Morgunblaðið - 07.04.2022, Síða 46

Morgunblaðið - 07.04.2022, Síða 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 ✝ Hulda Guðrún Filippusdóttir fæddist á Þórsgötu 19 í Reykjavík 29. júní 1924. Hún lést á líknardeild Land- spítala í Kópavogi 29. mars 2022. Móðir Huldu var Kristín Jóhann- esdóttir, f. í Stykk- ishólmi 17.8. 1895, d. 22.2. 1979. Faðir hennar var Filippus Guðmunds- son, múrarameistari í Reykja- vík, f. 13.3. 1894, d. 26.8. 1981. Eftirlifandi systir Huldu er Þóra Kristín, f. 1935. Látin eru Helgi, f. 1919, d. 1982, Pétur, f. 1926, d. 2013, Þórhallur, f. 1930, d. 2010. Foreldar hennar eign- uðust einnig Guðrúnu, f. 1921, og Val, f. 1922, sem létust aðeins sólarhrings gömul. Þórey Sig- urbjörnsdóttir, f. 1935, var í fóstri hjá Filippusi og Kristínu frá 11 ára aldri. Eiginmaður Huldu var Árni Kjartansson, f. 26. nóvember 1922, d. 28. september 2017. Þau giftust árið 1956. Börn þeirra eru Guðbjörg, f. 5. októ- ber 1958, gift Þráni Ásmunds- syni, f. 1959. Börn Guðbjargar hýsi þar árið 1941. Hulda bjó við Elliðaár til dánardags en þau Árni byggðu sér hús í Hlaðbæ 18 árið 1971. Hulda var mikil útivistarkona og ásamt bræðrum sínum áhugakona um flug á sínum unglingsárum og var fyrsta ís- lenska konan til að ljúka C-prófi á svifflugu. Hulda kynntist Árna Kjartanssyni á fundi Fjalla- manna Guðmundar í Miðdal og brúðkaupsferð þeirra var þriggja vikna vorferð á Vatna- jökul með Jöklarannsókn- arfélagi Íslands, þegar örnefnið Brúðarbunga á Vatnajökli varð til. Hulda var heiðursfélagi í Jöklarannsóknarfélagi Íslands, hún var virk í kvennadeild Flug- björgunarsveitarinnar í Reykja- vík sem færði sveitinni stór- gjafir og heiðursfélagi í Skíðadeild Ármanns. Garður þeirra Árna við Hlaðbæ í Árbæj- arhverfi var margverðlaunaður. Hulda og Árni voru félagar í Dalíuklúbbnum og heið- ursfélagar Garðyrkjufélags Reykjavíkur. Þau opnuðu versl- unina Vogaver við Gnoðarvog árið 1961 ásamt Gunnari Snorrasyni. Þau hjónin ráku Vogaver í aldarfjórðung en síð- ar var Hulda matráðskona í Hlíðaskóla í Reykjavík fram að eftirlaunaaldri. Hulda verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju í dag, 7. apríl 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. og Þráins eru Edda Hrund, f. 1982, Snædís, f. 1985, Árni Fannar, f. 1989, og Nína Björk, f. 1994. Árni Þór, f. 15. janúar 1961, kvæntur Ag- netu Lindberg, f. 26.10. 1962. Börn þeirra eru Edda Kristín, f. 1992, og Andri Jökull, f. 1993. Fyrir átti Hulda tvíburadætur með Birni Þorbjarnarsyni lækni í New Jersey, f. 1921 á Bíldudal, d. 2019. Þær eru: Guðrún, f. 12. september 1946, gift Valdimar Ritchie Samúelssyni, f. 30. apríl 1942, d. 21. júlí 2021. Börn þeirra eru Hulda Guðrún, f. 1970, Harpa, f. 1972, og Elfa Hrönn, f. 1978. Kristín, gift Magna Jónssyni, f. 16. maí 1947. Börn þeirra eru Hulda Brá, f. 1968, Andri Snær, f. 1973, og Jón Pétur, f. 1977. Hulda gekk í Austurbæj- arskóla og vann ýmis versl- unarstörf á yngri árum. Fjöl- skyldan dvaldi sumarlangt í sumarbústað á Selásbletti 3 við Elliðaár og byggði síðan stór- Hulda amma var búin að lifa svo lengi að maður hélt að hún væri á undanþágu. Hún var fastur punktur í veröldinni, í fallega hús- inu neðst í Hlaðbæ, umkringd blómunum sínum, með Bláfjöllin út um eldhúsgluggann og sífellt