Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 64

Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 SPORTÍS SKE I FAN 1 1 1 08 REYKJAV ÍK spo r t i s@spo r t i s . i s S P O R T I S . I S 520-1000 CARETTA FERÐAVAGN - FERÐAFÉLAGI ÁRSINS! - TRYGGÐU ÞÉR VAGN TIL AFHENDINGAR Í VOR - VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Hjónaskilnaður getur verið eitt stærsta tráma eða áfall sem fólk gengur í gegnum á lífsleiðinni. Þetta áfall kallar á flókið úrvinnsluferli sem getur tekið nokkur ár, en við erum ekki endilega að umfaðma þau sem standa í skilnaði með sama hætti og við tök- um utan um fólk sem missir maka sinn. Í ljósi þess hversu algengir skilnaðir eru mætti tala um hjónaskilnaði sem hversdags- tráma,“ segir Valur Freyr Ein- arsson, höfundur og leikstjóri verksins Fyrrverandi, sem Borgar- leikhúsið frumsýnir á laugardag. Aðspurður segist hann lýsa verkinu sem gamandrama. „Því ég held að eina leiðin til að tala um þetta mál- efni sé að gera það með húmor.“ Óraunsæjar væntingar? Í ljósi þess að þú hefur verið ham- ingjusamlega giftur Ilmi Stefáns- dóttur leikmyndahönnuði árum sam- an liggur beint við að spyrja hvernig hugmyndin að þessu verki hafi kom- ið til þín? „Já, það er rétt hjá þér, ég er ótrúlega gæfusamur í mínu hjóna- bandi. Það er mesta gæfa lífs míns að eiga svona stórkostlegan maka og góð samskipti í lífinu eru að mínu mati mjög samtengd lífsgæðum okk- ar almennt og hamingju. Ég hef í raun engan rétt til að vera að skrifa um þetta en það er kannski ástæðan fyrir því að ég er forvitinn um það. Fyrsta kveikjan var matarboð sem okkur hjónum var boðið í til kunningjafólks ásamt þremur öðr- um pörum, sem áttu það öll sameig- inlegt að vera tiltölulega nýtekin saman og eiga öll fyrrverandi maka. Það vakti athygli mína að samræð- urnar í matarboðinu snerust allar um fyrrverandi og vandasöm sam- skipti eftir skilnað. Það fékk mig til að hugsa um þennan samfélagssátt- mála sem hjónabandið og langtíma- sambönd eru, ekki síst þegar börn eru komin inn í myndina. Önnur kveikjan var bylgja af skilnuðum í okkar vina- og kunningjahóp, sam- bönd sem höfðu varað í 20-30 ár og mig óraði ekki fyrir að myndu enda með skilnaði. Af hverju enda 50% hjónabanda með skilnaði? Erum við með óraunsæjar væntingar? Það er ein þeirra spurninga sem ég er að skoða. Það hefur orðið svo mikil þróun, ekki síst er kemur að væntingum okkar um það hvað hjónabandið er og hvað maki okkar stendur fyrir. Í dag á makinn að uppfylla þarfir sem jafnvel heilt þorp sá um áður. Hann á að vera sálufélagi, en hér áður fyrr var guð sálufélagi fólks. Þannig er makinn nánast orðinn guðleg vera. En makinn þarf líka að vera besti vinur, besti elskhugi, besti kokkur og besta foreldrið og áfram heldur listinn. Það getur enginn tikkað í öll þessi box. Á sama tíma erum við knúin áfram af hamingjuleit og þess- ari djúpstæðu þörf manneskjunnar að finna félaga sem þú vilt deila líf- inu með, skapa djúp tengsl með og fara í gegnum súrt og sætt með. Ég tók viðtöl við fjölda fólks. Fyrst ræddi ég við fólk sem ég þekkti sem hafði skilið og var komið í ný sambönd en átti börn með fyrr- verandi. Ég var meðal annars að skoða hvort