Skessuhorn - 16.03.2022, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2022 27
Pennagrein
Pennagrein Pennagrein
Allt frá árinu 2018 hefur verið lög-
bundin skylda á sveitarfélögum að
starfrækja notendaráð til að tryggja
samráð notenda félagsþjónustu við
stefnumörkun og áætlanagerð.
Árið 2019 sendi Öryrkjabanda-
lag Íslands erindi á alla sveitarstjóra
landsins þar sem brýnd var fyrir
þeim skyldan til þess að koma not-
endaráðum á laggirnar og tryggja
þannig samráð fatlaðra íbúa sveitar-
félagsins og hagsmunasamtaka fatl-
aðs fólks.
Samráð er lykillinn að gæðum
í stefnumótun og reglusetningu
þegar kemur að mannréttindamál-
um svo sem félagsþjónustu. Það er
því ekki að ástæðulausu að lög geri
ráð fyrir skyldu sveitarfélaga til þess
að hlusta á raddir þeirra sem þjón-
ustan beinist að.
Öryrkjabandalaginu hefur boð-
ist að skipa fjölmarga fulltrúa í not-
endaráð þar sem þeim hefur verið
komið upp. Til þess að sá hópur
valdeflist og hafi bestu mögulegu
upplýsingar um störf notendaráða
vítt og breitt um landið, starfræk-
ir Öryrkjabandalagið umræðuhóp
fyrir fulltrúa sem sem sitja í not-
endaráðum. Allir fulltrúar fatlaðs
fólks í notendaráðum landsins og
annars konar samráðshópum við
yfirvöld eru velkomnir í þann hóp
og geta sett sig í samband við skrif-
stofu Öryrkjabandalagsins til að
komast á póstlistann, til dæmis með
tölvupósti á netfangið: mottaka@
obi.is.
Því miður hefur orðið misbrestur
á að öll sveitarfélög hafi komið sér
upp fullnægjandi notendaráðum í
málefnum fatlaðs fólks í samræmi
við 8. grein laga um félagsþjónustu
sveitarfélaga. Í sumum tilfellum
hefur verið skipað í slík notendaráð
án aðkomu Öryrkjabandalagsins
og því höfum við ekki getað veitt
fötluðu fólki í þeim notendaráð-
um stuðning og jafningjafræðslu.
Þetta er óásættanlegt og hefur
Öryrkjabandalag Íslands því beint
því að Gæða- og eftirlitsstofnun
velferðarmála að gerð verði úttekt
á því hvaða sveitarfélög hafa ekki
enn brugðist við þessari lögbundnu
skyldu sinni.
Það skiptir alla borgara landsins
máli að hlustað sé á fólkið í nærum-
hverfinu og sérstaklega á fólkið
sem sem eru notendur félagsþjón-
ustu. Því skorum við á þig lesandi
góður að gera málefni fatlaðs fólks
í sveitarfélaginu að þínum og veita
sveitarstjórnum og þeim einstak-
lingum sem bjóða sig fram í kom-
andi sveitarstjórnarkosningum
aðhald hvað varðar áherslur full-
trúa í þessari mikilvægu réttinda-
baráttu.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, for-
maður Öryrkjabandalags Íslands
Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,
formaður NPA-miðstöðvarinnar
Katrín Oddsdóttir, mannréttinda-
lögfræðingur
Svarbréf sveitarstjórnarfulltrúa
Íbúalistans við bréfaskrifum Ólafs
Óskarssonar
Undirritaðar tóku undir og
samþykktu svarbréf sveitarstjórn-
ar Hvalfjarðarsveitar við bréfi
Ólafar Óskarssonar nú í lok febr-
úar mánaðar. Þetta var ágætis bréf
sem fór yfir hinar ýmsu staðreynd-
ir málsins eins og það kemur fyrir
augum sveitarstjórnar. Í okkar huga
vorum við og erum ekki að segja að
Grunnafjarðar leiðin sé ekki í boði,
þó við getum ekki fullyrt hver hug-
ur meirihluta sveitarstjórnar er.
