Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 4
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þorlákshöfn Meitilshúsið var reist árið 1955 og setur svip á umhverfið.
Hugmyndir eru um að breyta og
stækka byggingu þeirri í Þorláks-
höfn sem áður hýsti fiskvinnslu
Meitilsins og fleiri fyrirtæki, og
koma þar fyrir íbúðum, veitingastöð-
um, verslunum, skrifstofum og ann-
arri starfsemi. Í dag er húsið 3.860
fermetrar og um 12 metrar á hæð, en
áform sem fyrir liggja gera ráð fyrir
stækkun í tæplega 9.000 fermetra og
að byggingin verði hæst 18 metrar.
Hafnarskeið ehf. stendur á bak við
þessi áform og nú liggur fyrir hjá
Sveitarfélaginu Ölfusi ósk um breyt-
ingar á aðal- og síðar deiliskipulagi
þessu viðvíkjandi.
Umrædd bygging er við götuna
Hafnarskeið og stendur nærri fjöru-
kambi við svonefnda Norðurvarar-
bryggju. Húsið var reist árið 1955 og
þar var fiskvinnsla Meitilsins fram
undir aldamót. Önnur sjávarútvegs-
fyrirtæki voru síðar með starfsemi í
húsinu, sem nú bíður nýtt hlutverk.
Hafnarskeið ehf. keypti Meitils-
húsið, eins og það er jafnan kallað,
fyrir nokkru og hugmyndir um fram-
tíðarhlutverk þess eru stórar, eins
og að framan er lýst. Að Hafnar-
skeiði standa fjárfestarnir Bernharð
Bogason og Magnús Ármann, Ingv-
ar Þórðarson kvikmyndaleikstjóri og
Helgi Gunnlaugsson, sem er tals-
maður verkefnisins.
„Við erum ágætlega settir með
fjármögnun þessa verkefnis og gæt-
um farið af stað fljótlega, eða þegar
skipulagsmálin hafa verið til lykta
leidd. Í Þorlákshöfn á sér stað mikil
uppbygging á ýmsum sviðum um
þessar mundir. Við viljum taka þátt í
þeirri þróun og trúum að þarna séu
tækifæri til framtíðar,“ segir Helgi.
sbs@mbl.is
Meitilshúsið
fái nýtt hlutverk
- Áform um íbúðir og veitingastaði
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022
„Það eru engar stórar virkjanir á borð-
inu hjá okkur,“ segir Bjarni Bjarna-
son, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur,
sem var staddur í stórhríð á Fjarðar-
heiði á leið til Seyðisfjarðar. Á borg-
arstjórnarfundi á þriðjudag var sam-
þykkt að vísa tillögu Eyþórs Arnalds,
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
um að Orkuveitunni verði falið að
skoða virkjunarmöguleika á starfs-
svæði OR, til stjórnar OR. Eyþór Arn-
alds er í stjórn OR og benti á í tillög-
unni að í stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar hafi markmiði um
jarðefnaeldsneytislaust Ísland verið
flýtt til 2040.
„Það er ekki stefna Orkuveitunnar
að virkja mikið, en við fylgjum fullnýt-
ingarstefnu og viljum nýta betur þá
orku sem kemur frá gufu og heitu
vatni. Við eigum möguleika á að nýta
betur það sem við tökum upp, t.d. í
Hverahlíð, þar sem er mikið og öflugt
háhitasvæði sem við nýtum í Hellis-
heiðarvirkjun. Við leiðum gufuna það-
an rúmlega fimm kílómetra og það
mætti hugsanlega byggja þar 15
megavatta virkjun til að fullnýta þá
gufu og aðra sams konar á Nesjavöll-
um,“ segir Bjarni og bætir við að það
væri þá verið að auka rafmagnsvinnslu
en ekki að virkja.
„Allt rafmagn sem framleitt er á Ís-
landi er grænt, eða 99%, og Ísland er
einstakt í heiminum að því leyti að 85%
af allri orku sem við notum er vistvæn.
Þessi 15% sem vantar upp á er innflutt
eldsneyti, en við stefnum á það að setja
bílaflotann alfarið yfir í rafmagn á
næstu árum. Svo þegar hugsað er
lengra má tala um skipaflotann og
flugflotann, en þróun á svokölluðu raf-
eldsneyti er ekki komin langt á veg.“
Bjarni segir að Íslendingar myndu
ekki leiða þróunina á þessu framtíð-
areldsneyti, en vel komi til greina að
framleiða það þegar að því komi. „Við
getum framleitt meira rafmagn en við
gerum í dag, en það er alltaf spurning
hvað við viljum virkja mikið og hvað
hratt og í dag önnum við alveg eft-
irspurn. Þjóðin á að ráða því, en ekki
Orkuveitan eða Landsvirkjun,“ segir
Bjarni og segir Íslendinga eiga þrjár
náttúruauðlindir sem allar séu tak-
markaðar: orkuna, fiskinn og ásýnd
landsins.
