Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 52
52 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022
✝
Þórhallur
Birgir Jóns-
sonfæddist 14.
ágúst 1950. Hann
lést 27. mars 2022
á líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi.
Foreldrar hans
voru Jón Frímann
Frímannsson, f. 12.
mars 1913, d. 6.
júní 1994, og Auð-
ur Gísladóttir, f. 5. nóvember
1921, d. 22. nóvember 2013.
Eiginkona Þórhalls Birgis
var Ásthildur Alfreðsdóttir, f.
5. mars 1954, d. 14. september
2015. Dóttir þeirra er Gyða
Þórhallsdóttir, f. 23. mars
1981. Börn Gyðu eru Arna
Gyðudóttir, f. 31.
júlí 2018, og Bjarki
Gyðuson, f. 31. júlí
2018.
Systkini Þór-
halls Birgis eru:
Pála H. Jónsdóttir,
f. 18. júní 1941,
Álfhildur H. Jóns-
dóttir, f. 4. maí
1944, d. 3. maí
2020, Dagbjört
Jónsdóttir, f. 27.
apríl 1946, og Guðbrandur
Jónsson, f. 11. febrúar 1954.
Sambýliskona Þórhalls var
Alla H. Hauksdóttir, f. 25. októ-
ber 1954.
Útför Þórhalls Birgis fer
fram frá Seltjarnarneskirkju í
dag, 7. apríl 2022, kl. 11.
Leiðir okkar Bigga lágu sam-
an árið 2016 á Hvítasunnumóti í
Kirkjulækjarkoti. Við þekktum
auðvitað hvort til annars áður,
frá fornri tíð, þar sem við erum
bæði frá Siglufirði. En þarna ár-
ið 2016 varð strax góður vin-
skapur á milli okkar og fljótlega
fóru hjörtun okkar að slá í takt.
Það var mikil og óvænt ham-
ingja sem mér var færð að fá að
kynnast honum Bigga mínum og
eyða með honum síðustu árunum
hans. Við lifðum lífinu svo sann-
arlega lifandi saman, ferðuðumst
mikið bæði innanlands og utan
og áttum svo ótal margar góðar
stundir að hugsandi til baka er
eins og tíminn sem við áttum
saman hafi verið mun lengri en
hann raunverulega var.
Ferðalögin okkar hófust strax
helgina eftir að við hittumst í
Kirkjulækjarkoti með heimsókn
á Fiskidaga á Dalvík. Næstu ár-
in ferðuðumst við vítt og breitt
um landið og áttum notalegar
stundir á ýmsum stöðum með
fjölskyldu og vinum. Við áttum
einnig margar og góðar stundir
erlendis, á Spáni, Ítalíu, Póllandi
og í Noregi, með vinum og fjöl-
skyldu. Góðu stundirnar okkar
saman voru svo óteljandi margar
og það er svo verðmætt að geta
yljað sér við allar þessar góðu
minningar um Bigga sem ég
mun geyma eins og gull í hjart-
anu. Ég er þakklát fyrir hverja
stund sem ég átti með honum en
hefði viljað eiga svo miklu fleiri.
Biggi var einstakur maður og
er erfitt að finna nógu sterk lýs-
ingarorð til að lýsa þeim manni
sem hann hafði að geyma. Hann
var einstakt ljúfmenni og hvers
manns hugljúfi, eins og allir sem
þekkja hann vita, og ég varð
snortin af hans stóra og hlýja
hjarta. Hjálpsamari og greiðvikn-
ari mann er erfitt að finna en
hann var ávallt reiðubúinn að að-
stoða vini og fjölskyldu við nær
hvað sem er. Það var líka fátt
sem hann gat ekki gert en hann
var einstaklega handlaginn og
margt til lista lagt eins og flestir
þekkja.
