Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 6

Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Útlit er fyrir áframhaldandi skort á íbúðum þrátt fyrir að íbúðum í bygg- ingu hafi fjölgað. Þetta er niðurstaða Samtaka iðnaðarins (SI) og Hús- næðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sem töldu íbúðir í byggingu á landinu öllu í febrúar og mars 2022. Framkvæmdir voru hafnar við byggingu 7.260 íbúða á landinu öllu. Þeim hafði fjölgað um 1.276 íbúðir (21%) frá því að talið var í sept- ember 2021. „Aukninguna má fyrst og fremst rekja til fjölgunar íbúða á fyrstu bygging- arstigum, þ.e. íbúða á bygging- arstigum fram að fokheldu,“ segir í greiningu SI og HMS. Á höfuðborgarsvæðinu eru 5.149 íbúðir í byggingu eða 71% af heildarfjölda á landinu öllu. Í nágrannasveitarfélögum höfuðborg- arsvæðisins eru 1.456 íbúðir í bygg- ingu eða 20% af heild. Á öðrum land- svæðum eru 655 íbúðir í byggingu eða 9% af heild. SI og HMS áætla að 2.453 nýjar íbúðir komi á markað á landinu öllu á þessu ári og 3.098 árið 2023. Gert er ráð fyrir að 1.700 af þeim íbúðum sem nú eru í byggingu verði fullklár- aðar árið 2024 eða síðar. Hvað höfuðborgarsvæðið varðar er áætlað að 1.634 íbúðir klárist á þessu ári og 2.243 á því næsta. Í ná- grannasveitarfélögum höfuðborgar- svæðisins er gert ráð fyrir 534 nýj- um íbúðum í ár og 592 árið 2023. Áætlað er að í öðrum sveitarfélögum verði lokið við byggingu 285 íbúða á þessu ári og svipaðs fjölda 2023. Því er áætlað að 5.551 ný íbúð komi á markað á landinu öllu í ár og 2023. „Til samanburðar má nefna að það er mat HMS að þörf fyrir full- búnar íbúðir sé 3.500 til 4.000 á ári, þ.e. 7.000 til 8.000 íbúðir þessi tvö ár. Það er því ljóst að áfram verður framboðsskortur á íbúðum þrátt fyr- ir þann vöxt sem nú sést í fjölda íbúða í byggingu,“ segja SI og HMS. Skorturinn á framboði af nýjum íbúðum undirstrikar mikilvægi þess að mótuð verði ný húsnæðisstefna fyrir Ísland í þeim anda sem innviða- ráðherra hefur boðað. „Innviða- ráðherra hefur nefnt í því sambandi að setja eigi markið á að það verði byggðar allt að 20.000 íbúðir á næstu fimm árum og þar af 7.000 með að- komu hins opinbera í formi fjöl- breytts húsnæðisstuðnings.“ Taldar voru íbúðir í byggingu á öllum byggingarstigum, m.a. bygg- ingarstigi 1 þar sem jarðvinna er hafin en ekki kominn sökkull. Áður miðaðist talning SI við íbúðir á byggingarstigum 2-7. Við breyt- inguna bættust við 1.156 íbúðir á byggingarstigi 1. Teknar voru með framkvæmdir við allar íbúðir á öll- um byggingarstigum, þar með tald- ar stúdentaíbúðir og hjúkrunarrými. Lóðaframboð er ekki nægt „Lóðaframboð hefur ekki verið nægt og skipulagsmál hafa haldið aftur af uppbyggingu,“ segir Sig- urður Hannesson, framkvæmda- stjóri Samataka iðnaðarins, þegar hann er spurður hvers vegna fram- boð nýrra íbúða mætir ekki þörfinni. Mikil fjölgun íbúða í byggingu er aðallega á fyrstu byggingarstigum. „Þetta eru ný verkefni og koma kannski á markað á næsta ári og eitthvað á þessu ári. Þótt það sé aukning þá er hún ekki nóg,“ segir Sigurður. En ef fjöldi lóða bættist við væru þá til mannskapur og tæki til að byggja á þeim? „Fáar atvinnugreinar eru jafn sveigjanlegar og byggingariðnaður- inn. Hann hefur þurft að draga sam- an og auka við með skömmum fyr- irvara í