raunverulega sé hægt að skilja við einhvern þegar börn eru í spilinu eða hvort fyrrverandi verði alltaf inni í taugakerfinu sama hvort maður vilji það eða ekki. Mér fannst líka áhugavert að skoða hvort fólk sem lendir í vondum skilnaði geti byrjað upp á nýtt og fundið traustið aftur og hæfileikann til að elska. Eða er fólk alltaf með flóttaleið út? Á tímum Tinder og annarra snjall- forrita erum við líka hluti af mark- aðssamfélagi og fáum endalaus gylli- boð sem eiga að hjálpa okkur að hámarka hamingju okkar. Á Tinder er hægt að vera með milljón mögu- lega maka í símanum á sama tíma og fólk er að deita. Þegar við nálgumst sambönd með neyðarútganginn allt- af opinn þá held ég að það hljóti allt- af að vera á kostnað djúptengsla,“ segir Valur Freyr og tekur fram að viðtölin hafi fljótt undið upp á sig. „Mér var sífellt bent á áhugavert fólk sem lent hefði í ýmsu. Ég var því farinn að tala við ótrúlegasta fólk sem ég þekkti ekki fyrir,“ segir Val- ur Freyr og bendir á að öll þau sem hann hafi rætt við hafi verið ótrúlega opin og hispurslaus um reynslu sína. „Ég bjó til fólkið úr þessum sögum og blandaði saman ólíkum ein- staklingum. Allt sem gerist í verkinu hefur þannig gerst í alvörunni. Ég meira að segja hreinsaði það lygileg- asta út til að auka trúverðugleikann, enda er sannleikurinn oft lygilegri en raunveruleikinn.“ Samsköpun skemmtilegust En hvernig leist markaðsdeild leikhússins á að þurfa að selja verk um hjónaskilnaði og fyrrverandi? „Ég held að við höfum endalausan áhuga á þessu efni. Ég tók þátt í leikhúskaffi á Borgarbókasafninu um daginn þar sem ég var að kynna verkið. Þar var töluvert af eldra fólki og ég hugsaði fyrirfram að þau nenntu ekki að ræða þetta málefni þar sem þau væru búin með þennan pakka, en þau höfðu alveg brennandi áhuga á efninu. Svo er nú einu sinni þannig að við manneskjurnar löð- umst að vel skrifuðu drama sem við getum speglað okkur í, sérstaklega ef efnið er gert af heiðarleika, hjarta og metnaði,“ segir Valur Freyr og bætir við að hann sé einstaklega ánægður með leikhóp sinn, en hóp- inn skipa: Árni Þór Lárusson, Hall- dór Gylfason, Jörundur Ragnarsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir, Þorsteinn Bachmann og Þórunn Arna Krist- jánsdóttir. Fyrrverandi er þriðja verkið í fullri lengd sem þú skrifar og sett er upp í Borgarleikhúsinu, en fyrsta verkið sem þú leikstýrir þar. Hvern- ig kom það til? „Þetta er raunar annað verkið sem ég leikstýri á ferlinum því ég leikstýrði með Ilmi uppfærslu CommonNonsense á Af ástum manns og hrærivélar með Ólafíu Hrönn Jónsdóttur og Kristján Ingi- marsson í hlutverkum í Þjóðleikhús- inu árið 2010. Mín fyrsta hugmynd var að fá konu til að leikstýra Fyrr- verandi til að fá það sjónarhorn inn í verkið, en svo þróaðist það þannig að þær sem mig langaði mest til að fá voru ekki lausar. Brynhildur [Guð- jónsdóttir leikhússtjóri Borgarleik- hússins] hélt því líka mjög fast að mér að gera þetta sjálfur, svo það varð úr,“ segir Valur Freyr og tekur fram að sér finnist skemmtilegast að vinna sýningar í mikilli samsköpun. „Ég er með mjög sterkan leikhóp auk þess sem ég er með Ilmi með mér sem hannar leikmynd og bún- inga og Önnu