Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 38

Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 38
38 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 Dagur B. Eggerts- son, takk fyrir kom- una á íbúafundinn á Kjalarnesi. Glærurnar voru flottar að vanda en að þú skulir gefa það í skyn að endur- nýjun á Vesturlands- vegi frá Kollafirði að Hvalfjarðargöngum sé að einhverju leyti þér að þakka er nú frekar aumt, verð ég að segja, og að halda því fram að það sé að hluta til þér að þakka að Sundabraut sé komin á dagskrá er ansi langt frá sannleikan- um. Ef það hefði verið einhver smá áhugi hjá þér á lagningu Sundabraut- ar værirðu væntanlega búinn að gera eitthvað í því máli, en þú hefur ekki gert neitt annað en að þvælast fyrir Vegagerðinni og ríkinu með að ráð- ast í þessa framkvæmd. Þegar Reykjavík sameinaðist Kjalarnesi 1998 var talið raunhæft að hefja framkvæmdir við Sundabraut eftir fimm til sex ár og nú, rúmum 20 árum seinna, erum við bara á verri stað með þessa framkvæmd því það eru nákvæmlega engar líkur á að framkvæmdir hefjist eftir fimm ár eins og þú gefur í skyn. Tökum sem dæmi gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar, þau mislægu gatnamót hafa Vegagerðin og Kópa- vogsbær reynt að fá að byggja í næstum 10 ár en allan þennan tíma hefur þetta strandað á þínu sam- þykki og nú á loks að fara í þessi gatnamót en þá sem ljósastýrð gatnamót en ekki mislæg eins og allt- af hefur staðið til. Það sama á við um gatnamót Bú- staðavegar og Breiðholtsbrautar. Þar hefur Vegagerðin líka beðið í að verða 10 ár eftir að fá að fara í þá framkvæmd og í samgöngusáttmál- anum, sem þú undirritaðir með bros á vör 2019, var talað um að þessi mis- lægu gatnamót yrðu tekin í notkun 2021 en nú skilst mér að þú sért nú þegar búinn að tefja þá framkvæmd til alla vega 2023. Tafir á þessum tveimur framkvæmdum og það að tími nýrra mislægra gatnamóta í borginni sé liðinn eins og þú hefur talað um gefur ekki mikla von um að Sundabraut sé á döfinni. Varla ætlar þú heldur að leyfa mislæg gatnamót á Sundabraut frekar en annars stað- ar þannig að það eitt og sér á þá klár- lega eftir að tefja fyrirætlanir Vega- gerðarinnar um mislæg gatnamót á þessum vegkafla. Nýjasta útspilið hjá þér til tafa á lagningu Sunda- brautar var svo að koma fyrir fimm smáhýsum á helgunarsvæði Sunda- brautar, sem þurfa þá að víkja ef af Sundabraut verður einn daginn. Takk, Dagur! Gámastöð Jarðvinnan við fyrrnefnd smáhýsi var um 18,5 milljónir per hús eða samtals rúmar 90 milljónir þannig að þegar þau þurfa svo að víkja fyrir Sundabraut þá þarf að koma þeim fyrir annars staðar, sem eru þá aðrar 90 milljónir í jarðvinnu og svo eitt- hvað af milljónum í flutning á húsun- um þannig að þar fara rúmlega 100 milljónir í ekki neitt. Þú varst svo einnig að kaupa hús fyrir 460 milljónir í Dugguvogi, eingöngu til að rífa það í þágu borgarlínu. Þér finnst sem sagt ekkert mál að setja 600 millj- ónir í t.d. þessi tvö mál en nokkrar milljónir á ári í rekstur gámastöðv- ar á Kjalarnesi er ekki í boði. Gámastöðinni var lokað 2011 vegna sparn- aðar og þrátt fyrir ítrek- aðar óskir Kjalnesinga um að opna stöðina aftur hefur ekki verið á það hlustað frekar en annað frá íbúum hér. En hvað munar okkur hér í sveitinni svo sem um 25 km bíltúr í næsta sveitarfélag í þágu sorpflokk- unar; er ekki alltaf talað um að fólk hafi mun meiri tíma í sveitinni! Nú veit ég ekki með þig en mér finnst þessi lokun virka sem hvati fyrir íbúa hér til að setja bara allt óflokkað í gráu tunnuna. Takk, Dagur! Lóðir Í þessum fínu glærum var einnig vikið að 11 lóðum sem hafa staðið auðar hér í hverfinu síðustu 20 ár og mjög margir hafa reynt að fá keyptar en allir fengið sama svar án útskýr- inga; þær eru ekki til sölu, punktur. Það verður að teljast til tíðinda að nú eigi jafnvel að fara að leyfa bygging- ar á