Morgunblaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 Lyklasmíði & öryggiskerfi Skútuvogur 1E | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 533 2900 |WWW.LYKLALAUSNIR.IS Fagmennska og þjónusta ASSA ABLOY á heima hjá okkur - Lyklasmíði og vörur Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is K rakkaveldið er verkefni á okkar vegum sem hefur starfrækt Barnabarinn í Norræna húsinu frá því í september,“ segja þær Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir, eða Salka, og Hrefna Lind Lárusdóttir, list- rænir stjórnendur Barnabarsins, viðburðar sem verður í boði um næstu helgi á Barnamenningar- hátíð. „Fullorðnir sem koma á Barna- barinn þurfa að horfast í augu við sjálfa sig. Þessu verkefni er beint að fullorðnum og aðeins fullorðnir geta tekið þátt í því, ólíkt flestu öðru sem í boði er á Barnamenningarhátíð. Við höfum hitt krakkana í þróunar- vinnu einu sinni í viku frá því í haust. Þau eru sjö til ellefu ára og þau eiga allar hugmyndirnar og hafa allt frumkvæði. Við höfum lært helling á því að vinna með þeim, þau ráða öllu en við höldum utan um og erum með þeim sem samstarfsfélagar á jafn- ingjagrundvelli. Hugmyndafræðin á bak við Barnabarinn er að snúa við hlutverkum og völdum, þar ráða börn en fullorðnir hlýða þeim í einu og öllu. Gjaldmiðillinn á barnum er ekki peningar, heldur traust og heið- arleiki. Þetta er í raun tilraun í því hversu mikið fullorðnir treysta börnum fyrir framtíðinni.“ Foreldrar sokknir í síma Krakkarnir hönnuðu sérstök hólf á Barnabarnum þar sem þeir fullorðnu sem koma á barinn verða að byrja á því að setja símana sína. „Krökkunum finnst að full- orðnir séu allt of mikið í símanum. Krökkunum er stöðugt bannað að vera í símanum en foreldrarnir eru sjálfir djúpt sokknir í sína síma öll- um stundum,“ segja þær Salka og Hrefna og bæta við að á Barnabarn- um bjóði krakkarnir upp á nokkra óáfenga kokteila fyrir fullorðna. „Þetta eru sérhannaðir drykkir eftir þeirra uppskrift og þau ætla að athuga áhrifin. Til dæmis bjóða þau upp á bleikan gellu-kokteil fyrir stressaðar mömmur. Þau skynja vel taugakerfi foreldra sinna og vita al- veg hvenær þeir eru stressaðir og einmitt þess vegna bjóða þau líka upp á slakandi spa. Annar kokteill sem þau bjuggu til gerir þá sem drekka hann mjög snobbaða og svo er einn drykkur mjög róandi og ætl- aður þeim sem vilja leggja sig. Krakkarnir bjóða líka upp á rjóma- tertuslag, trúnó, klippingu og tattú,“ segir Hrefna sem hefur sjálf farið í klippingu á Barnabarnum og var mjög sátt við útkomuna. „Að láta barn klippa sig snýst fyrst og fremst um traust og það er gaman fyrir okkur fullorðna fólkið að fara inn í hugrekkið þar. Krakk- arnir hafa fengið smá kennslu og leiðbeiningu hjá fagfólki og þau ætla ekkert að skemma hárið á fólki sem kemur í klippingu til þeirra. Sama er að segja um húðflúrið sem þau bjóða upp á, það er alvöru og varanlegt, þau verða með alvöru tattú-byssu, en eru líka með húðflúrmeistara sem aðstoðar þau og leiðbeinir. Þau hönnuðu sjálf og teiknuðu húðflúrin sem í boði verða og þau taka þetta hlutverk alvarlega og munu vanda sig mikið.