Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 61
DÆGRADVÖL 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022
Kringlunni | Glerártorgi | Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Specktrum.
EVELYN
BLÓMAVASI
Hæð: 35 cm
Verð 19.990,-
„MAMMA MÍN LEYFÐI MÉR AÐ FARA ÚT
AÐ LEIKA SVO MAMMA ÞÍN VERÐUR AÐ
LEYFA ÞÉR AÐ FARA ÚT. ÞETTA SNÝST UM
JAFNLEIKJASTEFNU.“
„AÐEINS ÞÚ BÓKAR FLUG KLUKKAN 4.30
UM NÓTT.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að njóta sumarsins
heima með krílunum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG MAN EFTIR JÓNU
KENNARA…
OG HROLL-
VEKJANDI
FRAMHALDIÐ
„ALGEBRA 2“
ÉG GRÉT VIÐ AÐ LESA
KENNSLUBÆKURNAR HENNAR…
„ALGEBRA“
LÆKNIR, ÞAÐ LÆÐIST SÍFELLT AÐ
MÉR SÁ ILLI GRUNUR AÐ ÉG BÚI
EKKI YFIR ÞVÍ SEM ÞARF TIL AÐ
VERA SANNUR VÍKINGUR!
MÉR ÞYKIR ÞAÐ LEITT,
EN ÞAÐ ER EKKI TIL
NEIN PILLA SEM EFLIR
SJÁLFSTRAUSTIÐ!
ÁTTU EITTHVAÐ SEM
SVÆFIR SAMVISKUNA?
ÁRBÓK
ÁRBÓK ÁRBÓK
Meðal kvikmynda, sjónvarps- og
bíóverkefna sem Ebba hefur tekið
þátt í eru Mannasiðir, Venjulegt
fólk, Agnes Joy, Áramótaskaupið og
stuttmyndin Samræmi. Ásamt því
hefur Ebba einnig leikið í sjónvarps-
auglýsingum og talað inn á auglýs-
ingar fyrir sjónvarp.
„Helsta áhugamál mitt er sjálft
leikhúsið sem er vinnustaðurinn
minn og ég er þakklát fyrir það. En
ásamt því er það að hitta fjölskyldu
mína og vini, ferðalög í góðra vina
hópi, íþróttir og tónlist.
Á sumrin og á haustin hef ég í 12
ár alltaf farið í sveitina til vinkonu
minnar í Eystri-Geldingaholti, sem
er rétt hjá Árnesi og Flúðum og að-
stoða við sauðburð og réttir. Ég
reyni að missa ekki af því að komast
aðeins út í náttúruna.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Ebbu er Oddur
Júlíusson, f. 21.6. 1989, leikari. Þau
eru búsett á Ásvallagötu í Reykja-
vík. Foreldrar Odds eru hjónin Sig-
rún Guðmundsdóttir, f. 15.1. 1959,
feldskeri og ritari í háskóla-, iðn-
aðar- og nýsköpunarráðuneytinu, og
Júlíus Þórarinn Steinarsson, f. 1.12.
1958, feldskeri og vínráðgjafi hjá
ÁTVR. Þau eru búsett í Vesturbæ
Reykjavíkur.
Bræður Ebbu eru Árni Grétar
Finnsson, f. 14.5. 1990, lögfræð-
ingur, búsettur í Kópavogi; Oliver
Páll Finnsson, f. 21.9. 1995, flug-
maður, búsettur í Hafnarfirði, og
Viktor Pétur Finnsson, f. 26.10.
1999, nemi, búsettur í Hafnarfirði.
Foreldrar Ebbu eru hjónin Anna
María Urbancic, f. 26.6. 1995, rekstr-
arstjóri háskóla-, iðnaðar- og ný-
sköpunarráðuneytis, og Finnur
Árnason, f. 12.9. 1961, rekstrar-
hagfræðingur. Þau eru búsett í
Hafnarfirði.
