Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 48

Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 ✝ Hólmfríður Árnadóttir fæddist í Reykjavík 7. desember 1930. Hún lést á Landa- kotsspítala 26. mars 2022. Foreldrar henn- ar voru hjónin Árni Jónasson, f. 1897, d. 1983, húsasmíða- meistari og Þor- björg Agnarsdóttir, f. 1905, d. 1998, húsmóðir. Systir hennar var Ingibjörg, f. 1934, d. 2018, verslunarmaður. Eiginmaður Hólmfríðar var Bjarni Jónsson, f. 1927, d. 2014, fv. verslunarskólakennari. For- eldrar hans voru hjónin Jón Bjarnason, f. 1892, d. 1929, hér- aðslæknir í Borgarfirði, og Anna Þorgrímsdóttir, f. 1894, d. 1994, húsmóðir. Synir Hólmfríðar og Bjarna eru: 1) Brjánn Árni, f. 1954, lækn- ir í Reykjavík, eiginkona hans er Steinunn Gunnlaugsdóttir, f. 1959, geðhjúkrunarfr. Dætur þeirra eru Unnur Hólmfríður, f. 1990, lögfr., í sambúð með Gauta Þormóðssyni, f. 1987, verktaka. Sonur Unnar er Baldur Snorri Hafsteinsson, f. 2014; Elva Berg- þóra, f. 1992, talmeinafr., í sam- sem hún var skipuð prófessor í textílmennt árið 1997, þá fyrsti sjónmenntakennarinn sem hlaut þann titil á Íslandi. Hún skrifaði í fræðirit og sat í ritnefndum. Hún gegndi trúnaðarstörfum hjá skólarannsóknadeild og þróun- ardeild menntamálaráðuneyt- isins á vegum KHÍ, m.a. við end- urmenntun kennara, tilrauna- kennslu og umbyltingu nám- skrárgerðar í mynd- og handmenntakennslu. Hún var sæmd riddarakrossi hinnar ís- lensku fálkaorðu 2009 fyrir framlag sitt til listgreinakennslu í íslensku skólakerfi. Hólmfríður var virkur mynd- listarmaður. Hún hélt fyrstu einkasýninguna í pappírslist hér- lendis og var einn frumkvöðla pappírslistar í Evrópu á 8. ára- tugnum. Hún var félagi í fjölda samtaka myndlistarmanna um allan heim, m.a. British Crafts Centre sem var deild innan Brit- ish Council sem stóð fyrir skap- andi framþróun handverks og lista í tengslum við Royal College of Art í London. Hún hélt einka- sýningar hérlendis og erlendis og tók þátt í samsýningum, mörgum alþjóðlegum. Mörg verka hennar eru í eigu lista- safna, m.a. Listasafns Íslands. Hún hannaði altarisbúnað og hökla í eigu Hönnunarsafns Ís- lands. Hún var heiðursfélagi FÍM og hlaut fjölda styrkja og alþjóð- legar viðurkenningar. Útförin fer fram í Bústaða- kirkju í dag, 7. apríl 2022, kl. 15. búð með Degi Hilm- arssyni, f. 1986, rafiðnfr. 2) Bolli, f. 1957, læknir í Reykjavík, eiginkona hans er Ellen Flosa- dóttir, f. 1967, tann- læknir. Synir þeirra eru Fannar, f. 1996, læknanemi og Fjal- ar, f. 2001, sálfræði- nemi. Sonur Bolla er Gunnlaugur, f. 1982, tölvunarfr. Eiginkona Gunnlaugs er Unnur Þorgeirsdóttir, f. 1972, tónlistarkennari, synir þeirra eru Þorgeir, f. 2007, Bjarni, f. 2009 og Eyjólfur, f. 2014. Hólmfríður ólst upp í Reykja- vík og útskrifaðist frá Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1951. Við tók víðtæk þekkingaröflun, m.a. með námsdvöl í hönnun og véltækni hjá Bernina í Kaup- mannahöfn. Hún sinnti kennslu- tengdum störfum allan starfsfer- ilinn. Hún hvatti til frelsis við listsköpun í takt við framþróun nútímans oft gegn ríkjandi hefð- um. Hún var brautryðjandi