Skessuhorn - 16.03.2022, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 202216
Félag Ungra athafnakvenna (UAK)
var stofnað í maí 2014 og hef-
ur það markmið að stuðla að jafn-
rétti og framþróun í samfélaginu. Á
vef félagsins segir: „UAK vill gera
allt sem í valdi félagsins stendur til
að jafna stöðu kynja á íslenskum
vinnumarkaði með því að styrkja
stöðu og framtíð ungra kvenna
sem stjórnendur og þátttakend-
ur í atvinnulífinu. UAK vinnur að
jafnrétti með fræðslu, umræðu og
hvatningu. Með fjölbreyttum við-
burðum fá félagskonur innsýn inn
í ólíka upplifun kvenna út frá starfi
þeirra og bakgrunni.“ Í félaginu eru
konur með fjölbreyttan bakgrunn
úr atvinnulífinu eða námi en engin
inngönguskilyrði eru í félagið og
ekkert aldurstakmark. Stjórn félags-
ins skipa níu konur hverju sinni
og er kosið til tveggja ára í senn.
Starfsárið 2021/2022 eru þrjár kon-
ur í stjórn frá Akranesi. Blaðamaður
heyrði í þessum þremur konum og
fékk smá innsýn í þeirra störf.
Var í leit að
samfélagi kvenna
Guðrún Valdís Jónsdóttir er fjár-
málastjóri UAK og er á sínu fyrsta
starfsári. Guðrún er fædd og upp-
ali n á Akranesi, gekk í Brekkubæjar-
skóla og svo í FVA áður en hún fór
til Bandaríkjanna þar sem hún lærði
tölvunarfræði við Princeton háskóla
í New Jersey. Að námi loknu flutti
hún til New York þar sem hún vann
sem öryggisráðgjafi hjá Aon í New
York. Eftir rúm sex ár í Bandaríkj-
unum flutti Guðrún aftur heim til
Íslands árið 2020 og vinnur í dag
sem öryggisráðgjafi hjá tölvu- og
netöryggisfyrirtækinu Syndis. „Ég
vinn við að hakka kerfi hjá fyrir-
tækjum og reyna að brjótast inn í
þau. Svo veiti ég þessum fyrirtækj-
um ráðgjöf um hvernig þau geti
bætt netöryggi sitt,“ útskýrir Guð-
rún.
„Það var æðislegt að búa í New
York og ég var í raun ekki á leiðinni
heim en flúði vegna Covid. Svo var
Bandaríkjunum lokað og ég festist
tímabundið hér á Íslandi og ílengd-
ist svo alltaf. Ég ákvað að nýta
tækifærið og prófa að flytja alveg
heim aftur og sjá hvernig mér lík-
aði það,“ segir Guðrún sem í dag
er mjög ánægð á Íslandi og ekkert á
leiðinni út aftur. „Ég byrjaði eigin-
lega í UAK vegna þessara flutninga,
en ég var fyrsta stelpan sem var ráð-
in hjá Syndis og var bara að vinna
með körlum á þessum tíma. Mig
vantaði því að komast inn í samfé-
lag öflugra kvenna og fann það svo
sannarlega í þessu félagi. Ég vinn
í mjög karllægum geira og það var
því mjög farsæl og góð ákvörðun
að skrá mig í UAK þar sem ég hef
kynnst fjölmörgum metnaðarfull-
um, klárum, og dásamlegum stelp-
um,“ segir Guðrún Valdís.
Söngurinn er drifkraftur
Inga María Hjartardóttir er vara-
formaður UAK og alþjóðatengill á
sínu öðru ári í stjórn. Hún er fædd
og uppalin á Akranesi þar sem hún
kláraði stúdentspróf frá FVA. Inga
María er söngkona með BMus í
tónlistarviðskiptafræði frá Berklee
College of Music í Boston í Banda-
ríkjunum. „Ég fór til Bandaríkjanna
í nám fyrst og fremst út af tón-
listinni og tók viðskiptafræði sam-
hliða,“ útskýrir hún. Eftir nám-
ið flutti Inga María til Los Angel-
es þar sem hún ætlaði að reyna fyrir
sér sem söngkona. „Ég fæ svo óvænt
ekki landvistarleyfi og verð að flytja
aftur heim árið 2018.“ Inga María
býr í Reykjavík þar sem hún vinnur
í markaðsdeild hjá Símanum. „Ég
sé um viðburði, alla samfélagsmiðla
Símans og markaðssetningu. Fjöl-
skyldan er samt öll á Akranesi og
ég sakna þess stundum að vera ekki
þar,“ segir hún
Inga María var í leit að félagsskap
kvenna á svipuðum stað í lífinu og
hún og ákvað því að skrá sig í UAK.