þeim en auðvitað ekki strax því að fyrst þarf jú að athuga með forn- minjar á þeim, sem hefði nú kannski verið hægt að skoða á þessum 20 ár- um. Flestar þessara lóða voru ætl- aðar undir sérbýli og standa tilbúnar til byggingar en að sjálfsögðu skal breyta þeim og koma fyrir fleiri íbúð- um og gera nýtt deiliskipulag. Hér á sennilega það sama við og um mislæg gatnamót; tími nýrra sérbýla í Reykjavík er liðinn. Þannig að þrátt fyrir flottar glærur verður varla haf- ist handa við byggingu á þessum lóð- um næstu árin því þetta á eflaust eft- ir að velkjast um borgarkerfið í nokkur ár. Þú varst svo spurður út í átta lóðir sem hafa líka staðið auðar hér rétt fyrir utan hverfið síðustu 20 ár en þar komstu alveg af fjöllum. Það væri gaman að vita hvað málið er með þessar lóðir. Þú kannski fræðir okkur um það þegar þú kíkir fljótlega aftur í heimsókn með kosningaloforðin. Maður vissi svo sem að áhugi þinn er lítill fyrir Kjalarnesi og okkur íbúum hérna í sveitasælunni en að þú vitir ekkert um þessar lóðir staðfestir bara að áhugi þinn á Kjalarnesi er enginn. Takk, Dagur! Eitt að lokum: Er eitthvað að frétta af minnisvarðanum okkar um svikin loforð, ætlar þú í alvöru að svíkja okkur líka um hann? Takk, Dagur! Eftir Hauk Antonsson Haukur Antonsson »Ef það hefði verið einhver smá áhugi hjá þér á lagningu Sundabrautar værirðu væntanlega búinn að gera eitthvað í því máli. Höfundur er íbúi á Kjalarnesi. hauksia@gmail.com Allir Íslendingar vita að upphaf Rússlands sjálfs og rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar var Garðaríki (e. Kiev- an Rus). Höfuðborg þess, Kænugarður, var miðstöð hins heilaga Rússlands (Svyatáya Rus), þar var byggð ein mesta kirkja rétttrún- aðarins, Dómkirkja heilagrar Soffíu, á 11. öld. Mongólarnir lögðu undir sig ríkið um 1100, en létu Muskovy (ríki stór- hertogans af Moskvu) að mestu í friði, hertækni Mongóla hentaði ekki fyrir skógana þar. Þegar Mongólar hurfu á braut átti furstinn af Kænugarði lít- inn her, svo Muskovy gat lagt undir sig Garðaríki smám saman, núverandi Úkraína er syðsti hluti þess. Þá varð Moskva valdamiðstöð rétttrúnaðar- kirkjunnar og tók sér tignarheitið „þriðja Róm“, tign sem Kænugarður hefði annars fengið. Öll menning Úkraínu er miklu eldri en Rússlands, en landið var sett undir „vernd“ Rússakeisara á 17. öld og nú vill Pútín gera það aftur. Pútín hefur rétt hlut kirkjunnar mikið frá því sem var á dögum sósíalismans og um það eru skrifaðar heilu bækurnar hvernig rússneska rétttrúnaðarkirkjan hefur aukið sín pólitísku völd síðan Pútín komst til valda, næstum í þau völd sem hún hafði á keisaratímanum. Hvernig sem það nú er, þá er ekki vafi á að Pútín ætlast til að kirkjan standi með sér. En vegna þessarar arfleifðar rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar hefur innrásin orðið til þess að öflugur hluti hennar hefur snúist gegn Pútín í fyrsta skipti í sögunni. Biskup Íslands ritar um þetta athyglisverða grein í Mbl. 5.3. ’22. Það er alveg öruggt, að ef Pútín nú sest um Kænugarð eins og Hitler 1941 mun rússneska rétttrún- aðarkirkjan snúast gegn Pútín af öllu afli, en hún hefur stutt hann fram að þessu. Þá mun margur rússneskur hermaðurinn sem sér Soffíukirkjuna ekki ráðast á hana með vopnum held- ur falla á kné og biðjast fyrir. Stýrir Rússakeisarinn Pútín að eigin enda- lokum? Úkraína var helsti vígvöllur seinni heimsstyrjaldarinnar, bara um- sátur Hitlers um Kænugarð í júlí- október 1941 kostaði hálfa milljón fall- inna. Í hvað stefnir Pútín? Leppríki Rússlands og vatnsuppspretta Krímskaga Pútín vill gera Úkra- ínu að leppríki eins og Hvíta-Rússland og inn- rásin er tákn þess að hann hefur gefist upp á að ná því marki með friði. Biden forseti Bandaríkjanna og ESB eru reiðubúin til að láta þetta yfir sig ganga, en bæði Vesturlönd og Pút- ín misreiknuðu sig. Í fyrsta lagi er innlimun Pútíns