Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022
LANDSBANKINN . IS
Við leggjum til allt að12.000 króna
mótframlag þegar fermingarbörn leggja
inn á Framtíðargrunn og í verðbréfasjóð.
Það borgar sig að spara til framtíðar.
Velkomin í Landsbankann.
Við stækkum
fermingar-
gjöfina þína
eða við Vigdísi Häsler, fram-
kvæmdastjóra Bændasamtakanna,
sem hafi snúið að uppruna hennar
eða litarafti. Þau hafi verið óásætt-
anleg eins og Sigurður Ingi hafi
fallist á í opinberri afsökunarbeiðni
og í engu rengt frásögn Vigdísar á
þeim.
Hann tekur undir gagnrýni á að
afsökunarbeiðnin hafi komið seint
fram, ekki verið nægilega afdrátt-
arlaus og eins hafi Sigurður Ingi
farið undan í flæmingi þegar frekari
skýringa var leitað. Allt bendi það
til þess að hann hafi ekki fengið góð
DAGMÁL
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Það veldur sérstökum vanda í um-
ræðu um „óviðurkvæmileg“ orð Sig-
urðar Inga Jóhannssonar, innvið-
aráðherra og formanns Framsókn-
arflokksins, fyrir viku, að nákvæm
lýsing á tildrögum þeirra og bein og
nákvæm tilvitnun í hvaða orð voru
notuð hefur ekki komið fram. Fyrir
vikið sé almenningi örðugra að
móta sér skoðun á þeim.
Við blasi að Ingveldur Sæmunds-
dóttir, aðstoðarmaður hans, hafi
hallað réttu máli í framhaldinu og
staða hennar því afar veik.
Þetta er meðal þess, sem fram
kemur í Dagmálum í dag, en þar er
rætt við Svavar Halldórsson, reynd-
an fjölmiðlamann og almannatengil,
sem m.a. hefur starfað sem fram-
kvæmdastjóri Landssambands
sauðfjárbænda og við markaðs-
setningu á íslensku lambakjöti.
Dagmál eru streymi Morgunblaðs-
ins, sem opið er öllum áskrifendum.
Fálmkennd viðbrögð
Svavar segir að vissulega hafi
menn fengið nokkuð skýra mynd af
því hvað Sigurður Ingi hafi sagt um
ráð um viðbrögð eða almannatengsl.
Ógerningur er að segja fyrir um
hvernig málið þróist, hvort það sé
„búið“ eða dragi frekari dilk á eftir
sér. Traust til Sigurðar Inga hafi
ljóslega minnkað, en ekki ómögu-
legt að hann ávinni sér það á ný.
Orðbragð Svavar Halldórsson, fjölmiðlamaður og almannatengill, ræðir um
„óviðurkvæmilegt“ orðbragð Sigurðar Inga Jóhannssonar í Dagmálum.
Skortir beina tilvitnun
í orð Sigurðar Inga
- Framhald vand-
ræða formanns
Framsóknar óvístTíðni þungburafæðinga, fæðingar-
þyngd yfir 4,5 kg, hefur farið lækk-
andi síðastliðna tvo áratugi og að-
eins lítill hluti þungburanna átt
mæður með sykursýki. Framköllun
fæðinga minnkaði líkur á þungbura-
fæðingum, en slík verndandi áhrif
virtust óháð sykursýkigreiningu.
Þetta kemur fram í ályktunum sem
dregnar eru af niðurstöðum rann-
sóknar sem greint er frá í Lækna-
blaðinu.
Þekkt er að konur sem ganga
fram yfir áætlaðan fæðingardag og
konur með sykursýki eru líklegri til
að fæða þungbura en aðrar konur.
Markmið rannsóknarinnar var að
kanna tíðni þungburafæðinga á Ís-
landi með hliðsjón af fjölgun fram-
kallana fæðinga. Höfundar eru Jó-
hanna Gunnarsdóttir, Jónína Rún
Ragnarsdóttir, Matthildur Sigurð-
ardóttir og Kristjana Einarsdóttir.
Tíðni þungburafæðinga var skoð-
uð eftir meðgöngulengd og hættan á
þungburafæðingum við framköllun
fæðinga borin saman við biðmeð-
ferð. Fæðingaskrár frá 92.424 fæð-
ingum einbura á tímabilinu 1997 til
2018 voru nýtt í þessa ferilrannsókn.
Fjöldi þungbura sem fæddust á
rannsóknartímabilinu var 5.110 og
af þeim áttu einungis 313 mæður
með sykursýki. Tíðni þungburafæð-
inga var 6,5% tímabilið 1997-2004 en
4,6% 2012-2018.
Hlutfallsleg áhættulækkun þung-
burafæðinga yfir rannsóknartímann
sást meðal fæðinga frá og með áætl-
uðum fæðingardegi. Þegar framköll-
un fæðinga var borin saman við bið-
meðferð mátti sjá áhættulækkun á
þungburafæðingum, en áhrifin voru
til staðar jafnvel þótt leiðrétt væri
fyrir sykursýki, segir í niðurstöðum
greinarinnar í Læknablaðinu.
Framköllun minnk-
aði líkur á fæðing-
um þungbura
- Tíðni þungburafæðinga hefur lækkað
Karen Eísabet Halldórsdóttir, fv. bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi, mun leiða lista Miðflokksins
og óháðra í bænum fyrir komandi kosningar. Stutt er
síðan Karen tók þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kópa-
vogi og stefndi þar á 1. sætið, en laut í lægra haldi fyrir
Ásdísi Kristjánsdóttur. Karen hefur verið bæjarfulltrúi í
Kópavogi í átta ár og varabæjarfulltrúi í fjögur ár. Hún
hefur m.a. verið formaður velferðarráðs, formaður lista-
og menningarráðs, formaður öldungaráðs, setið í stjórn
Strætó og í stjórn jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Karen flytur sig yfir í Miðflokkinn
Karen Elísabet
Halldórsdóttir