Það er hægt að taka undir margt
sem fram kemur í bréfaskriftum
Ólafs.
Við erum á því að bæta verður
Grunnafjarðar leiðinni inn í tillög-
ur VSÓ fyrir Vegagerðina svo hægt
sé að meta alla þá kosti sem komn-
ir eru fram. Við erum þó ekki með
þessu að segja að það sé leiðin sem
eigi að verða fyrir valinu, það er
ekki hægt að segja til um það fyrr
en sú tillaga er komin inn og allir
þættir taldir með, umhverfisþættir,
vegalengdir, öryggi o.fl.
Það er hvorki þessarar sveitar-
stjórnar né næstu að segja til um
eða útiloka mögulega legu Vestur-
landsvegar í gegnum sveitarfélag-
ið, það er með öllu rangt að útiloka
eina leið án þess að hún sé metin
eins og hinar fjórar leiðirnar sem
komnar eru fram.
Í lokin viljum við þakka Ólafi
Óskarssyni fyrir að taka af skar-
ið og koma sínum hugleiðingum
og skoðunum á framfæri. Okkur
finnst mikilvægt að fá að heyra og
lesa skoðanir íbúa, sumarbústaða-
eigenda og annarra sem um Hval-
fjarðarsveit fara. Íbúasamráð er
mikilvægur hluti af lýðræðislegu og
góðu sveitarfélagi.
Fulltrúar Íbúalistans í sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar,
Elín Ósk Gunnarsdóttir og Ragna
Ívarsdóttir
Strandveiðikerfið í dag er mikl-
um annmörkum háð. Það heimil-
ar aðeins veiðar í 48 daga á ári, 12
daga á mánuði frá maí til ágúst. Þá
er potturinn lítill og klárast reglu-
lega áður en strandveiðitímabil-
inu lýkur, með þeim afleiðing-
um að margir ná ekki að fullnýta
veiðirétt sinn. Eitt fyrsta og brýn-
asta verk sjávarútvegsráðherra VG
var að skerða þorskveiðiheimildir í
strandveiðum um 1500 tonn, þrátt
fyrir að kosningabarátta flokksins í
Norðvesturkjördæmi sl. haust hefði
byggst sérstaklega á hátíðlegum
loforðum um eflingu strandveiða
og sjávarbyggða.
Flokkur fólksins mælti fyr-
ir rúmri viku fyrir frumvarpi um
frjálsar handfæraveiðar þar sem
fiskveiðar eru heimilaðar á eigin
báti með fjórum sjálfvirkum hand-
færarúllum. Markmið frumvarpsins
er að íbúar sjávarbyggðanna fái rétt
til að nýta sjávarauðlindina þannig
að fjölskyldur geti lifað af fisk-
veiðum. Sá réttur verður einungis
tryggður með eflingu strandveiða
sem atvinnugreinar og með því að
gefa handfæraveiðar frjálsar.
Engin mótrök
Rökin fyrir þessu eru að handfæra-
veiðar ógna ekki fiskistofnum á
Íslandsmiðum. Kvótakerfið var sett
til verndar fiskistofnum og á því
einungis að ná til þeirra veiðiað-
ferða og veiðarfæra sem geta stofn-
að fiskistofnum í hættu. Handfæra-
veiðar með önglum ógna ekki fiski-
stofnum og því ber að gefa þær
frjálsar. Rökin fyrir núgildandi tak-
mörkun handfæraveiða eru ekki
fyrir hendi.
Undan ströndum Íslands eru ein
gjöfulustu fiskimið í heimi. Þessa
auðlind hafa Íslendingar nýtt frá
því land byggðist. Íbúar sjávar-
byggðanna eiga tilkall til fiskimið-
anna undan ströndum landsins. Þar
hefur byggð frá landnámi byggst á
fiskveiðum og landbúnaði.
