Skessuhorn - 16.03.2022, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2022 15
Skagabón ehf.
auglýsir eftirfarandi nýjung!
Við hjá Skagabón þökkum Skagamönnum og
nærsveitungum fyrir frábærar viðtökur!
Nú erum við hjá Skagabón ehf. að fara af stað með
áskriftarkerfi fyrir fyrirtæki og einstaklinga!
Áskriftarkerfi:
Pakki 1: 202.000kr Í áskrift 120.000kr
Pakki 2: 150.000kr Í áskrift 100.000kr
Pakki 3: 96.000kr Í áskrift 75.000kr
Pakki 4: 68.000kr Í áskrift 45.000kr
Pakki 5: 142.000k Í áskrift 100.000kr
Pakki 6: 122.000kr Í áskrift 80.000kr
Pakki 7: 118.00kr Í áskrift 67.000kr
Hægt er að sjá kerfin inn á SkagaBón facebook síðu, en von
bráðar opnar bókunarsíðan www.skagabon.is Sími 771-6866,
Instagram: Skagabon.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
2
Endurnýjun á þaki
Heiðarskóla Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit óskar eftir tilboðum í endurnýjun á þaki
millibyggingar Heiðarskóla ásamt því að taka niður kerfisloft
og endurnýja rakavarnarlag.
Helstu magntölur í verkinu eru:
Losa upp eldra þakefni 360m²
Rífa og endurnýja rakavarnarlag 350m²
Undirlektur 800m
Lektur 750m
Ný álbáruklæðning 350m²
Verktími er 15. júní – 15. ágúst 2022 og útboðsgögn verða
afhent rafrænt án endurgjalds.
Hægt er að óska eftir gögnum hjá Hvalfjarðarsveit á netfanginu
hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is eða í síma 433 8500.
Tilboð verða opnuð 25. mars 2022 kl. 10:00
á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Verkefnastjóri framkvæmda og eigna
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Kjörnir fulltrúar gefa kost á sér til
starfa í íslenskum sveitarstjórnum
til að láta gott af sér leiða og upplifa
árangur af störfum sínum. Á hinn
bóginn vinna þeir talsvert meira
heldur en fulltrúar í sveitarstjórn-
um annars staðar á Norðurlöndum,
eða að meðaltali 50 klst. á mánuði.
Ef kjörnir fulltrúar sem hafa setu í
sveitarstjórn að aðalstarfi eru tekn-
ir frá þá fellur meðaltalið niður í
40 klst. á mánuði. Ríflega helm-
ingur hópsins hefur upplifað mik-
ið álagi í starfi til lengri tíma. Þetta
kemur fram í könnun Evu Marínar
Hlynsdóttur, prófessors í opinberri
stjórnsýslu við Háskóla Íslands, sem
kannaði reynslu og viðhorf kjörinna
fulltrúa í bæjar- og sveitarstjórnum
á Íslandi.
Eva Marín naut liðsinnis innviða-
ráðuneytis og Samband íslenskra
sveitarfélaga við gerð könnunarinn-
ar og var niðurstöðuskýrsla hennar
unnin í samráði við verkefnisstjórn
um starfsaðstæður kjörinna fulltrúa
innan innviðaráðuneytisins. Verk-
efnisstjórnin vinnur að því að greina
starfsaðstæður kjörinna fulltrúa og
leggja fram tillögur til úrbóta.
Eva Marín segir niðurstöð-
ur könnunarinnar athyglisverð-
ar í ljósi umfangsmikilla breytinga
á sveitarstjórnarstiginu. „Samhliða
auknum verkefnum sveitarfélaga
hefur sveitarfélögunum fækkað á
landsvísu. Sú þróun hefur óneit-
anlega haft áhrif á störf sveitar-
stjórna. Færri hendur vinna fleiri
verk. Í könnuninni vekur álag á
sveitarstjórnir sveitarfélaga af mið-
stærð sérstaka athygli. Einn þáttur
í því gæti verið að þessi sveitarfé-
lög hafi tekið að sér að sjá um ver-
kefni fyrir minnstu sveitarfélögin,“
segir hún. „Svo má ekki gleyma því
að íslenskar sveitarstjórnir eru mjög
fámennar og raunar aðrar fámennu-
stu sveitarstjórnir í Evrópu með sjö
fulltrúa að meðaltali.“
Nýliðun of mikil
í röðum kvenna
Guðveig Eyglóardóttir, bæjarfull-
trúi í Borgarbyggð og formaður
verkefnisstjórnar um starfsaðstæð-
ur kjörinna fulltrúa innan aðgerðar-
áætlunar stjórnvalda á sviði sveitar-
stjórnarmála, segir niðurstöðurn-
ar dýrmætt innlegg inn í störf ver-
kefnisstjórnarinnar. „Sveitarfélög-
in á Íslandi eru ólík og könnunin
staðfestir að nauðsynlegt er að líta
til margra þátta til að bæta aðstæð-
ur kjörinna fulltrúa. Þar er hægt að
nefna skipulag, fræðslu, aðstæð-
ur, kjör og stuðning vegna erf-
iðra samskipta og áreitni,“ segir
hún og bætir við að ríflega helm-
ingur kjörinna fulltrúa hafi upplif-
að áreitni í tengslum við störf sín
í sveitarstjórnum á kjörtímabilinu
eða síðasta kjörtímabili samkvæmt
könnuninni.