í kennslu textílgreina og kenndi á öllum skólastigum, m.a. við Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands og Listaháskóla Íslands en við Kenn- araháskóla Íslands frá 1976 þar Elskuleg tengdamóðir mín hef- ur nú kvatt okkur. Hólmfríður var listræn og skapandi og sýndi ung hæfileika til að vinna með ýmiss konar efni. Hennar ævistarf snerist um text- íllist. Hún var frumkvöðull í nútíma textílkennslu og lagði grunn að þeirri kennslu við Kennaraskóla Íslands þar sem hún kenndi til- vonandi kennurum þau fræði. Hún hélt síðan áfram kennslunni við Kennaraháskóla Íslands þegar hann var stofnaður, núverandi Menntavísindasvið Háskóla Ís- lands, og lauk þar sínu ævistarfi sem prófessor. Hún átti einnig þátt í að nú- tímavæða námskrárgerð á Íslandi í mynd- og handmenntakennslu og var síðar heiðruð með fálka- orðu fyrir störf sín. Hún boðaði nýja tíma eins og Jón Ásgeirsson tónskáld tók upp í stuttri grein um Hólmfríði: „Ég man svo langt, að hún varð einna fyrst til að brjótast undan þeirri kvöð, að vel klæddri konu væri skyldugt að klæðast kjól. Hún spígsporaði um bæinn á bux- um, við hneykslan fólks. Blaða- menn birtu myndir og spurðu „er þetta framtíðin?“ Jú, mikið rétt, þetta var framtíðin.“ Hún var einnig virkur mynd- listarmaður og sýndi verk sín á sýningum bæði hérlendis og er- lendis í gegnum árin. Minnisstæð var einkasýning hennar í Gerðar- safni 2014-2015, þá 86 ára að aldri. Þrátt fyrir háan aldur var hún ern fram á seinasta dag, fylgdist vel með fréttum og ekki síst tísku. Hún hafði mikinn áhuga á tísku- straumum hverju sinni og hafði gaman af því að fylgjast með hvernig sama tískan endurtók sig. Alltaf átti hún flíkur sem pössuðu inn í ríkjandi tísku, var snillingur í að breyta flíkum og keypti meira að segja oft flíkur beinlínis til að breyta þeim. Sem ung kona fór hún til út- landa til náms og starfa og hafði gaman af að segja afkomendum sínum sögur frá þeim tíma. Stórfjölskyldan fór saman til Kaupmannahafnar til að halda upp á stórafmæli Hólmfríðar fyrir nokkrum árum. Hún naut sín vel á þeim slóðum þar sem hún hafði verið við nám á sínum yngri árum. Hólmfríður bar mikla um- hyggju fyrir velferð afkomenda sinna og ekki síst barnabörnum sínum sem hún fylgdist náið með. Hún sýndi áhuga á því sem þau tóku sér fyrir hendur og hvernig þeim gengi. Hún hvatti þau áfram og hafði vilja til að veita þeim alla þá aðstoð sem hún mögulega gat veitt. Hólmfríður átti stóran vinahóp bæði listamanna og fyrrverandi nemenda sinna sem hún fylgdist með og hitti reglulega. Hólmfríður og Bjarni voru miklir dýravinir og máttu ekkert aumt sjá. Þau fóðruðu fuglana í hverfinu yfir vetrartímann. Einn- ig voru þau heimsforeldrar UNI- CEF í gegnum árin. Ég vil þakka Hólmfríði fyrir hlýjuna og elskulegheitin sem hún hefur sýnt mér og fjölskyldu minni í gegnum árin. Góður Guð geymi þig. Ellen Flosadóttir. Með fáeinum orðum langar mig til að minnast tengdamóður minn- ar, Hólmfríðar Árnadóttur. Hólmfríður var afar merk kona. Hún var stolt kona sem bar sig ávallt vel, var félagslynd, hóf- stillt, falleg og vel tilhöfð. Hún var