Biggi var einn af demöntunum
í mínu lífi og sjálfur átti hann
dýrmæta demanta, Gyðu dóttur
sína og barnabörnin Örnu og
Bjarka, sem hann hugsaði afar
vel um og lagði áherslu á að eyða
sem mestum tíma með. Það var
svo fallegt að fylgjast með hversu
vel hann hugsaði um þau og svo
dásamlegt fyrir mig að fá að taka
þátt í lífi þeirra líka og fylgjast
með barnabörnunum vaxa og
dafna frá fæðingu. Missir þeirra
er mikill, að missa ástkæran föð-
ur og afa sem var svo stór hluti
af lífi þeirra.
Biggi var einnig afar góður við
demantana mína, börn og barna-
börn, sem voru fljót að átta sig á
hversu góðan mann hann hafði að
geyma og tóku honum strax opn-
um örmum. Þau voru ófá skiptin
sem ég fékk að heyra um hversu
hamingjusöm þau voru yfir því að
ég hefði kynnst honum Bigga
mínum. Hans verður svo sann-
arlega sárt saknað af mörgum en
fallegar minningar um hann
munu lifa í hjarta okkar.
Ég bið góðan Guð að geyma
vel þitt fallega hjarta og senda
okkur sem söknum þín ljós og
styrk í sorginni. Fallegu minn-
ingarnar um þig og okkar góðu
stundir saman mun ég geyma í
hjartanu að eilífu.
Mér finnst viðeigandi að láta
texta úr fallegu lagi sem Biggi
hreifst af fylgja:
Hvers virði er allt heimsins prjál
ef það er enginn hér
sem stendur kyrr
er aðrir hverfa á braut.
Sem vill þér jafnan vel
og deilir með þér gleði og sorg
þá áttu minna en ekki neitt
ef þú átt engan vin.
Hvers virði er að eignast allt
í heimi hér
en skorta þetta eitt
sem enginn getur keypt.
Hversu ríkur sem þú telst
og hversu fullar hendur fjár
þá áttu minna en ekki neitt
ef þú átt engan vin.
Það er komin vetrartíð
með veður köld og stríð.
Ég stend við gluggann
myrkrið streymir inní huga minn.
Þá finn ég hlýja hönd
sál mín lifnar við,
eins og jurt sem stóð í skugga
en hefur aftur litið ljós.
Mín vetrarsól.
(Ólafur Haukur Símonarson)
Alla Hjördís Hauksdóttir.
Elsku Biggi bróðir og kær
vinur er farinn frá okkur. Þar
fer góður og ljúfur bróðir og
mágur sem var alltaf traustur og
til staðar fyrir alla sína nánustu.
Alltaf svo til í að hjálpa og að-
stoða ef þess var þörf. Okkur
sem enn erum hér þykir þyngra
en tárum taki að kveðja þig allt-
of snemma. Hefðum viljað hafa
þig lengur hjá okkur. Þú varst
fjórum árum eldri en ég og á
uppvaxtarárum okkar leit ég
alltaf upp til þín sem stóra bróð-
ur. Minningar sem ég á frá þeim
tíma eru einstaklega góðar og er
mér mjög minnisstætt hvað þú
varst alltaf rólegur og það fór
ekki mikið fyrir þér. Þú hélst
snemma á vit ævintýranna til
Reykjavíkur þegar þú varst að-
eins 16 ára gamall. Þá misstum
við svolítið hvor af öðrum því á
þeim tíma skutlaðist maður ekki
svo glatt á milli Reykjavíkur og
Siglufjarðar.
Sameiginlegt áhugamál okkar
bræðra voru bílar og oft fórum
við á rúntinn til að skoða bíla og
spá og spekúlera. Síðasti bíla-
sölurúnturinn okkar var 19. des-
ember síðastliðinn og var ekki
annað að sjá en þú værir frískur
þá. Ég mun sakna þess að fara
ekki lengur í þannig leiðangra
með þér. Að tala saman í síma
voru gæðastundir fyrir mig og
þó að ekkert væri að frétta
þurftum við samt að heyrast oft í
viku, svo nánir vorum við. Alltaf
var þó hægt að tala um hvað þú
værir að gera hverju sinni. Gera
við bíla fyrir fjölskyldumeðlimi,
gera við og dytta að heima hjá
Gyðu þinni og ýmislegt fleira.