streymi af börnum og barnabörn- um að kíkja í heimsókn. Það var eftirminnilegt að koma í Hlaðbæ- inn og gista þar sem barn í heim- sókn frá Ameríku og hvílík gæfa að hafa fengið að veita börnum sínum sömu upplifun í heimsókn til langömmu. Veggirnir í Hlaðbæ voru fullir af myndum af jöklum og jöklaferðum, hrafntinnur og annað hálendisgrjót í hillum en garðurinn fullur af dalíum, rhodo- dendron, rósum og hádegisblóm- um. Ævintýraljómi og fegurð í öllu, sögunni af Brúðarbungu, lýs- ing á þögninni þegar maður svífur í svifflugvél, frásagnir af því þegar amma tók þátt í að leggja Fjalla- baksleið eitt sumarið. Amma var gæfukona og hélt heilsu fram á síðustu misseri og alltaf til í æv- intýri. 97 ára gömul fór hún í þyrlu að sjá eldgosið í Geldingadölum og ráðfærði sig við hjartalækninn, hvort henni væri óhætt að prófa að fara í svifflug einu sinni enn og eina eftirsjá hennar í lífinu var að fallhlífarstökk var ekki almennt stundað þegar hún var ung. Hug- ur hennar var ungur og það fór stundum í taugarnar á henni að líkaminn var hættur að fylgja henni. Bara ef ég væri tíu árum yngri, sagði hún stundum. Hún var alin upp á Þórsgötu 19 en við Elliðaár frá vori fram á haust, heimilið var trúrækið heimili, móðir hennar var í vist hjá séra Bjarna og Friðriki Friðrikssyni en fyrir ömmu voru náttúran og fjöllin hennar helgistaðir. Sem barn varð hún að vera í skóm á sunnudögum, annars gekk hún um Elliðaárdalinn berfætt og lék sér og sigldi í ánni, dýfði sér í stíflulónið, talaði við huldufólkið og hændi að sér lóu. Amma hafði mikil áhrif á okkur sem fyrirmynd, hún var glaðlynd, tók bakföll og sló sér á lær þegar hún hló hrossahlátri, áhugasöm um menn og málefni, ástríðukona um garðrækt og fjallamennsku. Þannig spannaði áhugasvið ömmu og afa allan skalann og allar árs- tíðir. Þau hjónin nutu hverrar stundar á árinu, mér leiðist aldrei, sagði amma. Líf hennar og um- hverfi fullt af fyrirmyndum og frumkvöðlaanda. Alin upp af alda- mótakynslóðinni, faðir hennar múrarameistari sem reisti mörg stórhýsi borgarinnar og tók þátt í að stofna Val og átti nafnið á félag- inu. Amma og afi tóku þátt í að byggja Jökulheima fyrir Jökla- rannsóknarfélagið og skálann á Grímsfjalli, stofnuðu kvenfélag Flugbjörgunarsveitar og voru virk í hinum ýmsu samtökum. Undir það síðasta var hún sátt, tilbúin að „fara yfir“ og hitta vini og ættingja og sérstaklega hann elsku Árna afa, sem eflaust var tilbúinn með fallegt beð fyrir dalí- ur og rósir í himnaríki. Andri Snær Magnason, Margrét Sjöfn Torp, Hlynur Snær, Kristín Lovísa, Elín Freyja og Hulda Filippía. Fann ég á fjalli fallega steina faldi þá alla vildi þeim leyna, huldi þar í hellisskúta heilla steina alla mína unaðslegu óskasteina. Langt er nú síðan leit ég þá steina lengur ei man ég óskina neina er þeir skyldu uppfylla um ævidaga ekki frá því skýrir þessi litla saga. Gersemar mínar græt ég ei lengur geti þær fundið telpa eða drengur silfurskæra kristalla með grænu og gráu gullna roðasteina rennda fjólubláu. (Hildigunnur Halldórsdóttir) Ég ólst upp í hverfi þar sem stórfjölskyldan bjó, langamma og langafi, frænkur og frændur og auðvitað amma og afi. Ekkert þótti eðlilegra en að hitta ættingja á hverju horni. Foreldrar ömmu voru frumbyggjar í Árbænum og ólst amma þar