Ebba Katrín
Finnsdóttir
Finnur Árnason
húsasmíðameistari og
verkstjóri á Akranesi
EyglóGamalíelsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
og á Akranesi
Árni Grétar Finnsson
hæstaréttarlögmaður og ljóðskáld í Hafnarfirði
Sigríður Oliversdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Finnur Árnason
rekstrarhagfræðingur,
býr í Hafnarfirði
Oliver Guðmundsson
vélsetjari og tónskáld í Reykjavík
Lovísa Edvardsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Dr. Victor Urbancic
hljómsveitarstjóri og tónskáld í
Vín og í Reykjavík
Dr.Melitta Urbancic
myndhöggvari og skáld
í Vín og í Reykjavík
Pétur Marteinn Páll Urbancic
hljóðfæraleikari, leiðsögumaður,
skjalaþýðandi og fv.
bankafulltrúi, býr í Reykjavík
Ebba Ingibjörg Egilsdóttir Urbancic
kennari í Reykjavík
Egill Sigurgeirsson
hæstaréttarlögmaður í Reykjavík
Ásta Jóhanna Jónsdóttir Dahlmann
húsfreyja í Reykjavík
Ætt Ebbu Katrínar Finnsdóttur
Anna María Urbancic
rekstrarstjóri háskóla-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðuneytis,
býr í Hafnarfirði
Í fréttum á dögunum var frá því
skýrt, að skóglendi þekti nú 2%
af yfirborði landsins í stað 1% áður,
ef ég fer rétt með. Svo skildist að
minnsta kosti karlinum á Lauga-
veginum. Hann kvað:
Margt mig þreytir mjög og ásýnd breyt-
ir.
Tætingsleg og tálguð öll
tré og runnar upp um fjöll.
Ingólfur Ómar fór í sextugs-
afmæli á laugardagskvöldið og þá
kom þessi:
Gleðin verður fersk og fróm
fyllir hjartatómið.
Þegar vínið vætir góm
og vökvar sálarblómið.
Ingólfur Ómar orti á feisbók:
Víkja burtu veðrin stinn
vetrarharmur dvín.
Blærinn hjalar blítt við kinn
blessuð sólin skín.
Moldareim úr flagi finn
fyllir vitin mín.
Á furugrein er fuglinn minn
að flytja kvæðin sín.
Pétur Stefánsson gaukaði að mér
þessari stöku um vorboðann ljúfa:
Vísast getur veðrið gott
varg úr geði hrakið.
Vetrarhrolli víkur brott
vorsins þrastakvakið.
Ármann Þorgrímsson segir frétt-
ir af Búnaðarþingi á Boðnarmiði:
Virðist stundum vitlaust gefið
varnar þráður kærleiks spunninn
en Lilja fyrir neðan nefið
nákvæmlega hefur munninn.
Bjarni Sigtryggsson orti:
Kátt var hjá bændum og bús
og blíðuhót rífleg og fús.
En Lilja stóð kyrr,
rak karla á dyr;
hún kærði sig ekkert um knús.
Lilja vísaði formanni bænda-
samtakanna á dyr úr móttökuhátíð
framsóknarmanna. Magnús Hall-
dórsson kvað:
Mjög var Gunnar til faðmlaga fús
og fór inn í samkomuhús.
Vonglaður hann,
þar valkyrju fann.
En hún vildi ekki vinskap og knús.
Kári Erik Halldórsson yrkir „úr
fordyri Framsóknar“:
Hún leynir víst á sér hún Lilja,
og lýtur ei bændanna vilja.
Hún segir þá sóða,
sem blíðuhót bjóða.
En skepnurnar seint virðast skilja.
Friðrik Steingrímsson yrkir um
„veðrið á rúv í kvöld“:
Enn er þessi tíð til tjóns,
traðkar nærri meti.
Soðlappinn hann Siggi Jóns
sífellt spáir hreti.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Tré og runnar upp um fjöll