Barátta þín við illvígan sjúk-
dóm var erfið og snörp. Sjúk-
dóm sem hafði sigur þrátt fyrir
baráttuvilja þinn. Þú hefðir svo
mikið verið til í að eiga eitt sum-
ar í viðbót til að ferðast með
Öllu og öðrum ferðafélögum á
húsbílnum. Það var þitt líf og
yndi að ferðast um landið okkar.
Við kveðjum þig með söknuð í
hjarta og munum alltaf minnast
þín og alls þess sem þú gafst
okkur, minningarnar ylja okkur.
Stutt mannlegt líf endar skjótt.
Guð geymi þig og blessi.
Við sendum öllum ættingjum
og vinum Bigga innilegar sam-
úðarkveðjur.
Fel mig nú í faðmi þér
vernda mig með þinni sterku hönd.
Þegar hafið rís og stormur hvín
hefur þú mig upp og gætir mín.
Faðir, flóðin hörfa fyrir þér
þú ert minn Guð, hljóður ég er.
(Þýð. Árný Jóhannsdóttir)
Guðbrandur (Brandur)
bróðir og Dóra Sólrún.
Ég kynntist Þórhalli, eða
Bigga eins og flestir þekktu
hann, fyrir nokkrum árum gegn-
um Gyðu dóttur hans sem er
samstarfskona mín og ég leið-
beini í doktorsverkefni. Fyrir
tæpum fjórum árum eignaðist
Gyða tvíbura. Hún bjó þá á
fjórðu hæð í blokk sem var ekki
auðvelt með tvíbura. Þórhallur
lét henni þá eftir húsið sitt á
Seltjarnarnesi. Þar var auðveld-
ara að búa og frændfólk í næstu
húsum. Um þetta leyti lét Þór-
hallur af störfum fyrir aldurs
sakir og sá fram á rólega og
ánægjulega daga eftir starfs-
sama ævi. Hann var af þeirri
kynslóð sem stritaði í aðalvinnu
og aukavinnu til að koma upp
húsi fyrir fjölskyldu sína. Hann
gladdist mjög þegar tvíburarnir
fæddust. Nokkrum árum áður
hafði hann misst konu sína eftir
erfiðan sjúkdóm. En nú komu
betri tímar og hann elskaði litlu
tvíburana og þau hann. Hann
kom til Gyðu þegar þau komu úr
leikskólanum og lék við þau og
hjálpaði til fram að kvöldmat.
Dyttaði líka að húsinu, kom upp
sandkassa fyrir börnin og húsi
til að leika sér í. Alltaf með
sömu ró og hjálpsemi. Börnun-
um þótti vænt um hann og
Bjarki var ekki stór þegar hann
fór að elta afa sinn með hamar,
skrúfjárn og plastborvél og
herma eftir honum. Það var
snjallt af honum, því Þórhallur
var ákaflega handlaginn og mik-
ill verkmaður.
Á þessum tíma kynntumst við
Þórhallur. Hann aðstoðaði mig
við að gera við húsið mitt, við-
gerðir á múr, lagfæringar á bíl-
um og annað sem ég kann ekki.
Alltaf með sömu greiðvikninni
og róseminni. Hann fann fyrir
mig iðnaðarmenn. Þeir voru
hluti af hans reynsluheimi en
ekki mínum. Ég reyndi að launa
honum með því sem ég kunni í
rafmagni og að leita að lausnum
á netinu. Hann var ekki góður í
því. Fyrir rúmu ári bauð hann
mér í bíltúr í bíl sem hann hafði
nýlega eignast og lét mig keyra.