listakona, fræðikona, frum- kvöðull, kennari og umfram allt var hún fjölskyldukona. Ég minn- ist fallegu heimboðanna, frásagn- arhæfileika hennar og skopskyns þegar fjölskyldan kom saman. Hún var amma og langamma sem elskaði og dáði barnabörnin sín og barnabarnabörn. Hún sýndi öllu því áhuga sem þau tóku sér fyrir hendur, hvatti þau og létti undir með þeim á ótal vegu. Hún var jafnréttissinni, hvernig sem á það var litið, studdi jafnan þá sem stóðu höllum fæti eða áttu á ein- hvern hátt undir högg að sækja. Hún var dýravinur og lagði sitt af mörkum í velferð dýra. Hólmfríður hneigðist ung til lista og varð það starfsvettvangur hennar í gegnum lífið. Hún vann ötullega að því að hefja til flugs listkennslu innan skólakerfisins og breyta þar stöðluðum venjum. Hún hvatti til frelsis einstaklings- ins til að tjá sig í listsköpun. Farn- aðist henni vel á þeirri vegferð, var skipuð prófessor í textílmennt við Kennaraháskóla Íslands og var sæmd riddarakrossi hinnar ís- lensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til listgreinakennslu í íslensku skólakerfi. Samhliða störfum sínum var hún virkur myndlistarmaður og hönnuður. Hún var næm fyrir öllu sem viðkom formi og litum. Á ár- um áður vann hún m.a. mikið frumkvöðlastarf í pappírslist. Hún hélt sýningar bæði hérlendis og erlendis og er mér minnisstæð stór yfirlitssýning hennar í Gerð- arsafni árið 2014. Hólmfríður sá jafnan það fal- lega og listræna í hversdagslegu umhverfi sínu, hvort sem það var grenitréð eða fuglarnir í garðinum hennar, dýrin sem höfðu orðið á vegi hennar eða blómin sem lifðu og döfnuðu í höndunum á henni, hún elskaði þetta allt. Hún hvatti samferðafólk sitt til að leita eigin leiða, láta viðtekin viðhorf og venj- ur ekki standa í veginum og láta drauma sína rætast. Af dugnaði hélt hún sitt snyrtilega og list- ræna heimili fram til síðustu stundar, enda fór hún sínar leiðir til að halda sjálfstæði sínu. Elsku Hólmfríður, af þér hef ég lært svo ótal margt. Fyrir það og allt sem þú hefur verið mér og fjölskyldunni vil ég þakka. Steinunn Gunnlaugsdóttir. Í dag kveðjum við ættmóður- ina, elsku ömmu mína og nöfnu. Söknuðurinn er mikill og ótal minningar streyma fram í hug- ann. Minningar um ákveðna og harðduglega konu; brautryðjanda í sinni stétt og mikla fyrirmynd. En líka minningar um konu með einstakt hjartalag. Konu, sem vildi allt fyrir fólkið sitt gera, og meira til. Amma var listakona fram í fingurgóma og mikill fagurkeri, enda gerði hún listina að sínu ævi- starfi. Hún hafði næmt auga fyrir mynstrum, litum og formum og allt sem hún kom nálægt bar þess sterklega merki. Amma var alltaf vel tilhöfð, klædd á frumlegan og skapandi hátt. Heimili hennar og afa í Hvassaleiti var fagurlega skreytt og hver hlutur útpældur, myndum raðað saman af einstakri snilld þar sem sköpunargáfa hennar fékk að njóta sín. Hverjum þeim sem kom í heimsókn var fljótt ljóst að þetta var ekkert venjulegt heimili. Listrænt eðli ömmu gerði henni kleift að skapa einstakt andrúmsloft, heillandi og forvitnilegt í senn. Amma var heimsborgari í hjarta sínu. Hún hafði ferðast talsvert á lífsleiðinni, bæði