á Krímskaga 2014 að breytast í martröð, eftir að Úkraínu- menn lokuðu fyrir stóran skurð frá Dnjepr-fljótinu sem sá Krím fyrir eina vatninu sem þeir höfðu. Úkra- ínumenn byrjuðu að draga úr rennsl- inu strax 2015 og lokuðu alveg fyrir 2017. Skurðurinn liggur eftir endi- löngum norðurhluta skagans svo nú er sá hluti Krím að breytast í algera eyðimörk. Rússar reyndu að láta líta svo út að þeir hefðu mætt þessum vanda, en á síðasta ári (2021) var ljóst að það hafði mistekist. Ræktað land á svæðinu hafði minnkað tífalt. Þá verð- ur herinn að sjá fólki á Krím fyrir vatni og mat, sem verður hrikalega kostnaðarsamt. Í öðru lagi er hat- römm andstaða Úkraínumanna og frábær frammistaða forsetans Sel- enskís, sem leysti úr læðingi algjöran stuðning almennings í hinum frjálsa heimi. Aðgerðir Pútíns styrkja NATO og eyða evrópskum sósíalisma Þau ríki sem sem vildu sýna Rúss- um hlutleysi eða vináttu ganga nú í NATO. Ef Pútín óttaðist NATO áður ætti hann að vera alvarlega hræddur núna. Framferði Rússa skapar gríð- arlegan pólitískan vanda fyrir evr- ópska vinstrimenn, gæti einfaldlega þýtt endalok vinstri sósíalisma í Evr- ópu. Aðalmál þeirra, hatrið á banda- rískum kapítalisma, hefur leitt þá yfir í ósjálfrátt, og stundum ómeðvitað, Rússadekur og kröftuga andstöðu við NATO, en allt þetta er nú að gufa upp út í veður og vind. Evrópskir stjórn- málamenn munu ekki komast upp með Rússadekur og evrópskir vinstri- menn verða að snúast á sveif með NATO hvort sem þeim líkar betur eða verr. Lítil grein á forsíðu Fréttablaðs- ins 9.3. ’22 sýnir að þetta vandamál á ekki síður við um íslenska sósíalista. Pútín á eftir að fara verr með evr- ópska vinstrimenn en Stalín í Finna- galdrinum, uppreisnum í Austur- Þýskalandi, Ungverjalandi og Pól- landi. Stalín stal korni Úkraínu 1931-33 og þrjár milljónir dóu úr hungri. Þetta man Úkraína, svo á hvaða vegferð er Pútín? Hættan fram undan Stríðið í Úkraínu endar með sigri Rússa eins og stríðið gegn Hitler, enginn reiknar með öðru. Það er hvernig það endar sem er vanda- málið; kemst einhver friður á við það? Búast má við að Úkraínumenn hafi ekki sagt sitt síðasta þótt Rússarnir nái því landi sem þeir sækjast eftir, hvort sem það er austurhlutinn eða landið allt. Í síðustu heimsstyrjöld börðust Úkraínumenn af mikilli hörku gegn Þjóðverjum og áfram gegn Rússum allt til 1953. Vesturlönd komast ekki upp með annað en að styðja þá baráttu, leynt ef ekki ljóst. Munu Rússar sætta sig við að skæru- liðar í Úkraínu fái skjól, vistir og bún- að í NATO-löndum og herji á Rússa bæði í Úkraínu og Hvíta-Rússlandi? Nei, það mun Pútín ekki sætta sig við. Rússar fengu að leika þetta hlutverk í stríðunum í Kóreu og Víetnam, en Vesturlönd fá ekki að gera þetta núna, ekki á landamærum Rússlands. Þá fara Rússar út fyrir landamæri Úkraínu með hernaðinn, taka Molda- víu, einangra Eystrasaltslöndin með því að loka Suvlaki-hliðinu og það leiðir til afskipta NATO og heims- styrjaldar. Hvað getur komið í veg fyrir þetta? Menn einfaldlega vona að valdadagar Pútíns verði ekki miklu lengri, sem er reyndar spurningin um hve lengi hann hefur stuðning hers- ins, eða hvort honum verður komið frá með þeim aðferðum sem hann hef- ur beitt á aðra. En ef það gerist ekki og Pútín verður áfram við völd, þá er gríðarleg stríðshætta fram undan. Vegferð Pútíns Eftir Jónas Elíasson » Saga Rússlands og rússneskur rétttrún- aður á sitt upphaf í Kænugarði; munu her- inn og kirkjan leyfa Pút- ín að leggja hann í rúst? Jónas Elíasson Höfundur er verkfræðiprófessor. Útsölustaðir: Apótek, heilsuhillur stórmarkaða. Gleðilega meltingu! u Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og öll efnaskipti líkamans. u Betri melting, meiri orka, betri líðan! u 100% vegan hylki. u Digest Basic hentar fyrir börn. Veistu um góðan rafvirkja? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.