Þá fannst honum greinilega
gamli bíllinn minn of gamall.
Þegar mér leist ákaflega vel á
bílinn hans fór hann með mig á
bílasölu og við fundum nýjan bíl
handa mér. Bílferðin var áreið-
anlega hans hægláta „trix“ til að
láta mig fá mér betri bíl. Hægð-
in og rósemin eins og venjulega.
Síðan dyttaði hann að bílnum
fyrir mig svo hann var eins og
nýr.
Þórhallur greindist með heila-
æxli í janúar. Hann var samt
enn með hugann við ánægjulega
daga í ellinni. Nokkru eftir að
hann veiktist sagði hann mér að
hann ætlaði að setja festingar
fyrir barnastóla í ferðabílinn
sinn svo hann gæti tekið tví-
burana með í ferðalög í sumar.
Það varð ekki af því, sjúkdóm-
urinn var óvæginn og eftir stutt-
an tíma var hann látinn.
Hann, Gyða, Arna og Bjarki
misstu þar með af ánægjulegum
og góðum árum sem þau horfðu
fram til. Fráfall Þórhalls er áfall
fyrir Gyðu. Einnig litlu tví-
burana sem áttu bara mömmu
og afa og þótti ákaflega vænt um
bæði. Þau eru lítil og skilja ekki
dauðann enn. Bjarki spurði víst
þegar mamma hans var að segja
honum að afi hans væri dáinn:
„Er fólk dáið lengi?“ Það var
erfitt fyrir hann eins og okkur
hin að taka þessum fréttum. Ég
samhryggist litlu fjölskyldunni
innilega.
Rögnvaldur Ólafsson.
Þórhallur Birgir eða Biggi
eins og við ávallt kölluðum hann
kom til starfa hjá okkur í kjölfar
þess að hafa lokað fjölskyldufyr-
irtækinu, Mósaík.
Var það mikill happafengur
því ekki aðeins var hann sann-
kallaður þúsundþjalasmiður
heldur einnig einstaklega vand-
aður og góður maður.
Hann var hógvær og hæglát-
ur í allri sinni framgöngu, sá um
að allar vélarnar í smiðjunni
gengju smurt og um viðgerðir á
þeim ef svo bar undir.
Eftir margra áratuga starf í
steinsmiðju var gott að geta leit-
að til hans um hjálp og ráðlegg-
ingar og það var yfirleitt sama
hvað borið var undir hann, alltaf
kom hann til baka með góða
lausn á verkefninu. Stundum leit
út fyrir að ekki væri hægt að
lagfæra brotinn hlut en þá var
oftar en ekki kallað í Bigga sem
skoðaði hlutinn án þess að segja
margt, hvarf inn í smiðju og kom
til baka búinn að finna lausn og
bæta hið brotna.
Í kjölfar þess að hann eignast
tvö lítil afabörn dró hann mjög
úr vinnu sinni, bæði til að geta
sinnt tvíburunum og verið til
staðar fyrir dóttur sína Gyðu.
Hann kom þó reglulega í
heimsókn til okkar með sitt ljúfa
fas og brosið blíða, sagði okkur
hvað hann og afastrákurinn
væru að bralla í bílskúrnum og
hvert hann og Alla vinkona hans
stefndu á að ferðast í sumar, á
húsbílnum. Það var okkur mikið
áfall og vonbrigði að heyra af
veikindum hans nú í vetrarlok.
Með söknuði og þakklæti kveðj-
um við góðan vin og samstarfs-
félaga og sendum fjölskyldu
hans og vinum okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Fyrir hönd
starfsfólks S. Helgasonar ehf.,
Ásgeir Nikulás.
Elsku Biggi frændi.
Þú varst bróðir hans pabba,
þú varst alltaf í lífi mínu, þið
pabbi voruð einhvern veginn svo
mikill partur hvor af öðrum. Þið
voruð svo tengdir og nánir, sem
var svo fallegt að fylgjast með.