ein- sömul og í félagsskap annarra, og fyrir vikið var hún bæði víðsýn og fróð. Hún var skarpgreind og hafði skoðanir á mönnum og mál- efnum, var bókhneigð og vel lesin. Þessir eiginleikar hennar leynd- ust engum sem átti í samræðum við hana og frásagnir hennar drógu viðmælandann til hennar. Hún var vinmörg og naut virðing- ar. Við amma áttum bókmennta- áhugann sameiginlegan, og við ræddum gjarnan um bækur og rithöfunda. Umræðuefnið gat þá jöfnum höndum verið Íslendinga- sögur og nýútgefnar skáldsögur frá síðasta jólabókaflóði, því þrátt fyrir að amma væri ríflega níræð fylgdist hún áhugasöm með nýj- ustu vendingum bókmennta- heimsins. Amma var einstakur mann- og dýravinur. Hún vildi öllum vel og hikaði ekki við að rétta bæði mönnum og ferfætlingum hjálpar- hönd. Hún var okkur afkomend- um sínum einstakur stuðningur, og sýndi okkur skilyrðislausa hlýju og velvild. Við nöfnurnar áttum einstaka tengingu í gegn- um Hólmfríðar-nafnið og fyrir þau tengsl verð ég ævinlega þakk- lát. Amma var trúnaðarvinur. Hún var alltaf tilbúin til þess að hlusta og gefa álit sitt af hrein- skilni. Það þótti mér sérlega vænt um, enda ekki öllum gefið að segja umbúðalaust það sem þeim býr í brjósti. Elsku nafna mín. Þegar ég sagði Baldri, syni mínum, að nú værir þú farin frá okkur brosti hann mildilega og sagði að ég þyrfti ekki að vera leið. Nú værir þú nefnilega með manninum þín- um og kisunni þinni, og þar liði þér best. Mér þykir vænt um þessi orð barnsins, og ég veit að þau eru sönn. Móttökurnar hafa verið blíðar hinum megin, og þið hjónin loksins sameinuð. Við sem eftir stöndum hugsum til þín með hlýju og væntumþykju, þakklát fyrir allar samverustundirnar. Takk fyrir allt, elsku amma. Þín sonardóttir, Unnur Hólmfríður Brjánsdóttir. Elsku hjartans amma mín. Þú varst alveg einstök. Lista- kona af guðs náð – og listakonan í þér setti mark sitt á allt sem þú snertir. Litríkur klæðaburður og múndering; mynstraðar mussur, íburðarmiklir skartgripir, bleikt naglalakk og vel uppgreitt hár, endurspegluðu fullkomlega hríf- andi og lifandi persónuleika þinn og sál. Einstakur bragur var yfir öllu í kringum þig; allt frá lista- verkum þínum og heimili ykkar afa í Hvassaleitinu, og niður í minnstu smáatriði; rithönd þína, frásagnir, orðaval og þær handa- hreyfingar sem fylgdu þegar þú tjáðir þig af ástríðu um kennsluna, listina, fjölskylduna, og allt það sem skipti þig máli. Stíll sem ein- kenndist af virðulegu yfirbragði, einlægri hlýju og snyrtileika, sem þó var hæfilega óreiðukenndur, svo hann varð aldrei fyrirsjáan- legur eða leiðigjarn. „Ég er að fást við náttúrlegt umhverfi mannsins og þá fegurð sem alls staðar blasir við augum okkar ef við aðeins fengjumst til þess að gleðjast í daglega „núinu“, hvort heldur rignir eða blæs, en biðum ekki alltaf eftir uppstilling- um sem eins oft vilja sigla hjá.