Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 1
F I M M T U D A G U R 7. A P R Í L 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 82. tölublað . 110. árgangur .
Páskablað
Nettó
Frábært úrval af páskamat,
góð tilboð, viðtöl og uppskriftir
Gleðilega páska!
Skoðaðu
blaðið á
netto.is
Lægra verð – léttari innkaup
Skannaðu QR kóðann
og fáðu blaðið í símann
SÝNINGIN Á
HEIMA Í VEST-
MANNAEYJUM
HÁLEIT MARK-
MIÐ Í ÍTALSKA
BOLTANUM
EINA LEIÐIN AÐ
EFNINU ER
HÚMOR
ELVAR MÁR FRIÐRIKSSON 62 VALUR FREYR EINARSSON 64VALA PÁLSDÓTTIR 16
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Útlit er fyrir áframhaldandi skort á
íbúðum þrátt fyrir að íbúðum í bygg-
ingu hafi fjölgað. Þetta er niðurstaða
Samtaka iðnaðarins (SI) og Hús-
næðis- og mannvirkjastofnunar
(HMS) sem töldu íbúðir í byggingu á
landinu öllu í febrúar og mars 2022.
Framkvæmdir voru hafnar við bygg-
ingu 7.260 íbúða á landinu öllu. Þeim
hafði fjölgað um 1.276 íbúðir (21%)
frá því talið var í september 2021.
SI og HMS áætla að 2.453 nýjar
íbúðir komi á markað á landinu öllu á
þessu ári og 3.098 árið 2023, eða
samtals 5.551 íbúð. „Til samanburð-
ar má nefna að það er mat HMS að
þörf fyrir fullbúnar íbúðir sé um
3.500 til 4.000 á ári þ.e. 7.000 til 8.000
íbúðir þessi tvö ár. Það er því ljóst að
áfram verður framboðsskortur á
íbúðum þrátt fyrir þann vöxt sem nú
sést í fjölda íbúða í byggingu,“ segja
SI og HMS.
Aukningin dugar ekki til
„Lóðaframboð hefur ekki verið
nægt og skipulagsmál hafa haldið
aftur af uppbyggingu,“ segir Sigurð-
ur Hannesson, framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins, spurður hvers
vegna framboð nýrra íbúða mætir
ekki þörfinni. Mikil fjölgun íbúða í
byggingu er aðallega á fyrstu bygg-
ingarstigum. „Þetta eru ný verkefni
og koma kannski á markað á næsta
ári og eitthvað á þessu ári. Þótt það
sé aukning þá er hún ekki nóg,“ seg-
ir Sigurður. Hann segir að ríki og
sveitarfélög þurfi að taka höndum
saman varðandi íbúðauppbyggingu.
„Ég fagna því að Reykjavíkurborg
hefur birt metnaðarfull áform um að
byggðar verði 2.000 íbúðir á ári
næstu árin. Eins er mikil uppbygg-
ing í Hafnarfirði. Ég vildi gjarnan
sjá fleiri sveitarfélög setja sér
markmið og flýta uppbyggingu
íbúða.“ »6
Þörf fyrir enn fleiri íbúðir
- Fjölgun á íbúðum í byggingu 2022 og 2023 mun ekki mæta allri þörfinni - SI og
HMS töldu íbúðir í byggingu - Lóðaskortur og skipulagsmál hamla uppbyggingu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hafnarfjörður Mikið er byggt í
Hamranesi og Skarðshlíð.
_ Til umræðu er
í umhverfis- og
samgöngunefnd
Alþingis að færa
orkukosti á milli
flokka, til dæmis
úr vernd-
arflokki í bið-
flokk ramma-
áætlunar. Það
er í samræmi
við stjórnarsátt-
mála ríkisstjórnarinnar. Vil-
hjálmur Árnason, formaður nefnd-
arinnar, segir að sú faglega
ráðgjöf sem felist í tillögum verk-
efnisstjórnar hafi elst misvel á
þeim tæpu sex árum sem liðin eru
frá því hún var gerð. Að sumu
leyti séu forsendur hennar brostn-
ar. Stefnt er að afgreiðslu úr
nefnd eftir páska og að þingið
ljúki málinu fyrir vorið. »26-27
Ráðgjöf um ramm-
ann enst misvel
Af öllum þorski sem kom í net þeirra
sjö grásleppubáta sem Fiskistofa
hafði eftirlit með í drónaeftirliti sínu
23. til 29. mars var 30 til 90% kastað
fyrir borð. Elín B. Ragnarsdóttir,
sviðsstjóri veiðieftirlits hjá Fiski-
stofu, segir um að ræða stórfellt
brottkast þar sem um hafi verið að
ræða í mörgum tilvikum stóran
hrygningarþorsk.
Hafrannsóknastofnun hefur talið
þörf á auknu eftirliti. Guðmundur J.
Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávar-
sviðs hjá stofnuninni, segir töluvert
um brottkast fylgja veiðunum, sér-
staklega þorsk og skarkola. Bendir
hann á að Fiskistofa hafi birt 30
ákærur í fyrra vegna grásleppu-
veiða. Drónaeftirlit Fiskistofu með
veiðunum hófst á ný í gær. »30
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Vertíð Grásleppuveiðum er sagt
fylgja töluvert af brottkasti.
Staðnir að
stórfelldu
brottkasti
Það var milt veður sem mætti ferðamönnum og
öðrum vegfarendum í miðbæ Reykjavíkur í gær.
Enn er þó kalt í veðri og þeir sem voru á ferðinni
gættu flestir að því að brynja sig með húfum,
treflum og öðru tilheyrandi.
Áfram verður kalt í veðri víðast hvar næstu
daga og talsvert næturfrost. Það má því búast
við að margir kjósi að njóta fegurðarinnar í
gegnum glugga til öryggis.
Morgunblaðið/Eggert
Fallegur dagur í miðbænum en enn kalt í veðri
Vilhjálmur
Árnason