„Við megum ekki spilla ásýnd lands-
ins, því það hefur áhrif á t.d. ferða-
mannaiðnaðinn og orkan er að mestu
leyti sameign þjóðarinnar. Ég vara
stórlega við virkjanagræðgi og tel
enga ástæðu til að hlaupa núna.“
doraosk@mbl.is
Engar nýjar virkjanir í farvatninu
- Orkuveita Reykjavíkur vill nýta betur orku sem kemur frá gufu og heitu vatni - Mætti hugsanlega
byggja 15 megavatta virkjanir í Hverahlíð og á Nesjavöllum - Segir OR fylgja fullnýtingarstefnu
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss.
Fullnýting Stefna Orkuveitu
Reykjavíkur er að fullnýta orku.
Viðstaddir ráku upp stór augu
þegar hið nýja varðskip Íslend-
inga, Freyja, kom í fyrsta sinn til
heimahafnar í Siglufirði 6. nóv-
ember síðastliðinn. Grá málningin
hafði flagnað af á stórum svæðum
á heimsiglingunni og fyrri litur, sá
blái, komið í ljós. Ljóst var að mik-
ið hafði farið úrskeiðis þegar skip-
ið var málað úti í Hollandi.
Freyja hefur því verið flekkótt
við gæslustörfin undanfarna mán-
uði.
„Til stendur að mála Freyju í
sumar og er unnið að gerð útboðs-
gagna. Ekki liggur fyrir hvar
skipið verður málað en verkið
verður boðið út á evrópska efna-
hagssvæðinu. Seljandi skipsins
verður krafinn um greiðslu kostn-
aðar við málningu skipsins þar
sem um augljós mistök af hans
hálfu er að ræða,“ sagði Ásgeir
Erlendsson upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslunnar aðspurður.
sisi@mbl.is Morgunblaðið/sisi
Flekkótt
Freyja
verður mál-
uð í sumar
Ökumaður var fluttur á slysadeild í
Fossvogi með þyrlu Landhelg-
isgæslunnar eftir alvarlegt umferð-
arslys á Grindavíkurvegi um miðj-
an dag í gær. Hann er sagður
alvarlega slasaður.
Samkvæmt upplýsingum frá
brunavörnum Suðurnesja var um
að ræða fiskflutningabíl sem keyrði
inn í hliðina á bíl ökumannsins.
Tveir fengu læknisskoðun á vett-
vangi og hlutu þeir minni háttar
meiðsl. Þrír sjúkrabílar komu á
vettvang ásamt tveimur tækjabíl-
um.
Alvarlega slasaður
eftir umferðarslys
LÖNG HELGI Í PRAG
WWW.UU.IS HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
Á SUMARDAGINN FYRSTA
Komdu með í langa helgarferð til Prag, undir
fararstjórn Helgu Thorberg.
Prag, borg hinna 100 turna, var lengi sem falinn
gimsteinn þegar leiðir lágu frekar til stórborga
Vestur-Evrópu. En nú til dags er Prag með
blómlegustu og vinsælustu ferðamannaborgum
Evrópu.
Prag er einnig þekkt fyrir mat og drykk og úrval
veitingastaða sem bjóða upp á þjóðlegan sem og
alþjóðlegan mat. Brugghúsin í Prag eru nú 35,
sum ný en önnur sem byggja á eldri grunni.
BEINT FLUG FRAM OG TIL BAKA, INNRITAÐUR
FARANGUR OG HANDFARANGUR, ÚRVAL 3 OG 4
STJÖRNU HÓTELA MEÐ MORGUNMAT, ÍSLENSK
FARARSTJÓRN, AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI
INNIFALIÐ Í VERÐI:
21. - 25. APRÍL
VERÐ FRÁ 134.700 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
Fararstjóri
Helga Thorberg
Félag íslenskra atvinnuflugmanna
gagnrýnir utanríkisráðuneytið
harðlega fyrir samstarf við flug-
félagið Bláfugl. Í yfirlýsingu félags-
ins í gær segir að Bláfugl eða Blu-
ebird Nordic annist flutning á
varningi fyrir íslenska utanrík-
isráðuneytið, þar á meðal á her-
gögnum vegna stríðsins í Úkraínu.
FÍA segir að Bláfugl hafi „brotið
gegn íslenskri vinnulöggjöf með fé-
lagslegum undirboðum og gervi-
verktöku“ auk þess hafi Bláfugl
„hundsað niðurstöðu Félagsdóms“.
Flugmenn ósáttir
við ráðuneytið