upp fyrst sem barn í sumarbústað foreldra sinna sem seinna ákváðu að búa þar allt árið og byggðu þar stórt hús þar sem stórfjölskyldan bjó. Hún elskaði að hlaupa um móana og sagði okk- ur sögur af huldufólki sem hún hitti rétt við Elliðaár og hvernig hún stalst til að veiða lax með höndunum í ánni. Þegar hún flutti að heiman byggðu þau afi sér hús í Hlaðbænum ekki langt frá æsku- heimili ömmu. Þarna var líka minn leikvöllur og alltaf svo gott að geta hlaupið til ömmu til að næla sér í smá kökubita. Amma kenndi mér að elska náttúruna, skoða og dást að ís- lenskum hálendisblómum og dást að styrk þeirra. Aldrei var langt í bók um flóru Íslands þegar við könnuðumst ekki við blómin, en yfirleitt voru amma og afi með öll nöfn á hreinu og ekki bara íslensk heiti heldur líka á latínu. Svo voru það gimsteinarnir sem við fundum og gátum við eytt mörgum tímum í að skoða steina og safna þeim. Á skíðum vorum við svo á vet- urna þar sem amma og afi misstu aldrei úr helgi. Þau voru ástríðu- full í sínum áhugamálum og sam- hent, þau hættu aldrei að láta sig hlakka til og skipuleggja ferðalög innanland eða erlendis. Garðurinn þeirra bar merki um það að allt sem þau gerðu var gert með ástríðu, garðurinn þeirra fékk oft- ar en einu sinni verðlaun fyrir feg- urð. Elsku amma, þú kvaddir okkur sátt og tilbúin til að skipuleggja næsta ferðalag með Árna afa í himnaríki. Við munum sakna þín, en vitum að þú áttir fallegt og innihaldsríkt líf þar sem næstu kynslóðir munu minnast þín og vera stoltar af því að vera afkom- endur þínir. Hulda Guðrún og fjölskylda. Þótt sárt sé eru mikil forrétt- indi að vera orðin 53 ára og vera að missa ömmu sína. Minningarn- ar óteljandi og mun ég nefna nokkur brot. Ég fæðist er pabbi er læknanemi og mamma að klára hjúkrun. Mér til happs gat Hulda amma passað mig, eftir ég byrjaði í leikskóla, og setti ég gjarnan upp sorgarsvip þegar amma átti að fara með mig og fékk í staðinn að vera heima með henni. Þar gat ég litað og leirað í rólegheitum, feng- ið far á Nilfisk þegar átti að ryk- suga og hlustað á tröllasögur. Amma var stórmerkileg, mikil ævintýrakona á sínum yngri árum sem eltist þó ekki af henni því hún fór með þyrlu að gosinu í fyrra og fannst það stórkostlega gaman, hreinlega ljómaði öll. Ég minnist ótal ferðalaga með ömmu og afa um landið, Kerlingarfjöll, Land- mannalaugar, Suðursveit. Ferðir um páska í Jósepsdal þar sem mátti gista í þriggja hæða koju. Í sumarferðum var alltaf stoppað í fallegri laut við iðandi læk og tekið nesti, smurbrauð úr nestiskassa með skúffum. Maður lærði að njóta náttúrunnar, tína steina og vita hvað þeir heita, þekkja ís- lensku blómin – klettafrúin og jöklasóleyin alltaf í uppáhaldi. Taka afleggjara til að setja í garð- inn. Tína ber, búa til sultur, blóð- bergste. Taka slátur, baka kleinur, hnallþórur, fallegar smákökur og leggja fallega á borð. Mjög minn- isstæð ferð í tilefni 50 ára brúð- kaupsafmælis Huldu ömmu og Árna afa upp á Vatnajökul 2006, þar skáluðum við í kampavíni uppi á Brúðarbungu þar sem þau höfðu verið veðurteppt í brúðkaupsferð- inni sinni. Ég bjó í Bandaríkjunum sem krakki og maður saknaði fjöl- skyldunnar heima á Íslandi. Í stað- inn fékk maður einkatíma með ömmu og afa þegar þau komu í heimsókn og þegar maður kom til Íslands