Rétturinn til handfæraveiða er
ævaforn og á styrka stoð í réttar-
vitund almennings. Í Jónsbók frá
1281, lögbók Íslendinga í árhund-
ruð, segir: „Allir menn eigu at veiða
fyrir utan netlög at ósekju.“
Barátta fyrir
atvinnufrelsi
Baráttan fyrir frjálsum strandveið-
um er réttindabarátta. Barátta fyr-
ir jöfnum búseturétti og rétti íbúa
sjávarbyggðanna á landsbyggð-
inni, þar sem byggð hefur alla tíð
byggst á fiskveiðum. Hægt er að
tryggja þennan rétt með eflingu
strandveiða. Þetta er barátta fyr-
ir atvinnufrelsi en takmarkan-
ir á atvinnufrelsi mega ekki ganga
lengra en nauðsyn krefur.
Núverandi strandveiðikerfi með
48 veiðidögum og litlum aflaheim-
ildum var sett á í kjölfar álits Mann-
réttindanefndar Sameinuðu þjóð-
anna frá 2007. Í álitinu var talið
að stjórnkerfi fiskveiða bryti á
jafnræði borgaranna samkvæmt
alþjóðasamningi um borgarleg og
stjórnmálaleg réttindi. Núverandi
strandveiðikerfi tryggir ekki jafn-
ræði borgaranna. Til þess eru tak-
markanir á veiðunum of miklar og
skerðing atvinnufrelsis til hand-
færaveiða gengur miklu lengra en
nauðsyn krefur.
Strandveiðifélag
Íslands stofnað
Strandveiðifélag Íslands var stofn-
að um þar liðna helgi, til að berj-
ast fyrir rétti almennings til hand-
færaveiða við Íslandsstrendur og
koma í veg fyrir mismunun í lögum
um fiskveiðistjórnun. Markmið-
ið er að stuðla að nauðsynlegum
breytingum á kvótakerfinu í átt að
réttlæti fyrir alla þjóðina, umbót-
um á vísindalegum hafrannsóknum
og veiðiráðgjöf, verndun hafsins og
fiskistofna. Félagið er opið öllum
sem eru sammála tilgangi og mark-
miðum þess, enda varðar málefnið
alla landsmenn. Hér er um mikil-
vægt félag að ræða í þeirri mann-
réttindabaráttu sem frjálsar hand-
færaveiðar eru. Það er barátta fyr-
ir fólkið í landinu, tilverurétti og
búseturétti í sjávarbyggðum lands-
ins og fyrir grundvelli allrar byggð-
ar, sem er atvinnufrelsið.
Eyjólfur Ármannsson
Höfundur er þingmaður fyrir
Flokk fólksins í Norðvesturkjördæmi.
Er samráðsskyldan uppfyllt
í sveitarfélaginu?
Tvöföldun
Vesturlandsvegar -
Grunnafjörður
Frjálsar strandveiðar
varða mannréttindi
Grundaskóli fagn-
ar hækkandi sól,
birtu og yl með því
að ráðast í hvert
stórverkefnið á
fætur öðru. Nú er
stefnt á að setja
aftur upp söngleik-
inn Hunangsflug-
ur og villiketti en
söngleikurinn var
frumsýndur skóla-
árið 2005 til 2006.
Þessi uppsetning
er lokaverkefni 10.
bekkjar og kveðja
til skólasamfélags-
ins í Grundaskóla.
Þetta kemur fram
á facebook síðu
Grundaskóla.
Nemendur í 10. bekk eru nú
byrjaðir að æfa söng fyrir söngleik-
inn og geta allir sem vilja fengið
hlutverk og tekið þátt í sýningunni.
Leikstjórn sýningarinnar er í hönd-
um höfundanna þriggja, þeirra
Flosa Einarssonar, Einars Viðars-
sonar og Gunnars Sturlu Her-
varssonar. Stefnt er á frumsýningu
í byrjun apríl en sýnt verður í sal
Grundaskóla.
vaks
Hópur sem stóð að uppfærslu á söngleiknum veturinn 2005-2006. Aðeins hefur
tognað úr mannskapnum síðan. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Grundaskóli setur
upp söngleik