“ – Hólmfríður amma, 1985, í tilefni opnunar listasýningar. Þegar þú lést þessi orð falla, voru enn eftir sjö ár þar til ég myndi fæðast. Þessari grundvall- arsýn þinni á lífið og hversdags- leikann fékk ég hins vegar vel að kynnast síðar, og henni glataðirðu svo sannarlega aldrei. Á 91. ald- ursári, sastu með mér á biðstofu, þegar þú vaktir athygli mína á eft- irprentun af málverki sem var stillt upp í rýminu. Þú lýstir því fyrir mér, á þinn einstaka hátt, sem þú sást í listaverkinu; flæðinu og litunum, hreyfingu þeirra, lita- tónum og hvernig þeir blönduðust svona og hinsegin. Í framhaldi skimaðirðu í kringum þig, og hófst að túlka umhverfið með sama hætti. Á þessum tímapunkti áttaði ég mig á því hvað það væri þér raunverulega eðlislægt að sjá það góða, fallega og merka í öllu í kringum okkur. Jafnvel nauðaó- merkilegri biðstofu í Kópavogin- um. En þessi eiginleiki var svo ríkjandi í þér alla tíð, og það er mér svo ómetanlegt að hafa fengið að sjá heiminn frá þínu sjónar- horni. Í dag fylgjum við þér síðasta spölinn, elsku amma. Eftir situr minning af sterkri og sjálfstæðri konu, sem mátti svo sannarlega vera stolt af eigin afrekum og arf- leifð. Fágaðri og ákveðinni konu, sem hafði sterk gildi í lífinu, fylgdi eigin sannfæringu og fór óhikað sínar eigin leiðir. Þrautseigri konu, sem bjó yfir alveg sérstakri seiglu þegar á móti blés, en jafn- framt hæfilegu æðruleysi gagn- vart því sem hún fékk ekki breytt. Umhyggjusamri konu, sem mátti ekkert aumt sjá, og vildi alltaf leggja lóð sín á vogarskálarnar til að aðstoða þá sem minna mega sín, bæði menn og dýr. En ekki síst einstaklega hlýrri konu, sem nýtti hvert tækifæri til að segja frá því hversu hreykin hún var af afkomendum sínum, og sýndi bæði í orðum og verki hversu und- urvænt henni þætti um fjölskyld- una. En einmitt þarna þekkti ég Hólmfríði. Hún er eins og íslenskt veður, síkvik og óútreiknanleg, óhamin af forskriftum en samt bundin eðli sínu og trú því. (Jón Ásgeirsson) Elva Bergþóra Brjánsdóttir. Ein af fyrirmyndunum sem tóku á móti ungum stúlkum sem hófu störf í Kennaraháskólanum á áttunda áratug 20. aldar var lista- konan og lífskúnstnerinn Hólm- fríður Árnadóttir. Ljósbláa skóla- húsið við Stakkahlíð var sannarlega fullt upp í rjáfur á þeim árum sem síðustu nemend- urnir voru brautskráðir úr gamla Kennaraskólanum á sama tíma og nýjar leiðir mótuðust á háskóla- stigi og löng og stutt námskeið voru haldin fyrir kennara vetur og sumar. Hólmfríður kenndi þá handmennt í kjarna og leiðbeindi þar af leiðandi mörgum. Það var ekki hægt að segja að hún fengi bestu kennslustofuna í húsinu, hennar ríki var risið og þangað þurfti hún yfirleitt að bera sjálf, upp brattan og mjóan stiga, áhöld og efni sem þurfti til kennslunnar. Undir súð mátti hún koma fyrir þeim fjölbreytta efniviði sem hún notaði til að kveikja áhuga og fá nemendur til að tjá sig á þann hátt sem þá hafði ekki einu sinni dreymt um áður. Á hippaárunum fundust á loftinu hjá Hólmfríði tví- tugir strákar sem breiddu hreyknir úr stórum borðdúkum með batíkmunstri sem þeir höfðu komið sér upp í tímum. Þessi kona lét ekki baslið smækka sig. Hólmfríður hafði kennt lengi og víða og þekkti vel kyrrstöðuna sem hafði ríkt í handavinnu- kennsla barna. Hennar hugsjón var að fá því breytt og virkja í staðinn hæfileika og áhuga hvers og eins til frjálsari sköpunar. Það var mikill fengur fyrir