Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 49

Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 49
að krumpa vaxið í efninu til að ná fram fínum línum þegar efninu væri dýft í litabaðið. Henni var það eðlislægt að leiðbeina og kenna. Seinna heimsóttum við Hólmfríði oft í risið í Kennarahá- skólanum þar sem hún hafði skap- að ævintýraheim í kennslustof- unni sinni. Hólmfríður var ávallt á undan sinni samtíð og fór sínar eigin leiðir í mörgu sem hún tók sér fyrir hendur. Eitt sinn fóru mamma og Hólmfríður saman á kvöldnámskeið í hugleiðslu, lík- lega árið 1978. Ég var þá níu ára og fannst þetta uppátæki hálfund- arlegt og vissi ekki hvað mér ætti að finnast um þetta. Hólmfríður tók okkur systurnar oft út að borða og gjarnan á framandi veit- ingastaði, eins og Náttúrulækn- ingafélagið og Krákuna á Lauga- vegi 22. Það voru einnig ófá sýningarröltin sem við fórum á með henni og móður okkar. Í seinni tíð höfðum við Hólmfríður mikið samband og þá snerust samtölin oft um myndlist, skóla- mál og textíl, við gátum endalaust talað saman. Menntamál voru stór hluti af hennar ævistarfi samhliða myndlistinni þar sem hún gegndi stöðu prófessors við Kennarahá- skóla Íslands. Þessi áhugi hennar til að miðla þekkingu sinni hafði djúp áhrif á okkur systurnar því við höfum allar komið mikið að kennslu. Það var greinilegt að heimur Hólmfríðar var ekki afmarkaður við stofuna í Hvassaleitinu, því það voru mörg málefni sem lágu henni á hjarta. Jafnframt því að pæla í verkum fyrir sýninguna framundan ræddi hún um kennslumál og stöðu kvenna á þeim vettvangi og á vettvangi myndlistar í gegnum tíðina. Þetta var mikil barátta og sýningin mik- ilvæg til að hnýta saman marga lausa enda. Ég vil þakka Hólm- fríði fyrir það sem hún hefur gert fyrir okkar fjölskyldu og allan hennar stuðning í gegnum tíðina, betri fyrirmynd í lífinu er vart hægt að hugsa sér. Það var leitt að hún náði ekki að sjá dætur mínar vegna covid-ástandsins en hún hitti Ingigerði Úllu hennar Gerð- ar og hafði mjög gaman af því að hitta nöfnu gömlu vinkonu sinnar. Ætli þær séu ekki komnar aftur saman á sýningarrölt og gott spjall. Hildur, Gerður og Guðrún Bjarnadætur. www.mbl.is/andlat Einn af happdrættisvinningum lífs míns var að kynnast Hólmfríði Árnadóttur þegar ég hóf störf við Kennaraháskólann árið 1976. Ég var enn í námi í Frakklandi þegar mér bauðst stundakennsla í sál- fræði við KHÍ þar sem ég hafði aldrei stigið inn fæti og þekkti engan. Fyrsta árið kynntist ég fáum öðrum en nemendum mín- um, enda voru þeir nær mér í aldri og lífsstíl en kennararnir, sem við fyrstu sýn virtust álíka árennileg- ir og gömlu kennararnir mínir í MR! En svo kynntist ég þessu fólki og eignaðist þá marga eðalvini fyrir lífstíð. Ein þeirra var Hólm- fríður Árnadóttir, stórkostlegur karakter og engum öðrum lík. Einstaklega háttvís, kurteis, til- litssöm, brosmild og hlý mann- eskja, en á sama tíma djörf og kúl, hreinskilin, frumleg og með mik- inn húmor. Hún var eldheitur femínisti en jafnframt afskaplega kvenleg, pjöttuð og ævinlega súp- ersmart. Hún var listamaður, heimsborgari og mikill bóhem en líka pottþéttur kennari með óbrigðult skipulag og fagmann- eskja fram í fingurgóma. Hún var mér náin vinkona en sakir aldurs- og lífsreynslumunar varð hún líka sambland af „mömmu“ og men- tor. Umhyggja hennar og stuðn- ingur voru óbrigðul og hún veitti endalaust innblástur til nýrra verka. Það hafði örugglega mikil áhrif á mig og fleiri jafnöldrur mínar í KHÍ að eignast vin og fyr- irmynd í þessari flottu og yndis- legu konu á fyrstu árum fullorð- inslífsins. Áhrifin