Guðveig tekur fram að markmið
nefndarinnar hafi verið að vinna
gegn óvenjumikilli nýliðun í sveitar-
stjórnum, sex af hverju tíu fulltrú-
um í sveitarstjórn hafi verið nýliðar
í tvennum síðustu sveitarstjórnar-
kosningum. „Nýliðun er alltof mik-
il, sérstaklega meðal kvenna. Þótt
hlutfall kynjanna sé orðið ágætt í
sveitarstjórnum stoppa þær alltof
stutt,“ segir hún.
mm
Átakinu Römpum upp Ísland var
formlega hleypt af stokkunum í
síðustu viku. Markmiðið með verk-
efninu er að byggja 1.000 rampa
um land allt á næstu fjórum árum.
Kynningarfundur um verkefnið
var haldinn í Skyrgerðinni í Hvera-
gerði. Þar fluttu ávörp Guðni Th.
Jóhannesson, forseti Íslands og
verndari verkefnisins, Katrín Jak-
obsdóttir, forsætisráðherra, Sig-
urður Ingi Jóhannsson, innviða-
ráðherra, Dagur B. Eggertsson,
borgarstjóri Reykjavíkur, og Har-
aldur Þorleifsson, frumkvöðull
verkefnisins.
„Verkefnið Römpum upp Ísland
er ekki aðeins merkilegt fyrir það
að í því felst stórkostleg breyting
í aðgengismálum fatlaðs fólks um
allt land, heldur er sérlega ánægju-
legt og virðingarvert að einstak-
lingur leggi svo mikið af orku sinni
og fjármunum til verkefna af þessu
tagi. Ég vil sérstaklega þakka Har-
aldi Þorleifssyni fyrir frumkvæð-
ið að samstarfinu og ráðgjafanefnd
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyrir
þá tillögu, sem ég hef staðfest og
undirritað og felur í sér 200 millj-
óna króna stuðning við verkefnið
næstu fjögur árin,“ segir Sigurður
Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra.
Verkefnið Römpum upp Reykja-
vík, sem snéri að því að byggja
100 rampa í miðbæ Reykjavíkur í
fyrra, fékk byr undir báða vængi
og var lokið við 101 ramp næstum
þremur mánuðum á undan áætl-
un og á sama tíma undir kostn-
aðaráætlun. „Það var strax tekið
vel í verk efnið og því færum við
út kvíarnar og tæklum allt landið
næst. Strax frá byrjun verkefnisins
í Reykjavík höfum við fundið fyr-
ir miklum áhuga um allt land og
því ákváðum við að slá til. Stuðn-
ingsaðilar okkar hafa einnig unnið
þrekvirki og þetta væri einfaldlega
ekki hægt án þeirra,“ sagði Harald-
ur Þorleifsson, frumkvöðull verk-
efnisins.
Nánar um verkefnið
Römpum upp Ísland er verkefni
þar sem miðað er að því að setja
upp 1.000 rampa á næstu fjórum
árum um land allt. Stofnaður var
sjóður með aðkomu fjölmargra
fyrir tækja og aðila sem munu
standa straum af kostnaði fyrir þá
verslunar- og veitingahúsaeigendur
sem taka þátt í verkefninu. Fram-
lag ríkisins nemur 200 milljónum
kr. á tímabilinu. Álíka upphæð mun
renna inn í verkefnið frá einkaaðil-
um og sveitarfélögum. Með römp-
unum er öllum gert kleift að kom-
ast á þægilegan hátt inn á veitinga-
staði og í verslanir þátttakenda
á landinu öllu. Verkefnið verð-
ur framkvæmt í góðu samstarfi
við eigendur viðkomandi bygginga
og skipulagsyfirvalda. Haraldur
Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitt-
er og stofnandi hönnunarfyrir-
tækis ins Ueno, er hvatamaður ver-
kefnisins.
mm
Brennandi áhugi en mikið
álag sveitarstjórnarfólks
Á kynningarfundi í Hveragerði um verkefnið Römpum upp Ísland: F.v.: Dagur B. Eggertsson, Katrín Jakobsdóttir, Haraldur
Þorleifsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Friðrik Sigurbjörnsson.
Ætla að rampa upp Ísland