Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022
„Ég gerði tvær mismunandi snittur, aðra með roast beef á sólkjarnabrauði,
en ég er viss um að þessi útfærsla á eftir að koma ykkur skemmtilega á óvart.
Sólkjarnarúgbrauðið er smurt með rjómaosti og sultu en roast beefið er svo
toppað með klettasalati og furuhnetum. Virkilega bragðgóð útfærsla og
skemmtileg tilbreyting frá klassíska remúlaðinu og steikta lauknum,“ segir
Linda og bætir við: „Hin snittan samanstendur meðal annars af baguette,
pestóskinku og döðlum og er alveg svakalega góð þó ég segi sjálf frá.
Góða veislu má aldrei vanta ostabakka að mínu mati og því smellti ég sam-
an einum slíkum. Mér finnst gott að miða við að setja mismunandi osta á
bakkann, eins og til dæmis einn harðan, einn klassískan og einn kryddost
eins og ég gerði í þessu tilviki. Góðan ostabakka má heldur ekki vanta bragð-
góðar kryddpylsur, ég notaði rauðvínssalamí og göngubita á þennan osta-
bakka og kom það bæði fallega út og pössuðu þær mjög vel með ostunum,“
segir Linda og við tökum heilshugar undir mikilvægi ostabakka.
„Kokteilpulsurnar slá alltaf í gegn á veisluborðum, bæði hjá börnunum og
hjá fullorðnum, svo passið að vanmeta ekki hversu mikið fer af þeim. Ég bar
þær fram með tómatsósu og dijon-sinnepi í fallegum skálum, það er upplagt
að hafa pinna til hliðar svo fólk lendi ekki í vandræðum með að fá sér,“ segir
Linda en eins og sjá má á meðfylgjandi myndum skiptir framsetning töluvert
miklu máli. Linda parar oft saman ljósan mat í dekkri ílát og öfugt. Það dreg-
ur athyglina að matnum. Blóm gera alltaf mikið og svo má ekki gleyma berj-
um sem koma með litina og gera allt fallegra.
Rjómaosta roast beef-snittur
Sólkjarnarúgbrauð
rjómaostur
mangó- og ástaraldinsulta
roast beef frá SS
klettasalat
ristaðar furuhnetur
Aðferð:
Skerið sólkjarnarúgbrauðið í helminga, smyrjið með góðu lagi af
rjómaostinum og setjið sultu yfir.
Takið eina sneið af roast beef, snúið upp á sneiðina og setjið á brauðið.
Setjið klettasalat og ristaðar furuhnetur yfir.
Pestóskinku- og brie-snittur
Baguette-brauð
hágæðaólífuolía
pestóskinka frá SS
brie
döðlur
basil eða mynta
sesamfræ (má sleppa)
Aðferð:
Skerið baguette í sneiðar og smyrjið með ólífuolíu.
Leggið pestóskinkuna í helminga á hverja brauðsneið.
Skerið brie þvert í sneiðar og leggið ofan á skinkuna.
Skreytið með basil eða myntulaufi og nokkrum sesamfræjum.
Smáréttaveisla –
bragðgóðar hug-
myndir fyrir veisluna
„Nú er sá tími árs þar sem mikið er af veislum fram
undan og því fannst mér kjörið að koma með nokkrar
hugmyndir að smáréttum, sem henta vel á veisluborð-
inu, og hvernig er gaman að bera matinn fram,“ segir
matarbloggarinn og áhrifavaldurinn Linda Ben en hér
má finna snjallar hugmyndir að skemmtilegum veislu-
veitingum sem kitla bragðlaukana.
Snilldar-snittur Snitturnar eru sérlega skemmti-
legar og bragðið af þeim kemur virkilega á óvart
eins og Lindu einni er lagið.
Ljósmynd/Linda Ben
Skreytingar Það gjörbreytir veisluborðinu
að skreyta það með blómum og berjum.
Einnig er hægt að skreyta með trjágreinum
sem sumar hverjar eru farnar að laufgast.
Mikilvægur Fallegur osta-
bakki gerir mikið fyrir
veisluborðið.
Snittuhringur
Hér hefur Linda
raðað snittunum
skemmtilega
upp.
Vinsæl Smáréttahlaðborð eru vinsæll veislukostur, þægilegur og bragðgóður.
ÁSKAP TILBOÐ
Húðfegrun býður upp á fjölbreytt úrval
áttúrulega húðmeðferða án skurðaðgerða.
Ve
13
Við to réttu
Pe
21 re
Við
ta 13
Gelísprautun náttúruleg
húðmeðferð sem fyllir upp í
hrukkur og línur, mótar varir
og andlitsdrætti.
HollywoodGlow þéttir húð
á andliti og hálsi ásamt því
að gefa henni samstundis
aukinn ljóma.
20% afsláttur af
Hollywood Glow
30% afsláttur af
Gelísprautun
Nýttu þér Páskatilboðin okkar!