voru alltaf pantaðar pylsur í fyrstu máltíðina og gist hjá ömmu. Á menntaskólaárunum vann amma í Hlíðaskóla, í hádeg- ishléi í MH farið til hennar, alltaf sama rólega og notalega nærver- an, hvar sem hún var. Þegar ég svo flutti sjálf sem fullorðin í mitt sér- nám komu amma og afi í heimsókn á hverju ári, gjarnan á haustin þegar litirnir voru sem fallegastir í New Hampshire eða á vorin þegar trén voru öll í blóma. Þá voru keypt blóm í garðinn eða blómstr- andi runnar eða eplatré og eru þau enn stækkandi og blómstrandi hér í götunni okkar. Það var alltaf svo gott að koma í Hlaðbæinn, rólegt, notalegt, garðurinn yndislegur. Leggja sig í sófann í stofunni. Arn- ar Freyr, elsti strákurinn minn, sagði að hún hefði náð að kveðja akkúrat þegar jöklalyktin fór sennilega að finnast í Reykjavík. Sú lykt kallaði alltaf á hana og löngunin að komast upp á jökul – ég trúi því að hún sé komin þangað og við munum finna hana þar, sem og á fjöllum, við hvern læk og foss og í hverri laut sem við setjumst í og fáum okkur nesti. Hennar vega- nesti til okkar er mjög dýrmætt: vertu góður við náungann og nátt- úruna. Hún kvaddi mjög sátt og þakklát fyrir lífið sem hún fékk að njóta og stolt af öllum sínum af- komendum. Stórkostlegt að eiga svona fyrirmynd í lífinu og ég ber nafn hennar með stolti. Hvíl í friði elsku amma. Hulda Brá, Arnar Freyr, Ísak Magni, Björn Nói og Lárus. Vertu blessuð, elsku amma, okkur verður minning þín á vegi lífsins, ævi alla, eins og fagurt ljós, er skín. Vertu blessuð, kristna kona, kærleikanum gafstu mál, vertu blessuð, guð þig geymi, góða amma, hreina sál. (Guðrún Jóhannsdóttir) Amma í Hlaðbæ var engin venjuleg kona. Hún var sannkölluð fjallkona sem fór ótroðnar slóðir. Það var dýrmætt að alast upp í Ár- bænum þar sem amma og afi bjuggu í næstu götu. Elliðaárnar voru leiksvæði okkar barna- barnanna á sumrin og Bláfjöllin á veturna. Amma var mikil ævin- týramanneskja. Fjöllin og jöklarn- ir kölluðu hana til sín snemma og fór hún að stunda skíði og fjalla- mennsku ung að árum. Hún lærði fyrst kvenna svifflug á Íslandi. Það voru ekki margar fyrirmyndir sem amma gat leitað til á sínum æsku- árum og var hún því frumkvöðull sinnar kynslóðar og ruddi brautina fyrir komandi kynslóðir og hefur verið okkur mikil fyrirmynd. Sag- an af ömmu og afa í brúðkaupsferð á Vatnajökli er ævintýri líkust. Þeim leiddist það ekki að snjóa inni í nokkra daga í tjaldinu enda nýgift og ástfangin. Ástin entist þeim út lífið og var alveg eftirtektarvert hversu samheldin þau voru alla sína tíð. Á mínum unglingsárum var ég heppin að hitta þau ömmu og afa á skíðum í Sviss og þar kynntist ég skemmtilegri hlið á ömmu og veit ég ekki hversu oft ég, unglingurinn, sagði hátt „amma!“ þegar hún sagði ein- hverjar sögur sem mér þótti þá vandræðalegar. Svo var skellihleg- ið. Hún var með góðan húmor og hnyttin. Þótt amma væri að nálg- ast 98 ára aldurinn þá var hún stál- minnug. Hún mundi allt, vildi vita hvað barnabarnabörnin væru að aðhafast og var alltaf glöð að fá heimsókn í Hlaðbæinn. Hún var mjög stolt af sínum afkomendum. Það er makalaust að hún hafi búið heima þar til fyrir tveimur mán- uðum. Það hefði hún ekki getað án dætra sinna sem sinntu henni af mikilli alúð. Það er mikill sjónar- sviptir að ömmu þótt