„Ég ákvað svo að ríða á vaðið og
bjóða mig fram í stjórn strax og náði
kjöri í fyrstu tilraun. Það var mín
lukka því þetta er ótrúlega gefandi
starf og ekki síður mikill skóli að fá
að vinna með þessum kjarnakon-
um sem allar eru á svipuðum aldri
og ég,“ segir Inga María. „Ég fann
þennan hóp samt eiginlega af tilvilj-
un og mikið sem ég er þakklát fyr-
ir það. Þarna eru konur sem ég get
speglað mig í og fengið innblástur
frá og svo hefur orðið til vinskap-
ur sem er alveg ómetanlegur,“ segir
Inga María og bætir við að í þessu
félagsstarfi fái hún einnig útrás fyrir
sköpunargleði sína. „Ég er fyrst og
fremst söngkona og tónlistin hefur
alltaf verið drifkrafturinn í því sem
ég geri. Ég er mjög kreatíf mann-
eskja og þarf að fá útrás fyrir það og
ég finn að ég fæ það svolítið í þessu
starfi til dæmis við að skipuleggja
allskonar viðburði sem við höld-
um,“ segir Inga María.
Vill sjá fleiri
Skagakonur í UAK
Árný Lára Sigurðardóttir er
stjórnar meðlimur og fyrsti vara-
maður í stjórn UAK starfsár-
ið 2021-2022. Á fyrri hluta starfs-
ársins gegndi hún einnig stöðu
samskiptastjóra í stjórn þar sem hún
sá um samskipti, viðtöl, skrifa frétt-
ir og að koma félaginu á framfæri.
„Þá vann ég mjög náið með sam-
félagsmiðlastjóranum okkar við að
koma viðburðum og öðru sem við
vorum að gera á framfæri,“ útskýr-
ir Árný. Hún er fædd og uppalin á
Akranesi, gekk í Grundaskóla og
tók stúdentspróf við FVA. Hún er
með BA gráðu í þýsku frá Háskóla
Íslands og Paris Lodron háskól-
anum í Salzburg og MA gráðu í
alþjóðastjórnmálum frá Háskóla
Íslands. Hún starfar í dag sem verk-
efnastjóri hjá Alþjóðasviði Háskóla
Íslands. „Ég sé til dæmis um nem-
endur sem fara í skiptinám innan
Evrópu,“ segir hún.
Árný sótti fyrstu ráðstefnu UAK
sem haldin var árið 2018 og hef-
ur hún fylgt félaginu síðan. „Ég
hef ýmist verið skráð í félagið eða
sótt opna viðburði inna á milli. En
mér fannst kominn tími á að sjá
breytingar fyrir konur í atvinnu-
lífinu, sérstaklega ungar konur og
ákvað því að skoða þetta félag. Mér
fannst þetta tilvalinn félagsskap-
ur og góður vettvangur fyrir það
sem ég var að leita að. Ég hef öðl-
ast mikla reynslu og myndað góð
tengsl innan félagsins og það er
gaman að taka þátt í að hjálpa kon-
um að koma sér á framfæri og dafna
í atvinnulífinu,“ segir Árný og bætir
við að nú voni hún að fleiri Skaga-
konur skrái sig í félagið. „Það væri
gaman að sjá hlutfall Skagakvenna
í stjórn haldast svona áfram,“ segir
hún og hlær. „En UAK er fyrir all-
ar konur í atvinnulífinu og þangað
geta konur leitað sem eru kannski
að taka sín fyrstu skref á vinnu-
markaðnum eða að þróa starfsfer-
il sinn áfram,“ segir Árný Lára að
endingu.
arg/ Ljósm. aðsendar
Árný Lára Sigurðardóttir.
Þrjár af níu í stjórn Ungra athafnakvenna
koma frá Akranesi
Guðrún Valdís Jónsdóttir.
Inga María Hjartardóttir.