnar Norðvesturkjör- dæmis. Þetta staðfestir Ingi í samtali við fréttastofu Ríkis- útvarpsins sem fyrst birti frétt þar að lútandi. Fullvíst er talið að aðrir í yfirkjörstjórninni fái sambærilegt bréf á næstu dög- um. „Það var ekki talið lík- legt til sakfellis. Það eru svo sem engin sérstök viðbrögð við þessari niðurstöðu, ég átti alltaf von á þessu,“ sagði Ingi í samtali við fréttastofu RUV. -mm Nýtt rekstrar- leyfi gefið út HÚSAFELL: Matvælastofn- un hefur veitt Veiðifélagi Ytri - Rangár rekstrarleyfi til fisk- eldis á Húsafelli í Borgar- firði. Matvælastofnun aug- lýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar 11. nóv- ember 2021 og var frestur til að skila inn athugasemd- um til 3. desember. Veiðifé- lag Ytri-Rangár sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 40 tonna hámarkslífmassa á seiðaeldi á laxi til stangveiða á Húsafelli. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofn- unar. Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnun- ar um útgáfu rekstrarleyfis til úrskurðarnefndar umhverf- is- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu auglýsingar. -mm Reykhóladagar haldnir í ágúst REYHÓLAHR: Reyk- hóladagar verða í ár haldnir helgina 12.-14. ágúst. Þema hátíðarinnar verður menn- ing og séreinkenni Reyk- hólahrepps. Einstaklingar og fyrirtæki sem vilja koma að hátíðinni geta sótt um styrki hjá Reykhólahreppi til að standa undir kostnaði við þeirra framlög á hátíð- inni. Verkefni sem tengj- ast menningu og sérkenn- um Reykhólahrepps eiga for- gang á styrki sem verða að hámarki 100.000 krónur fyr- ir hvert verkefni. Opið er fyr- ir umsóknir til 1. júní. Opinn fundur varðandi hátíðina verður haldinn á næstu vik- um þar sem áhugasamir geta komið með hugmyndir, tekið þátt í umræðum um hátíðina og fengið nánari útskýringar á styrkjafyrirkomulagi. -vaks Ók upp á vegrið DALABYGGÐ: Síðasta fimmtudag um kvöldmatar- leytið var hringt í Neyðar- línuna og tilkynnt um óhapp í Bröttubrekku. Ökumað- ur hafði misst stjórn á bifreið sinni og ekið á vegrið. Fór bif- reiðin upp á vegriðið og rann á því um 50 metra. Ökumann sakaði ekki en bifreiðin og vegriðið voru mikið skemmd. Bifreiðin var síðan flutt af vettvangi með dráttarbifreið. -vaks Bíll frá ferðaþjónustufyrirtæk- inu Into the glacier var á ferð upp í ísgöng í Langjökli með 37 far- þega og leiðsögufólk á sunnu- daginn þegar hann festist í krapa í Geitlandi. Að sögn Birgittu Bjargar Jónsdóttur, rekstrarstjóra Into the glacier, er alltaf öryggisbíll með í för þegar ferðir eru farnar á jökul- inn en ekki vildi betur til en svo að sá bíll festist einnig. Var þá kallað á þriðja bílinn til að sækja farþegana. „En sá var á leið niður með farþega og því var bið eftir honum,“ seg- ir Birgitta og bætir við að lögreglu hafi verið gert viðvart um stöðuna. Hún segir enga hættu hafa skapast, veður hafi verið gott og bílarnir vel útbúnir. „Í samráði við lögreglu var ákveðið að kalla út björgunarsveit- ir í nágrenninu klukkan 21 þar sem búist var við versnandi veðri,“ seg- ir Birgitta. Hún segir að á svipuð- um tíma hafi öryggisbíllinn ver- ið losaður og farþegar ferjaðir yfir í þriðja bílinn og í kjölfarið héldu bílarnir af stað niður til byggða aft- ur og var beiðni um aðstoð björg- unarsveita afturkölluð um klukk- an 22. „Við komuna í Húsafell var far- þegum boðið upp á áfallahjálp sem enginn þáði,“ segir Birgitta og bætir við að farþegarnir hafi fengið upp- lýsingar um hvernig ætti að bera sig að ef óskað yrði eftir aðstoð seinna. „Í samræmi við öryggisreglur okkar metum við alltaf aðstæður áður en haldið er af stað. Það var ekki ófært þennan dag en það getur alltaf komið fyrir að bílar festist á jökli. Við erum með frábært starfsfólk og í góðu sambandi við viðbragðs- aðila, sem við erum þakklát fyr- ir,“ segir Birgitta. Ekki voru farnar ferðir upp á jökulinn á mánudaginn vegna veðurs. arg Á þriðja hundrað björgunarveitar- menn, þar á meðal frá Vesturlandi, tóku á mánudagskvöldið þátt í leit að ferðamanni að Fjallabaki, en leitinni lauk rétt fyrir miðnætti. Fyrstu sveitirnar voru kallaðar út klukkan fimm síðdegis eftir að boð barst frá neyðarsendi norð- austur af Mýrdalsjökli. Síðar voru fleiri kallaðar til. Á hálendinu er mikill snjór og víða krapi og því aðstæður erfiðar. Kallaðar voru út sveitir frá Suður- landi, Suðvesturlandi og Vestur- landi með snjóbíla, breytta jeppa, vélsleða og leitarhunda. Í neyðar- boðunum barst ónákvæm stað- setning og því var leitarsvæðið í upphafi nokkuð stórt. Sótt var að svæðinu úr nokkrum áttum og voru fyrstu hópar komnir á vett- vang um klukkan átta og hófst þá leit. Fljótlega fjölgaði leitarmönn- um og voru hátt í tvö hundruð komnir á vettvang þegar maður- inn fannst klukkan 23:40 um 4,5 kílómetra frá upphaflegri stað- setningu. Ferðamaðurinn var heill á húfi en kaldur og blautur. Björg- unarsveitarmenn komu honum í hlý og þurr föt og fluttu hann á vélsleða til móts við þyrlu Land- helgisgæslunnar sem flutti hann til aðhlynningar í Reykjavík. Voru síðustu björgunarmenn komnir til síns heima klukkan fimm um nóttina. mm/ Ljósm. Landsbjörg Víðtæk leit að ferðamanni á hálendinu Bíll festist í krapa á leið upp á Langjökul

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.