Morgunblaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 Ferðalög á Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Lifandi píanótónlist öll kvöld Opnunartími Mán.–Fös. 11:30–14:30 Öll kvöld 17:00–23:00 Borðapantanir á matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000 Eitt af nýjum hópverkefnum Ferðafélags Ís- lands heitir FÍ Rannsóknarfjelag. Þetta er hópur undir umsjá Páls Ásgeirs Ásgeirssonar og Rósu Sigrúnar Jónsdóttur. Hópurinn tók til starfa skömmu eftir áramót og hefur hist að jafnaði einu sinni í viku. Rétt er að taka fram að rík áhersla er lögð á að heiti hópsins sé ávallt stafsett samkvæmt gamla laginu með fjelag en ekki félag. Með þessu vilja félagsmenn undirstrika áhuga sinn á fortíðinni og því sem hún hefur að geyma. FÍ Rannsóknarfjelag er sem sagt örlítið frá- brugðið öðrum gönguhópum að því leyti að dagskrá fjelagsins inniheldur ekki fjallgöngur nema að litlu leyti. „Við höfum orðað þetta svo að við göngum oft kringum fjöll en ekki endilega upp á þau nema sérstök ástæða sé til,“ segir Páll Ásgeir, annar umsjónarmanna hópsins. FÍ Rannsóknarfjelag velur sínar gönguferð- ir með tilliti til sögu, náttúruminja og áhuga- verðra atburða sem kunna að hafa gerst á þeim slóðum sem gengið er um. Algengt er að hópurinn hittist á tilteknum stað kl. 9 að morgni og gangi síðan saman í 4-5 klst. með tíðum stoppum til þess að fjalla um áhuga- verða staði á leiðinni. Hópurinn var settur á laggirnar til þess að skapa vettvang fyrir þá sem eru vanir útivist og hafa stundað hana lengi. Hugsanlega eru þátttakendur búnir að fara á mörg fjöll og ganga þekktar leiðir um land allt. Með FÍ Rannsóknarfjelagi gefst þeim kostur á að njóta útivistar og samfélags við fólk með svip- uð áhugamál sem vill takast á við léttari verk- efni en áður en halda samt í aðra kosti útiver- unnar. Dæmi um gönguferð Svo dæmi sé tekið þá gekk hópurinn á dög- unum frá Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysu- strönd meðfram sjó inn í Flekkuvík. Þar bar margt á góma, bæði forna kirkjubrú á Kálfa- tjörn, fornan vatnsstein við kirkjudyr og fleira. Í Flekkuvík var farið að fornum brunnum og rúnasteinninn á leiði Flekku landnámskonu skoðaður. Síðan var skundað yfir heiðina að hinni tignarlegu Staðarborg áður en haldið var ofan að Kálfatjörn að nýju. Með því að nálgast verkefni sín með þessum hætti reyna umsjónarmenn að fletta efsta lag- inu ofan af þeirri sögu sem oft sefur undir sverðinum. Fornleifar eða minjar um búsetu manna eru ekki alltaf sýnilegar á Íslandi og stundum alls ekki. Oft á tíðum er aðeins tóft- arbrot, einn veggur, húsgrunnur eða veg- arspotti sem ber vitni lífinu sem lifað hefur verið í landinu. Þannig getur land sem við fyrstu sýn virðist ósnortið eða lítt snortið af verkum mannanna í raun búið yfir ríkri sögu um áræði, þrótt og velgengni eða brostna drauma, ófarir og slys. „Við sjáum það sem okkar verkefni að opna sögurnar sem leynast í landinu fyrir þátttak- endum og ferðafélögum okkar,“ segir Rósa Sigrún Jónsdóttir, sem annast FÍ Rannsókn- arfjelag ásamt Páli Ásgeiri eiginmanni sínum. Samhliða þessu er lögð áhersla á að skyggn- ast eftir þeim einkennum í náttúrufari, gróðri, jarðfræði og dýralífi sem einkenna þær slóðir sem gengið er um. Ljóðalestur í nestisstoppi Eitt af því sem gefur útivist og gönguferðum aukið gildi er félagsskapurinn. Sameiginleg áhugamál opna dyr milli fólks og á rólegum gönguferðum gefst tími til þess að spjalla við ferðafélaga sína og kynnast þeim betur. Í ferð- um með FÍ Rannsóknarfjelagi er gefinn gaum- ur að þessu og gönguhraði lagaður að þörfum hópsins. Nesti er nauðsynlegt og má segja að það sé viss helgistund í öllum gönguferðum þegar hópurinn kemur sér þægilega fyrir í góðu skjóli og opnar nestisboxið og hitabrús- ann. Þegar veður leyfir kemur fyrir að leið- sögumenn draga úr pússi sínu viðeigandi ít- arefni og lesa upphátt fyrir þátttakendur. Þetta getur verið sögubrot eða ljóð eða hvað sem tengir gönguslóðina við söguna. Þannig fór vel á því í nestisstoppi í Flekkuvík á Vatns- leysuströnd að lesa kvæði Arnar Arnarssonar um Stjána bláa því rétt undan ströndinni, við Keilisnes, sást síðast til þess fræga sægarps. Kökur á skottloki Sérstök hátíðarútgáfa af nestisstund er það sem kallað er: Kökur á skottloki. Þá koma allir með eitthvað sérstaklega gott með kaffinu og að lokinni göngu er efnt til hlaðborðs á skott- loki einnar bifreiðar þátttakenda. Að sögn umsjónarmanna, þeirra Páls Ás- geirs og Rósu Sigrúnar, eru margar áhuga- verðar söguslóðir í nágrenni Reykjavíkur og hafa sumar þeirra verið lítt kannaðar eða nýtt- ar af gönguhópum. Sumar sögur tilheyra fornri tíð og teygja sig langt aftur í myrkar miðaldir en miklu nær okkur í tíma eru sögur af amstri mannanna innan núverandi marka borgarlandsins og má þá einu gilda hvort það eru hernám Íslands, saga kartöfluræktar í borgarlandinu, mjólkurframleiðsla í Reykjavík eða hellar útilegumanna í Elliðaárdal. FÍ Rannsóknarfjelagi er ekkert óviðkomandi. pallasgeir@gmail.com Greinar frá Ferðafélagi Íslands verða birtar í blaðinu á næstunni. Leitað að sögunni í gönguferð FÍ Rannsóknarfjelag er eitt af nýjum hópverkefnum Ferðafélags Íslands. Fjelagið velur gönguferðir með tilliti til sögu, náttúru- minja og áhugaverðra atburða sem kunna að hafa gerst og dagskrá fjelagsins inniheldur ekki fjallgöngur nema að litlu leyti. Í Lækjarbotnum Við styttu af Guðmundi Magnússyni, húsverði í fyrsta skátaskála Íslands. Gamli skálinn er nú varðveittur á Árbæjarsafni. Hátíðaútgáfa Þátttakendur komu með kökur og settu upp hlaðborð á skottloki eftir göngu. Umsjónarmenn Rósa Sigrún Jónsdóttir og Páll Ásgeir Ásgeirsson eru fararstjórar FÍ Rannsóknarfjelags sem leggur áherslu á fræðandi gönguferðir með rannsóknarívafi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.