“ Pota aðeins í foreldrana Á Barnabarnum verður sér- stakt pössunarherbergi þar sem barn mun passa fullorðinn ein- stakling og leggja honum aðeins lífs- reglurnar, jafnvel skamma smá ef sá fullorðni hagar sér ekki. „Hinir full- orðnu eru oft að skamma börn og leggja þeim lífsreglur, svo krakk- arnir ætla að prófa að snúa því við í þessu pössunarherbergi. Þau bjuggu líka til reglur út frá því hverju þau væru til í að breyta í samskiptum sínum við fullorðna, til dæmis gera fullorðnir mikið af því að segja sömu setningar við krakka aftur og aftur sem innihalda til dæmis: „kannski á morgun“, „ekki núna“, „seinna“ og fleira í þeim dúr. Setningar sem innihalda þessa frasa eru alveg bannaðar á barnum,“ segja þær Salka og Hrefna og bæta við að með verkefninu séu þau að varpa fram spurningunni hvað það þýði að bera virðingu fyrir barni og taka orð þess alvarlega, á sama tíma og við verðum að vernda það. „Við erum líka að skoða hversu mikla ábyrgð við leggjum á börn, til dæmis þegar fullorðnir fara á trúnó með barni, hvolfa þeir þá andlegum þankagangi og tilfinningalífi yfir börnin sín? Á trúnó sem Barnabar- inn býður upp á fær einn fullorðinn að fara í eina mínútu inn með barni sem hlustar á það sem viðkomandi liggur á hjarta og fær í framhaldinu ráðleggingar hjá barninu. Vonandi vekja þessi umskipti á hlutverkum og valdi foreldra til umhugsunar. Þeir líta vonandi í eigin barm, enda er þetta samfélagstilraun,“ segir Salka og bætir við að þegar hún stýrði Krakkaveldinu áður þá hafi krakkarnir fengið rödd í þeim við- burðum sem þau héldu. „Þar töluðu þau opinberlega um ýmislegt sem var meira pólitískt, til dæmis umhverfismálin. Núna með Barnabarnum eru þau frekar að pæla í samfélagsgerðinni, grunn- inum í samskiptum og hvað það sé sem veldur því að fullorðnir standa oft ekki við orð sín. Þessir krakkar eru búnir að láta reyna á að tala og halda mótmæli, en það verða engar breytingar. Þeim er klappað á bakið og sagt að þetta sé allt rétt hjá þeim og ýmsu þurfi að breyta í samfélag- inu, en ekkert gerist. Þeim finnst alls ekki fara saman orð og gjörðir hjá hinum fullorðnu. Núna eru þau að pota meira í fullorðna, fara smá inn í sálgreiningu og láta fullorðna svara hvers vegna þeir segi hluti sem þeir meina ekki. Þess vegna er heiðarleiki leiðarstef á Barnabarn- um.“ Barnabarinn verður opinn í Norræna húsinu laugardag 9. apríl og sunnudag 10. apríl. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er fyrir áhugasama fullorðna að skrá sig á tix.is, því takmarkaður fjöldi kemst að. Snúa við hlutverkum og völdum „Að láta barn klippa sig snýst fyrst og fremst um traust og það er gaman fyrir okkur fullorðna fólkið að fara inn í hugrekkið þar,“ segja þær Salka og Hrefna, list- rænir stjórnendur Barnabarsins, en þar stjórna börn og bjóða upp á klippingu, tattú, kokteila, trúnó, spa og pössunarherbergi, allt aðeins fyrir fullorðna. Ljósmynd/Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir Barnabarinn Þau Brynja Steinunn, Borghildur Lukka, Kolbrún Helga, Leifur Ottó, Þórdís Gyða, Birgir Logi og Benóný (talið f.v.) ætla að bjóða fullorðnum upp á litríka kokteila og ýmislegt annað áhugavert á Barnabarnum. Morgunblaðið/Eggert Spenntar Þær Salka (t.v.) og Hrefna settu barinn upp í gær í Norræna húsinu. Barnamenningarhátíð í Reykjavík var sett sl. þriðjudag og stendur til og með nk. sunnudegi 10. apríl. Leiðarljós hátíðarinnar eru gæði, marg- breytileiki, jafnræði og gott aðgengi að menningu barna, með börnum og fyrir börn. Vettvangur há- tíðarinnar er borgin öll og fara fjölbreyttir við- burðir fram í grunnskólum, leikskólum, frístunda- miðstöðvum og listaskólum. Jafnframt er boðið upp á dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur, Hörpu og lista- og menningarstofn- unum borgarinnar. Hátíðin rúmar allar listgreinar sem börn og fullorðnir geta notið sér að kostn- aðarlausu. Nánar um dagskrá má finna á heima- síðunni: barnamenningarhatid.is. Gæði, margbreytileiki, jafnræði BARNAMENNINGARHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.