síuðust meira að segja inn til ungra sona minna sem Hólmfríður leyfði gjarnan að gramsa í öllum efniviðnum sem hún notaði í kennslunni uppi í risi í Stakkahlíð. Þeir kölluðu hana aldrei annað en „Hólmfríði góðu“ og hún var lengi lykilpersóna í þykjustuleikjum þeirra þar sem hún af einhverjum ástæðum keyrði um á fjólubláum Trabant! Eftirminnilegt tímabil í kynn- um okkar Hólmfríðar var þegar kennaranámið var endurskipulagt eftir miklar umræður nemenda og kennara 1978. Vormisseri fyrsta árs var undirlagt þemanámi um byrjendakennslu þar sem mark- miðið var að samþætta fræðilegar undirstöður og hagnýtar leiðir í kennslustarfi undir fyrirsögnum á borð við Hugsun og stærðfræði, Mál og lestur, Menning og sköp- un. Þarna var Hólmfríður í essinu sínu, hélt innblásnar hugvekjur um listir og mikilvægi listsköpun- ar í öllu skólastarfi, frá leikskóla og uppúr, og tengdi í allar áttir. Kennaranemar voru teknir í sköp- unarsmiðjur þar sem hún réðst til atlögu við fordóma þeirra sjálfra um að þá skorti listræna hæfileika og þeir kynnu ekkert að skapa. Meðal markmiða var „að nemend- ur öðlist skilning á mikilvægi list- og verkgreina í byrjendakennslu sem andsvar við sívirkum áhrifum fjölmiðlaneyslu, tónmengunar og staðlaðrar fjöldaframleiðslu“. Þetta var góður skóli fyrir fleiri en nemendur! Nú er Hólmfríður góða horfin af sviðinu en andi hennar og inn- blástur lifir með okkur sem áttum hana að. Í huganum held ég áfram að mæta henni hér á göngustígn- um í Hvassaleitinu, ég sé hana nálgast líkasta álfkonu og fyllist tilhlökkun eftir að eiga við hana uppbyggilegt spjall að vanda. Ég sendi sonum hennar og fjöl- skyldunni allri mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hrafnhildur Hanna Ragnarsdóttir. Á kveðjustund vil ég þakka Hólmfríði, vinkonu minni, sam- fylgd í meira en þrjá áratugi. Ég hitti hana fyrst, ásamt Bjarna eig- inmanni hennar, eftir að Steinunn systir mín og Brjánn sonur þeirra hófu sambúð. Margar góðar stundir áttum við saman í afmæl- isboðum barnabarna og barna- barnabarns og við ýmsa aðra við- burði sem tengdust fjölskyldunni, síðast í desember 2021. Mér er sérstaklega minnisstætt hversu vel þau Hólmfríður og Bjarni og foreldrar mínir, Bergþóra og Gunnlaugur, náðu saman þegar þau hittust í fjölskylduboðum og ræddu þá fjölskyldu- og þjóðmál af vinsemd og virðingu. Sumarið 2019 áttum við Hólmfríður tvær einar yndislega samverustund á fallega heimilinu hennar í Hvassa- leitinu og þá naut ég þess að finna hversu greind og vel að sér hún var. Hólmfríður var sérstaklega fal- leg kona, fínleg og glæsileg. Hún var einstök fyrirmynd. Alls staðar var mikil virðing borin fyrir henni bæði hvað varðaði listsköpun hennar og kennslu en hún gegndi prófessorsstöðu við Kennarahá- skóla Íslands við góðan orðstír – mikilvirk á sviði listkennslu. Alltaf fylltist ég stolti þegar hana bar á góma og ég gat sagt að við værum tengdar fjölskylduböndum. Hóg- værð og hæglæti einkenndu per- sónuleika Hólmfríðar. Þótt hún væri mikilsvirtur brautryðjandi í myndlist lét hún ekki mikið á sér bera. Hún tók þátt í sýningum er- lendis og hérlendis og sýning hennar Hughrif í Gerðarsafni vet- urinn 2014-2015 var mögnuð og fékk frábæra og verðskuldaða dóma. Hólmfríður átti því láni að fagna að eiga góða og umhyggju- sama syni og áberandi var hversu mikinn áhuga hún hafði á vel- gengni þeirra og fjölskyldna þeirra. Ég kveð Hólmfríði með virðingu og þakklæti og votta son- um hennar, Brjáni og Bolla, og fjölskyldum þeirra innilega samúð mína. Jóhanna Gunnlaugsdóttir. Hún Hólmfríður, mín dýrmæta vinkona, er látin. Minningarnar