Hringduð hvor í annan jafnvel
bara til að ræða einhverjar
skrúfur eða nýja olíu á eitthvert
tækið.
Ég fór á ótal bílasölusýningar
með þér og pabba í gamla daga á
laugardögum enda veit ég full-
mikið um bíla eftir þessar sýn-
ingar með ykkur pabba. Það
stafaði af þér svo mikil góðvild í
garð allra manna. Þú barst svo
mikla virðingu fyrir náunganum
og varst ekki að trana þér fram,
en á sama tíma varstu mjög stór
karakter. Hlýjan í augum þínum
og stóra brosið þegar maður
hitti þig leyndi sér ekki, þér var
svo annt um þitt fólk.
Gyða er heppin að hafa átt svo
góðan pabba sem þú varst henni
og Arna og Bjarki svo dásam-
legan afa. Það er svo erfitt að
hugsa til þess að þau fái ekki að
hafa þig lengur og að þú fáir
ekki að vera lengur með þeim til
að fylgjast með þeim vaxa og
dafna og lifa sínu lífi. En ég veit
að þú fylgist með þínu fólki.
Hvíl í friði, elsku Biggi
frændi, ég mun sakna þín.
Edda Sif Guðbrandsdóttir.
Þórhallur Birgir
Jónsson
HINSTA KVEÐJA
Djúp og varanleg vinátta
er dýrmætari
en veraldlegar viðurkenningar,
og allt heimsins gull og silfur.
Henni þarf ekki endilega alltaf
að fylgja svo mörg orð
heldur gagnkvæmt traust
og raunveruleg umhyggja.
Kærleikur,
sem ekki yfirgefur.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Sannur vinur er sannur
vinur, þannig vinur var
Biggi.
Hvíl í friði minn kæri.
Jón Sigurðsson.
Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts móður okkar,
INGVELDAR GUÐMUNDSDÓTTUR
hárgreiðslumeistara
frá Sæbóli í Aðalvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítala
og Droplaugarstaða fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hafsteinn Hafsteinsson
Guðmundur Lúther Hafsteinsson
Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Margrét Rögn Hafsteinsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR INGIBERGSSON
vélfræðingur,
lést þriðjudaginn 29. mars á líknardeild
Landspítalans. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 20. apríl klukkan 13.
Friðfinnur Sigurðsson Eyrún Huld Harðardóttir
Ingibergur Sigurðsson Marcela Munoz
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
systir og amma,
INDÍANA SIGFÚSDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 31. mars á Hrafnistu við
Sléttuveg. Útför hennar fer fram frá
Langholtskirkju þriðjudaginn 12. apríl
klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á hlekknum:
https://www.skjaskot.is/indiana. Hlekk á streymi má einnig
nálgast á www.mbl.is/andlat.
Gylfi Guðmundsson
Þóra Björg Gylfadóttir Davíð Rúrik Ólafsson
Gylfi Jens Gylfason Berglind Guðmundsdóttir
Sigurður Jón Sigfússon
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS G. ÓLAFSSON
húsasmíðameistari,
Heiðargerði 19, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu
sunnudaginn 3. apríl. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 12. apríl klukkan 13. Blóm og
kransar afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hans er bent á
Barnaspítalasjóð Hringsins.
Margrét Þorvaldsdóttir
Jónína Magnúsdóttir Ragnar Aðalsteinsson
Ingibjörg Ó. Magnúsdóttir
Ólafur K. Magnússon Heiðdís Hermannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir minn, afi og langafi,
REYNIR GUÐBJÖRNSSON,
Hákotsvör 1, Garðabæ,
lést föstudaginn 1. apríl.
Útförin fer fram frá Bessastaðakirkju
föstudaginn 8. apríl klukkan 13.
Einar S. Reynisson
barnabörn og barnabarnabörn