Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 56

Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 56
56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megináhersla er lögð á að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Áhersla er á traust og gagnsæi í samskiptum, jafnrétti, starfsánægju og heilbrigðan starfsanda. Gildi LRH eru traust, fagmennska og öryggi. Við embættið er laus til umsóknar ein staða aðstoðarsaksóknara á ákærusviði. Við ráðningar hjá LRH er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins. Helstu verkefni og ábyrgð • Umsjón með rannsókn og saksókn í málum sem honum eru falin og gerð rannsóknaráætlana í samræmi við fyrirmæli ríkissaksóknara. • Samhæfir sín verkefni við stefnu og markmið ákærusviðs og fylgir eftir áætlunum og ákvörðunum yfirstjórnar. • Sérfræðileg greining viðfangsefna og samskipti við aðila og stofnanir í tengslum við meðferð mála og úrlausn verkefna. • Almennt fyrirsvar og bein samskipti við ráðuneyti, önnur embætti, stofnanir og fjölmiðla um verkefni ákærusviðs að beiðni eða að höfðu samráði við sviðstjóra. • Sækir samráðsfundi ákærusviðs, almenna fræðslufundi og námskeið í samráði við sviðsstjóra og sækir fundi með sínum teymisstjóra. • Önnur verkefni sem honum eru falin af sviðsstjóra eða teymisstjóra og falla að starfinu eða samkomulag er um, s.s. á sviði gæðamála hjá LRH. • Fylgir reglum og fyrirmælum um skyldur opinberra starfsmanna og starfar og framkvæmir í samræmi við trúnaðaryfirlýsingu sem hann undirritar. Hæfniskröfur • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði. • Reynsla af málflutningi fyrir héraðsdómstólum og reynsla af meðferð sakamála er nauðsynleg. • Þekking á auðgunarbrotum og öðrum brotum er varða fjárréttindi, þ.m.t. peningaþvætti, er nauðsynleg. • Þekking á vátryggingarétti og reikningsskilum er kostur. • Reynsla af að meta sönnunargildi munnlegs framburðar er kostur. • Mjög góð samstarfsfærni, sveigjanleiki og jákvætt viðhorf er mikilvægt. • Sjálfstæði í samskiptum og vinnu, frumkvæði og skipulagshæfni er mikilvæg • Lausnamiðuð nálgun í starfi og metnaður til að ná árangri er mikilvæg • Mjög góð hæfni til að miðla upplýsingum er mikilvæg • Mjög gott vald á íslensku og ensku, talaðri og ritaðri Óskað er eftir að umsókn fylgi greinargóð ferilskrá yfir menntun og fyrri störf, staðfesting á námi og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknarinnar og rökstyður hæfni sína í starfið. Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla up- plýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996. Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert. Sækja skal um stöðuna með rafrænum hætti á vef starfatorgs, www.starfatorg.is. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 18.04.2022 Nánari upplýsingar veitir Hulda Elsa Björgvinsdóttir - hulda.elsa@lrh.is - 444-1000 Eygló Huld Jónsdóttir - eyglo.huld@lrh.is - 444-1000 Aðstoðarsaksóknari á ákærusviði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.