hrannast upp. Við kynntumst þegar við vorum ungar og sprækar stúlkur í kenn- aradeildum Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands. Hólmfríður var í handavinnudeildinni og ég í myndlistardeildinni. Það var líf og fjör í unga fólkinu og við Hólm- fríður kynntumst í frímínútum á göngum skólans. Þegar dagsverki var lokið í skólanum fórum við oft saman á kaffihús og gátum endalaust spjallað saman. Þá birtist stund- um ungur og sjarmerandi maður, sem tengdur var prentsmiðju í ná- grenninu, og spurði hvort hann mætti tylla sér hjá okkur. Hann var velkominn. Þetta var hann Bjarni, sem síðar varð eiginmaður Hólmfríðar. Nokkrum árum seinna urðum við Hólmfríður nágrannar á Ás- vallagötunni, þá giftar og útivinn- andi konur og mæður ungra barna. Báðar vorum við mjög upp- teknar og hittumst ekki mikið. En seinna meir, þegar börnin voru flogin úr hreiðrinu og við ekki lengur nágrannar, fórum við stundum að hittast á sunnudags- kvöldum yfir góðum kvöldverði á Hótel Borg – og gáfum okkur góð- an tíma, þar sem við ræddum störf okkar, lífið og tilveruna. Á seinni árum létum við nægja að spjalla saman í síma – og þar kom að þau símtöl urðu færri og færri. Fréttin um andlát Hólmfríðar kom mér á óvart. Af hjarta sakna ég Hólmfríðar vinkonu minnar og minnist hennar með þakklæti og fallegum minningum. Sonum hennar og fjölskyldum þeirra votta ég samúð mína. Sigríður Björnsdóttir. Á kveðjustund vil ég þakka Hólmfríði, vinkonu minni, sam- fylgd í meira en þrjá áratugi. Ég hitti hana fyrst, ásamt Bjarna eig- inmanni hennar, eftir að Steinunn systir mín og Brjánn sonur þeirra hófu sambúð. Margar góðar stundir áttum við saman í afmæl- isboðum barnabarna og barna- barnabarns og við ýmsa aðra við- burði sem tengdust fjölskyldunni, síðast í desember 2021. Mér er sérstaklega minnisstætt hversu vel þau Hólmfríður og Bjarni og foreldrar mínir, Bergþóra og Gunnlaugur, náðu saman þegar þau hittust í fjölskylduboðum og ræddu þá fjölskyldu- og þjóðmál af vinsemd og virðingu. Sumarið 2020 áttum við Hólmfríður tvær einar yndislega samverustund í Hvassaleitinu og þá naut ég þess að finna hversu greind og vel að sér hún var. Hólmfríður var sérstaklega fal- leg kona, fínleg og glæsileg. Hún var einstök fyrirmynd. Alls staðar var mikil virðing borin fyrir henni bæði hvað varðaði listsköpun hennar og kennslu en hún gegndi prófessorsstöðu við Kennarahá- skóla Íslands við góðan orðstír – mikilvirk á sviði listkennslu. Alltaf fylltist ég stolti þegar hana bar á góma og ég gat sagt að við værum tengdar fjölskylduböndum. Hóg- værð og hæglæti einkenndi per- sónuleika Hólmfríðar. Þótt hún væri mikilsvirtur brautryðjandi í myndlist lét hún ekki mikið á sér bera. Hún tók þátt í sýningum er- lendis og hérlendis og sýning hennar Hughrif í Gerðarsafni vet- urinn 2014-2015 var mögnuð og fékk frábæra og verðskuldaða dóma. Hólmfríður átti því láni að fagna að eiga góða og umhyggju- sama syni og áberandi var hversu mikinn áhuga hún hafði á vel- gengni þeirra og fjölskyldna þeirra. Ég kveð Hólmfríði með virðingu og þakklæti og votta son- um hennar, Brjáni og Bolla, og fjölskyldum þeirra innilega samúð mína. Jóhanna Gunnlaugsdóttir. MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 ✝ Ásmundur Karlsson fædd- ist í Reykjavík 29. nóvember 1943. Hann lést á blóð- lækningadeild Landspítalans við Hringbraut 21. mars 2022. Foreldrar hans voru Lára J. Sig- urðardóttir frá Skammbeinsstöð- um í Holtum, f. 16. júní 1910, d. 24. apríl 2008 og Karl Vil- hjálmsson frá Vogsósum í Sel- vogi, f. 19. september 1910, d. 10. nóvember 1990. Ásmundur var annar í