Kolfinnu Kuran sem sér um sviðshreyfingar og að ein- hverju leyti sviðsetninguna. Leik- ritið er í sjálfu sér tiltölulega hvers- dagslegt og gæti þannig verið sett upp sem stofudrama, en okkur lang- aði ekki að fara þá leið leikhúslega. Ég fékk því Önnu með mér til að leggja meiri áherslu á líkamstungu- málið sem er mjög skemmtilegt. Við það kemur annar fókus í textann og kringumstæðurnar. Mér finnst gam- an í leikhúsi þegar manni er komið á óvart sjónrænt. Davíð Þór [Jónsson] og Salka [Valsdóttir] hafa síðan ver- ið að vinna hljóðmyndina og tónlist- ina til að skapa rétta heiminn.“ Langar að skrifa meira Hvernig leikstjóri ert þú? „Ég hef mikla trú á ákveðnu sköp- unarfrelsi og höfundinum í leikar- anum. Mín reynsla er sú að ef fólk- inu í rýminu líður vel, það ríkir traust og samtalið um hugmyndir er opið þá er fólk óhrætt við að fylgja innsæi sínu og prófa sig áfram. Það eru aðstæðurnar sem ég leitast við að skapa sem leikstjóri.“ Það hljómar ekki ósvipað og upp- skrift að góðu hjónabandi. „Já, og það er mjög samtengt. Um leið og þú ert kominn með einhvern járnvilja inn í þetta ferli og ætlar að pönkast með aðra fram og til baka þá myndast togstreita, vantraust og óeining.“ Á endanum er leikstjórinn samt sá sem þarf að taka lokaákvörðunina um það hvernig eigi að gera hlutina? Hvernig gerir maður það best? „Við erum öll að róa í sömu átt. Þegar rými gefst til að prófa ólíka hluti þá er oft eins og að ákvarð- anirnar taki sig stundum nánast sjálfar af því að við finnum í til- raunum okkar hvað virkar og hvað ekki.“ Nú eru átta ár síðan þú sendir síð- ast frá þér leikrit í fullri lengd. Munu líða önnur átta áður en næsta verk þitt fer á svið? „Ég vona að það verði ekki svo langt í það. Mig langar til að skrifa meira. Ég er búinn að leika mjög mikið undanfarin ár. Ég finn það í mínu starfi sem leikari að ég er sífellt að skipta mér meira af, sem helgast örugglega bæði af aldri, reynslu og smekk, en líka löngun til að gera vel og ýta hlutum í farveg sem ég held að sé til góðs. Mér finnst gott hvað með öðru að leika, skrifa og leikstýra,“ segir Valur Freyr og tekur fram að með aldr- inum sé hann líka orðinn sértækari á hvaða verkefni hann tekur að sér og hvaða sögur hann langar að segja. „Ég verð að brenna fyrir því sem ég er að vinna með. Mig langar að segja sögur sem skipta mig máli að segja. Ef hlutir skipta mig máli þá vonandi skipta þeir líka aðra máli. Ósk mín er að áhorfendur geti spegl- að sig í Fyrrverandi, speglað sig í samskiptunum, væntingunum til maka síns og hlegið að því hvað hjónabandið getur verið mikill farsi.“ Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir Farsi „Ósk mín er að áhorfendur geti speglað sig í Fyrrverandi, speglað sig í samskiptunum, væntingunum til maka síns og hlegið að því hvað hjónabandið getur verið mikill farsi,“ segir Valur Freyr Einarsson höfundur og leikstjóri. „Knúin áfram af hamingjuleit“ - Fyrrverandi eftir Val Frey Einarsson í leikstjórn höfundar frumsýnt í Borgarleikhúsinu 9. apríl - „Ég held að eina leiðin til að tala um þetta málefni sé að gera það með húmor,“ segir Valur Freyr Valur Freyr Einarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.