kennara- menntunarstofnun að hafa slíkan eldhuga. Fyrir utan þau sterku áhrif sem hún hafði innan Kenn- araháskólans sat hún á hans veg- um í mörgum nefndum á 20 ára tímabili og átti stóran þátt í end- urskoðun námskrár í mynd- og handmennt sem hluta af Aðal- námskrá grunnskóla 1977. Því fylgdi samning námsefnis og mikil tilraunakennsla. Hólmfríður var að sjálfsögðu áhugasöm um að byggja upp bókasafn á sviði mynd- og hand- mennta fyrir nemendur. Hún var víðförul heimskona og félagi í al- þjóðlegum fagfélögum þannig að hún vissi vel hvað hún vildi. En til að fá nemendur til þess að bíta á agnið valdi hún áskriftir að fjöl- breyttum tímaritum, allt frá frönskum og ítölskum tískuritum, sem áttu að liggja á glámbekk, til breskra fag- og kennslufræði- tímarita og heimilisiðnaðarrita frá Norðurlöndum. Hún vildi fyrir alla muni opna augu fólks svo það sæi sjálft það fjölbreytta litróf sem gæti leitt til þroskandi og frjós mannlífs. Sjálf bar hún virð- ingu fyrir handverkshefðum og hafði á valdi sínu bæði verklag og sögu en var um leið skapandi lista- kona. Eftir hana liggja líka fjöl- mörg listaverk af ólíkum toga. En það var hugljómunin sem hún smitaði frá sér sem varð okkur ungu konunum ævilöng hvatning. Hólmfríður var óþreytandi að styðja okkur í því að gera eitthvað nýtt, hún leiðbeindi, lánaði, brosti og breiddi út faðminn. Alltaf sama glæsikonan, hógvær í fasi, hárið uppsett, hlýtt bros sem náði til augna frá lituðum vörum. Sjálf- stæð ævintýrakona með stíl, fædd á Alþingishátíðarári, yngri konum stöðug fyrirmynd um kjark og seiglu. Ég kveð þennan einstaka mentor og vinkonu full þakklætis og votta sonum hennar og fjöl- skyldu einlæga samúð. Kristín Indriðadóttir. Það var vorið 2012 sem Hólm- fríður bað mig að heimsækja sig í Hvassaleitið til að ræða við sig um sýningu sem hún var með í und- irbúningi fyrir Gerðarsafn – Listasafn Kópavogs. Þó hún væri komin vel á aldur var mikill kraft- ur í henni við að skipuleggja sýn- inguna sem var opnuð 15. nóvem- ber 2014. Hún hafði sett upp verk í stofunni, lagt stærri textílverk yf- ir sófa og breitt úr öðrum verkum á gólfið, svo lýsti hún því fyrir mér hvernig hún sá verkin fyrir sér í sýningarrýminu, einbeitt og ákveðin með skýra sýn á sína list- rænu vinnu. Hólmfríður Árnadóttir hafði mikil áhrif á líf okkar systranna. Það mætti segja að Hólmfríður hafi verið guðmóðir okkar, ekki síst eftir að móðir okkar, Ingi- gerður Þórey Guðnadóttir, lést árið 1982. Þær höfðu verið nánar vinkonur alla tíð eftir að Hólm- fríður kenndi henni í handavinnu- kennaradeild Kennaraháskóla Ís- lands. Hólmfríður hvatti mömmu til að mennta sig sem handavinnu- kennari og starfaði hún við það þar til hún lést. Textíláhugann fengum við systurnar frá móður okkar og Hólmfríði. Það voru ófá- ar stundirnar sem við eyddum með þeim að lita batík í litlum skúr á lóð Kennaraháskólans. Þar fengum við systurnar að teikna með vaxi á léreft sem var dýft í litabað og vaxið síðan straujað úr. Ég man vel eftir nákvæmri leið- sögn Hólmfríðar í því hvernig átti Hólmfríður Árnadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.