röð fjögurra systk- ina, en þau eru: Sigurður, f. 21. febrúar 1939, d. 6. febrúar 2017, Guðríður, f. 31. desember 1948 og Hólmfríður, f. 22. ágúst 1952. Ásmundur kvæntist Guð- björgu Alfreðsdóttur, f. 9. apríl skóla. Þá nam Ásmundur raf- virkjun í Iðnskólanum í Reykja- vík og var á samningi hjá Segli. Á námsárunum vann hann sem aukamaður í ljósadeild Þjóð- leikhússins eða frá 19 ára aldri. Hann lauk svo rafvirkjanáminu við þá stofnun. Þjóðleikhúsið var vinnustaður hans til ársins 2009 utan þriggja ára 1974- 1977. Þá bjuggu hjónin í Kaup- mannahöfn og Ásmundur starf- aði þar við Det Kongelige Tea- ter sem ljósamaður. Við Þjóðleikhúsið starfaði hann sem ljósamaður, ljósameistari, ljósa- hönnuður og rafvirki hússins. Hann hannaði lýsingu fjöl- marga sýninga sem of langt væri að telja en nefna má Kæru Jelenu, Skilaboðaskjóðuna, Dýrin í Hálsaskógi, Stundarfrið og Með fulla vasa af grjóti. Aðaláhugamál Ásmundar og þeirra hjóna var sumarbústað- urinn í Úthlíð sem þau reistu árið 1980, golf og lax- og sil- ungsveiði. Útför Ásmundar fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 7. apríl 2022, og hefst athöfnin kl. 13. Hlekkur á streymi: https.//www.mbl.is/andlat 1952, þann 27. jan- úar 1973. For- eldrar hennar voru Erna Dóra Mar- elsdóttir, f. 3. jan- úar 1933, d. 26. ágúst 1997 og Al- freð Júlíusson, f. 17. ágúst 1930, d. 15. júní 2016. Sonur Ásmundar og Guðbjargar er Axel Ásmundsson, f. 27. september 1981. Sonur hans og Brynju M. Dan Gunn- arsdóttur er Máni Snær, f. 20. apríl 2008. Ásmundur ólst upp í for- eldrahúsum til 8 ára aldurs, en næstu árin eða fram á unglings- ár ólst hann upp hjá móð- ursystkinum sínum, þeim Mar- gréti og Sigurði á Skammbeins- stöðum í Holtum. Þar gekk hann í skóla og lauk síðan gagnfræðaprófi frá Hlíðardals- Í dag kveð ég minn góða vin, Ásmund Karlsson. Ég hef verið á 5. aldursári þegar fjölskylda mín flutti á Kirkjuteig 27. Í þarnæsta hús á 31 bjuggu Karl og Lára, for- eldrar Ásmundar, Sigurðar, Hólmfríðar og Guðríðar. Við systkinin fórum ótal ferðir yfir til þeirra að lesa Andrésblöð á dönsku sem voru inni í skáp í svefnherbergi Karls og Láru. Þaðan á ég alveg ótrúlega góðar og hlýjar minningar sem barn. Árið 1982 fór ég að vinna við ljósamennsku í Þjóðleikhúsinu sem var þá búið að vera vinnu- staður Ása frá 1961, fyrir utan þau 3 ár sem þau hjón voru í Kaupmannahöfn, Guðbjörg við nám og Ásmundur hjá Konung- lega leikhúsinu. Og frá þeim tíma hefur verið góður vinskapur á milli okkar með mörgum góðum stundum í veiði og golfi bæði hér heima og erlendis og oft fengum við hjón- in að njóta samveru og veitinga hjá Ása og Guggu bæði heima og uppi í Úthlíð. Fráfall Ásmundar er okkur, sem hann þekktum og umgeng- umst, mikil sorg og er hans sárt saknað. Elsku Guðbjörg, Axel, Máni, Brynja, Hólmfríður, Guðríður og fjölskyldur. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra og ég veit að ykkar söknuður er mikill. Ég lít í anda liðna tíð, er leynt í hjarta geymi. Sú ljúfa minning létt og hljótt hún læðist til mín dag og nótt, svo aldrei, aldrei gleymi (Halla Eyjólfsdóttir) Björn Bergsteinn Guðmundsson. Hann Ási er látinn. Sérkenni- legt til þess að hugsa að eiga ekki framar eftir að spjalla við hann um hin ýmsu málefni eftir nær hálfrar aldar vináttu. Hann var uppfullur af fróðleik og hafði frá ýmsu að segja. Haustið 1972 innrituðumst ég og Guð- björg í lyfjafræði lyfsala við Há- skóla Íslands. Allt frá þeim tíma hafa leiðir Ása og Guðbjargar legið samsíða leiðum okkar Elsu. Eftir tveggja ára nám við Háskóla Íslands var haldið til framhaldsnáms í Danmörku. Þar bjuggum