gegnum tíðina. Það er hægt að flytja inn mannskap og tæki með stuttum fyrirvara ef þarf. Við heyr- um á okkar félagsmönnum að þetta er ekki fyrirstaða,“ segir Sigurður. Hann segir að liðið geti tvö ár frá því að byggingarframkvæmdir hefj- ast þar til hægt er að flytja inn. „Það þarf alltaf að vera nægt framboð á lóðum og sveitarfélögin þurfa að vera á tánum varðandi skipulag til að tryggja næga uppbyggingu. Það þarf líka að breyta regluverk- inu. Við fögnum átakshópi sem er að störfum á vegum stjórnvalda ásamt aðilum vinnumarkaðarins. Hann á að skila af sér seinna í mánuðinum samkvæmt áætlun. Við eigum von á að þar komi fram tillögur um ein- földun á regluverkinu sem mun flýta fyrir verklegum framkvæmdum.“ SI og HMS fagna boðaðri hús- næðisstefnu og vilja fá hana sem fyrst. „Það þarf langtímaáætlun varðandi íbúðauppbyggingu. Það er lykilatriði að ríkið og stofnanir þess og sveitarfélögin taki höndum sam- an við það. Allir við borðið þurfa að flýta framkvæmdum eins og hægt er. Ég fagna því að Reykjavík- urborg hefur birt metnaðarfull áform um að byggðar verði 2.000 íbúðir á ári næstu árin. Eins er mikil uppbygging í Hafnarfirði. Ég vildi gjarnan sjá fleiri sveitarfélög setja sér markmið og flýta uppbyggingu íbúða.“ Útlit fyrir að áfram skorti íbúðir - SI og HMS töldu íbúðir á öllum byggingarstigum um allt land - Framkvæmdir hafnar við 7.260 íbúðir - Áætlað að 5.551 íbúð verði tilbúin 2022 og 2023 - Þörf fyrir 7-8 þúsund íbúðir þessi tvö ár Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hafnarfjörður Mikil uppbygging íbúða er nú í Hamranesi og Skarðshlíð, nýjum hverfum nálægt Völlunum. 2,0 1,6 1,4 1,3 1,6 1,7 2,0 2,4 2,3 2,4 2,6 3,0 3,3 3,7 4,1 4,8 5,0 5,0 4,5 4,1 3,5 3,5 4,3 Íbúðir í byggingu skv. talningu SI og HMS Fokhelt og lengra komið Að fokheldu Landsbyggð Nágrenni höfuðborgarsv. Höfuðborgarsvæði mars mars sept. sept. mars sept. mars sept. mars sept. mars sept. mars sept. mars sept. mars sept. mars sept. mars sept. mars 2010 2012 20222011 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 Fjöldi íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu frá mars 2010 Íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu í mars 2022 Íbúðir í byggingu í september 2021 og mars 2022 Samanburður á fjölda íbúða í byggingu í september 2021 og mars 2022 Að fokheldu (byggingarstig 2-3) Fokhelt og lengra komið (byggingarstig 4-7) Byggingarstig: Að fokheldu Fokhelt og lengra komið Fjölgun á tímabilinu1 2 3 4 5 6 7 Samtals Höfuðborgar- svæði september 2021 616 432 1.393 801 544 215 163 4.164 mars 2022 856 457 2.088 806 588 282 72 5.149 24% Nágrenni höfuðborgarsv. september 2021 110 289 354 226 156 67 28 1.230 mars 2022 200 374 280 362 196 44 0 1.456 18% Landsbyggð september 2021 78 156 102 130 97 19 8 590 mars 2022 100 194 94 125 126 13 3 655 11% Samtals september 2021 804 877 1.849 1.157 797 301 199 5.984 mars 2022 1.156 1.025 2.462 1.293 910 339 75 7.260 21% Reykjavík 2.637 Kópavogur 828 Hafnarfjörður 811 Garðabær 688 Mosfellsbær 176 Seltjarnarnes 9 Samtals 5.149 1,7 1,8 1,7 2,5 0,5 0,6 0,6 0,7 Þúsundir íbúða Þúsundir íbúða 0,5 0,6 1,1 1,3 3,5 4,3 Heimild: Samtök iðnaðarins (SI) og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) Sigurður Hannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.