Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022
Ferðalög á
Tónlist
fyrir sálina
Matur
fyrir líkamann
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Lifandi píanótónlist
öll kvöld
Opnunartími
Mán.–Fös. 11:30–14:30
Öll kvöld 17:00–23:00
Borðapantanir á matarkjallarinn.is
eða í síma 558 0000
Eitt af nýjum hópverkefnum Ferðafélags Ís-
lands heitir FÍ Rannsóknarfjelag. Þetta er
hópur undir umsjá Páls Ásgeirs Ásgeirssonar
og Rósu Sigrúnar Jónsdóttur. Hópurinn tók til
starfa skömmu eftir áramót og hefur hist að
jafnaði einu sinni í viku.
Rétt er að taka fram að rík áhersla er lögð á
að heiti hópsins sé ávallt stafsett samkvæmt
gamla laginu með fjelag en ekki félag. Með
þessu vilja félagsmenn undirstrika áhuga sinn
á fortíðinni og því sem hún hefur að geyma.
FÍ Rannsóknarfjelag er sem sagt örlítið frá-
brugðið öðrum gönguhópum að því leyti að
dagskrá fjelagsins inniheldur ekki fjallgöngur
nema að litlu leyti.
„Við höfum orðað þetta svo að við göngum
oft kringum fjöll en ekki endilega upp á þau
nema sérstök ástæða sé til,“ segir Páll Ásgeir,
annar umsjónarmanna hópsins.
FÍ Rannsóknarfjelag velur sínar gönguferð-
ir með tilliti til sögu, náttúruminja og áhuga-
verðra atburða sem kunna að hafa gerst á
þeim slóðum sem gengið er um. Algengt er að
hópurinn hittist á tilteknum stað kl. 9 að
morgni og gangi síðan saman í 4-5 klst. með
tíðum stoppum til þess að fjalla um áhuga-
verða staði á leiðinni.
Hópurinn var settur á laggirnar til þess að
skapa vettvang fyrir þá sem eru vanir útivist
og hafa stundað hana lengi. Hugsanlega eru
þátttakendur búnir að fara á mörg fjöll og
ganga þekktar leiðir um land allt. Með FÍ
Rannsóknarfjelagi gefst þeim kostur á að
njóta útivistar og samfélags við fólk með svip-
uð áhugamál sem vill takast á við léttari verk-
efni en áður en halda samt í aðra kosti útiver-
unnar.
Dæmi um gönguferð
Svo dæmi sé tekið þá gekk hópurinn á dög-
unum frá Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysu-
strönd meðfram sjó inn í Flekkuvík. Þar bar
margt á góma, bæði forna kirkjubrú á Kálfa-
tjörn, fornan vatnsstein við kirkjudyr og fleira.
Í Flekkuvík var farið að fornum brunnum og
rúnasteinninn á leiði Flekku landnámskonu
skoðaður. Síðan var skundað yfir heiðina að
hinni tignarlegu Staðarborg áður en haldið var
ofan að Kálfatjörn að nýju.
Með því að nálgast verkefni sín með þessum
hætti reyna umsjónarmenn að fletta efsta lag-
inu ofan af þeirri sögu sem oft sefur undir
sverðinum. Fornleifar eða minjar um búsetu
manna eru ekki alltaf sýnilegar á Íslandi og
stundum alls ekki. Oft á tíðum er aðeins tóft-
arbrot, einn veggur, húsgrunnur eða veg-
arspotti sem ber vitni lífinu sem lifað hefur
verið í landinu. Þannig getur land sem við
fyrstu sýn virðist ósnortið eða lítt snortið af
verkum mannanna í raun búið yfir ríkri sögu
um áræði, þrótt og velgengni eða brostna
drauma, ófarir og slys.
„Við sjáum það sem okkar verkefni að opna
sögurnar sem leynast í landinu fyrir þátttak-
endum og ferðafélögum okkar,“ segir Rósa
Sigrún Jónsdóttir, sem annast FÍ Rannsókn-
arfjelag ásamt Páli Ásgeiri eiginmanni sínum.
Samhliða þessu er lögð áhersla á að skyggn-
ast eftir þeim einkennum í náttúrufari, gróðri,
jarðfræði og dýralífi sem einkenna þær slóðir
sem gengið er um.
Ljóðalestur í nestisstoppi
Eitt af því sem gefur útivist og gönguferðum
aukið gildi er félagsskapurinn. Sameiginleg
áhugamál opna dyr milli fólks og á rólegum
gönguferðum gefst tími til þess að spjalla við
ferðafélaga sína og kynnast þeim betur. Í ferð-
um með FÍ Rannsóknarfjelagi er gefinn gaum-
ur að þessu og gönguhraði lagaður að þörfum
hópsins. Nesti er nauðsynlegt og má segja að
það sé viss helgistund í öllum gönguferðum
þegar hópurinn kemur sér þægilega fyrir í
góðu skjóli og opnar nestisboxið og hitabrús-
ann. Þegar veður leyfir kemur fyrir að leið-
sögumenn draga úr pússi sínu viðeigandi ít-
arefni og lesa upphátt fyrir þátttakendur.
Þetta getur verið sögubrot eða ljóð eða hvað
sem tengir gönguslóðina við söguna. Þannig
fór vel á því í nestisstoppi í Flekkuvík á Vatns-
leysuströnd að lesa kvæði Arnar Arnarssonar
um Stjána bláa því rétt undan ströndinni, við
Keilisnes, sást síðast til þess fræga sægarps.
Kökur á skottloki
Sérstök hátíðarútgáfa af nestisstund er það
sem kallað er: Kökur á skottloki. Þá koma allir
með eitthvað sérstaklega gott með kaffinu og
að lokinni göngu er efnt til hlaðborðs á skott-
loki einnar bifreiðar þátttakenda.
Að sögn umsjónarmanna, þeirra Páls Ás-
geirs og Rósu Sigrúnar, eru margar áhuga-
verðar söguslóðir í nágrenni Reykjavíkur og
hafa sumar þeirra verið lítt kannaðar eða nýtt-
ar af gönguhópum. Sumar sögur tilheyra
fornri tíð og teygja sig langt aftur í myrkar
miðaldir en miklu nær okkur í tíma eru sögur
af amstri mannanna innan núverandi marka
borgarlandsins og má þá einu gilda hvort það
eru hernám Íslands, saga kartöfluræktar í
borgarlandinu, mjólkurframleiðsla í Reykjavík
eða hellar útilegumanna í Elliðaárdal. FÍ
Rannsóknarfjelagi er ekkert óviðkomandi.
pallasgeir@gmail.com
Greinar frá Ferðafélagi Íslands verða birtar
í blaðinu á næstunni.
Leitað að sögunni í gönguferð
FÍ Rannsóknarfjelag er eitt af nýjum hópverkefnum Ferðafélags Íslands. Fjelagið velur gönguferðir með tilliti til sögu, náttúru-
minja og áhugaverðra atburða sem kunna að hafa gerst og dagskrá fjelagsins inniheldur ekki fjallgöngur nema að litlu leyti.
Í Lækjarbotnum Við styttu af Guðmundi Magnússyni, húsverði í fyrsta skátaskála Íslands. Gamli skálinn er nú varðveittur á Árbæjarsafni.
Hátíðaútgáfa Þátttakendur komu með kökur
og settu upp hlaðborð á skottloki eftir göngu.
Umsjónarmenn Rósa Sigrún Jónsdóttir og Páll Ásgeir Ásgeirsson eru fararstjórar FÍ
Rannsóknarfjelags sem leggur áherslu á fræðandi gönguferðir með rannsóknarívafi.