við í sömu blokk á sama stúdentagarði í þrjú ár. Samskiptin þau ár urðu náin og er margs að minnast. Við minn- umst þess hve vel Ási og Guð- björg reyndust frumburði okkar Elsu, honum Óla, sem fæddist í Kaupmannahöfn árið 1975 og hlupu þau oftar en ekki undir bagga þegar við Elsa þurftum aðstoð. Við minnumst bíladellu frumburðarins en hjá honum voru tveir bílar í sérlegu upp- ahaldi, Lamborghini og „Bub- buogÁsa“ bíll, guli Citroeninn sem þau áttu. Ási vann sem ljósamaður við Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn og átti góðar minningar þaðan. Eftir heimkomuna frá Dan- mörku hófum við Guðbjörg bæði störf hjá sama fyrir- tækinu, Pharmaco hf., og varð það einnig til að efla enn frekar vináttu okkar við Ása og Guð- björgu. Við minnumst veiðiferð- ar í Veiðivötn þar sem Ási var á heimavelli enda var hann lunk- inn veiðimaður og þekkti svæðið eins og lófann sinn eftir veiði- vörslu þar áður. Ási hafði mjög gaman af veiðum og fóru þau hjón árlega til veiða í ýmsum ám. Enn lágu leiðir okkar sam- síða þegar við fluttum bæði í sams konar hús við sömu göt- una í Garðabænum. Við minnumst allra ferðalag- anna sem lyfjafræðingahópur- inn og makar fóru í eftir heim- komuna til Íslands. Meinlætafélagið, eins og við kölluðum okkur hópurinn sem var samferða í gegnum námið, fór í ýmsar ferðir vítt og breitt um landið. Við söfnuðum eyjum á tímabili og heimsóttum hinar ýmsu eyjar í kringum Ísland. Við minnumst ferðanna um há- lendi Íslands eftir að hópurinn hafði „jeppavæðst“. Frá þeim ferðum eigum við öll góðar minningar og var margt brallað í þeim. Við minnumst allra ferðalaganna til útlanda með hópnum, til Danmerkur, Frakk- lands, Spánar, Ítalíu, Þýska- lands og Marokkó. Við minn- umst þorrablótanna sem hópurinn hefur haldið reglulega í áratugi. Já það er margs að minnast þegar rifjaðar eru upp samveru- stundirnar með Ása. Við minn- umst einnig samverustundanna sem við áttum með Ása og Guð- björgu í Prag í Tékklandi og eins þegar við heimsóttum þau til Orlando í Flórída þar sem þau voru í golfferð, en Ási hafði tekið að spila golf og stóð sig vel í þeirri íþrótt. Í Orlando áttum við saman ljúfan tíma. Þá má ekki gleyma siglingunni sem við fórum saman í á skemmtiferða- skipi um Miðjarðarhafið. Sú sigling var ógleymanleg og úr henni eigum við yndislegar minningar. Þær verða ekki fleiri minningarnar um Ása sem skapast úr þessu en enginn get- ur tekið frá okkur minningarnar um ljúfan dreng og vin sem við munum geyma með okkur að ei- lífu. Guðbjörgu, Axeli, Mána, Brynju og fjölskyldum sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Guð blessi ykkur. Jón og Elsa. Ljósin slokkna, tjaldið fellur. Lífsins ljós okkar ljúfa vinar lýsir ei meir. Það er lán þegar vinum fjölg- ar á fullorðinsárum og að kynn- ast Ása og Guðbjörgu bætti sannarlega ógleymanlegum stundum við okkar líf og við upplifðum vináttu sem okkur er mjög kær. Við minnumst góðra stunda í Úthlíð og á Mýrum og utan- landsferða við skemmtilegustu iðju okkar allra sem er golfið. Ási var sannkallað ljúfmenni og ekki margt sem haggaði ró hans nema kannski þegar stuttu púttin „duttu“ ekki. Ási var skarpgreindur og mjög fróður um ótrúlegustu málefni sem gaman var að spjalla við hann um. Hann elskaði litlu fjölskyld- una sína meira en allt annað og sagði gjarnan sögur af afa- stráknum sínum. Missir þeirra er mikill. Ljósameistarinn er fallinn frá. Takk kæri vinur fyrir sam- ferðina. Guðbjörgu, Axel, Mána Snæ og Brynju sendum við okkar einlægustu samúðarkveðjur. Vilborg og Gunnar. Ásmundur Karlsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.