við vitum að hún hafi sjálf verið hvíldinni fegin. Hlaðbærinn hefur verið fastur punktur í tilveru svo margra í ára- tugi og hugsa ég með miklu þakk- læti til þess að hafa fengið að hafa ömmu hjá mér svona lengi. Við fjölskyldan munum sakna hennar. Himnaríki hinna skíðandi hefur nú tekið á móti henni með afa fremst- an í flokki. Ég votta öllum aðstand- endum mína samúð. Harpa. Kveðja frá langömmubörnum Við barnabarnabörnin ólumst upp við sögur af langömmu sem voru goðsögnum líkastar. Hún sveif um himininn fyrst kvenna á Íslandi, var grafin í fönn í marga daga í brúðkaupsferð sinni á Vatnajökli, fékk heiðurslykilinn að skíðabænum Lech í Austurríki, og var fræg í Japan fyrir blómagarð- inn sinn. Langamma var kona æv- intýra og ferðalaga, frumkvöðull og frömuður. Hún hló mikið, leit ávallt á björtu hliðina, gaf lítið fyrir væl, og var með skarpan húmor. Það vita allir afkomendur hennar að sinadráttur er þó betri en eng- inn dráttur. Húsið hennar við Elliðaárnar var draumi líkast. Blómagarður á heimsmælikvarða, rósir og vínber í sólskálanum. Heitar kleinur og pönnukökur ávallt til reiðu fyrir barna barnabörnin. Hún var ekki bara goðsögn. Hún var langamma okkar. Þegar jörðin þiðnaði undan snjónum á vorin lýsti langamma lyktinni sem jöklalykt. Lykt sem kallaði á hana og sagði að nú væri kominn tími til að fara aftur á fjöll, að heimsækja jöklana hennar. Í vor kom jöklalyktin, og langamma okkar kvaddi í sitt síðasta ferðalag. Ég vona bara að þar sem hún er núna sé nóg af ævintýrum að finna. Minning hennar mun lifa áfram með okkur og börnum okkar. Þótt langamma sé farin frá okkur lifir goðsögn hennar áfram. Bless Hulda, fjallakona, langamma. Fyrir hönd langömmu- barnanna, Arnar Freyr. Það er með þungu taki gert að rita þessi orð, að kveðja ömmu Huldu, ættmóður og fjallkonu. Við afkomendur hennar höfum oft sagt það hversu mikil fyrirmynd amma væri og það er hverju orði sannara. Mörg eru afrek hennar ömmu og mikið að taka fram á langri, far- sælli og hamingjuríkri ævi hennar. En blíða hennar er ef til vill það sem er minnisstæðast. Það helltist alltaf yfir mann ró og allt hugar- angur hvarf sem dögg fyrir sólu þegar komið var í Hlaðbæinn, með klassíska tónlist eða útvarpið í bak- grunni, allt yfirfullt af blómum og amma oftar en ekki búin að baka heil ósköp. Hægt var að sitja löngum stundum og rabba saman eða bara sitja í næði og njóta kyrrðarinnar með Elliðaárnar tif- andi í bakgarðinum. Elskulegur afi heitinn hafði oft- ar en ekki orð á því hversu lán- samur hann var að hafa hneppt ömmu, þessa glæsilegu konu sem hann elskaði heitt. Þau voru vin- mörg enda engin furða því gæða- hjón voru þau, kærleiksrík og góð. Það er erfitt að koma orðum að því hversu mikill missir það er að amma sé farin, heimsmyndin skekkt og við blasir nýr veruleiki þar sem ekki er hægt að verja dýr- mætum stundum með ömmu. Þegar sest er niður og rifjaðar upp allar þær dásamlegu stundir sem við barnabörnin áttum þá er ekki annað hægt en að brosa og njóta ylsins sem flæðir um. Æska okkar barnabarnanna var gæfurík og höfum við átt náið samband með stórfjölskyldunni með ófáum hittingum og voru þar amma og afi í broddi fylkingar. Að rölta um töfragarðinn, gæða sér á kleinum, pönnukökum eða smákökum eða sitja í fanginu á ömmu, sem sú elsta gerði sem lengst þar til þurfti að banna henni því hnén á ömmu voru að verða léleg. Og það kannski ekki furða enda vel nýtt í alls kyns fjallatúra um jökla, fjöll og firnindi, skíðaferðir þar sem oft þurfti að ganga langar vegalengdir og með börn í eftirdragi, garðrækt og alls kyns ferðalög um heimsins höf. Því þau hjónin í Hlaðbænum undu sér með alls kyns útivist og afþreyingu og var alltaf nóg að gera en samt sem áður var aldrei asi á þeim og eins og áður var sagt þá var alltaf rólyndisstemning í Hlaðbænum, falleg vin þrátt fyrir alls kyns asa í umheiminum. Það var fyrst og fremst amma sem skapaði þetta rólega andrúmsloft og hafði þessi góðu áhrif á allt og alla í kringum sig. Elsku hjartans amma, það sem við erum þakklát fyrir allar þær fallegu stundir sem við höfum átt saman. Þakklæti, hlýja og ást er það sem fyllir huga og hjarta þeg- ar tilhugsunin um þig fyllir hug- ann. Þetta verða þung og erfið skref á fimmtudaginn en allt verð- ur víst að taka enda og tilhugsunin um endurfundi ykkar afa, í drif- hvítri snjóþekju Himnaríkis, um- kringd frostrósum og dalíum, vermir og huggar. Elsku amma, við kveðjum þig með trega og söknuði en jafnframt þakklæti og hlýju. Góða ferð yfir móðuna miklu með afa þér til halds og trausts. Minning þín mun lifa vel og lengi. Þín barnabörn, barnabarnabörn og makar, Edda Hrund, Snædís, Árni Fannar, Nína Björk, Edda Kristín og Andri Jökull. Hulda besta vinkona mömmu, Ingibjargar Árnadóttur, til næst- um 70 ára lést í síðustu viku eftir viðburðaríka og skemmtilega ævi. Þær voru giftar æskuvinunum Árna Kjartanssyni og Herði Haf- liðasyni. Saman ferðuðust þau ásamt fleiri vinum um fjöll, öræfi og jökla landsins. Skíðaferðir upp í Jósefsdal og síðan Bláfjöll voru óteljandi með krakkasúpuna í eft- irdragi. Smyrjandi samlokur, heitt kakó á brúsa, passa upp á að allir væru í þurrum sokkum, hlýjum vettlingum og snýtandi krakka- ormunum. Allt gert með gleði. Oft fór mamma með okkur gangandi hitaveitustokkinn upp í Selás þar sem Hulda og Árni bjuggu, það voru ævintýraferðir og alltaf gaman. Þau voru líka í Alpaklúbbnum með vinahjónum, sem hittist reglulega og þá var oft fjör en öll voru þau í skíðadeild Ár- manns, Flugbjörgunarsveitinni og Jöklarannsóknarfélaginu. Þessar konur voru langt á und- an sinni samtíð það sem þykir merkilegt í dag, að ganga á Hvannadalshnjúk, ganga á skíðum á jöklum og óbyggðum eru þær löngu búnar að gera og fóru létt með. Þegar árin færðust yfir fóru þær að stunda golf. Vöknuðu fyrir allar aldir og voru mættar eld- snemma upp á Korpúlfsstaðavöll. Þar eignuðust þær vinkonur sem hittust reglulega í „lunch“ alveg þar til Covid skall á. Nú síðustu árin var það topp- urinn hjá vinkonunum að komast upp í Bláfjöll, sitja við Ármanns- skálann og hitta gamla og nýja fé- laga. Þá þurfti að gæta þess að báðar færu. Þær voru ekki ánægð- ar ef önnur fór en hin ekki. Mamma þakkar elsku Huldu fyrir allar dásamlegu samveru- stundirnar og við systkinin send- um innilegar samúðarkveðjur til Kristínar, Guðrúnar, Guðbjargar, Árna Þórs og fjölskyldna þeirra. Fögur voru í feldi hvítum fjöll í dag. Í fönnum skrýddum dalnum undi ég mínum hag. Hulda Guðrún Filippusdóttir Sálm. 86.5 biblian.is Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.